Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Qupperneq 12
12 FRÉTTIfí LAUGARDAGUR 26.JÚLÍ2003
Útlönd
Heimurinn í hnotskurn
Umsjón: Kristinn Jón Arnarson
Netfang: kja@dv.is
Sími: 550 5828
Platbók frá sjónvarpskokki
NET©: Tölvupóstgabbfórá
flakk um Internetið í gær. Þar
var á ferð viðhengi sem var lát-
ið líta út sem ný bók frá Jamie
Oliver, kokkinum klæðalausa.
Viðhengið var 121 blaðsíðu
Word-skjal með uppskriftum
og litmyndum og var það kall-
að „The Naked Chef 2".
Útgáfufélag Olivers, Penguin
Books, sagði í gær að þarna
væri á ferðinni sjóræningjaút-
gáfa með samansafni af upp-
skriftum sem Oliver hefur gefið
út í ýmsum bókum sínum. Út-
gáfan hyggst reyna að hafa
uppi á þeim sem kom þessari
tölvupóstsendingu af stað og
kæra hann fyrir brot á höfund-
arrétti. Erfitt gæti þó verið fyrir
útgáfuna að stöðva útbreiðslu
platbókarinnar úr þessu.
Skip til Líberíu
FRIÐARGÆSLA: Bush Bandaríkjafor-
seti fýrirskipaði í gær að Bandaríkjaher
sendi herafla til strandar Líberíu til að
hægt verði að styðja friðargæslu í
stríðshrjáðu landinu. Ekki kom ná-
kvæmlega fram hversu mikill herafli
það væri, en vitað er að herskipið USS
Iwo Jima leiðir þriggja skipa flota sem
er nýkominn til Miðjarðarhafsins. Ekki
er því ólíklegt að skipin verði send til
friðargæslu við Líberíustrendur.
Forsætisrádherra Palestínu heimsækir Bandaríkin:
George Bush telur
öryggisgirðiiigu
ísraela vandamál
George Bush Bandaríkjaforseti
og Mahmoud Abbas, forsætis-
ráðherra Palestínu, funduðu í
gær. Eftir fundinn sagði Bush
að hann teldi öryggisgirðingu
sem ísraelar eru að reisa á
Vesturbakkanum vera vanda-
mál sem flækti friðarumleitan-
ir á svæðinu.
„Ég tel að girðingin sé vandamál
og ég hef rætt þessi mál við Ariel
Sharon, forsætisráðherra ísraels.
Það er mjög erfitt að byggja upp
traust milli Palestínumanna og
ísraela þegar þessi girðing liggur
um allan Vesturbakkann,“ sagði
Bush.
Hann sagðist hins vegar ekki ætla
að beita ísraelsmenn þrýstingi til að
fá þá til að sleppa palestínskum
föngum. „Það er ekki verjandi að
biðja ísraela um að sleppa meintum
hryðjuverkamönnum og leyfa þeim
þannig að halda áfram iðju sinni,"
sagði Bush. Hann sagði að líta yrði á
hvern fanga fyrir sig og ákvarða
hvort rétt væri að sleppa honum
lausum.
ísraelar fjarlægja hermenn
Á meðan Bush og Abbas funduðu
tilkynntu ísraelar að þeir ætluðu að
kalla hermenn sína frá tveimur bæj-
um á Vesturbakkanum og ijarlægja
fjölda vegatálma á svæðinu. Frétta-
skýrendur telja að þetta sé gert til að
reyna að draga úr áhrifamætti
heimsóknar Abbas til Bandaríkj-
anna. Áður hafði verið búið að til-
kynna um sumar þessara aðgerða
sem ísraelsmenn kynntu.
Jafnframt sögðu ísraelsmenn
formlega frá því að þeir hygðust láta
laus hundruð palestínskra fanga.
Það verður þó að öllum líkindum
ekki gert fyrr en Ariel Sharon hefur
sjálfur farið í heimsókn til Banda-
„Það er ekki verjandi
að biðja ísraela um að
sleppa hryðjuverka-
mönnum og leyfa þeim
þannig að halda áfram
iðjusinni"
ríkjaforseta í næstu viku.
