Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003 Verðdœmi SpariPlús Krít 53.980kr Ef tveir ferðast saman, 67.970 kr. á mann. Portúgal 47.267;, Ef tveir ferðast saman, 69.355 kr. á mann. Mallorca 43.1401 Ef tveir ferðast saman, 54.530 kr. á mann. Benidorm 44.340L Ef tveir ferðast saman, 63.730 kr. á mann. * á mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja -11 ára, ferðist saman. Innifalið: Flug, gisting í tvær vikur, íslensk fararstjórn, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar. 8-15% verðlækkun www.plusferdir. is Hlíðasmára 15 • Simi 535 2100 DV Fréttir Hagstætt verð kyndir undir ferðagleði íslendinga sem aldrei fyrr: Þjóð á faraldsfæd — Síillii Ferðalög til útlanda eru orðin fastur liður í útgjöldum margra heimila. íslendingar eru meira og minna á ferðalögum allt árið um kring. Fara í borgarferðir og ýmsar sérferðir eins og skiðaferðir, menn- ingarferðir, matar- og vínferðir, íþróttaferðir, árshátíðarferðir og fleira. Vetur, sumar, vor og haust. Og svo auðvitað hefðbundnar sum- arleyfisferðir yfir sumartímann. Mörg þúsund íslendingar eru er- lendis á hverjum degi, allt árið. Þjóðin er á ferð og flugi. Og gildir þá einu hvort um er að ræða ungt fólk, fjölskyldufólk eða Mlorðið fólk sem hefur meira svigrúm til að ferðast. Og margir ferðast oftar en einu sinni á ári. Tvisvar og jafnvel þrisvar, allt eftir efnum og aðstæð- um. Og ef ekki er farið á eigin veg- um er farið í hópferðir. Þama skiptir miklu að ferðalög til útlanda eru á hagstæðara verði en þau hafa verið um nokkurt skeið. Sumarbæklingar ferðaskrif- stofanna komu út á dögunum og síð- an þá hefur verið stöðugur straum- ur pantana í ferðir á fjarlægar slóð- ir. Það er vitlaust að gera á ferða- skrifstofunum og þegar orðið upp- selt í nokkrar ferðir í sumar. Þá er stíf verðsamkeppni i flugfargjöldum til nokkurra helstu borga álfunnar. „Þetta er mun betra en á sama tíma í fyrra og var það ár þó metár hjá okkur. Við brosum því breitt," sagði Andri Már Ingólfsson, for- stjóri Heimsferða, við DV. Og aðrir viðmælendur DV úr ferðabransan- um tóku í sama streng. Og allir und- irstrikuðu þeir að ástæðuna mætti að miklu leyti rekja til lægra verðs fyrir ferðimar en í fyrra. Munurinn getur verið 5-15 prósent þannig að sumarleyfisferð í sólina nú getur verið 5-10 þúsund krónum ódýrari á manninn. Ódýrari ferðir En hvað kostar dæmigerð sumar- leyfisferð til suðrænna sólarstranda í dag? Við tókum dæmi af sólarferð til Salou á Spáni með Terranova Sól án nokkurra afslátta. Brottfarardag- ur er 7. ágúst, dvalartíminn hálfur mánuður og gist á þriggja stjörnu hóteli með öllum þægindum. Fyrir íjögurra manna fjölskyldu, tvo fúll- orðna og tvö böm, kostar slik ferð 290.650 krónur eða um 72.600 krónur ætlar sér að gera eitthvað með fjöl- skyldunni. Vera saman og þá gjarn- an á suðlægum slóðum þar sem hægt er að slaka á og kúpla frá ann- ríkinu hér heima," sagði Páll Þór Ármann, markaðsstjóri hjá Úrvali- Útsýn, þegar DV ræddi við hann um ferðalöngun landans. Hann sagði allt leggjast á eitt þeg- ar ferðagleðina bæri á góma: Ódýr- ari ferðir, meira úrval og sú stað- reynd að frítíminn er afar verðmæt- ur í