Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Síða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Síða 61
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003 Helqarblctö H>'Vr G5 Júlíus Agnarsson framkvæmdastjóri í Reykjavík er 50 ára í dag Júlíus Agnarsson, Skólastræti 1, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Júlíus fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1975. Júlíus var við nám og tónlistarstörf í Kaupmanna- höfn á árunum 1976-81. Hann starfaði með hljómsveit- inni Stuðmönnum á árunum 1981-87, stofnaði Stúdíó eitt 1987 og hefur starfrækt það síðan. Fjölskylda Barnsmóðir Júlíusar er Vilhelmína Kristinsdóttir, f. 18.10. 1959, tryggingafulltrúi. Hún er dóttir Kristins Vilhelmssonar tónlistarmanns og Önnu Ármannsdótt- ur verslunarmanns. Synir Júlíusar og Vilhelmínu eru Eiríkur Kristinn, f. 17.5. 1983; Agnar Már, f. 10.7. 1986; Björn Ármann, f. 14.12. 1938. Systkini Júlíusar eru Guðrún, f. 2.6. 1941, læknir í Reykjavík og forstjóri Krabbameinsfélags íslands, gift Helga Valdimarssyni, lækni og prófessor við HÍ, og eiga þau þrjú börn; Hans, f. 29.5. 1945, framkvæmdastjóri hjá Könnun hf., kvæntur Kristjönu Kristjánsdóttur skólastjóra og eiga þau tvö böm; Elín, f. 25.5. 1947, sölu- og þjónustustjóri Hans Petersen, gift Þórði Skúlasyni, einnig hjá Hans Petersen, og eiga tvö börn. Foreldrar Júlíusar: Agnar Guðmundsson, f. 6.3.1914, d. 31.1. 2002, skipstjóri og fyrrv. framkvæmdastjóri, og kona hans, Birna Petersen, f. 2.12. 1917, d. 27.11. 1969, húsmóðir. Ætt Agnar var sonur Júlíusar Guðmundssonar, stór- kaupmanns í Reykjavík, sem var sonur Stefáns, versl- unarstjóra á Djúpavogi, bróður Stefaníu, ömmu Páls Stefánsson, auglýsingastjóra DV. Stefán var sonur Guðmundar, hreppstjóra á Torfastöðum, Stefánssonar. Móðir Júlíusar var Andrea Nielsdóttir Weywadt, versl- unarstjóra á Djúpavogi, og Sophie Mortensdóttur Tvede, land- og bæjarfógeta í Reykjavík. Móðir Agnars var Elín Magnúsdóttir Stephensens landshöfðingja, Magnússonar Stephensen, sýslumanns I Vatnsdal, Stefánssonar Stephensens, amtmanns á Friðbjörg Kristjana Ragnarsdóttir húsmóðir í Hafnarfirði Eiríkur Þorvaldsson fyrrv. símamaður á Akranesi Friðbjörg Kristjana Ragnarsdóttir hús- móðir, Hellubraut 7, Hafnarfirði, er sjötug í dag. StarfsferiU Friöbjörg fæddist á Akranesi og ólst þar upp til níu ára aldurs en síðan að Læk í Leirársveit þar sem hún átti heima þar til hún var tvítug. Friðbjörg stundaði nám við Húsmæðra- skólann að Varma- landi í Borgarfirði veturinn 1950-51. Hún var búsett á Akranesi til 1964 er hún flutti til Hafnarfjarðar þar sem hún hefur búið síðan. Fjölskylda Friðbjörg giftist 26.12. 1958 Jóhanni Jóni Jóhanns- syni, f. 9.11. 1929, vélstjóra. Hann er sonur Jóhanns Jóns Hilaríusar Jónssonar og Sigurlaugar Jóhanns- dóttur. Börn Friðbjargar og Jóhanns Jóns eru Jóhann Þór Jóhannsson, f. 15.3.1954, í sambúð með Rúnu Baldvins- dóttur, f. 19.10. 1960, hann á einn son frá fyrra hjóna- bandi, Daníel Þór Jóhannsson, f. 21.8. 1978; Ragnar Steinþór Jóhannsson, f. 10.6. 1958; Friðjón Viðar Jó- hannsson, f. 8.3. 