Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Síða 20
20 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ2003
Fræðslan og ferðalagið saman í eitt:
Sumargetraunin
Að sitja kyrr á sama stað en samt að vera að
ferðast, kvað skáldið forðum. Slík ferðalög
geta oft verið áhugaverð, það er að viða að sér
fróðleik um landið og sögu þess. Raunveru-
legt ferðalag verður síðan fyrir vikið miklu
skemmtilegra búi maður yfir slíkum fróðleik.
Hverri þeirra nítján mynda sem eru á þess-
ari síðu fylgir ákveðin spurning og svarið er
ákveðið sérnafn. Fyrsti stárfurinn í því er lyk-
ill að ákveðnu lausnarorði, sem er alls nítján
starfír. Það orð tengist ferðalögum um þenn-
an tíma sumars.
Verðlaunin í þessari getraun eru ekki af
verri endanum, þrjár ágætar bækur sem
Edda útgáfa leggur til. Svör í þessari getraun
þurfa að hafa borist blaðinu fyrir 8. ágúst en
lausnin og nöfn vinningshafa verða birt hér í
DV að tveimur vikum liðnum. Svör má senda
hvort heldur sem er í pósti eða tölvupósti en
neðst á síðunni má sjá hvert senda á lausn-
ina.
Úti við ysta haf í
Selvogi er þessi
kirkja sem þykir
hafa meira seið-
magn en flest
önnurguðshús
og vera einstök
til áheita. Hafa
þau gert kirkjuna
að eipni þeirri
stöndugustu á
landinu af ver-
aldlegum auði -
og kannski and-
legum líka. Hver
er kirkjan?
Hann hefur setið í borgarstjórn í meira
en tuttugu ár og sannar sjálfur best að
hinir síðustu verða stundum fyrstir.
Hver er þessi maður sem fyrir
skemmstu var valinn leiðtogi sjálfstæð-
ismarina í borgarmálum?
Þessi tilgátubær er í Haukadal í Dölum. Hann er byggður í samræmi við hugmyndir
um hvernig hús á þessum stað hafi verið árið 1000, þegar þar bjó sá maður sem fyrst-
ur íslendinga nam Grænland. Bærinn dregur nafn sitt af nafni mannsins, sem var
hver?
Hann var einn dáðasti söngvari á ís-
landi á bítlatimanum og söng lög sem
urðu afar vinsæl, svo sem Gvendur á
Eyrinni. Hann söng m.a. með Sextett
Ólafs Gauks, en þar áður Dátum. Hver
var söngvarinn?
Þetta er eitt
mesta
fuglabjarg
landsinsog
enn eru sótt í
það egg. Al-
þekkt er björg-
unarafrekið
undir bjarginu
1947 þegar
breski togarinn
Doon strandaði
þar. Landfræði-
lega er þetta
vestasti oddi
Evrópu. Hvert
er bjargið?
Neðst í Þjórsá er þessi lági en tignarlegi foss. Um hann
stekkur lax en ósagt skal látið hvort urriði gerir það
líka. Þetta náttúruvætti hefur verið I fréttum vegna
hugmynda um virkjun sem gætu breytt ásýnd fossins.
Hvað heitir hann?
Austur við Þingvallavatn, þaðan sem þessi mynd er,
ólgar jörðin og undir yfirborðinu er jörð funheit. Á
þessum slóðum er mikið orkuver og þaðan kemur
■ mikill hluti þess vatns sem borgarbúar orna sér við.
Hvert er orkuverið?
Kaupstaöur þessi er einn sá fjölmennasti á landinu og
höfuðstaður Norðurlands. (búar þar eru um fimmtán
þúsund talsins og er heldur að fjölga. Kristján Þór Júll-
usson er bæjarstjóri. Hver er bæinn?
