Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ2003 SKOÐUN 11 tLAUGARDAGSPISTILL Jónas Haraldsson aðstoöarritstjóri - jhar@dv.is Verslunarmannahelgin er um næstu helgi með öllu sínu æði, ferðalögum, ryki, tjöld- um, prímusum, nesti, djammi og djúsi. Unglingarnir eru þegar byrjaðir að gera klárt en foreldrarnir eru í öngum sínum. Þessi helgi er þekkt í íslandssög- unni sem mesta sukkhelgi ársins. Hún er eins konar manndóms- vígsla ungs fólks. Lifi það svallið af telst það fullorðið. Sem betur fer komast flestir klakklaust frá þess- um sumarævintýrum en hætt er við að hár foreldra gráni lítið eitt með- an á þeim stendur. Var verslunar- mannahelgin ekki kölluð hátíð orgs og ælu eitt árið? Missir transistora Ég gekk í gegnum slíka vígslu íyr- ir margt löngu. Þá voru helstu orgi- ur í Þórsmörk og Húsafelli. Ég valdi Húsafell, gott ef ekki fermingarárið. Við fórum þangað, félagamir, sennilega í rútu, þótt ég muni það ekki sérstaklega. Við vorum upp- strflaðir, klárir í allt, með tjald og svefnpoka. Ég tók nýja transistor- útvarpið með. Það var handhægt og gekk fyrir rafhlöðum. Dátar spiluðu. í því bandi vom helstu hetjur samtímans undir dyggri forystu Rúnars Gunnarsson- ar söngvara. Sá hæfileikarfld lista- maður dó ungur en lögin hans lifa enn. Aðrir hafa endurflutt þau ný- lega. „Gvendur á eyrinni" stendur alltaf fyrir sínu og ekki síður lagið „Það er svo undarlegt með unga rnenn". Yrkisefnið er sígilt, enda lflct á komið með ungum mönnum nú og þá, „í ungum stúlkum þeir, verða bálskotnir enn". Hátíð þessi er mér að mestu gleymd. Þó man ég eftir skóginum í Húsafelli, danspöllum og nætur- göltri. Hvorki mér né félögunum varð meint af en hitt vissi ég áður en heim var haldið að transistor- útvarpinu hafði verið stolið, ger- seminni sem ég fékk í fermingar- gjöf. Eignarrétturinn er ekki mikils metinn á útihátíðum. Aukaslag í hjarta Síðan hef ég lítt leitt hugann að útihátíðum nema þá helst þegar ég hef reynt að koma í veg fyrir að mín eigin böm sæktu eina slíka. Það hefúr gengið misjaftflega enda þurfa væntanlega allir að prófa. Þó sótti ekkert þeirra eldri þess konar hátíð fermingarárið, sem betur fer. Ég er ekki viss um að samkomumar séu hollar fermingarbörnum. Yngsta barnið, yngri dóttir okkar hjóna, er hins vegar nýfermt. Ég er svo saklaus að ekki hvarflaði að mér að sú góða stúlka væri svo lfk föður sínum að hún gæti hugsað sér að fara á útihátíð um verslunar- mannahelgi, það merka ár í lífi hvers unglings. Enda hefði það ekki komið til greina, að minnsta kosti ekki á hefðbundna sukkhátíð. Stúlkan nefndi þó við foreldra sfna fyrir nokkm að hún hefði hug á að sækja hátíð úti á landi um versl- unarmannahelgina. Hjörtun slógu aukaslag en okkur létti þegar hún tiltók að ferðinni væri heitið á ung- „Er ekki rétt að þú keppir í einhverju, elsk- an, fyrst við förum á annað borð á íþrótta- mót?" lingalandsmót Ungmennafélags ís- lands sem haldið verður á ísafirði um næstu helgi. Stúlkan hefúr stundað ftjálsar íþróttir af kappi, æft vetur jafnt sem sumar og vill nú uppskera í keppni við jafnaldra sína um leið og hún sýnir sig og sér aðra í höfuðstað Vestfjarða. Brogaður íþróttaferill Landsmót ungmennafélaganna geta ómögulega talist til svallhá- tíða. Þetta em fjölmenn og vel skipulögð íþróttamót en gleði og gaman um leið. Þjálfarar fylgja keppendum og foreldrarnir bíða á hliðarlínunni. ísafjarðarferðin var því samþykkt án vífilengja, enda verðum við foreldrarnir með í för. Á Húsafelli þá og ísafirði nú er regin- munur. „Er ekki rétt að þú keppir í ein- hverju, elskan, fyrst við fömm á annað borð á íþróttamót?" sagði konan og beindi orðum sínum til mín. Dóttir okkar hafði þá sagt okk- ur frá því að hún myndi keppa í hlaupum, spjótkasti og kúluvarpi. „Hvað áttu við?