Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Blaðsíða 32
32 H&lgarhlað DV LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 Söngvarinn fljúgandi Kristinn Sigmundsson er ntjbúinn að taka þátt ísex tíma frumsgningu Meistara- söngvara Wagners íCovent Garden. Hann er líka að sgngja Rósariddarann íKöln og Basilió ííslensku óperunni ínokkrum sgn- ingum. Kristinn er vanur að búa í ferða- tösku og flugvél en næstu vikur verða óvenju annasamar. Þegar grípa þarf til orða til þess að lýsa Kristni Sigmundssyni þá getur eitt orðabil breytt merking- unni. Það væri hægt að segja að Kristinn sé stór- söngvari en það mætti líka segja að Kristinn sé stór söngvari. Hvort tveggja er rétt. Kristinn hefur áratugum saman verið í fremstu röð íslenskra óperusöngvara og hefur sungið á sviðum flestra þekktustu óperuhúsa heimsins, sama hvort er austan hafs eða vestan. Það er fróð- legt að slá nafni hans inn í leitarvélar hins alltum- lykjandi Internets og sjá hve víða hann kemur við sögu. Þar fljóta upp borgarnöfn eins og Amsterdam, London, New York, Barcelona, París, Hamborg, Köln, Mílanó, Berlín og Reykjavík. Þar bregður fyr- ir nöfnum hljómsveitarstjóra eins og James Levine, Riccardo Muti, Bernard Haitink og Sir Colin Davis og þar eru nefndar margverðlaunaðar upptökur þar sem Kristinn syngur hlutverk Sarastros i Töfraflautunni og margt fleira er tínt til sem of langt mál yrði upp að telja. Hér er vitnað í netsíð- ur og vefsetur því sjálfur setur Kristinn ekki á langar ræður um afrek sín. Hann lætur verkin tala eða syngja öllu heldur. Á leiðinni heim Þótt Kristinn starfi einkum við óperuhús i Evr- ópu, sérstaklega í Frakklandi og Þýskalandi, er hann tengdur heimalandi sínu afar sterkum bönd- um og lögheimili hans og bækistöð er á íslandi og þar hefur fjölskylda hans búsetu og Kristinn reyn- ir að vera sem mest samvistum við hana yfir sum- arið sem er rólegur tími í óperuheiminum en á vet- urna dvelst hann að mestu utan lands. Um þessar mundir er verið að sýna í íslensku óp- erunni gamanóperuna Rakarann í Sevilla. Skemmst er frá því að segja að uppfærslan hefur fengið feiknagóðar viðtökur og gagnrýnendur hafa keppst við að hlaða sýninguna lofi og áhorfendur hafa ekki látið sitt eftir liggja því þeir hafa þyrpst Kristiiin hefur sungiö á íslenskum sviðum áður og þetta er elsta myndin sem fannst í myndasafni DV en þarna er stórsöngvarinn á sviði Þjóöleikliússins árið 1985 að syngja í Grímudansleiknum. Kristinn Sigmundsson er heimavanur á sviðum stærstu óperuhúsa heimsins. Hann er saint á leiðinni heim til að syngja í íslensku óperunni í nokkur skipti. í gamla bíóhúsið við Ingólfsstræti til að hlýða á raunir rakarans. Laugardaginn 16. nóvember, sem glöggur lesandi sér að er einmitt í kvöld, stígur áður áminnstur Kristinn Sigmundsson einmitt á sviðið í íslensku óperunni og syngur hlutverk Basilios á heimavelli í eiginlegri merkingu þess orðs. Þetta verður sú fyrsta af fimm sýningum sem Kristinn syngur hér heima að þessu sinni. Kristinn kemur ekki til landsins fyrr en að morgni laugardagsins því hann er að syngja í London þar sem hann tekur þátt í uppfærslu á Meistarasöngvurum Wagners í Covent Garden. Það var að morgni frumsýningardags sem DV náði tali af söngvaranum sem kvaðst ekki vera taugaóstyrk- ur. „Þetta er talsvert viðamikil sýning og mikil við- höfn. Ég hef verið hérna viðloðandi siðustu vikur við æfingar ásamt því að skjótast annað slagið til Köln til að syngja í Rósariddaranum eftir Richard Strauss. Ég verð hérna í öllum sýningunum á Meistarasöngvurunum sem ná rétt fram yfir mán- aðamótin svo það verða mikil ferðalög á mér milli Islands og London,“ sagði Kristinn. Þess má geta að uppfærslan á Meistarasöngvurunum í Covent Gar- den varir í sjö klukkustundir með tveimur hléum. Kristinn segist ekki vera nema í meðalstóru hlut- verki. „Sá sem syngur aðalbassahlutverkið er á sviðinu mikið af tímanum og er algerlega úrvinda eftir hverja sýningu. Ég myndi þurfa 2-3 ára aðlögun ef til þess kæmi að ég tæki það að mér.