Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Blaðsíða 30
30 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ2003 Davíð Oddsson forsætisráðherra segir Ijóst að íslendingar geti ekki tekið að sér landvarnirsem komi í stað orrustuþotna Bandaríkjamanna; fari þoturnar verði varnir landsins því ófullnægj- andi. Hann segir að hviki Bandaríkjamenn hvergi íafstöðu sinni sé hægt að henda varnar- samningnum. DV ræddi við forsætisráðherra í vikunni um varnarmálin, samráð olíufélag- anna, fraksstríðið, skattalækkanirog fleira. - Það er ljóst að Bandaríkjamenn hafa gengið býsna bratt frarn gagnvart íslending- um í máiefnum varnarliðsins. Hefur fram- ganga þeirra í málinu verið eðlileg að þínu mati? „Ég vil nú helst ekki segja neitt sem er til þess fallið að gera viðræðurnar erfiðari en þær þó eru en ég held að mér sé þó óhætt að segja að aðferðin við að hefja málið var dálít- ið harkaleg. Það er óhjákvæmilegt að viður- kenna það og það kom manni dálítið á óvart." - Þú ert að vísa til bréfs sem barst nokkrum dögum fyrir kosningar frá Bandaríkjastjórn um málefni herstöðvarinnar. Fráhverjum var bréfíð oghvert var efni þess? „Það var reyndar ekki bréf heldur tilkynn- ing sem sendiherrann las - sitjandi þarna sem þú situr [á skrifstofu ráðherra í Ráð- herrabústaðnum við Tjarnargötu] - sem sneri að því að hið eiginlega varnarlið að okk- ar mati yrði farið 2. júní, sú ákvörðun væri endanleg og okkar afstaða myndi ekki breyta henni í neinu. Þannig að þetta var dálítið sér- stakt." - Frá hverjum var tilkynningin? „Frá Washington, eins og það hét. Það var bara sagt að þetta væri niðurstaða frá Wash- ington." - Hefur þetta einhver áhrif á samband þjóðanna? „Það á ekki að hafa það. Við teljum að þessi aðferð hafl ekki verið ákveðin á hæstu stöð- um heldur af aðilum sem ekki gerðu sér grein fyrir sambandi þessara þjóða og samskiptum þeirra í gegnum tíðina. En ég get ekki neitað því að okkur var töluvert brugðið." - Þú hefur sagt að ríkisstjómarflokkamir hefðu vafalaust grætt á þvf að segja frá þessu fyrir kosningar en staðist freistinguna. „Það er ekki vafi á því í mínum huga því að þegar vandi af þessu tagi kemur upp, sem skiptir miklu um öryggi þjóðarinnar og aðra þætti, þá hafa kjósendur tilhneigingu til þess að þjappa sér um rfldsstjórn á hverjum tíma og vilja ekki taka áhættu. Þarf þá ekki að minna á mjög gáleysisleg og óvarkár ummæli ónefndra talsmanna í kosningabaráttunni um varnarliðið og samstarfið við Bandarík- in.“ - Gott og vel: Hvers vegna létuð þið ekki þessa „freistingu “ eftirykkur? „Vegna þess að við töldum að nógu væri nú málið erfítt þótt því væri ekki hleypt inn í blossa kosninga sjö dögum fyrir kjördag, þá eru engin mál rædd af neinu viti, stóryrtar yf- irlýsingar hefðu flogið um allt. Okkar verkefni var að breyta þeim farvegi sem málið var komið í og fá það á hreint hvort það væri virkilega svo, að æðstu menn í Washington vildu að svona væri komið fram.“ „Efvarnarviðbúnaðurínn yrði aðeins í þágu annars aðilans þá getur vera varnarliðsins hér ekki byggst á varnarsamningn- um. Þá verða menn að henda honum. Þetta er alveg kristal- klárt í mínum huga." - En er sú staðreynd, að málið hefði haft áhrif á niðurstöður kosninganna, ekki einmitt mjög sterk röksemd fyrir því að kjós- endur hefðu átt að vita af því áður en þeir greiddu atkvæði? „Nei, vegna þess að þótt það hefði að mínu mati augljóslega hjálpað stjórnarflokkunum hefði umræðan um máfið ölf verið í skötulíki, eins og er þegar nýtt mál kemur upp sjö dög- um fyrir kosningar. Það hefði enginn fengið botn í hvað væri að gerast. Og ásakanir hefðu komið fram um að við værum að þyrla þessu upp vegna þess að það væru kosningar. Þannig að við urðum bara að bíta á jaxlinn. Og það var ekkert létt - að vera í umræðum um alla aðra hluti og með hugann við þetta. Þetta var allt dálítið skrýtið. Ég tel að við höfum tekið mjög málefnalega afstöðu í málinu. Aðrir stjórnmálamenn sem meira gapa og geifla sig í fjölmiðlum út af öllu, þeir hefðu ekki haldið ró sinni eins og við gerðum.“ „Ef Bandaríkjamenn taka megininntak varnarsamningsins burtu einhliða þá fer hann með. Það er ekki af því að við segjum Leynd í þágu málsins - Þann 5. júnf- fyrir sjö vikum - var þér af- hent bréf frá George Bush sjálfum um málið sem þú svaraðir nokkmm dögum síðar. Vangaveltur um efni þessara bréfa hafa allar verið f véfréttastíl en ríkisstjómin hefur að- eins sagt að málið sé „alvarlegt". Hvenær verður efni bréfanna gert opinbert? „Það er ekki ákveðið en það myndi verða gert þegar menn væru komnir með málið í endaniegri farveg en nú er. Og þá myndu menn gera nánari grein fyrir þróun málsins en hægt er að gera á þessu stigi." - Þannig að það er ekki hægt að upplýsa á þessu stigi hvað það er sem Bandaríkjamenn vilja. „Nei, það er ekki í þágu málsins að fara ofan í einstök atriði hvað það varðar. Það má hins vegar segja að það eru mismunandi sjónarmið uppi milli ríkjanna um hvað séu lágmarksvarnir fyrir ríki við nútímaaðstæður og hvernig sé hægt að tryggja þær. Það eru deildar meiningar um það.“ - / október 1993, þegar viðræður stóðu yfír við Bandaríkjamenn um bókun við varnar- samninginn, sagði Björn Bjarnason, þá for- maður utanríkismálanefhdar, að þögnin um viðræðurnar væri orðin skaðleg. Hann sagði að til að gróusögur væm ekki fluttar í fréttum um þetta mikilvæga mál ætti helst að skýra frá því á opinbemm og almennum vettvangi þannig að menn áttuðu sig á þeim atriðum sem væm til umræðu. Finnst þér ekki sama eiga við um viðræðurnar nú? „Okkar viðbúnaður yrði að miðast við annað og við vær- um þá náttúrlega verr varin en fullnægjandi er. Við getum bara ekki úr því bætt." „Nei, ég held að nú liggi nokkurn veginn fyr- ir í öllum meginatriðum um hvað málið snýst. En að rekja einstök samtöl manna og áherslur og þess háttar, það gerir bara skaða." - Er það rétt að það sé að ósk íslenskra stjórnvalda en ekki bandarfskra að efni bréf- anna er trúnaðarmál?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.