Kauptúnið, sem hér sést á mynd, er nyrst á Melrakka-
sléttu í Norður-Þingeyjarsýslu. Það er norður við ysta
haf en var I fréttum fyrr Lsumar vegna sviptinga þar í
atvinnumálum. Hver er þessi staður?
Hér sjáum við bæ og kirkjustað í Fljótshlið sem er
frægastur fyrir það að endur fyrir löngu bjuggu þar
hjónin Gunnar Hámundarson og Hallgerður. Fyrir kinn-
hest léði hún honum ekki lokk úr hári slnu á ögurstund
og varð það Gunnars bani. I hvaða sögu segir af því?
Austur á Héraði er þetta byggðarlag sem er í raun höf-
uðstaður Austurlands. Þar er veðursæld mikil og
grænir skógarlundir hvarvetna. Hverer bærinn?
í innbænum á Akureyri er þetta fallega timburhús. Það
er þekkt fyrir að þar ólst upp að hluta Jón Sveinsson
sem skóp (slandi frægð með bókum sem náðu vin-
sældum vlða um lönd. Hvað var Jón yfirleitt nefndur?
Víða er fallegt í
Dölum og söguleg-
ir staðir eru ófáir,
svo sem Krosshól-
ar, þaðan sem þessi
mynd er. Þar var
bænastaður Auðar
djúpúðgu. Annar
kvenskörungur úr
héraðinu erGuð-
rún Ósvífursdóttir
sem mjög kemur
við eina af fræg-
ustu (slendinga-
sögunum. Hverer
hún?
Innst í Arnarfirði á Vestfjörðum er virkjun sem hér sést
á mynd og vatnið sem til hennar rennur kemur af há-
lendi Vestfjarðakjálkans. Vestfirðingar fá yl og orku frá
aflstöö þessari. Hvað heitir hún?
Frægasti fót-
boltamaður (s-
landssögunnar.
Kaupsýslumað-
ur og ólíkinda-
tól I stjórnmál-
um, bæði á
vettvangi borg-
ar- og lands-
mála. Elskaður
og hataður.
Fæddur 1923
og lést 1994.
Hver var mað-
urinn?
Svipmynd þessi er úr hverfi þeirra borgara sem ef til
vill eru hvað efnaðastir. Það er í Garöabæ og stendur
byggðin á nesi sem skagar út í sjóinn. Hvað heitir nes-
ið?
*»*■ «*sjj
pwi
15
Þetta fallega fjallavatn er norður í Öxnadal. Það stend-
ur nærri Hrauni I Öxnadal og dregur nafn sitt af þeim
bæ. (vatninu drukknaði snemma á nítjándu öld faöir
Jónasar listaskálds Hallgrímssonar. Hvert er vatnið?
f um 40 ár hafa templarar haldið hátlðir um verslunar-
mannahelgina austur (Landsveit og svo verður í ár
sem endranær. Mótssvæðið er í fögrum skógi við
Heklurætur. Hver er staðurinn?
Fjall þetta og náma er austur (Ölfusi. Það dregur nafn
sitt af Ingólfi Arnarsyni, fyrsta landnámsmanninum, en
undir fjallinu er sagt að hann hafi haft vetursetu áður
3
4
6
8
9
10
11
12 13 14 15 161718 19
Nafn:
Heimilisfang:
Símanúmer:
DV-Ferðagetraun
Skaftahlíð 24
104 Reykjavlk
eöa sumargetraun@dv.is
VINNINGAR
HÓTELGISTING
Gisting á tveggja manna herbergi með baði I
eina nótt á Hótel Eddu, ásamt morgunverði
fyrir tvo. Hótelin eru fimmtán talsins og í öll-
um landshlutum
UM VfÐERNI SNÆFELLS
Bókin Um vlöerni Snæfells eftir Guðmund Pál
Ólafsson. Ljósmyndir af svæðinu norðan
Vatnajökuls, eftir Friðþjóf Helgason, Jóhann
(sberg og Ragnar Axelsson.