1962; Edda Sigurbjörg Jóhannsdóttir, f. 11.10. 1969, maður hennar er Rúnar Páll Brynjúlfs- son, f. 9.8. 1958, og eru börn þeirra Hjálmfríður Bríet Rúnarsdóttir, f. 28.11. 1997, og Friðbjörg Lilja Rúnars- dóttir, f. 4.4. 2000. Systkini Friðbjargar: Guðjón Ragnarsson, f. 21.2. 1931, búsettur á Akranesi; Hrefna Ragnarsdóttir, f. 17.3. 1932, búsett á Akranesi; Salvör Ragnarsdóttir, f. 2.2.1934, búsett á Akranesi; Georg Garðar Ragnarsson, f. 7.6. 1938, búsettur í Hafnarfirði; Sigvaldi Ragnars- son, f. 9.7. 1941, búsettur í Hafnarfirði; Halldóra Guö- rún Ragnarsdóttir, f. 2.11. 1944, búsett í Kópavogi; Svanhvít Ragnarsdóttir, f. 2.11. 1944, búsett í Reykja- vík; óskírð systir sem dó í fæðingu, f. 1950. Foreldrar Friðbjargar voru Ragnar Þórður Sigurðs- son, f. 1.7. 1901, d. 2.5. 1958, verkamaður á Akranesi og bóndi á Læk í Leirársveit, og Friðbjörg Friðbjarnar- dóttir, f. 26.1. 1909, d. 5.6. 1999, húsfreyja. Fjölskylda Eiríkur kvæntist 30.10. 1943 Guðrúnu Finnbogadótt- ur, f. 24.5. 1924, húsmóður. Foreldrar hennar voru Finnbogi Sigurðsson frá Seilu í Skagafirði og Þuríður Guðjónsdóttir frá Seljateigi í Reyðarfirði. Böm Eiríks og Guðrúnar eru Sigríður, f. 18.2. 1944, gift Vigni G. Jónssyni, þau starfa að hrognaverkun og útflutningi og eiga einn son; Sigþór Bogi, f. 30.3. 1952, bankamaður á Akranesi, kvæntur Mínervu Margréti Haraldsdóttur tónlistarkennara og á hann tvær upp- komnar stjúpdætur og einn uppeldisson. Systkini Eiríks eru Ólafía, f. 9.11.1908, nú látin, hús- freyja að Hálsi í Kjós; Tómas Jóhannes, f. 30.10. 1910, nú látinn, sjómaður; Sigurður Kristinn, f. 1.7. 1912, nú látinn, vélstjóri; Málfríður, f. 15.9. 1914, húsmóðir á Akranesi; Margrét Sigríður, f. 15.6. 1916, d. 23.5. 1920; Teitur, f. 7.1.. 1920, d. 16.4. sama ár; Ólafur, f. 21.6. 1922, nú látinn, verkamaður; Þorsteinn, f. 30.6. 1924, vél- stjóri á Akranesi. Hálfsystir Eiríks, samfeðra, var Valdís, f. 21.6. 1902. nú látin. Foreldrar Eiríks voru Þorvaldur Ólafsson, f. 18.9. 1872, d. 16.5. 1944, og Sigríöur Eiríksdóttir, f. 22.11. 1883. d. 28.5. 1934. Eiríkur verður að heiman á afmælisdaginn. Eiríkur Þorvaldsson, Vesturgötu 90, Akra- nesi, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Eiríkur fæddist í Kárabæ á Akranesi og hefur búið á Akranesi síðan. Hann var fyrstu starfsárin til sjós á bát- um frá Akranesi, lærði múraraiðn og starfaði við það um tíma en var lengst af símamaður hjá Pósti og Síma. Eiríkur sat í stjórnum íþróttabandalags Akraness sem gjaldkeri og í Knattspyrnuráði Akraness, bæði sem formaður og gjaldkeri. Hann var einn stofnfélaga í Golfklúbbi Akraness og hefur verið sæmdur gull- merki ÍSÍ og silfurmerki KSÍ. Hann hefur verið félagi í Lionsklúbbi Akraness í fjörutíu og þrjú ár og er nú ævifélagi í klúbbnum. Hvítárvöllum, Ólafssonar, stiftamtmanns í Viðey, Stef- ánssonar, ættíoður Stephensensættarinnar. Móðir El- ínar var Elín Jónasdóttir Thorstensen, sýslumanns í Eskifirði, Jónssonar landlæknis, Þorsteinssonar. Móð- ir Jónasar var Elín Stephensen, systir Magnúsar í Vatnsdal. Móðir Elínar Thorsteinsen var Þórdís Páls- dóttir