Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Side 2
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 Fréttir DV Heilbrigðiseftirlit Kópavogs grípur inn í húsnæðismál útlendinga: Níu manns búa á geymslu lofti yfir bílaverkstæði - þvingunarúrræðum beitt og málið kært til lögreglu Níu útlendingar búa á geymslu lofti yfir bílaverkstæði í Garðabæ Mennirnir eru frá Portúgal og Bras ilíu, að því talið er. Heilbrigðiseftir lit Hafnarfjarðar og Kópavogssvæð is hefur haflð nauðsynlegar aðgerð ir og sent málið til lögreglu. Guðmundur H. Einarsson, fram- kvæmdastjóri heObrigðiseftirlits- ins, sagði við DV að það hefði upp- götvast í síðasta mánuði að menn- irnir byggju á geymsluloftinu. Eig- andi bílaverkstæðisins og geymslu- loftsins segðist hafa leigt þaö til annars iðnaðarfyrirtækis, sem aftur leigði mönnunum það til íbúðar. Þeir væru ekki í vinnu hjá verk- stæðiseigandanum heldur hjá leigu- taka geymsluloftsins. Guðmundur sagði að heilbrigöis- eftirlitið hefði gert kröfu um að geymsluloftið yrði rýmt án tafar þegar upp komst að mennirnir byggju í því. Við því hefði ekki ver- ið brugðist þannig að eftirlitið yrði að taka málið upp að nýju og beita þvingunarúrræðum sem væru dag- sektir á húseigandann. Honum yrði tilkynnt um þær innan skamms, eft- ir að heilbrigðisnefnd hefði komið saman til funda. sem yrði á næst- Húsnæðlð í Kópavogi Guömundur H. Einarsson, framkvæmdastjóri heilbrigöiseftirlitsins, sagöi viö DV aö þaö heföi uppgötvast í síöasta mánuöi aö mennirnir byggju á geymsluloftinu. „Fólk á ekki að búa á geymsluloft- um, jafnvel þótt húsnæðið sé gott til síns brúks. Það er í sjálfu sér ekki illa búið að mönnunum. Þama er ekki sóðaskapur, þeir hafa rúm, eld- unaraðstöðu og hreinlætisaðstöðu. Maður hefur séð það verra. En það afsakar ekki að mennirnir búi þarna,“ sagði Guðmundur. „Þeir sem eru með starfsmannabústaði þurfa að uppfylla ákveðna reglu- gerð. Öll fyrirtæki sem útvega mönnum aðstöðu til íbúðar verða að uppfylla reglugerðina. Geti þeir það ekki verða þeir að útvega þeim dvöl í samþykktu íbúðarhúsnæði eða á gistiheimili. Fólk á ekki að búa í geymslum, skúrum eða öðru slíku húsnæði. Slíkt er brot á lögum og reglum og er meðhöndlaö sam- kvæmt því.“ -JSS Regnbogaböm verða stofnuð í dag Leikarinn Stefán Karl Stefánsson vann í gær aö undirbúningi stofnfundar samtakanna Regnbogabarna. Fundurinn veröur haldinn í Þjóöleikhúsinu, hefst klukkan 14 og er öllum opinn. Ótti vegna hugsanlegs Kötlugoss: Engin merki um yfir- vofandi stórgos - segir Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur Ole Lund Kírkcgaard Gúmmí- Tarsan Húrra! Gúmmí- Tarsan er kominn aftur Gúmmi-Tarsan kom fyrst út á íslensku árið 1978 og vakti gífurlega hrifningu lesenda. Jph JPV ÚTGÁFA Bræðraborqarstígur 7 Síml 575 5600 Gúmmí-Tarsan heitir réttu nafni Ævar Ólsen og hann er í rauninni bæði lítill og mjór og ólaglegur að auki. Honum gen'gur illa að læra að lesa og hann kann ekki að spila fótbolta, hvað þá að hann geti spýtt í stórum boga eins og stóru strákarnir. Hann er heldur ekki vitund sterkur og hann getur ekki lumbrað á neinum. Einn daginn rekst Ævar Ólsen af tilviljun á ósvikna galdranorn - og allt í einu er Ævar Ólsen orðinn drengur sem getur óskað sér hvers sem hann vill. Að minnsta kosti í einn dag ... í framhaldi af fundi Al- mannavarnanefndar í Vík í Mýrdal í fyrrakvöld fóru af stað í gær sögur um að búið væri að gefa út viðvörun vegna yfirvofandi eldgoss í Kötlu. Var þetta m.a. sent út á netmiðlum en að sögn Ragnars Stefánssonar jarð- skjálftafræðings hefur engin slík viðvörun verið gefin út. „Raunveruleikinn er sá að undanfarið ár hefur verið minni háttar þensla undir Mýrdalsjökli á Kötlusvæðinu. Þetta hefur komið fram í aukningu smáskjálfta. Þá sýna GPS-mælingar lítils háttar þenslu í fjallinu. Einnig er lítils hátt- ar aukning í jarðhitavirkni undir jöklinum sem kemur fram í því að sigkatlar sem fyrir eru hafa dýpkað lítillega. Þetta er hins vegar miklu minni merki en við búumst við á undan Kötlugosi," sagði Ragnar Stef- Ragnar Stefánsson. ánsson í samtali við DV síð- degis í gær. Hann segir að þetta gefi samt sem áður vísbending- ar um að menn verði að vera betur á verði. Þess vegna hefur hópur vísinda- manna verið að ræða sam- an og skoða hvaða mæling- ar hægt er að gera til við- bótar til að fá gleggri mynd af ástandi