Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Blaðsíða 24
24 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ2003 Matur og vín Umsjónarmenn: Gunnþóra Gunnarsdóttir, gun@dv.is Haukur Lárus Hauksson, hlh@dv.is Blómkál Mark Twain kallaði blómkál „kál með framhaldsskólapróf'! Það er kynbætt afbrigði afvillikáli og heimildum ber ekki saman um hvar ræktun jpess hófst. har eru bæði Rómaveldi og Austurlönd nefnd til sögunnar, jafnvel Kína eða Kýpur. Blómkálið hefur safaríka, þykka og samþjappaða blómleggi og blómskipun og það eru þessi blóm sem eru svo eftirsóknarverð og efsti hluti stilkanna.Blómkál er reyndar með græn blöð en þau eru bara umbúðir utan um hvít eða gulleit blómin sem mynda þétta klasa. Blómkál er gjarnan borðað hrátt, til dæmis með ídýfu eða í salat, en það er iíka oft borið fram með öðrum mat, léttsoðið eða gufusoðið. Oftast er blómkálinu skipt niður í greinar eða kyisti áður en það er soðið en heilt blómkálshöfuð er líka stundum ofnsoðið og borið fram með t.d. ostasósu. Blómkálssúpa er herramannsmatur og íhana notast neðri hluti stilkanna ágætlega með. Blómkálernæringarríktog auðmelt. Bragðmilt og gott að bíta í hrátt eða lítið eldað „Mér finnst grænmeti þurfa að vera þannig að maður finni fyrir því þegar maður bítur í það, því verður að varast að sjóða það of lengi," segir Guðný Jónsdóttir, matselja í Garðinum, grænmetismatstofu á Klapparstíg 37. Guðný hefur öðlast mikla reynslu af mat- reiðslu grænmetis enda hefur hún lifað á því síðustu tuttugu árin. Henni finnst nýja ís- lenska blómkálið mjög gott og laust við allt beiskjubragð sem einkennir sumar tegundir. Segir það heldur eiginlega enga eldun þurfa. „Ég slekk undir pottinum þegar ég er búin að setja það út í. Þá er allt hitt soðið og blómkál- ið nær að verða alveg heitt í gegn,“ segir hún. Þegar hún matreiðir grænmeti segir hún mikilvægt að setja það fyrst í pottinn sem lengsta þurfi suðuna. „Ég byrja á kartöflunum, síðan gulrótun- um og svo koll af kolli,“ segir hún. Þegar DV bar að Garðinum var Guðný að elda rétt dagsins og þar var blómkálið í öndvegi. Hér kemur uppskriftin: Grænmeti og kjúklingabaunir í kókosmjólk 2 msk. olía 1 stór laukur 1 hvítlauksrif saxað 1 msk. karríduft 1 tsk. cumminduft 1/4 tsk. kardimommuduft 1/4 tesk. múskat 1 lítill chilli 1 msk. engiferrót, rifin 300 mlsoð 1/2 kgblómkál 400 g kartöflur 250 g gulrætur 250 g grænar baunir 150 g epli 250 g tómatar, afhýddir 250 g kjúklingabaunir 1 dós (400 ml) kókosmjólk ferskt kóríander salt ristaðar cashewhnetur Kjúklingabaunirnar eru lagðar bleyti yfir nótt og soðnar í a.m.k. eina klukkustund. Laukurinn er saxaður mýktur í olíunni. Síðan er bætt við hvítlauk, karríi, chilli, múskati og engiferrót og látið malla í eina mínútu. Saxaðir tómatar settir út í og látið sjóða í 10 mínútur. Þá kemur grænmetið skorið í munnbita, eitt á eftir öðru, eftir því hve mikla suðu það þarf, fyrst kartöflur, svo gulrætur og síðan blómkál og grænar baunir. Sjóða þarf græn- metið þar til það er tilbúið. koma kjúklingabaunirnar út í, kókosmjólk og epli í litlum bitum og hitað að suðu. Kóríander og salt eftir smekk. Hnetum stráð yfir diskinn og hann skreyttur með fersku kóríander. Með þessu ber Guðný krydduð hrís- grjón og ferskt salat úr hin- um ýmsu kálteg- undum. Krydduð hrísgrjón Einn laukur er skorinn í þunnar ræmur og steiktur létt í olíu. Síðan eru cumminfræ, salt hvítlaukur og rifin engiferrót sett út í. Þá eru hrísgrjónin steikt aðeins (olíunni og síðan soðin í vatni í hálftíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.