“ sagði ég við kon- una og vissi ekki alveg hvar ég hafði hana. Hún veit eins vel og ég að síð- asti kappleikur minn í knattspyrnu var í 5. flokki A með Vfldngi gegn KR. Þá var ég í barnaskóla. Við Vík- ingarnir töpuðum. Þá tel ég ekki með handboltaleikinn sem ég lék nálægt tvítugu. Þá vantaði menn í Vfldngsliðið. Gönflum félögum var því skrapað saman. Við töpuðum 24-5 gegn Ármanni. Það verður að segja eins og er, með fúllri virðingu fyrir íþróttafélaginu Ármanni, að langt er síðan það var stórveldi í handknattleik. Samt möluðu þeir okkur félagana svona herfilega. Raunar náðum við lokamarkmiði okkar í leiknum, að tapa ekki með tuttugu marka mun. Ég sá því, vegna þessarar reynslu, ekki beina tengingu við þátttöku mína í íþrótt- um á opinberu móti og sagði kon- unni það. Medalía í stofuna „Ég man ekki betur," hélt eigin- kona mín áfram, „en ég ræki augun í það í auglýsingu frá landsmótinu að sýnd yrði grísk-rómversk glíma. Hvernig ert þú í henni?" Ég lét sem ég heyrði ekki spurninguna. „Nei," sagði konan og var sem hún hugs- aði upphátt, „þú ert sennilega ekki rétt byggður fyrir hana. Þessir glímukappar eru vel vöðvafylltir og þéttir á velli. Það verður nú ómögu- lega sagt um þig, minn kæri, að þú sért þannig í laginu." Konan var hugsi um stund en varð síðan í framan eins og hún hefði fengið uppljómun: „Nú veit ég í hverju þú keppir. Þú ert alltaf að monta þig af því að hafa keyrt traktor í sveitinni frá því þú varst tíu ára, bakkað með heyvagna og múgavélar. Er ekki alltaf keppt í einhverjum furðuíþróttum á lands- mótum, meðal annars i dáttarvéla- akstri, aftur á bak og áfram, jafnvel með kerru í eftirdragi? Þú ert kjör- inn í það. Ég sé ekki annað en þú sért öruggur sigurvegari og ekki vantar þig keppnisskapið. Þarna færðu að minnsta kosti tækifæri til að vera í þessum gamla Víkings- búningi þínum." Konan ljómaði í framan þegar hún hélt áfram, nánast eins og hún væri komin á keppnisbrautir ísa- Qarðar. „Sérðu fyrir þér fyrirsagn- irnar í blöðunum að loknu lands- móti?" sagði hún: „Gamli Víkingur- inn ósigrandi í dráttarvélaakstri" eða „Spilaði á jafnaldra sinn, Fergusoninn, eins og hljóðfæri". „Hvað segirðu um þetta, íþrótta- hetjan mín? Væri ekki æðislegt að eiga svona úrklippu til að festa framan á kæliskápinn? Medalíuna myndum við ramma inn og hafa í stofunni. Þú átt nú ekki það mikið af verðlaunapeningum." Æfingin skapar meistarann „Slakaðu aðeins á," sagði ég við konuna og reyndi að koma henni niður á jörðina á ný. „í hvaða grein myndir þú þá keppa?" spurði ég. „Ja,“ sagði konan, „ætíi ég tæki ekki þátt í því sem ég hef æft mig í, á þér og krökkunum í þrjátíu ár, og keppti í pönnukökubakstri með tveimur pönnum. Þið hafið svo sem haldið mér í æfingu."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.