Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Blaðsíða 10
10 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason Rltstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritsfjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sfmi: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plótugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viömælendum fyrir viötöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Lifandi tunga Dagur íslenskrar tungu er hald- inn hátíðlegur um allt land í dag. Sjö ár eru frá því þáverandi menntamálaráðherra, Björn Bjarna- son, lagði til að einn dagur á ári yrði helgaður islenskri tungu og varð fæðingardagur þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvem- ber, fyrir valinu. Það var vel til fundið að heiðra minningu Jónasar með þessum hætti. Hann er að mörgu leyti táknmynd ís- lenskrar tungu en ljóð hans og kvæði varðveita íslenska tungu í sinni glæsilegustu mynd. Á þessum degi verður mönnum tíðrætt um tungumálið. Það er vel. Skoðanaskipti um móðurmálið þurfa að vera líf- leg á öllum stundum. íslensk tunga á að vera landsmönnum hjartans mál og umræða um þróun hennar á að vera þrung- in tilfinningum og hita. Og það kemur enda á daginn að í hvert sinn sem íslensk tunga breytir um svip eða sækir nýj- ungar til annarra landa þá geysast menn hver um annan þveran fram á ritvöllinn og hrópa vígorð sem hæfa ólíkum skoðunum manna. Nú síðast hefur ný orðabók hreyft við mönnum. Mörgum íhaldsmanni hefur svelgst á við lestur hennar en á nærfellt 1900 síðum bókarinnar er að finna mörg tökuorð úr erlend- um málum sem falla misjafnlega vel að gömlum töktum tungunnar. Umræðan um nýju orðabókina hefur snúist um það hversu langt menn eigi að ganga í að fylgja raunveru- legri þróun málsins. Á bókin að vera vitnisburður um tungumál götunnar? Á bókin að spegla aldarháttinn? Á hún að segja shit og fuck? Hér verður því haldið fram að svarið eigi að vera jákvætt við hvorutveggja spurningunum. íslensk tunga lifir ekki öðruvísi en hún fái að laga sig að breyttum heimi. Að öðr- um kosti einangrast tungumálið sjálft, að öðrum kosti verð- ur einfaldlega ekki hægt að beita því til að tjá hugsanir líð- andi stundar. Það hlýtur hins vegar að vera áfram kapps- mál allra sem vilja láta taka sig alvarlega í umræðu dagsins að tala góða og skýra íslensku og reyna á fjölbreytni henn- ar og dynti. Umræður um íslenska tungu eru gjaman kostulegar í samfélaginu. Þær snúast sjaldnast um aðalatriði málsins sem er að tala það og nota svo aðrir skilji. Miklu oftar er fjargviðrast út í sjálfsagða hluti eins og þá hvort leyfa eigi notkun tökuorða í ritmáli, ellegar hvort útlendingar sem vilja setjast að hér á landi megi áfram bera skírnarnöfn sín. Og alltof oft er íslenskri tungu stillt upp sem litlum ósjálf- bjarga hvítvoðungi við hlið hrikalegrar grýlu sem enskan er oft á tíðum talin vera. íslenskan hefur lifað norskar aldir og danskar og mun vissulega lifa enskar aldir. Umræða um íslenskt mál á ekki að snúast um það hvort þeir sem byggja landið geta haldið í því lífi, heldur hvernig þeir geta það. Umræða um íslensk- una á ekki að bera það eilíflega með sér að unnendur henn- ar séu í vörn og hinum megin horns bíði hættulegir menn sem ætli að ræna fólkið tungunni. íslensk tunga er íslensk vitund og hugsun, hluti lífsandans. Enskan er annað tungu- mál, önnur menning. Á degi íslenskrar tungu er við hæfi að fletta tveimur kjör- gripum sem hafa verið að koma út á bókfelli á síðustu dög- um. Hér að ofan var ný orðabók Eddu - miðlunar og útgáfu nefnd. Ónefndur er Orðaheimur Jóns Hilmars Jónssonar, með glæsilegri bókum sinnar tegundar sem komið hafa út hér á landi i árafjöld. Báðar þessar bækur eru á metsölulist- um. íslendinga þyrstir í orðabækur. Þeir eru áhugamenn um íslenskt mál. Og munu áfram lifa með lifandi tungu á vörum sér. Sigmundur Ernir. LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 DV Víst hefur hún aukist Olafur Teitur Guönason blaöamaöur Reglulega skýtur upp kollinum umræða um áhrif þess, að undan- farin ár hefur persónuafsláttur ekki hækkað í takt við tekjur. Kristján Már Unnarsson, frétta- maður á Stöð 2, gerði nýverið nokkrar fréttir um þetta sem vöktu verðskuldaða athygli. Hann sýndi fram á með skýrum dæmum að fólk greiðir hærra hlutfall tekna sinna en áður í skatt þrátt fyrir að tekju- skattsprósentan hafi verið lækkuð. Af einhverjum völd- um virðist stjórnvöldum mjög í mun að loka aug- unum fyrir þessari stað- reynd. „I fyrra dœminu hrifsar ríkið til sín stærri hluta en áður - en getur vitan- lega stœrt sig af því við launamanninn að kaup- máttur hans hafi nú þrátt fyrir allt aukist um 39,2%!