Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Síða 21
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003
HelQctrblaö JOV
2
Astin er
í sögum
Einhver vinsælasta klisja
samtímans er um að lífið sé
leiksvið. Þeirsem hafa ein-
hvern tíma farið í leikhús
vita að svo er alls ekki. Lífið
er nefnilega afskaplega ólíkt
leiksviðinu.
Fæst viljum við trúa þvi að búið sé að skrifa handrit-
ið að lííi okkar, við vitum að það er enginn hvíslari, eng-
inn sviðsmaður á kantinum, lýsingin er fyrir neðan all-
ar hellur, ekkert hlé og síðast en ekki síst þá stendur eng-
inn upp og klappar að lokinni sýningu, einfaldlega af því
sýningunni lýkur aldrei. Við fáum aldrei að hneigja okk-
ur og njóta sviðsljóssins og forsetinn er aldrei í salnum.
Aftur og aftur og aftur
Sálfræðingurinn Robert J. Sternberg hefur ekki gefið
frá sér yfirlýsingar varðandi leiksviðsklisjuna en hann
hefur hins vegar skrifað heila bók um það hvernig mann-
fólkið hagar ástalífi sínu samkvæmt ákveðnum sögum.
Þessi ágæti sálfræðingur hefur í bók sem hann nefnir
Love is a story eða Ástin er saga, velt því fyrir sér hvers
vegna ástarsambönd eru oft jafn ófyrirsjáanleg og raun
ber vitni og af hverju sum hjónabönd endast von úr viti
á meðan önnur brenna í vítislogum eftir örfáa mánuði.
Sternberg gerir sérstaklega að umtalsefni þegar fólk ger-
ir ítrekað sömu mistökin í ástarsamböndum aftur og aft-
ur. Hann veltir upp spurningunni um það hvort þetta sé
allt saman fyrir fram ákveðið; hvort fólk skrifi sig sem
persónur inn í ákveðna ástarsögu sem það sleppur síðan
ekki út úr fyrr en það áttar sig á söguþræðinum.
Algjör ást...
Reynsla margra af lestri amerískra sálfræðiverka fyr-
ir almenning er sú að í þeim sé ekkert að finna sem ekki
er útskýrt miklu betur í góðum skáldverkum. Þetta bend-
ir Sternberg á í sinni almennu sálfræðibók(l) „Á ákveðnu
stigi sjá leikmenn oft það sem sálfræðingar koma ekki
auga á: að ást tveggja einstaklinga fylgir ákveðinni
sögu,“ segir Robert J. Stemberg. „Ef við viljum skilja ást-
ina verðum við að skilja þær sögur sem stjórna skoðun-
um okkar og væntingum til ástarinnar. Við byrjum að
skrifa þessar sögur sem böm og þær spá fyrir um
mynstrið sem ástalíf okkar verður í. Sem betur fer getum
við lært að endurskrifa þær.“
Sternberg segist hafa komið með þessar kenningar
vegna óánægju með hvað fræðingar, og hann sjálfur með-
talinn, voru að skrifa um ástina. „Ég hafði áður lagt fram
kenningar um þríhyming ástarinnar og lagði þar til að
ástin væri sett saman úr þremur frumþáttum: nánd,
ástriðu og skuldbindingu. Ólík ástarsambönd era ólík
samsetning þessara þriggja þátta. Algjör ást þarfnast
allra þriggja. En kenningin svaraði ekki mikilvægri
spumingu: hvað gerir manneskju að þeim elskanda sem
hún er? Og hvað dregur hana að öðrum? Ég þurfti að
grafa dýpra til að skilja uppruna ástarinar. Ég fann hann
í sögum.“ -sm
Fjaran:
Spennandi matseðill
að dönskum hætti
ásamt við eigandi
drykkjarföngum með
lifandi danskri tónlist
Fjörugarðurinn:
Hljómsveit hinnar stór-
skemmtilegu Sine Bach
Riittel spilar fyrir dansi
föstudag 21. og laugardag
22. febrúar og svo föstu-
daginn 1. mars og laugar-
dag 2. mars.
Dönsk
bluegrass
hljómsveit
ásamt
söngkonunni
Sine Bach Riittel
mun spila á
,;Dönskum dögum“.
I þessari hljómsveit
eru afburða hljóðfæra-
leikarar auk Sine Bach
Ruttel - en hún er
jafnframt aðallagasmiður
og textahöfúndur
sveitarinnar. Sine er
aðalsöngvari hljómsveit-
arinnar og leikur
jafnffamt á banjó og gítar
og hefúr hvarvetna vakið
mikla athygh og hrifningu
áhorfenda fyrir ffábæra
túlkun og sjarma.
Auk þess að leika fyrir
matargesti á „Dönskum
dögum” þá mun
hljómsveitin leika fyrir
dansi á Fjörugarðinum
fostudags- og laugardags-
kvöldin 21. - 22. febrúar
og 28. febrúar og 1. mars.
FJORUKRAIN
Sýning í dag
frá kl. 10-16
að Lágmúla 7 í Reykjavík
og hjá Vélaver hf. á Akureyrí.
3.340
=lrránÍI*9U
Lágmúli 7 Reykjavík Sími: 588 2600 • Akureyri Sími 461 4007 • www.velaver.is
Útbúnaður:
- fjórgengis mótor 10kw.
- rafstart
- 5 gírar áfram og einn afturábak
- dekk framan 22x7-10
1
- dekk aftan 22x10-10
V
- bögglaberar framan og aftan
- stuðaragrind að framan