Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Page 14
14 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ2003 Synir Saddams drepnir Skaut borgarráðsmann í NY ÍRAK: Yfirmaður bandaríska heraflans í (rak staðfesti um miðja vikuna að þeir Uday og Qusay, synir Saddams Huss- eins, fyrrum (raksforseta, hefðu verið skotnir til bana í sex klukkustunda löngum skot- bardaga í bænum Mosul í norðurhluta (raks á þriðjudags- morguninn. Um 200 manna bandarískt her- lið, stutt árásarþyrlum, tók þátt í bardaganum eftir að vls- bendingar höfðu borist frá íröskum eiganda hússins, sem sagðurerfrændi Saddams. Myndir af líkum bræðranna voru sýndar oþinberlega í fjöl- miðlum um allan heim í fyrra- dag til þess að fullvissa íraskan almenning um að líkin væru af þeim og engum öðrum. NEWYORK: Maðurréðstá pólitískan andstæðing sinn í ráðhúsi New York á miðviku- daginn og myrti hann áður en lögregla náði að grípa inn í og skjóta árásarmanninn til bana. Hinn myrti hét James Davis og var rúmlega fertugur borgar- ráðsmaður úr Brooklyn-hverfi. Hann var þekktur fyrir baráttu sína gegn ofbeldi í borginni. Árásarmaðurinn hét Othniel Askew, 31 árs og höfðu þeir Davis komið saman til ráðhúss- ins nokkrum mínútum áður. Ekki er Ijóst hvers vegna Askew framdi voðaverkið en hann hafði ætlað að bjóða sig fram gegn Davis í forkosningum demókrata í haust en ekki tek- ist að safna til þess nógu mörgum meðmælum. Pallbílaflótti FLÓTTAMENN: Tólf flóttamenn frá Kúbu, með hugmyndaflug- ið í lagi, reyndu í vikunni að komastyfirtil Bandaríkjanna á gömlum Chevrolet-pallbíl sem þeir höfðu bundið flotholt við. Mennirnir náðu að komast rúmlega hálfa leiðina en þá tók bandaríska strandgæslan á móti þeim og mun senda þá afturtil síns heima. Slátrarinn IdiAmin við dauðans dyr: Margir Úgandamenn vilja dansa á gröfinni hans SLÁTRARINN IDIAMIN: Kannski á heimleið, lífs eða liðinn, eftir áratuga útlegð frá árinu 1979. FRÉTTAUÓS Erlingur Kristensson erlingur@dv.is Fjölskylda Idi Amins, „Slátrar- ans frá Úganda", sem nú liggur helsjúkur á sjúkrahúsi í Jeddah í Sádi-Arabíu, hefur að undan- förnu reynt að fá hann fluttan heim til Úganda svo hann fái tækifæri til þess að njóta síð- ustu ævidaganna í heimaland- inu eftir rúmlega 25 ára útlegð við mikil þægindi. Amin, sem er 78 ára og sakaður um grimmileg fjöldamorð og pynt- ingar heima í Úganda, hefur átt við vanheilsu að stríða að undanförnu vegna hækkandi blóðþrýstings og var fluttur á King Faisal-sjúkrahúsið í hafnarborginni Jeddah við Rauða- haf á föstudaginn þar sem hann féll í dauðadá daginn eftir. Að sögn sérfræðinga, sem annast Amin, komst hann aftur til meðvit- undar á miðvikudaginn og var þá tekinn úr öndunarvél. „Hann virtist vera að hressast en mun þó enn í lífshættu og verður áfram haldið á gjörgæslu," sagði einn sérfræðing- anna. Að beiðni fjölskyldu Amins vildi sérfræðirigurinn ekkert segja um það hvað amaði að honum eða hvaða meðferð hann gengist undir. Óstaðfestar heimildir segja að hann þjáist af nýrnakvilla og hafl neitað að gangast undir aðgerð. „Efhann kemur lifandi og með fullri meðvitund þá mun ég strax láta handtaka hann vegna þess að hér framdi hann alvarlega glæpi sem