“ Raunin er þessi Þetta voru ímynduð dæmi, byggð á tölum völdum af handa- hófi. Hver hefur þá raunin veriö? í úttekt ASÍ og BSRB, „Skatt- kerfiö frá sjónarhóli launafólks" sem gefin var út í september 1999, fréttum sínum - að einstaklingur sem hafði árið 1995 100.000 krón- ur í mánaðarlaun, sem hafa síðan hækkað samkvæmt launavísi- tölu, myndi í dag greiða 25.700 í skatt hefði skattkerfið haldist óbreytt, skattprósentan væri 41,93% eins og þá og persónuaf- sláttur hefði hækkað til jafns við laun. En vegna þess að persónuaf- sláttur hefur hækkað minna en laun þarf þessi sami launamaður í dag að greiða 34.300 krónur í skatt á mánuði - þrátt fyrir að skattprósentan hafi lækkað. Augunum lokað í nýjasta tölublaði Viðskipta- blaðsins eru þrír einstaklingar spurðir hvort skattbyrði almenn- Aðeins um áhrifin Áður en vikið er að því er rétt að rifja upp hvemig það gerist að skattbyrði eykst í kjölfar þess að persónuafsláttur hækkar minna en laun. Dæmi um þetta eru sýnd í meðfylgjandi töflum. í þeim báðum er miðað við láglaunamann með aðeins 80.000 krónur í tekjur á mánuði á fyrsta ári. Hlutfallsleg hækkun tekna og persónuafslátt- ar er hér ákveðin af handahófi, enda aðeins ætlunin að draga fram samvirkandi áhrif þess- ara þátta. Skattprósent- an er í báðum dæmum óbreytt öll árin, 38,75%. í efri töflunni hækka laun um 10% á ári en persónuafsláttur aöeins um 5% á ári. Á fimm árum þýðir þetta að mánaðarlegar skatt- greiðslur hækka um rif- lega 10.000 krónur, eða um hvorki meira né minna en 91,5%. Að vísu hefur launamaðurinn ástæðu til að fagna svolit- ið líka, því að mánaðar- legar ráðstöfunartekjur hans hækka um 27.000 krónur, eða 39,2%. En eft- ir stendur hins vegar, að skattbyrðin - hlutfall skatta af heildarlaunum - eykst úr 13,8% í 18%. Ókeypis leiðrétting Því er stundum haldið fram að það sé of dýrt að láta skattleysismörk fylgja launa- þróun. Staðreyndin er hins vegar sú að það kostar ríkið nákvæm- lega ekki neitt! Þetta sést í neðri töflunni. Þar hækka bæði laun og persónuaf- sláttur um 10% á ári. Þetta þýðir að ráðstöfunartekjur launa- mannsins hækka á fimm árum um 32.000 krónur á mánuði, eða um 46,4%. Skyldu skatttekjur rík- issjóðs minnka við þetta? Vitan- lega ekki; á fimm árum HÆKKA þær um ríflega 5.000 krónur á mánuði, eða um nákvæmlega sömu 46,4% og ráðstöfunartekjur launamannsins. Skattbyrðin helst því óbreytt í 13,8%. í neðra dæminu skipta ríkið og launþeginn launahækkun verka- mannsins bróðurlega á milli sín, i sömu hlutfölium og gert var áöur. I fyrra dæminu hrifsar ríkið til sín stærri hluta en áður - en get- ur vitanlega stært sig af því við launamanninn aö kaupmáttur hans hafi nú þrátt fyrir allt auk- ist um 39,2%! Tekjur hækka um 10% en persónuafsláttur um 5% á Ár 1 Ár 2 Ár 3 Ár 4 Ár 5 ári Breyting %-breyting Tekjur 80.000 88.000 96.800 106.480 117.128 37.128 46,4% Persónuafsláttur 20.000 21.000 22.050 23.153 24.310 Greitt í skatt 11.024 13.126 15.489 18.140 21.112 10.088 91,5% Tekjur eftlr skatt 68.976 74.874 81.311 88.340 96.016 27.040 39,2% Skattbyröi 13,8% 14,9% 16,0% 17,0% 18,0% Tekjur og pers ónuafsláttur hækka um 10% á ári Ár 1 Ár 2 Ár 3 Ár 4 Ár 5 Breyting %-breyting Tekjur 80.000 88.000 96.800 106.480 117.128 37.128 46,4% Persónuafsláttur 20.000 22.000 24.200 26.620 29.282 Greltt í skatt 11.024 12.126 13.339 14.673 16.140 5.116 46,4% Tekjur eftir skatt 68.976 75.874 83.461 91.807 100.988 32.012 46,4% Skattbyröi 13,8% 13,8% 13,8% 13,8% 13,8% tekjuskatt! Eyðslusöm vinstristjórn myndi sjálfsagt fagna þvf, en