Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Blaðsíða 57
f LAUGARDACUR 26.JÚLÍ2003 TILVERA 61 *. ! Hvað er ísjónvarpinu í kvOld? SANNAR LYGAR: Arnold Schwarzenegger og Jamie Lee Curtis fara með aðalhlut- verkið í myndinni True Lies sem er á dagskrá Stöðar 2 rétt eftir klukkan ellefu í kvöld. Kvikmyndir kvöldsins á RUVog Stöð 2 SFJÖLMIÐLAVAKTIN Kristinn J. Arnarson Spjallað við útlendinga Ungir eldhugar hafa ráðist í út- gáfu blaðs fyrir erlenda ferða- menn hér á landi. Grapevine kall- ast það og er alveg hreint glettilega gott á köflum. Þar eru land og þjóð tekin öðrum tökum en í hefð- bundnum túristatímaritum og sennilega ekki vanþörf á því að oft eru þau ósköp gerilsneydd, upp- full af upplýsingum um hvar sé hægt að borða og hvar megi kaupa lopapeysur, en litlu öðru. Þetta nýja tímarit sýnir hins vegar íjöl- breyttari mynd af landinu, reynir að útskýra fýrir útlendingum ýmis mál sem skipta íslendinga máli og sýnir þeim einnig oft á tfðum þá hlið okkar sem sumir hefðu kannski frekar reynt að fela fyrir ferðamönnunum. Sem er auðvitað í góðu lagi því það er löngu kominn tími til að við hættum að reyna að vera alltaf í sparifötunum þegar gesti ber að garði. Sá tími er hér með liðinn að Islendingar telji öllum gestum trú um að þeir borði hrútspunga í hvert mál og lesi handritin af jafn mikilli áfergju og dagblöðin. Annars finnst mér svolítið fynd- ið að lesa þetta blað sem er skrifað á ensku fyrir útlendinga því mér líður svolítið eins og ég sitji á kaffi- húsi og stelist til að hlera samtal góðglaðs íslendings og ferða- manns. Maður veit að það er ekki kurteisi að hlusta en getur ómögu- lega staðist freistinguna. Sá ís- jenski lætur dæluna ganga, er orð- mn svolítið heimsvanur og gerir Því góðlátlegt grín að þjóð sinni, en undir niðri kraumar samt enn þá spurningin sem greypt er inn í Þjóðarsálina: „How do you like Iceland?" STJÖRNUGJÖf DV tét ic Nói alblnói ★★★i Dark Blue ★ ★★ HULK ★ ★★ Phone Booth ★★★ Charlie Angels Full Throhle ★ ★ Hollywood Ending ★ ★ Anger Management ★★ 2 Fast 2 Furious ★★ Jet Lag ★★ Matrix Reloaded ★★ Bringing Down the House ★ ★ Lizzie McGuire Movie ★i Dumb and Dumberer i Stöð 2 Stöð 2 sýnir íjórar kvikmyndir f kvöld. Sú fyrsta hefst klukkan 19.00 og nefnist Bubble, eða Blöðru- strákur. Myndin fjallar um Jimmy Livingston sem þarf að hírast í plastkúlu allt sitt líf. Hann fæddist án ónæmiskerfis og þarf því á sér- stakri meðhöndlun að halda. Jimmy reynir samt að gera gott úr öllu saman en þegar draumadísin hans er á leið í hnapphelduna með öðrum manni hinum megin á hnettinum er okkar manni brugð- ið. En Jimmy deyr ekki ráðalaus og er staðráðinn í að vinna hjarta stúlkunnar sem hann elskar. Klukkan 21.00 hefst svo spennu- myndin From Hell, eða Djöfull í mannsmynd. Ódæðisverk eru framin f Whitechapel í Lundúnum árið 1888. Ibúarnir eru óttaslegnir og eru þeir þó ýmsu vanir í eymd sinni og örbirgð. Fórnarlömbin eru konur og það er ljóst að hinn blóð- þyrsti morðingi hefur ekki fengið nægju sína. Lögregluvarðstjórinn Fred Abberline tekur að sér málið en til að leysa það verður hann að leggja líf sitt að veði. True Lies, eða Sannar lygar, hefj- ast klukkan 23.05. Þetta er spenn- andi mynd um njósnarann Harry Tasker sem er karl í krapinu. Hann þreytist ekki á að bjarga lands- mönnum frá hryðjuverkamönnum en getur hann bjargað hjónabandi sínu? Maltin gefúr þrjár stjörnur. Síðasta myndin á dagskrá Stöðv- ar 2 er Boiler Room, eða Kyndiklef- inn. f fjármálaheiminum snýst allt um peninga, völd, losta og græðgi. Þannig er því að minnsta kosti háttað hjá Seth Davis og félögum hans í þekktu fjármálafyrirtæki. Davis ætlar sér skjótfenginn gróða en rekst á ýmsar hindranir á vegin- um og kynnist fljótt dökkum hlið- um fjármálaheimsins. Myndin hefst klukkan 3.20. RÚV Fyrsta kvikmyndin á dagskrá RÚV hefst klukkan 20.15 og heitir Faðir brúðarinnar II. Þeir sem sáu fyrri myndina vita að hún fjallaði um mann sem tók það ákaflega nærri sér þegar dóttir hans gekk í hjónaband. í þessari mynd er hon- um öllum lokið þegar hann kemst að því að hún ædar Ifka að verða mamma. Klukkan 22.00 hefst svo myndin Umdeildur erfingi, The Tichborne Claimant. Árið 1866 hverfur sir Roger Tichborne, ungur breskur aðalsmaður og einn ríkasti maður sinnar kynslóðar, þegar hann er í hnattsiglingu. Tfu árum síðar ber- ast af þvf fregnir til Englands að til hans bafi sést í Suður-Ameríku og Ástralíu. Tichborne-fjölskyldan gerir dyggan þjón sinn út af örkinni til að hafa uppi á erfingjanum. Eftir margra ára leit snýr þjónninn aftur heim og hefur með sér mann sem kveðst vera sir Roger. Hann gerir tilkall til auðæfa íjölskyldunnar en sumir eru efins um að hann sé sá sem hann segist vera og úr verður eitt af frægari dómsmálum enskrar sögu. Sfðasta myndin á dagskrá RÚV hefst klukkan 23.35 og nefnist Full- komið morð. Auðkýfingur á allt sem hann þráir utan eitt: tryggð konu sinnar, og því tekur hann til sinna ráða. 4 GHOST SHIP FOURFEAEHERS BONUSVIDEO Leigan í þínu hverfi '■■***** «| ignBaM 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.