augum fólks og það gefur þenn- an möguleika einfaldlega ekki frá sér þegar kemur að fríi. Kóngslns Köben Kaupmannahöfn hefur mikiö aödráttarafl enda landinn tiltölulega hagvanur þar í borg. HaukurLárus Hauksson blaöamaður á mann. Þá er allt reiknað meö, flug- vallarskattar og forfallagjald. Annað ódýrara hótel er í boði á sama stað og sama tíma og kostar ferðin þá 67.000 krónur á manninn. En frá fostu verði geta síðan dreg- ist afslættir af ýmsu tagi. Þannig era nokkrar ferðir til áfangastaða ferðaskrifstofanna á sérstöku til- boðsverði nokkra brottfarardaga í sumar. Þá má fá ferðaávísanir með notkun kreditkorta. Sé ætlunin að ferðast með Terra Nova Sól og við- komandi einnig áskrifandi að DV býðst 20 þúsund króna ferðaávísun. En upp úr stendur að tilboð ferða- skrifstofanna eru afar fjölbreytt og sífellt verið að auglýsa ferðir með verulegum afslætti. Og því fyrr sem ferð er pöntuð því meiri möguleika hefur fólk á að fá besta afsláttinn og bestu gististaðina. Andri Már tjáði DV að við saman- burð á kostnaði vegna ferða til Mall- orca hefði komið í ljós að ferðimar frá íslandi væru ódýrari en sam- bærilegar ferðir frá Noregi og Sví- þjóð. „íslenski ferða- markaðurinn stendur sig mjög vel. Samkeppnin er mjög hörð og fólk nýtur bestu kjara hverju sinni,“ sagði Andir Már. Hluti af lífs- stflnum Ódýrari ferðir eru skiljanlega hvetjandi fyrir ferðagleðina en viðmælendur DV eru sammála um að ferðalög eru einfaldlega orðin fastur hluti af lífsstíl þjóðarinnar og fastur útgjaldaliður í bókhaldinu á mörgum heimilum. Mörgu öðru er fórnað áður en ferðirnar verða fyrir spamaðarhnífnum. En þessi þróun á ekki aðeins rætur að rekja til þess að það er ódýrara að ferðast en áður. Heldur er fritíminn orðinn verðmætari í augum fólks og þess vegna lenda útgjöld vegna ferðalaga ofar á forgangslista heimilanna. „Það er verið að lengja skólana og fólk virðist upptekið við vinnu og annað meira og minna allan sólar- hringinn. Þess vegna er fólk mjög ákveðið þegar kemur að fríum, það Ekki bara legið En fríinu er ekki bara eytt í leti á ströndinni. íslendingar eru mun virkari ferðalang- ar en áður. Mikil sókn er í hvers kyns sérferðir þar sem ferðafólk kynnist nýjum hliðum á ýmsum löndum eða að fara til ókunnra landa. Þetta eru þrælskipulagðar ferðir með sérfróð- um fararstjórum og njóta mikill vin- sælda. Þá er mikill áhugi á að taka bílaleigubíla frá strandstöðum og skoða næsta ná- grenni upp á eigin spýtur eða með hóp í fylgd farar- stjóra. Fólk vill upplifa og fræðast. Fríinu er ekki bara eytt á strand- bamum. Stöðugur straumur Þegar tölur yfir komur Islendinga til landsins árin 1999 og 2000 era skoðaðar má sjá aö yfir sumartím- ann era um fjórfalt fleiri komur til landsins en aðra mánuði ársins. Og ef fjöldinn sem slíkur er skoðaður má ætla að yfir 40 þúsund íslending- ar séu að koma til landsins i aðal- ferðamánuðinum sem er ágúst. Þá eru væntanlega um 1000 manns að koma til landsins á dag en þennan mánuð má áætla að 10-15 prósent þjóðarinnar séu erlendis. A framandi slóðir Thaíland er meðal áfangastaða hjá ævintýragjörnum íslendingum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.