Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Page 41
LAUGARDAGUR lö. NÓVEMBER 2002
Helgarblacf X>V
45
\
i
ógnandi. Það er mikið kapphlaup
og maður þarf eiginlega að pakka
sér í umbúðir. Það er auðveldara
þegar það er flokksval. Það er æski-
legri leið að mínu mati.
Það er margt sem þarf að skoða
áður en farið er út í svona baráttu
og margar mýtur um stjórnmál.
Þegar á hólminn er komið fjallar
pólitík um líflð sjálft og sem þátt-
takandi í því er ég tilbúin i slaginn.
Stjórnmálin og umræðan fer ekki
fram á milli tvítugs og þrítugs held-
ur er yfirleitt miðað við fólk sem er
yfir fertugt. Það er því ailtaf spurn-
ing hvemig framboði eins og mínu
er tekið. Ungu fólki gekk vel í próf-
kjörum Samfylkingarinnar um síð-
ustu helgi eins og sést á árangri
mínum, Ágústs Ólafs Ágústssonar,
Björgvins G. Sigurðssonar og Helga
Hjörvar. Við náðum öll góðum ár-
angri og það er augljóst að það er
eftirspurn eftir ungu fólki. Sjónar-
hom ungs fólks hefur vantað inn á
þing. Á þingi þarf líka að vera fólk
sem finnur fyrir námslánum, er að
koma sér upp húsnæði og eignast
börn. Það er hollt að þingmenn
finni þetta á eigin skinni."
Það hefur mikið verið rætt um
kostnað við prófkjör.
„Já. Kostnaðurinn í flokksvali er
lægri en í opnum prófkjörum. Mér
flnnst gott að geta sagt frá því að ég
náði árangri og kostnaður minn af
framboðinu var eingöngu á annað
hundrað þúsund og tel ég þar með
spariskó sem ég þurfti að kaupa
mér. Það var miklu auðveldara en
ég hélt að ná til fólks. Ég hafði líka
gott fólk með mér.“
Sterk stjómarandstaða
Kosningamar í vor verða þær
fyrstu eftir að PoppTíVí fór í loftið.
„Fyrstu kosningar eftir Popp-
TíVi, já. Ég er enn fost í skilgrein-
ingunni „fyrir og eftir sítt að aft-
an“! Hefur þetta ekki alltaf verið
svona? Ég lá yfir poppmyndböndum
á einhverjum öðrum stöðvum og
rétt náði i skottið á Skonrokki. Ég
held að það hafl ekkert breyst. Það
eiga allir aldurshópar sinn kúltúr.
Það góða við þróun síðustu ára fyr-
ir okkur unga fólkið í dag er upp-
lýsingaaðgengi okkar á Netinu.
Ungt fólk notar Netið mjög mikið
og þar er aðgangur að mörgum
skemmtilegum pólitískum vefsíð-
um. Það er mjög áhugaverð þróun.“
Verður þetta erflður vetur fyrir
þig?
„Það fer örugglega meiri tími í
stjórnmál en hefur verið hingað til.
En síðastliðinn mánudag vaknaði
ég bara eins og venjulega og mætti
í mína vinnu. Það voru viðskipti
eins og venjulega og svo verður
áfram í vetur.
Almennt held ég að þessi vetur
verði skemmtilegur pólitískt séð.
Umræðan verður örugglega kröft-
ugri nú en fyrir síðustu kosningar.
Samfylkingin hefur styrkt mjög
stöðu sina sem næststærsti stjóm-
málaflokkur landsins. Við erum
búin að stypkja innviði flokksins og
verðum öílug i vetur. Við eigum til
dæmis eftir að leiða Evrópuumræð-
una þar sem við emm mjög sterk og
vel undirbúin.
Áratugir em síðan það hefur ver-
ið til jafn sterkur stjómarandstöðu-
flokkur og Samfylkingin er. Við
höfum sannað okkur og næsta verk-
efni er að ná árangri i kosningum
og mynda hér nýja ríkisstjóm.“
sm
nýtt dekkjaverð á Itlandi
DEKKJA
LAGERINN
Selfoss
Gagnheiði 42
Verkstæði okkar:
Mosfelisbær Keflavtk Reykjavík
Völuteigur 6 Iðavellir 8 Viðarhöfði 6
Smáauglýsingar
vantar þig félagsskap?
550 5000
\