Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003 23 HelQOrblað X>"V ... eitthvað fyrir þig? Extra vagant maskari frá Helenu Rubinstein Maskari sem margfaldar Nú er kominn á markaö maskari frá Helenu Rubinstein sem hefur að geyma sérstakan bursta sem HR hef- ur fengið einkaleyfi á. Bursti þessi hefur breið, skáskorin hár sem tryggja að liturinn nái til jafnvel minnstu háranna. Maskarinn sem heitir Extra vagant inniheldur meðal annars þrjár tegundir af vaxi, ba&mullarfræolíu sem hefur nær- andi áhrif og Jojoba vax sem er mýkjandi. Hann hefur verið prófaður af augnlækn- um og er rá&lagður fyrir viðkvæm augu og linsunotendur. Túpan er 5 ml en liturinn kemur í svörtu, brúnu og bláu. Hjólrei&ar draga úr hæftunni á brjóstakrabbameini Konur sem stunda hjólreiðar virðast ólíklegri til að fá brjóstakrabbamein. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar þýskrar rannsóknar. Því er haldið fram að þriggja stunda hjólreiðar á viku minnki líkurnar á krabbamein um þriðjung. Þetta er náttúrlega ekki í fyrsta sinn sem sannað þykir að hreyfing og líkamsrækt sé til þess fallin að draga úr hættunni á krabbameini. Hvað það er við hjólreiðarnar.sem er svona gott er ekki vitað og ætla Þjóðverjar að rannsaka það nánar. Gönguferó aó Kórahnjúkum Gönguferðir koma ílestum í gott skap og fyrir fótafima er að finna nokkrar spennandi gönguferðir hjá ÍT ferðum í sumar. í fyrstu ferð sumarsins verður lagt upp frá Borgarfirði eystri og eyðivíkurnar skoðaðar. Síðan verður haldið að Kárahnjúkum og fólk getur skoðað þennan mest umtalaða stað landsins. Ferðin stendur yfir i 5 daga og verður gist i skálum á leiðinni. Nánari upplýsingar um gönguferðir sumarsins er að finna á slóðinni www.itferdir.is á Netinu. Ertu að selja bílinn? birta mynd? • komdu með bílinn og láttu okkur taka myndina • eða sendu okkur mynd á .jpg sniði á smaaugiysingar@dv.is ISmáauglýsingar 550 5000 HEILSUÁTAK Þjálfunar og æfingarpunktar Sumir virðast trúa því að séu gerðar æfingar fyrir ákveðna hluta líkamans komi óæskileg fita af viðkomandi stöðum til með að hverfa á braut. Karlmenn sem eru með ístru gera kviðæfingar í gríð og erg og konur sem vilja minnka læraummálið gera æfingar fyrir lærin í miklum mæli. Staðreyndin er sú að ekki er hægt að brenna fitu af ákveðnum svæðum líkamans. Kviðæfingar og læraæfingar styrkja og móta vöðvana á viðkomandi svæðum en þeir vöðvar eru undir fitulaginu sem við viljum svo gjarnan losna við. Aðeins með því að léttast með því að stunda þolþjálfun losum við okkur við umframfitu. Hvaðan af líkamanum fitan fer fyrst fer eftir því hvernig við erum byggð. Reglan er sú að þar sem fitan kom fyrst fer hún fyrst. Gjarnan er það svo að þau svæði sem við vildum helst losna við fituna af eru erfiðust. Hjá konum eru þessi svæði læri og rass en hjá körlum er það hin margumtalaða ístra. Sýnið þolinmæði. Við bættum þessu ekki á okkur á einni nóttu og getum því ekki ætlast til að losa okkur við fituna á einni nóttu. Gerðu varanlegar breytingar á lífsstílnum. Stundaðu reglulega þjálfun og gerðu breytingar á mataræðinu og árangurinn lætur ekki á sér standa. (Ágústa J.) Matseðill dagsins Dagur 12 Morgunverður: Weetabix 2 stk. Sælumjólk 1 glas Hádegisverður: Samloka m/ skinku og osti 1 stk. Ávaxtasafi 1 glas Miðdegisverður: Súkkulaðikex 3 stk. Undanrenna 1 glas Greip 1 stk. Kvöldverður: Kjúklingur, grillaður 150 g Hrísgrjón, soðin 2,5 dl Súrsæt sósa 1,5 dl Grænmeti, ýmislegt 100 g + Rauðvín 4 dl =2 glös Fullyrðingar um alkóhól sem standast ekki: Fullyrðing: Alkóhól er löglegt og er þess vegna ekki fíkniefni. Svar: Rangt. Það er rétt að alkóhól er löglegt en það hefur áhrif á ýmsa líkamsstarfsemi og læknisfræðilega er það skilgreint sem deyfandi fíkniefni. Fullyrðing: Neysla alkóhóls hitar upp líkamann. Svar: Rangt. Alkóhól eykur flæði blóðs út í húðina og sú tilfinning sem fæst er því hitatilfinning. í reynd kólnar líkaminn. Með öðrum orðum: Skammgóður vermir! Fullyrðing: Létt vín og bjór hafa ekki háan alkóhólstyrkleika og leiða þess vegna ekki til fíknar. Svar: Rangt. í reynd skiptir ekki máli í hvers konar formi alkóhóldrykkjan er. Hún er fyrst og fremst háð því magni sem drukkið er og hve oft er drukkið. Fullyrðing: Að blanda saman drykkjum er helsta ástæða timburmanna. Svar: Rangt. Ofneysla alkóhóls, hvort sem drukkin er sama áfengistegundin allan tímann eða ýmsar áfengistegundir, er fyrst og fremst ástæða timburmanna. Fullyrðing: Til að flýta fyrir að renni af manni getur reynst gagnlegt að fara í göngutúr eða að fá sér bolla af rótsterku kaffi- Svar: Rangt. Eyðsla áfengis úr líkama er háð magni alkóhólhvata sem þýðir að niðurbrot á alkóhóli er ekki hraðað þó að gripið sé til áðurnefndra ráðstafana. Sumir halda að ef stunduð er einhvers konar líkamsrækt eins og að ganga þá aukist alkóhólbrennsla. Svo er ekki og er ástæðan sú að vöðvafrumur geta ekki unnið úr alkóhóli. Einu frumurnar sem það geta eru frumur lifrarinnar. Einnig halda sumir að þar sem þeir hressist við kaffidrykkju sé það merki um að kaffið flýti fyrir að það renni af þeim. Svo er ekki. Breytingin sem verður á líðan er vegna koffeinsins sem er örvandi og vegur upp á móti deyfandi áhrifum alkóhólsins. Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur HReynnG
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.