hann á eftir að svara fyrir/'sagði Museveni. Fjölskyldu Amins var strax tjáð að ólíklegt væri að hann lifði veikindin af en eftir að hafa óvænt komið til meðvitundar um miðja vikuna gæti allt gerst. Mun láta handtaka Amin Beiðni fjölskyldu Amis um að hann fái að koma heim, lifandi eða dauður, hefur hlotið misjafnar und- irtekir heima í Úganda og svaraði Yoweri Museveni, Úgandaforseti, henni cifdráttarlaust og sagði að Am- in yrði strax handtekinn ef hann kæmi til baka úr útlegðinni. Hann bætti þó við að ef Amin geispaði gol- unni erlendis þá mætti fjölskyldan flytja lík hans heim til greftrunar. „Ef hann kemur lifandi og með fullri meðvitund þá mun ég strax láta handtaka hann vegna þess að hér framdi hann alvarlega glæpi sem hann á eftir að svara fyrir," sagði Museveni í viðtali við úganska ríkisdagblaðið New Vision. Amin hefur lengst af búið í Sádi- Arabíu síðan hersveitir úganskra út- laga hröktu hann úr landi með hjálp tansaníska hersins þann 11. apríl árið 1979, eftir átta ára valdatíð hans frá árinu 1971, en á þeim tíma lét hann handtaka og myrða tugi þúsunda landa sinna. Museveni sagði að Amin-fjöl- skyldunni væri velkomið að flytja lík Amins heim til greftrunar ef hann létist erlendis. „En það verður ekk- ert gert honum til heiðurs og hann yrði jarðaður eins og hver annar venjulegur Úgandamaður," sagði Museveni. Þar var hann að svara ummælum Miltons Obotes, fyrrum forseta Úganda, sem nú dvelur í út- legð í Sambíu, en Obote hvetur stjórnvöld í Úganda til þess að leyfa Amin-fjölskyldunni að flytja lík Am- ins heim til greftrunar. Það gerir Obote þrátt fyrir að Amin hafi rænt hann völdum árið 1971, meðan hann sem forseti sótti fund Breska samveldisins í Singapoor. Fái að koma heim til að deyja Yoweri Museveni hefur áður sagt að Amin verði látinn svara til saka vegna glæpa hans gegn úgönsku þjóðinni, vogi hann sér að koma heim til landsins. Ekki eru þó allir á sama máli og þar á meðal er Þjóðar- flokkurinn, UPC, sem Amin rændi völdunum af 1971, en það er vilji flokksmanna að hann fái að koma heim til þess að deyja þrátt fyrir að hafa atað hendur sínar blóði tug þúsunda landa sinna. Talið er að Idi Amin, sem einu sinni lýsti hrifningu sinni á Adolf Hitler, hafi átt þátt í hvarfi allt að 500 þúsund manns á átta ára valdaferli. Henry Mayega, talsmaður flokks- ins, sagði að stjórnvöld í Úganda hefðu skyldum að gegna við Amin þar sem hann væri enn úganskur ríkisborgari og fyrrum forseti. „En það eru margir Úgandamenn sem vilja dansa á gröfinni hans,“ sagði Mayega. Kirunda Kivejinja, forsætisráð- herra Úganda, er á öðru máli, en hann gerði þó sitt til þess að auð- velda konu og dóttur Amins að komast frá Kampala til Sádi-Arabíu þegar Amin veiktist. John Nagenda, talsmaður Kivej- inja, sagði að allir Úgandabúar ættu rétt á því að koma til föðurlandsins og þar á meðal Idi Amin. „Hann verður þó að horfast í augu við lög og reglur eins og aðrir," sagði Nag- enda en bætti við að Museveni for- seti hefði vald til þess að náða Amin en aðeins eftir dómsmeðferð. Talið er að Amin, sem einu sinni lýsti hrifningu sinni á Adolf Hitler, hafl átt þátt í hvarfi allt að 500 þús- und manns á átta ára valdaferli