Það varpaði jafnframt skugga á
friðarumleitanir í gær að ísraelskir
hermenn drápu fimm ára palest-
ínskan dreng og særðu tvær systur
hans, sex og sjö ára. ísraelsmenn
sögðu að mistök hefðu átt sér stað,
skot hefði hlaupið óvart úr vélbyssu
á herbíl s'em staddur var við vega-
tálma með þessum afleiðingum.
FÓRNARLAMB: Palestínumaður ber burt lík hins fimm ára Mohammeds Qabha, sem ísraelskir hermenn drápu í Jenín í gær. Tals-
menn (sraelshers segja að mistök hafi orðið þess valdandi að skot hlupu óvart úr vélbyssu á herbíl við vegatálma og lentu i bíl
sem Qabha var farþegi í. Eins og gefur að skilja hjálpar þetta atvik ekki til við að minnka spennuna milli Palestínumanna og ísra-
ela, en mjög viðkvæmar friðarumleitanir standa nú yfir fyrir botni Miðjarðarhafs.
Reynt að sannfæra almenning í írak um að synir Saddams séu allir:
Fréttamenn fá aðgang að líkunum
Bandaríkjaher hleypti í gær 15
fréttamönnum inn í líkhús til
að skoða líkin sem sögð eru
vera af þeim Uday og Qusay,
sonum Saddams Husseins.
Þetta var gert til að reyna að eyða
efasemdum margra fraka um að
líkin á myndunum, sem Banda-
ríkjamenn birtu í gær, hafi í raun
verið lík sona einræðisherrans fyrr-
verandi. í þetta sinn var búið að
snyrta andlit líkanna til og skera
skegg þeirra með sama hætti og
synirnir höfðu gert.
Krufningasérfræðingar Banda-
ríkjahers sögðu að hvort lík um sig
LÍKIN SÝND: Kvikmyndatökumenn taka nærmynd af líkum sem Bandaríkjaher hefur
fullyrt að sé af sonum Saddams Husseins. Vonast er til að myndirnar sannfæri al-
menning í Irak um að synirnir séu allir og muni ekki hrella Iraka framar.
hefði verið með yfir 20 skotsár. Ekk-
ert benti hins vegar til þess að
bræðurnir hefðu framið sjálfs-
morð, en getgátur höfðu verið uppi
um það.
Þó svo að sýning líkanna geti
orðið til þess að margir írakar geti
nú andað léttar, fullvissir um að
synirnir geti ekki snúið aftur, geta
enn meiri deilur sprottið vegna
málsins. Til að mynda samræmist
meðferð lfkanna, t.d. snyrting
þeirra, ekki reglum múslíma. Enn
hefur heldur ekki verið ákveðið
hvernig Bandaríkjaher hyggst
framkvæma útför bræðranna, sem
gæti einnig valdið deilum vegna
strangra reglna múslíma um slíkt.
Evrópusambandið:
Vill einkarétt
á kampavíni
Evrópusambandið hefur
unnið lista yfir 35 heiti á
matar- og drykkjarvörum
sem það vill að framleið-
endur innan sambandsins
fái einkarétt á.
Á listanum eru meðal annars
heiti á borð við Champagne,
Bordeaux-vín, Roquefort-ostur
og Parmaskinka. Evrópusam-
bandið segir að þar sem þessi
heiti tengist ákveðnum héruð-
um eða landsvæðum sé óeðli-
legt að framleiðendur utan
landsvæðanna geti kallað vöru
sína þessum nöfnum. Framleið-
endum utan ES er hins vegar
ekki skemmt vegna málsins.
Viögeröir
Breytingar
Varahlutir
Aukahlutir
Úrval afnotuðum
Combi Camp-tjaldvögnum
COMBI-CAMP
ÍSLAND
— Lynghálsi 10 • Reykjavfk • sími 5*17 SSSS —