Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Side 25
LAUGARDAGUR 26. JÚLl2003 DV HELGARBLAÐ 25
Blómkálsrétturinn hennarGuð-
nýjar er með indverskan keim
sem kemur meðal annars af
fersku kóríander sem hún rífur
smátt yfir í lokin. Kóríander gef-
ur líka fallegan lit.
Krydduð hýðishrísgrjón eru sett
fýrst á diskinn, síðan er aðalrétt-
urinn færður upp á hann. Allt
grænmetið er íslenskt og ferskt.
Blómkálið hefur ekki verið soðið
með heldur aðeins hitað í gegn.
Ristaðar cashewhnetur fara
einkar vel með grænmetisrétt-
um og ýmsum öðrum mat. Hér
sáldrar Guðný þeim yfir diskinn.
DV-myndir Hari
Ljúffeng og vinsæl kassavín
frá JP Chenet
er val Ómars S. Gíslasonar í víndeild Rafkóps-Samvirkis
í ljósi mikillar aukningar á vinsæld-
um kassavína undanfarin ár ákvað
Ómar S. Gíslason hjá Rafkóp-Sam-
virki að fjalla um tvö léttvín úr JP
Chenet-fjölskyldunni. Þessi vín eru
þau mest seldu frá Frakklandi og hafa
verið afar vinsæl, ekki síst í
Skandinavíu. Undanfarið hefur
þriggja lítra JP Chenet Cabernet
Syrah verið til sölu í vínbúðum ÁTVR
við miklar vinsældir og nú hafa tvær
aðrar tegundir bæst í hópinn. JP
Chenet Merlot og JP Chenet Blanc de
Blancs. Það sem einkennir þessi vín
eru lfflegar umbúðir sem eru mis-
munandi á litinn og því þægilegt að
aðgreina tegundirnar og velja í búð-
inni. Merlot-kassinn er auðkenndur
með dökkbláum lit en Blanc de
Blancs-kassinn er fallega grænn.
Síðastliðin ár hafa vínræktendur
lagt meiri metnað í kassavínin sín í
kjölfar vaxandi vinsælda þeirra. Því
eru þetta yfirleitt frambærileg vín. í
mörgum vínræktarlöndum eru
kassavín í hávegum höfð og getur sala
á heimamarkaði náð allt að 80%. Vín-
in frá JP Chenet hafa verið til sölu á
íslandi í rúmt ár og eru viðbrögðin
hér í takt við það sem er að gerast er-
lendis. Einn af meginkostum þess að
kaupa vín í kössum er geymslutíminn
sem getur verið allt að sex vikur eftir
að kassinn hefur verið opnaður.
JP Chenet blanc de blanc verður
fyrst fyrir valinu Nafnið blanc de
blanc gefur til kynna að einungis er
notast við ljósar þrúgur. í þessu tilfelli
eru notaðar þrúgurnar Ugni blanc,
Colombard, Sauvignon, Chardonnay
og Cros Manseng. Vfnið kemur frá
Suðvestur-Frakklandi, nánar tiltekið
frá Cotes de Gascogne. Það er ljósgult
með grænum tón. Ilmurinn er f með-
allagi opinn og hreinn þar sem bregð-
ur fyrir hvítum blómum, appelsínu-
og apriskósusultu. JP Chenet blanc
de blanc er meðalbragðmikið þar
sem sítrusávexti og blómum bregður
fyrir. Vínið er tilbúið til drykkju og er
kjörhiti þess um 5-7“C. Best er þetta
vín með léttum fiskréttum, pasta,
salötum og bökum.
Rauða vínið sem Ómar mælir með
er JP Chenet Merlot í 3 lítra kassa. Það
kemur einnig frá Suðvestur-Frakk-
landi eða frá Vin de Pays d’oc og er að
öllu leyti gert úr merlot-þrúgunni.
L iturinn er meðaldjúpur og fjólu-
rauður, ilmurinn í meðallagi opinn
þar sem ber á sultu, rauðum berjum,
bláberjum og léttu kryddi. JP Chenet
Merlot er meðalbragðmikið með vott
af rauðum berjum, krækiberjum og
mjúku tanníni. Vfnið er tilbúið til
drykkju og er kjörhiti þess um
16-19°C. Best er JP Chenet Merlot
með léttum réttum, grillmat og ost-
um.
Þriggja lítra kassi jafngildir 4 hefð-
bundnum flöskum (750 ml). JP
Chenet blanc de blanc-kassi kostar
3540 krónur í ÁTVR en JP Chenet
Merlot-kassi 3600 krónur.