og þar af er talið sannað að ógnar- stjórn hans hafi allt að 300 þúsund mannslíf á samviskunni, sam- kvæmt uppflettiriti CIA. Það er því ekki nema von að fólk líti slátrarann hornauga og vilji sem minnst af honum vita. Það var þó ekki fyrr en fyrir ári síðan að 11. apr- íl var gerður að almennum frídegi í Úganda til þess að fagna falli hans. Á sama tíma lifði Amin í vellysting- um undir verndarvæng vina sinni í Sádi-Arabíu, en hann á fjórar eigin- konur og 43 börn. FERILLIDI AMINS Idi Amin átti skrautlegan feril eins og sést hér að neðan: 1925: Idi Amin, af Kakwa-ættbálki, fæddur í nágrenni bæjarins Arua í Koboko-héraði í norðausturhluta Úganda. 1946: Amin gengurtil liðs við breska nýlenduherinn og er m.a. sendur með hersveit sinni til Burma í seinni heimsstyrjöldinni. 1951: Amin vinnur titilinn„Þunga- vigtarmeistari Úganda" í hnefaleikum. 1952-1956: Óbreyttur Amin hækkaður í stöðu liðsforingja. Er einn tveggja innfæddra Úganda- manna sem hlotnast sá heiður meðan Bretar halda um stjórnar- taumana í landinu. Færá sig stimpil ofstækis og misþyrminga. 1962: Úganda hlýtur sjálfstæði frá Bretum. Amin er stuðningsmaður Miltons Obotes, fyrsta for- sætisráðherra landsins. 1963: Obotehorfirfram hjá ásök- unum um misþyrmingar Amins og skipar hann höfuðsmann. 1964: Amin enn hækkaður í tign og skipaður ■ stöðu ofursta og að- stoðaryfirmanns landhersins. 1966: Amin styður við bakið á Obote þegar hann ákveður að ógilda stjórnarskrá landsins í kjölfar ásakana um fjármáiamisferli og mikillar andstöðu í konugdæminu Buganda. Oboto setur nýja stjórnar- skrá lýðveldisins, skipar sjálfan sig forseta og leggur niður öll konung- dæmi landsins. Amin er skipaður yfirmaður heraflans og byrjar strax á því að styrkja stöðu sýna með því að skipa menn úr eigin ættbáli í lykil- stöður. Það verður til þess brestir koma í samstarfið við Obote. 1970: Samband þeirra Obotes versnar til muna eftir að einn helsti andstæðingur Amins i foringjaliði hersins er myrtur. (kjölfarið missir Amin foringjastöðuna og er settur bak við skrifborð. 1971: Amin fregnar að Obote ætli að handtaka hann vegna gruns um fjárdrátt úr sjóðum hersins. Þann 25. janúar rænir Amin völdum með stuðningi hersins á meðan Obote er erlendis. Skipar sjálfan sig forseta og yfirmann heraflans. 1972: Amin vísar 50 þúsund Ind- verjum og Pakistönum úr landi. Hann ögrar Bretum og Bandaríkja- mönnum og slítur tengsl við fsrael en tekur upp náin samskipti við Líbíu og Palestínumenn. 1976: Amin skipar sjálfan sig forseta til Iffstfðar og verður sjálfur viðriðinn flugrán þegar palestísnkir flugræningjar ræna ísraelskri flugvél og neyða hana til þess að lenda á Entebbe-flugvelli. 1978: Herir Amins ráðast inn f Tansaníu til þess að draga athyglina frá bágu efnahgsástandi heimafyrir. Fljótlega hraktir burt. 1979: Amin flýr land til Líbíu eftir að útlagaher hertekur höfuðborgina Kampala með hjálp tansaníska hersins. Hann dvelur heilan áratug í Líbfu og frak áður en hann snýr til Sádi-Arabíu, þar sem hann er enn. Sádar styrkja hann með 1400 dollara framlagi á mánuði og hann lifir þægilegu lífi með fjórum eigin- konum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.