Melsteð, amtmanns í Stykkishólmi, og Önnu Stefánsdóttur, amtmanns á Möðruvöllum, Þórarins- sonar, ættföður Thorarensenanna, Jónssonar. Birna var dóttir Hans Petersens, kaupmanns í Reykjavík, sonar Adolfs Petersens, verslunarmanns í Keflavík, og konu hans, Maríu, systur Mettu Kristínar, móður Ólafs, prófasts í Hjarðarholti, afa Ólafs Ólafs- sonar landlæknis og Ólafs Björnssonar prófessors og langafa Þorsteins heimspekings, Vilmundar ráðherra og Þorvalds prófessors Gylfasona. María var dóttir Ólafs, hreppstjóra í Hafnarfirði, Þorvaldssonar. Móðir Birnu var Guðrún Jónsdóttir, b. á Brún, Hannessonar af Guðlaugsstaðaætt, bróður Guðmundar læknaprófessors og Páls á Guðlaugsstöðum, föður Björns, alþingismanns á Löngumýri. Páll var afi Páls Péturssonar þingflokksformanns og Más sýslumanns, og langafi Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar dós- ents. Móðir Guðrúnar var Sigurbjörg, hálfsystir Þor- gríms, afa Valborgar skólastjóra, móður Stefáns heim- spekings, Valborgar lögfræðings og Sigríðar sendi- herra Snævarr. Höfuöstafír nr. 68 ir frestað um sinn vegna Einhverju sinni birti ég hér í þættinum eina af svokölluðum Svínárnessvísum eftir Brynjólf Guð- mundsson í Núpstúni. Vísur þessar urðu til smátt og smátt á ferðum Brynjólfs inn í Svínárnesskofa, yfirleitt ein vísa í hverri ferð. Bragarhátturinn heitir braghent og í þessu tilviki eru vfsurnar samrímaðar, þ.e. allar braglínurnar þrjár ríma saman. Annars er algengt í þessum bragarhætti að fyrsta línan rími ekki við hinar. Alls eru vís- urnar sjö og hljóða þannig: Djöfull var nú, drengir, gott að detta í’óa, mega frjáls um fjöllin ríöa og fullur o’nípokann skríóa. Gríóarlega gáskablandin geróist reiðin. Fram meö Sandá létt var leiöin, því lostafull og blaut var heióin. Gaman var aö gista hér og glösum klingja, sálarskarniö ögn aö yngja, einkanlega þó aö syngja. Mikiö lét nú lífiö okkur litlu kvíöa meóan kvöldsins kyrrö og blíöa klappaði á vanga Rauöárhlíöa. Forlög góö mig fluttu hingaö, fylliraftinn, aöeins til aö opna kjaftinn og endurnýja sálarkraftinn. Hjartaö fullt af fjallsins yndi finn ég tifa. Þaö er sem ég segi og skrifa: Svona dag er gott aö lifa. Þaö er eins og inn’í hausnum ennþá kveði; ekki man ég allt sem skeöi, en eitt er víst - aö hér var gleöi. Nýlega barst mér skemmtUeg vísa eftir Eystein Gíslason, bónda i Skáleyjum. Hann tekur fyrir gam- alt orðatUtæki og sér á því nýja hlið, eins og gjarn- an gerist hjá hagyrðingum og skáldum: Góö var flíkin gefin mér úr grófu ullarbandi. Spámaður ég orðinn er í eigin fööurlandi. Leirlisti sá, sem stundum er vitnað til hér i þættinum, er lokaður öðrum en hagyrðing- um og inntökuskUyrði eru æði ströng. Þar verða menn að yrkja sig inn og sanna sig þannig. Ég ætla í lokin að birta vísu sem Kristján Bersi Ólafsson gerði þegar umsókn hans var tU meðferð- ar hjá inntökunefndinni: Sífellt bœtist leir vió leir. Leirinn kœtir, eyðir pínu, stundum rœtinn, stundum meyr, en stendur œtíöfyrir sínu. Það þarf ekki að taka það fram að Bersinn flaug inn. Umsjón

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.