Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Page 46
50
/ / e I Qcj r I? / ct O H>'Vr LAUGARD AGU R 22. FEBRÚAR 2003
Þrjár vikur til Formúlu 1:
Toyota á toppnim í Barcelona
Ferrari-liðið bindur gríðarlegar vonir við nýjan Ferrari-bíl og eflaust óttast aðrir bílaframleiðendur hann, enda hefur bíllinn komið vel út í reynslu-
akstri síðustu vikna.
Keppnin Formúlu 1 hefst í Mel-
boume í Ástralíu þann 9. mars og
undirbúningur flestra liða er í fúll-
um gangi. Síðan fara bílamir til
Sepang í Malasíu 23. mars og til
Interlagos í Sao Paolo í Brasilíu 6.
apríl. Nokkur lið eru í Barcelona
og varð Oliver Panis á Toyota fljót-
astur á æfingum þar á þriðjudag-
inn. Nýgræðingurinn Ralph Firm-
an á Jordan Ford fór út af á mik-
illi ferð og klessti bíl sinn en slapp
ómeiddur. Jarno Trulli á Renault
komst fáa hringi vegna bilunar.
Ferrari æfði á Imola-brautinni að
þessu sinni, ijarri helstu keppi-
nautunum. Ferrari er með nýjan
bíl sem miklar vonir eru bundnar
við. Heimsmeistarinn Michael
Schumacher hefur lýst mikilli
ánægju með bílinn. Það kemur svo
í ljós á Albert Park-brautinni i
Melbourne hvort bílinn stendur
undir væntingum og hvort þeir
Schumacher og Barricello verða
áfram í fremstu röð ökuþóra, eða
hvort keppnin verður jafhari en á
síðasta ári þar sem Schumacher
tók fljótt afgerandi forystu. Frem-
ur kalt var í veðri á æfingum í
Barcelona en þær halda áfram
fram eftir vikunni. Panis var um
0,8 sekúndum á undan Fernando
Alonso á Renault. Á eftir Alonso
komu Juan Pablo Montoya á Willi-
! ams-BMW, Marc Gene á Williams-
BMW, Jenson Button á BAR-
Honda og Giancarlo Fisichella á
j Jordan-Ford.
M
< Götubraut í Melbourne
s Nú sem oftar hefst leikurinn í
| Ástralíu og brautin í Albert Park
er verðugur vettvangur fyrir það
sjónarspil sem fyrsta keppni tíma-
bilsins býður upp á og flestir öku-
menn kunna vel við sig á braut-
inni. Hún er einnig kjörin sem
fyrsta braut tímabilsins vegna lög-
unar sinnar. Þar skiptast á hraðar
beygjur annars vegar og hægari og
þrengri beygjur hins vegar. Þar
með fá liðin kærkomið tækifæri til
þess að spreyta sig og bíla sína við
nokkuð ólíkar aðstæður. Albert
Park er götubraut enda þótt áhorf-
endur verði ekki svo mjög varir
við þá staðreynd. Sú umferð skilur
eftir sig olíu og veldur því að
brautin er mjög sleip. Brautin er
einnig oftar en ekki mjög rykug
þar sem einungis er keppt tvisvar
á henni yfir árið. Brautin er 58
hringir og hver hringur er 5,303
km. Eftir því sem á líður eykst
gripið á brautinni. Þetta getur
gerst svo hratt að hver mínúta í
tímatökunni skipti mjög miklu
máli og verkefni tæknimanna eru
ærin við að setja bílana upp eftir
því hvert gripið er þá og þá stund-
ina. Ef liðin veðja á vitlausa upp-
setningu getur það haft afdrifarík
áhrif á stöðu þeirra á ráslínu. Það
er því freistandi fyrir liðin að fara
sem seinast út í tímatökunum en
sú staðreynd að framúrakstur er
mjög erfiður í Albert Park hefur
gjaman þau áhrif að bílamir fara
snemma út til þess að tryggja sér
tima ef eitthvað skyldi fara úr-
skeiðis í seinni hluta tímatökunn-
Bílasýningin í Genf:
Dnaumabíllinn BMW Z8
mun vekja óskipta athygii
Santa Fe tær snarpari isilvél
Algjör draumabíll frá Bertone og
BMW verður sýndur á alþjóðlegu
bilasýningunni í Genf í næsta mán-
uði. Þetta er sportbíllinn BMW Z8
sem framleiðendur segja að eigi að
koma við hjartað á almenningi; há-
þróaður bíll sem samt uppfýlli venju-
legar hugmyndir um bíl. Til að létta
bílinn er stór hluti hans byggður úr
áli, en hann er með 5 lítra vél, 400
hestafla V8-vél, afturhjóladrifínn.
Framleiðendur segja bílinn vera
mjög fallegan, með mjög langa
hallandi vélarhlíf, dropalagað far-
þegarými en lítið farangursrými.
