Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Side 31
f _______________________________________ LAUGARDAGUR 26. JÚÚ2003 DV HELGARBLAÐ 35 ' honum upp heldur gefur það bara augaleið; þá hefur hann verið brotinn og er einskis virði." DV-myndir GVA „Við metum það svo af okkar hálfu að það sé ástæðulaust að reka þetta mál í fjölmiðlum, og ekki bara ástæðulaust heldur skaðlegt. Ég sé ekki betur en Bandaríkjamenn meti það með svipuðum hætti." - f dag er liöinn réttur mánuöur frá því aö íyrsti ogeini samningafundurinn varhaldinn. Eru viöræðurnar íhnút? „Þótt aðeins einn formlegur viðræðufundur hafi verið haldinn hafa farið fram fleiri fundir. Aðstoðarutanríkisráðherra kom hér og menn hafa auðvitað verið í símasamtölum við hina og þessa. Ég á von á að formlegur fundur verði einhvern tímann á næstunni og það er miklu betra að undirbúa það en að koma á fundi sem líklegt er að yrði árangurslaus." - Þú áttir nýveriö samtal við Condoleezzu Rice, þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjafor- seta. Sýnistþér máliö eitthvaö vera aö þokast? „Það væri of mikið að segja það. Við höfum átt samtöl við ýmsa og samtalið við dr. Rice var ítarlegt og vinsamlegt. Það er ekki hægt að segja að þar með sé málið leyst en það samtal lýsir því þó að Bandarikin taka þetta mál alvarlega og vilja koma því í þann farveg að þetta séu tvær vinaþjóðir að ræða saman en byggist ekki á þeim atburðum sem urðu 2. maí." „[Ríkissaksóknari] ætti að skrifa utanríkisráðuneytinu og biðja um afstöðu [til fram- sals á máli hermannsins]. Það er hin rétta aðferð. Og að mínu viti ætti í langflestum til- vikum að taka mið afþeim ráðleggingum." Varnarsamningur í hættu - Nú hafa íslendingar, eftir því sem næst veröur komist, ekki skilgreint sjálfir vamar- þörf landsins út frá hreinum herfræðiiegum sjónarhóli. Með hvaða rökum er þá hægt að halda þvífram að það sénauðsynlegt að hafa hér fjórar orrustuþotur þegar stærsta her- veldi heims segir að svo sé ekki? „Það er náttúrlega algjörlega ljóst að það er óþarft fyrir þá og það er það sem við teljum að liti viðræðurnar. En þótt kalda stríðinu sé lokið og Sovétrfkin séu hrunin er það nú þannig að enn þá hafa menn Atlantshafs- bandalag af einhverjum ástæðum. „Hver er óvinurinn?" gætu menn spurt - það er dálítið sérkennileg spurning að vísu, en þannig má spyrja ef menn vilja. Ekkert NATO-ríki hefur lagt niður sinn flugher. Það er verið að stækka NATO og rík- in sem fyrir eru gera kröfu til þess að í nýjum aðildarríkjum sé byggður upp flugher. Hol- lendingar eru að fækka þotum sfnum úr 130 minnir mig niður í 100. Ekki man ég hvað Danir hafa margar flugvélar en það eru tugir. Þar er ekkert meiri vá en hjá okkur. Þeir eru jú nær öðrum bandalagsþjóðum en við erum, hér úti á reginhafi. Um flugumferðarsvæði okkar fara milljón- ir farþega á hverju ári og Keflavíkurflugvöllur er mikilvægur í því sambandi. Það er meira að segja nefnt að ef hann væri ekki fyrir hendi væri líklega erfiðara að byggja á flugi yfir Atlantshafið á tveggja hreyfla flugvélum. Og Keflavfkurflugvöllur er varaflugvöllur fyrir skutlurnar þegar þær fara af stað í Flórída við tUteknar aðstæður. Þannig að það er þýðing- armikið að þessi flugvöilur sé varinn - og ekki bara varinn heldur sjáanlega varinn. „Meira að segja þingmenn hér, sem ættu nú að skamm- astsín, fullyrtu að börn væru að deyja hundruð þúsunda saman afþví að Vesturlönd væru með innflutningsbann d írak." Það er nefrit að NATO eigi að vernda aðild- arþjóðirnar. Það er út af fyrir sig ágætt en það dugar ekki og er ekki látið duga neinum öðr- um þjóðum. Þannig að þetta er ósköp einfalt f okkar huga.“ - Þú sagðir fyrir um tveimur árum að það þjónaði að þínu mati litlum tilgangi að hafa hér herstöð yfirhöfuð ef þoturnar færu. Ertu enn þeirrar skoðunar? >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.