Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Page 30
30 H<2Igarblctð H>V LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003 Sjötugur sigurvegari Einn dáðasti þjálfari Englendinga fyrr og síðar er án nokkurs vafa Bobby Robson sem situr við stjórnvölinn hjá enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle United. Þessi mikli heiðursmaður, sem er eingöngu þekktur af einu góðu, varð sjötugur síðastliðinn þriðjudag - sama dag og strákarnir hans unnu frækinn sigur á þýska liðinu Bayer Leverkusen í Meistaradeildinni á útivelli, 1-3. Ferill hans sem framkvæmdastjóri spannar rúm 35 ár og hefur hann stýrt mörgum stórliðum og hann stýrði enska landsliðinu í ein átta ár. Þar áður lék hann sem at- vinnumaður um árabil með enskum úrvalsdeildarfélög- um. Ávallt stutt Newcastle Robert William Robson fæddist 18. febrúar 1933 í bæn- um Sacriston í Durham-héraði. Hann ólst upp í Langley Park og þar hófst ferill hans einnig sem knattspyrnu- maður. Hann varð strax á unga aldri mikill stuðnings- maður Newcastle og byrjaði að sækja leiki félagsins í ensku deildinni þegar hann var aðeins nokkurra ára gamall og þvi hlýtur það að vera ánægjulegt fyrir hann að ljúka ferlinum hjá því félagi sem staðið hefur hjarta hans næst. Segja má að knattspyrnuferill hans hafi hafist árið 1948 þegar hann komst á unglingasamning hjá Langley Park Juniors. Lék hann með þeim í tvö ár og stóð sig ákaflega vel. Frammistaða hans með Langley Park Juni- ors varð þess valdandi að Fulham gerði við hann at- vinnumannasamning aðeins 17 ára gamlan. Robson lék bæði á kantinum og sem afturliggjandi framherji og gat því bæði skorað og lagt upp mörk. Robson lék með Ful- ham næstu sex árin og á þeim tíma spilaði hann 152 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 68 mörk. í mars árið 1956 fór hann svo yfir til WBA og lék með því á blómatima sínum sem leikmaður. Á ferli sínum með WBA lék hann 239 leiki og skoraði í þeim 56 mörk. Ári eftir að hann gekk til liðs við félagið spilaði hann sinn fyrsta landsleik fyrir enska landsliðið. Það var 27. nóvember 1957 og unnu Englendingar þá Frakka, 4-0, á Empire Stadium á Wembley. Robson lék svo með enska landsliðinu á HM 1958 í Svíþjóð en þaö var einmitt í þeirri keppni sem heimurinn kynntist besta knatt- spyrnumanni heims fyrr og síðar, Pelé. Síðasti lands- leikur Robsons var síðan gegn Sviss 9. maí 1962 en alls urðu landsleikir hans 20 og skoraði hann í þeim 4 mörk. 1 ágúst 1962 gekk hann svo til liðs við Fulham á ný og bætti þá í sarpinn 193 leikjum fyrir félagið og 9 mörk- um. Fyrsta þjálfarastarfið í byrjun vetrar árið 1967 verða síðan straumhvörf í lifi Robsons þegar hann tekur að sér þjálfun hjá kanadíska knattspyrnufélaginu Vancouver Whitecaps en hann lék einnig með liðinu samhliða þjálfuninni. Ferill hans hjá því ágæta félagi varð ekki langur því í byrjun árs 1968 kom kall frá hans gamla félagi, Fulham, sem vildi nú fá hann til þess að stýra skútunni. Ekki gekk hinum óreynda Robson vel með lið Fulham þann veturinn því í nóvember sama ár fékk hann að reyna hversu hverfult líf það er að vera framkvæmdastjóri er Fulham rak hann úr starfi. Robson þurfti ekki að bíða lengi eftir næsta tækifæri því tveim mánuðum eftir að honum var sparkað frá Ful- ham bauð Ipswich Town honum að taka við stjórnar- taumunum á Portman Road. Liðið barðist í neðri hluta fyrstu deildar fyrstu þrjú ár Robsons með félagið en sið- an tókst honum að byggja upp gríðarlega sterkt lið sem vann enska bikarinn árið 1978 og sigraði í Evrópukeppni félagsliða 1981. Alls stýrði hann Ipswich i 13 ár og á þeim tíma lék félagið 575 leiki undir hans stjórn. 243 af þess- Stærsta stundin á ferli Bobbys Robsons var vafalítið síðastliðið sumar er Bretlandsdrottning aðlaði hann fvrir starf hans í þágu enskrar knattspyrnu. Reuters um leikjum unnust, 187 leikir enduðu með jafntefli og 145 töpuðust. í liði Ipswich á þessum tíma voru leikmenn á borð við George Burley, sem síðar varð framkvæmdastjóri félags- ins, John Wark, Paul Mariner, Terry Butcher, Eric Gates, Arnold Muhren og fleiri góða. nokkrum vikum eftir að Sporting hafði rekið hann. Hann var fljótur að hafa áhrif á lið Porto því það vann bikar- keppnina sama ár og náði Robson þar fram hefndum því liðið sem það vann var Sporting Lisbon. Robson stýrði liðsmönnum Porto tvö ár í viðbót og urðu þeir meistar- ar í bæði skiptin. Tekur við enska landsliðinu Eftir að hafa stýrt Ipswich í 13 ár við gríðarlega góðan orðstír var honum svo boðin æðsta staða sem enskum þjálfara getur hlotnast - að stýra enska landsliðinu. Því tilboði gat Robson ekki