“ - Kristinn er hins vegar ekki alveg ókunnugur hinum flærðarfulla þrjóti, Basilio, í Rakaranum í Sevilla því hann hefur sungið hlutverkið áður í þremur uppfærslum í París, Hamborg og Genf. „Ég hlakka mikið tO að koma heim og taka þátt í þessari uppfærslu. Ég hef ekki séð sýninguna en hef ekkert heyrt nema vel af henni látið en var við- staddur nokkrar æfingar og fagna því sérstaklega að við skulum vera búin að eignast ungan leik- stjóra sem er sérmenntaður í óperuuppfærslum." Að leika Skrattann - Núverandi stjórnendur Parisaróperunnar hafa mikið dálæti á Kristni og undanfarin ár hefur hann sungið hvert stórhlutverkið á fætur öðru á fjölun- um þar. „Eftir áramótin liggur leið Kristins einmitt til Parísar þar sem hann syngur hlutverk Mefistofeles- ar í Faust eftir Gounod og hluterk Gurnemanz í Parsifal eftir Wagner. Þaðan liggur leiðin til San Francisco þar sem hann syngur í Fordæmingu Fausts eftir Berlioz og aftur er það hlutverk myrkrahöfðingjans. Ertu orðinn vel kunnugur Skrattanum? „Ég vildi nú ekki hitta hann sjálfur," segir Krist- inn og hlær. „En það er gaman að þeim gamla. Það er húmor bak við illskuna og hann er aldrei leiðinlegur." - Fyrir jólin kemur út hljómdiskur með söng Kristins og píanóleik Jónasar Ingimundarsonar en samstarf þeirra félaga er rómað og víðfrægt eftir ótalda tónleika um land allt og vel heppnaðar hljóð- ritanir. Hvað er á þessum diski? „Þetta eru lög sem við höfum dálæti á og höfum oft flutt saman. Diskurinn var tekinn upp fyrir rúmu ári en ákveðið að láta hann liggja og biða og svo hlustuðum við á upptökurnar í sumar og ákváðum að gefa þetta út. Það má eiginlega segja að þetta séu uppáhaldslögin okkar Jónasar." Þess má geta að á mánudaginn 18. nóvember verða úgáfutónleikar i Salnum í Kópavogi í tilefni af útgáfu disksins sem var einmitt tekinn upp þar. Á efnisskránni er allt frá Old Man River yfir í Hamraborgina sem fram að þessu hefur verið stjörnulag tenórsöngvara en nú er sá tími liðinn. Hugsað heim til Laxár Eins og áður sagði hefur Kristinn bækistöð á Is- landi þótt hann sé augljóslega búsettur í ferðatösku um þessar mundir á sífelldum þeytingi milli London, Kölnar og Reykjavíkur. Hann segist reyna að gefa sér góðan tima á sumrin til þess aö vera samvistum við fjölskylduna og vinina. Eitt helsta tómstundagaman Kristins og áhugamál, sem reynd- ar fjölskyldan öll tekur þátt í, er að veiða lax og sil- ung á flugu. Þar hlýtur að vera grunnt á vísinda- þekkingu Kristins en hann lærði líffræði áður en hann hélt á vit sönggyðjunnar og kenndi líffræði um hrið. En fékk hann í soðið i sumar? „Þetta var engin ofveiði en ég fékk nokkra góða fiska. Við höfum oft farið í Grímsá sem er í miklu uppáhaldi hjá mér en ég komst því miður ekki með í þann leiðangur í sumar. Svo er Laxá í Laxárdal, nánar tiltekið á urriðasvæðinu sem er frábært. Það er dásamlegt að vera í náttúrufegurðinni í Laxárdalnum þar sem maður heyrir ekkert nema hljóðin í náttúrunni. Stundum þegar ég geng hérna um göturnar í stórborginni þá verður mér hugsað til Laxárdalsins og þagnarinnar og friðarins sem þar er.“ -PÁÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.