Margir munu eflaust vilja fá svör
við því af hverju Bertone og BMW
hefja aftur framleiðslu á sportbíl sem
aðeins er á færi sérstakra viðskipta-
vina að festa kaup á. Bertone mun
Santa Fe jepplingurinn frá
Hyundai hefur reynst afar vinsæll
bæöi austan hafs og vestan en á þeim
mörkuðum þar sem fjárhagslega er
kleift að nýta spameytni og hag-
kvæmni dísilvéla hefur hann setið
nokkuð eftir, vegna þess að 2,01 dísil-
vélin sem í boði var þótti ekki ýkja
beysin að orkunni til, þó hún væri
með forþjöppu.
Nú er svo að sjá sem Hyundai hafi
fundið svar við þessu. Það nefnist
VGT sem stendur fyrir Variable
Geometry Turbo, en það mætti
kannski kalla forþjöppu með breyti-
legu rúmtaki. Þessi breytileiki hagar
sér í samræmi við orkuþörfina
hveiju sinni.
Þessi endurbætta forþjappa, sú
fyrsta sinnar tegundar í kóreskum
bíl, skilar meiri orku með minni eld-
neytisnotkun og minni mengun. Ork-
an eykst um 11 hö og 29 Nm, en ef
marka má viðbrögð erlendra bíla-
Santa Fe - vinsæll og vel lukkaður aldrifsbíll frá Hvundai. Er nú með
endurbætta dísilvél. Mynd DV-bílar SHH
blaðamanna sem hafa haft tækifæri
til að prófa þessa vél í Santa Fe ljúka
þeir á hana dijúgu lofsyrði fyrir
snerpu og mjúkan gang.
Hingað til hefur dísilvél ekki verið
í boði í Santa Fe hérlendis, einfald-
lega af því að hún hefur ekki þótt
boðleg. Nú verður vafalaust metið
hvemig til hefúr tekist með VGT-
dísilvélina og ákvörðun tekin út frá
því. Vert er þó að minna á í leiðinni
að útfærsla dísilgjalds hérlendis hef-
ur ekki verið hagstæð fyrir nettari
bíla nema i þeim tilvikum þar sem
ársakstur þeirra er verulega mikill.
-SHH
Draumabíllinn BMW Z8 verður
frumsýndur á bílasýningunni í
Genf 4. mars nk.
örugglega hafa sérstakt dálæti á því
að framleiða aftur bíl af þessari gerð
og gæðaflokki, rétt eins og gert var
árið 1961, en þá kom á markaðinn
BMW 3200 CS, sem framleiddur var
allt til ársins 1965. Sá bíll er mörgum
enn í fersku minni. -GG
Mótoi'hjólaframleiðandnn Cannondale í njaldþrot
Cannondale Corporation, sem
Bílabúð Benna hefur umboð fyrir
hér á landi, hefur tilkynnt sam-
- • kvæmt fréttamiðlinum Power-
SportNetwork að það muni leggja
inn ósk um greiðslustöðvun.
Cannondale og lánardrottnar
hafa náð samkomulagi um beiðn-
ina, verði hún samþykkt af
bandarískum yfirvöldum, og mun
það gefa fyrirtækinu tækifæri til
endurfjármögnunar og endur-
skipulagningar sem hjálpar því
að standa við núverandi skuld-
bindingar sínar við birgja og
starfsmenn. „Endurskipulagning-
in og fjármögnunin verður notuð
til að halda áfram framleiðslu
okkar á reiðhjólum," sagði Joe
Montgomery, stofnandi og stjóm-
arformaður Cannondale. Cann-
ondale hefur einnig náð sam-
komulagi við Pegasus Partners n,
L.P. um kaup á öllum eignum
Cannondale. Þetta er gert til að
minnka skuldir en er þó bundið
samþykki bandarískra dómstóla.
Mótorsportið sér
Pegasus stefnir að því að reka
reiðhjólaverksmiðjuna áfram
með sama sniði en kaupa mótor-
sporthluta fyrirtækisins sérstak-
lega, þar með talið þróun og
framleiðslu á mótorhjólum. Þá
mun áfram verða leitað að fram-
tíðarfiárfestum í reksturinn,
saman eða sitt í hvoru lagi. Með
þessari breytingu hefur öllum
starfsmönnum í mótorsportdeild
Cannondale verið sagt upp. Bíla-
búð Benna hóf nýverið innflutn-
ing á Cannondale-mótorhjólun-
um. Að sögn Birnis Inga Jó-
hannssonar hjá Bílabúð Benna
mun þetta eðlilega hafa áhrif á
umboðið. Einhverjir fiárfestar
séu þó komnir í spilið þó fram-
leiðslan hafi stöðvast í bili, en
varahlutir verða fáanlegir
áfram. Björn sagði Bílabúð
Benna hafa fulla trú á að Cann-
ondale rétti úr kútnum, enda
hafi Evrópumarkaðurinn skilað
góðum hagnaði. -GZ