eldfjallsins. „Við sjáum þó engin merki um að stórgos sé í aðsigi." Ragnar segir hugsanlegt að þetta gæti verið forboði smáhlaupa und- an jökli líkt og 1999 er hlaup kom í Jökulsá á Sólheimasandi. Talið er líklegt að það hlaup hafi stafað af lítilli gosspýju undir ís. Slíkt átti sér líka stað 1955 er hlaup varð í Múlakvísl. Þetta hafi þó ekki verið neitt í líkingu við það sem gerist í Kötlugosi eins og 1918. -HKr. Víða fært jeppum á hálendinu Fært er á jeppum um helstu hálendisvegi landsins en öruggara er þó að ferðast á breytt- um jeppum á sumum vegarköílum. Strax í fyrstu snjóum á haustin hættir Vegagerðin að þjónusta hálendisveg- ina og lítur á þá sem ófæra eftir það, hvort sem það á við rök að styðjast eða ekki. Þeir sem ferðast um hálend- ið á þessum árstíma gera það því á eig- in ábyrgð. í gær var verið að moka snjó á nokkrum heiðum í byggð, s.s. Holta- vörðuheiði og Kerlingarskarði. Hálku- blettir voru víða á vegum á Vestfjörð- um og Norðausturlandi. Greiðfært er því víða um land. Hafsteinn Eiriksson og Kristin Hveravelllr Þar er enn lítt vetrarlegt en um helgar fer þar um nokk- ur hópur rjúpnaskyttna og útilífsfólks. Bjömsdóttir eru nú að byija þriðja vetur sinn viö veðurathuganir á Hveravöllum ásamt tík- inni Pollýju. Hafsteinn segir litinn snjó þama upp frá, sól og bjart en enga umferð. Umferð hafl hins vegar verið sið- ustu helgar og hann eigi áfram von á umferð með- an veður versnar ekki. Það séu aðallega ijúpna- skyttur sem þama birtist en þar sé fremur lítið um ijúpu. Frá Hveravöllum era 10 km að Seyðisá það- an sem upphækkaður vegur er alla leið niður í Blöndudal. Frá Hveravöllum að Blönduvirkjun era 73 km en 90 km að Geysi ef haldið er í suðurátt. Það er því ábyrgöarleysi að vera þama einn á ferð á þessum árstíma. -GG Aftur til starfa Halldór Ásgríms- son utanríkisráð- herra ætlar að sækja leiðtogafund Atlantshafsbanda- lagsins sem fram fer í Prag í Tékk- landi 21. og 22. nóv- ember nk. Þá mun utanríkisráðherra opna formlega nýja verksmiðju Pharmaco á Möltu og heimsækja fyrirtæki á vegum Lánstrausts á sama stað. Halldór hefur sem kunnugt er verið i veik- indaleyfi að undanfórnu. Mbl.is greindi frá. Krónan styrkist Gengi íslensku krónunnar hækk- aði um 0,23% í gær. Gengisvísitala hennar lækkaði úr 128,60 stigum í 128,30 stig. Þunguö eftir ófrjósemisaögerö íslenska ríkið var í gær sýknað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af tveggja milljóna króna skaðabóta- kröfu konu sem hafði gengist undir ófrjósemisaðgerð. Aðgerðin fór fram á Landspítalanum í maí 1999 en konan varð þunguð skömmu síðar. Hlaut Jónasarverðlaun Jón Böðvarsson, sagnamaður og fyrrum skólastjóri, fékk í gær Verð- laun Jónasar Hall- grimssonar. Verð- launin voru veitt við hátíðlega athöfn á Egilsstöðum. Verðlaunin eru veitt fyrir störf í þágu íslenskrar tungu og segir m.a. í áliti ráðgjafanefndar að Jón hafi ætíö verið trúr þeirri sannfæringu sinni að íslenskar fomsögur ættu brýnt erindi við nútímann. Þannig hafi hann átt stærri þátt en flestir núlifandi íslendingar í að opna töfr- andi heim íslendingasagna fyrir nýjum lesendum. Reyna samninga viö LÍ Forstjóri Norður- ljósa, Sigurður G. Guðjónsson, vonast eftir því að samn- ingar við Lands- bankann gangi bet- ur eftir að nýir eig- endur eignast ráð- andi hlut í bankan- um. Héraðsdómur hefur dæmt Norðurljós til að greiða 265 milljóna króna yfirdráttarskuld. Flugvél hlekktist á Eins hreyfils kennsluflugvél hlekktist á í lendingu á Sandskeiði um sexleytið í gær. Annar vængur vélarinnar rakst í jörðina. Flugmaður og tveir farþegar sluppu ómeiddir. Lögregla rannsakar tildrög slyssins. Loftferðasamningar í Asíu Sendinefnd á vegum utanríkis- og samgönguráðuneyta hélt í gær áleiðis til Asíu þar sem vinna á að gerð loftferðasamninga við sex ríki. íslenska sendinefndin mun eiga fundi með flugmálayfirvöldum í Kína, Japan, Singapúr, Hong Kong, S-Kóreu og Makao. Kosið í desember Allt útlit er fyrir að kjósendur í Borgarbyggð gangi að kjörborðinu í byrjun desembermánaðar. Sameig- inlegur fundur bæjarráðs Borgar- byggðar og yfirkjörstjómar, sem fram fór í gær, leggur til að kosning- amar fari fram 7. desember. Tillag- an verður lögð fram í bæjarstjórn og hefur fundur verið boðaður á morgun. Fastlega er búist við að tU- lagan verði samþykkt. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.