mér finnst slík skattpíning ekki fögur framtíðarsýn. Mín framtíðarsýn er hins vegar sú að ríkið lækki tekjuskatt einstakiinga mjög verulega og afnemi hátekju- og eigna- skatta." Tekjuskattar lækkað töluvert síðustu ár Þórlindur Kjartansson, ráðgjafi fjármálaráðherra „Tekjuskattar hafa lækkað töluvert á síðustu árum bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Þessar skattalækkanir, ásamt almennum breytingum í frjáisræðisátt í sam- félaginu, hafa stuðlað að mjög auknum um- svifum í fslensku atvinnulífi é síðustu árum. Þessi aukning umsvifa sést best f því að hér hefur hagvöxtur verið mikill, ný störf hafa orðið til, og kaupmáttur vaxið meira en áður í sögunni. Við hin auknu umsvif hafa skatt- stofnar oinnig gefið af sér meiri tekjur en fyrr. Það jafngildir ekki aukinni skattbyrði. Það er markmið stjómvalda að stuðla að aukinni verðmætasköpun í samfélaginu. Einföldun skattkerfisins er hluti af þeim forsendum sem sú stefna byggist á og það að nú skuli fleiri íslendingar en áður vera í þeirri stöðu að vera yfir svokölluðum skattleysis- mörkum er til marks um bætta stöðu launafólks. Þriðjungs aukning kaupmáttar á sfðasta áratug segir einnig sína sögu en kaupmáttur segir til um kaupgetu fólks eftir að skattar hafa verið greiddir. Það þarf enginn að efast um að stefna Sjálfstæðisflokksins er að lækka skatta enn frekar. Með áframhaldandi aðhaldi og niðurgreiðslu skulda mun gefast tækifæri til þess." Þórlindur Kjartansson kemur meðal annars fram að árin 1996-1999 hafi dagvinnulaun sam- kvæmt launavísitölu hækkað um 23,4% en persónuafslátturinn á sama tíma um aðeins 5,1%. „Ljóta“ dæmið hér að ofan er því síst of ljótt, enda munurinn á hækkun launa og persónuafsiátt- ar þar „ekki nema“ tvöfaldur á fimm ára tímabili. Vísitölutenging persónuafslátt- ar var alfarið afnumin 1996. í tengslum við kjarasamninga árið 2000 ákvað ríkisstjórnin hins veg- ar að hækka hann í samræmi við almennar umsamdar launabreyt- ingar. Samkvæmt forsendum Þjóðhagsspár um launahækkanir á ári dugar þetta hins vegar ekki til; það stefnir í að skattbyrðin aukist enn árið 2003, að þessu sinni úr 11% í 11,4% hjá einstak- lingi sem hefur 100.000 krónur í laun á mánuði en hlutfallslega minna eftir því sem tekjurnar eru hærri. ASÍ hefur reiknað út - og það er dæmið sem Stöð 2 nefndi í ings hafi aukist. Einn þeirra er Þórlindur Kjartansson, ráðgjafi fj ármálaráðherra. Þórlindur svarar ekki spurningu blaðsins. Það eina sem hann segir um skattbyrði er þetta: „Við hin auknu umsvif hafa skattstofnar einnig gefið af sér meiri tekjur en fyrr. Það jafngildir ekki aukinni skattbyrði." En hefur hún þá aukist? Því er ekki svarað. í staðinn grípur Þórlindur þá gæs, sem nefnt var í dæminu hér að ofan að stjórnvöld í „ljóta“ dæminu gætu gripið: Hann bendir á að kaupmáttur hefur aukist. Það er vitanlega alveg rétt. Hitt er líka rétt, að ASÍ gerði það ekki - a.m.k. ekki lengi vel - að meginbaráttumáli að per- sónuafsláttur hækkaði í takt við almenna launa- vísitölu. Það sjónarmið hefur þótt eiga við rök að styðjast að jafna eigi sveiflur í efnahagslífinu í gegnum skattkerfið, þannig að skattbyrði auk- ist í uppsveiflu en minnki i niðursveiflu. Þetta er umdeilanleg réttlæting fyrir því sem hér er deilt um: Við hljótum að gera ráð fyrir því að hagur fólks vænkist til langs tíma litið - sú hefur enda veriö raunin i allmarga mannsaldra - og ef það gengur eftir mun skattbyrðin fara stöðugt vaxandi í óbreyttu kerfi. Eru allir sáttir við það? Eigi að vera nokkur von til þess að fá fram vitrænar umræð- ur um mögulegar breytingar á skattkerfinu - til dæmis um þá hugmynd sem mörgum finnst fýsileg, að lækka skattprósentuna um helming eöa svo, afnema per- sónuafslátt, en veita þess i stað sérstakan skattaafslátt vegna harna og annarra aðstæðna - hlýtur að minnsta kosti að vera grundvallaratriöi að menn horfist í augu við þær staðreyndir sem liggja á borðinu. Eða eru kannski að mati stjóm- valda engin takmörk fyrir því hve skattbyrðin má aukast mikið - svo lengi sem kaupmáttur hækkar?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.