Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Qupperneq 22
22 OVHELGAKBLMO LAUCARDAGUR 26. JÚLf2003 Umsjón: Arndís Þorgeirsdóttir, arndis@dv.is Snæfríður Ingadóttir, snaeja@dv.is Ólöf Marín Úlfarsdóttir leysir útvarpsmanninn Ásgeir Pál á útvarps- stöðinni Létt 957 af í sumar. Ólöf Marín, sem einhverjir muna lík- lega eftir af Bylgjunni, stefnir annars á lögfræðinám í Háskóla Reykjavíkur í haust. Hún er afskaplega fastheldin þegar kemur að snyrtivörum og er ekkert að breyta bara breytinganna vegna. Púðurmeikfrá Clarins „Þetta púðurmeik hef ég keypt í svona sjö ár, enda held ég mig við þær vörur sem mér finnast góðar og er ekkert að breyta breyting- anna vegna. Púður- meik þetta gefur fal- lega áferð og þurrkar ekki húðina eins og mörg púðurmeik gera. Svo er ' líka svo sniðugt við þetta púðurmeik að það er hægt að kaupa fyllingu þannig að maður þarf ekki alltaf að kaupa nýtt box og getur þar að leiðandi líka skipt um lit. T.d. er ég með aðeins dekkri lit núna yfir sumartímann en síðan er bara þetta ljósa sett aft- ur í boxið þegar veturinn kemur.“ Uppáhaldsglossið keypt aftur og aftur „Þetta er örugglega sjötta túpan sem ég kaupi af þessu ljósa glossi, Plastic shine nr. 117 frá Dior. Með þessu glossi nota ég Cappuccino- varablýant frá No name. Ég á önnur gloss en þetta gloss er f mestu uppáhaldi hjá mér.“ Aldamótamaskari „ Max Factor sendi frá sér sér- staka glamúr-útgáfu af Millenium- maskara árið 2000, sem gerir augna- hárin dramatískari og bæði þykkir þau og lengir. Ég nota þennan maskara daglega og finnst hann mjög góður.“ Emporio-ilmvatn frá Armani „Ég hef notað þennan ilm í fjögur ár og finnst hann enn jafn góður. Þetta er engin hausverkjalykt heldur léttur ilmur, frekar sportí. Eg sé enga ástæðu til þess að skipta á honum og öðrum svo lengi sem ég er ánægð með hann.“ Spari-sólarpúður „Þegar ég fer út að skemmta mér þá skelli ég oft smá- vegis sólarpúðri frá Guerlain á kinnamar. Það er smá glimmer f þessu púðri og það gerir mann frísklegan." Franska snyrtivörufyrirtækið L’OCCITA- NE hefúr sett á markaðinn nýja snyrtivöru- línu fyrir karlmenn sem nefnist „Cade“, í höfuðið á viðartegundinni eini sem er einmitt nefndur Cade í Provence-héraðinu í Frakklandi. Snyrtivörur þessar innihalda í ríkum mæli einiberja-ilmkjarnaolíu en hún kemur jafnvægi á fitu- og bakteríumyndun í húðinni. Cade-vörumar henta körlum á öllum aldri en þær vernda og styrkja húðina og gefa ferskt og heilbrigt útlit. í línunni er að finna sturtusápuna „Reinvigorating Shampoo for Body & Hair“ sem inniheldur einiberja-ilmkjarnaolíu og kínínkraft sem eykur vellíðan og hressir. „Travel Shaving and Skincare Oil“ er olía sem hægt er að nota á marga vegu, fyrir og eftir rakstur. Einnig er hægt að bera olíuna á andlitið eft- ir þörfum ef húðin er þurr. „Eau des Bergers" er vökvi til notkunar eftir rakstur og er með ferskum og viðarkenndum ilmi einisins. Hann inniheldur einiberja-ilm- kjarnaolíu ásamt örvandi blöndu af engifer, kardimommu- og paprikukrafti. „Shaving Cream" er raksápa í kremformi sem freyðir og inniheldur einiberja-ilmkjamaolíu, nær- andi og mýkjandi „Shea Butter" sem tryggir góðan rakstur án þess að erta húðina og „After Shave Balrn" er létt krem sem notað er eftir rakstur og mýkir, nærir og styrkir húðina en það inniheldur einiberja-ilm- kjamaolíu, nærandi „Shea Butter" og styrkjandi birkikraft. Að auki er hægt að fá í þessari línu raksápu í skál og rakbursta fyr- ir rakstur upp á gamla og góða mátann. Raksápan freyðir vel og tryggir mildan og góðan rakstur. Hægt er að loka rakburstan- um svo að auðvelt er að taka hann með sér í íþróttatöskuna eða ferðalagið. Á íslandi fást þessar frönsku vömr, úr hágæða nátt- úrulegu hráefni, eingöngu í L’OCCITANE versluninni á Laugavegi 76,101 Reykjavík. Focus on Contours fyrir konur 40-60 ára: irnirendur- mótaðir í hina öflugu kremlínu Focus Sculptor frá Helenu Rubinstein var að bætast við enn ein nýjungin „Focus on Contours" semm sem má segja að gefi konum kost á að upplifa andlitslyftingu og mótandi andlitsmeð- ferð með langvarandi virkni. Krem þetta er ædað öll- um þeim konum sem vilja árangursríka meðferð gegn slappri húð sem þarfnast stinningar og styrk- ingar. Það er einna helst hugsað fyrir konur á aldr- inum 40-60 ára og er ætíað þeim konum sem vilja endurmóta andlitsdrætti sína og vinna á óæski- legri fitusöfnun í andliti. Árangurinn á að sjást á fjómm vikum en fyrir utan að gefa húðinni sam- stundis lyftandi áhrif þá endurmótast andlitið það virkar grennra og andlitsdrættir verða skarpari. Best er að bera þetta krem á andlitið frá miðju og út, sem og á hálsinn. Fyrir þær konur sem vilja ná hámarksárangri er mælt með því' að serumið sé notað kvölds og morgna undir Face sculptor og undir Face sculptor næturkremið. Allar vömrnar í Face Sculptor línunni vinna að því að gefa húðinni unglegra yfirbragð, styrkja hana, gera hana stinnari, rakanæra hana og lyfta henni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.