hafnað. Hann tók við liðinu eftir HM 1982 og byrjaði strax að byggja upp lið fyrir HM 1986 sem fram fór í Mexíkó. Hann stýrði enska landsliðinu i tveim heimsmeistara- keppnum. í keppninni 1986 komust Englendingar í 8 liða úrslit þar sem þeir töpuðu fyrir Argentínu á umdeildan hátt er Maradona skoraði með „hendi Guðs“ sem vafalít- ið er frægasta mark sem skorað hefur verið í knatt- spyrnusögunni. Argentína varð siðan heimsmeistari. ÁHM 1990 á Ítalíu komst enska landsliðið skrefi lengra eða í undanúrslitin og var það í fyrsta skipti sem Englendingar komust svo langt á HM frá því þeir urðu heimsmeistarar 1966. Þar lutu þeir í gras fyrir Vestur- Þjóðverjum í vítaspyrnukeppni og Þjóðverjarnir urðu síðan heimsmeistarar. Alls spilaði enska landsliðið 95 leiki undir stjórn Robsons og unnust 47 af þeim, 18 end- uðu með jafntefli og 30 töpuðust. Fer til Hollands Robson lét af starfi landsliðsþjálfara eftir HM 1990 og kom svo mörgum á óvart með því að taka við liði PSV Eindhoven í Hollandi. Hann stýrði liðinu í tvö ár og varð PSV deildarmeistari bæði árin. Eftir árangursríkan tíma hjá PSV fór hann til Sporting Lisbon í Portúgal en var rekinn á umdeildan hátt tæpu ári eftir að hann tók við liðinu. Sporting féll úr leik í Evrópukeppni félagsliða og fyrir vikið fékk Robson að fjúka og breytti þar engu um að liðið væri á toppnum heima fyrir á sama tíma. Robson var þó ekki á því að yf- irgefa Portúgal og tók við erkifjendunum í Porto aðeins Stutt dvöl hjá Barcelona Sumarið 1996 var hann síðan ráðinn stjóri hjá stórliði Barcelona. Það lá reyndar ljóst fyrir nánast frá því að hann tók við liöinu að vera hans þar yrði aðeins í eitt ár þvi búið var að eyrnamerkja Hollendingnum Louis Van Gaal starfið ári seinna. Þrátt fyrir erfið starfsskilyrði náði Robson frábærum árangri á þessu eina ári með lið- ið. Það vann Evrópukeppni bikarhafa, spænska bikar- inn en missti rétt af deildarmeistaratitlinum þar sem það varð í öðru sæti. Frábær árangur hjá Robson en fyrir ut- an þennan árangur gerði hann einnig frábær kaup í ung- um Brasilíumanni að nafni Ronaldo sem síðan lýsti upp sviðið á Nou Camp með frábærum leik næstu árin. Hann yfirgaf ekki herbúðir félagsins þrátt fyrir að hafa misst stjórastarfið heldur sat í tækninefnd félagsins næsta árið. Hann er enn i dýrlingatölu hjá stuðnings- mönnum Barcelona en slíkt hið sama verður vart sagt um Hollendinginn sem hann varð að víkja fyrir á sínum tima. Snýr heim á ný Robson tók við liði PSV á ný í skamman tíma árið 1998 og þegar kallið kom frá Newcastle í september 1999 var ekki nokkur leið fyrir hann að segja nei. Þá var liðið í botnbaráttu deildarinnar, fjárhagur félagsins var í mol- um og félagið var rjúkandi rústir eftir Hollendinginn Ruud Gullit sem hafði eytt miklum peningum án þess að það skilaði nokkru á vellinum. Mikið uppbyggingarstarf var í vændum fyrir Robson sem upphaflega var aðeins ráðinn til 9 mánaða í starfið. Hann fékk reynda leikmenn til félagsins, þá Kevin Gallacher og Stuart Pearce. Hann tók Rob Lee úr kælin- um en Gullit hafði ekki einu sinni úthlutað þessum fyrr- verandi landsliðsmanni númer. Það sem mestu skipti var að hann setti Alan Shearer i liðið á nýjan leik og byggði upp sjálfstraust hans á ný og segir Shearer að ef Robson hefði ekki komið til félagsins hefði hann líkleg- ast brunnið út sem knattspyrnumaöur. „Ég var langt niðri þegar Bobby kom til félagsins. Mér fannst ég verða að komast frá félaginu, svo slæmt var ástandið. Bobby sá hvað var að og kom mér i gang á ný. Það má segja að hann hafi bjargað ferlinum mínum því ég var ekki að leika vel þegar hann kom og var alls ekki viss um að ég myndi komast í gang á ný,“ sagði Shearer sem hefur svo sannarlega endurfæðst í búningi Newcastle undir stjórn Robsons. Allir þekkja framhald- ið hjá Shearer og Newcastle en algjör viðsnúningur hef- ur orðið á gengi félagsins á þeim þrem árum sem hann hefur verið við stjórnvölinn, bæði hvað varðar spila- mennsku liðsins og fjárhaginn. Stærsta stund á ferli Robsons var síðan siðastliðið sumar þegar Bretlandsdrottning aðlaði hann fyrir störf hans í þágu enskrar knattspyrnu og fannst mörgum kom- inn tími til. Það var einkennandi fyrir hógværð og heið- ursmennsku þessa frábæra knattspyrnustjóra að hann eignaði þeim sem höfðu unnið með honum undanfarin 50 ár stærstan hluta orðunnar í stað þess að baða sig í sviðsljósinu sjálfur. Robson hefur verið afar farsæll í leikmannakaupum hjá Neweastle og nú síðast keypti hann einn efnilegasta varnarmann Englands, Jonathan Woodgate. Reuters -HBG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.