Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ2003 t>VHSlGARlsLAiJ 37 gerir þegar úrskurðurinn heyrir undir ráðu- neytið. I því efni hlýtur saksóknari að hlusta mest á sjónarmið utanríkisráðuneytisins og ríkisstjórnarinnar vegna þess að þeir aðilar eiga hægara með að meta mikilvægi þessa þáttar en saksóknaraembættið. Þannig liggur málið. En þetta hefur verið sett upp í ein- hvern farveg kapps og leiks, sem er ekki heppilegt." - Bandaríska sendiráðiö kvartaði nýiega yfír því að hafa ekki enn fengið svar við því hvort iögsaga yrði framseld í málinu. Hefur þessu erindi ekki enn verið svarað? „Beiðninni hefur ekki verið formlega svar- að vegna þess að þeir aðilar sem fengu beiðn- ina [þ.e. utanríkisráðuneytið] hafa ekki að okkar mati lagalegar forsendur til að svara henni. Það er saksóknari sem gerir það. En hann ætti þá, eins og hann hefúr gert áður þegar svona hefur komið upp, að skrifa utan- ríkisráðuneytinu og biðja um afstöðu. Það er hin rétta aðferð. Og að mínu viti ætti í lang- flestum tilvikum að taka mið af þeim ráðlegg- ingum sem utanríkisráðuneytið og ríkis- stjórnin gefa hvað þennan þátt varðar. Þeir einir geta metið þessa hagsmuni en ekki sak- sóknari." - Og efhann spyrði þig ráða, hvað myndir þú segja? „Ég myndi bara svara honum.“ - Nú hefur hann gefíð það út að hann sjái ekki ástæðu til að framselja lögsöguna. Var það bara bráðabirgðaákvörðun? „Ég skal ekki um það segja. Slíka ákvörðun er hægt að taka hvenær sem er í ferlinu." - Hefur þetta mál áhrif á viðræðurnar um framtíð vamarliðsins? „Nei, í þeim samtölum sem ég hef átt hefur aldrei verið á þetta minnst." - Ertu sammála því sem fram kom í bréfí ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins að það beri að skoða þessi mál saman? „Nei, það var óheppilegt og utanríkisráðu- neytið hefúr viðurkennt að það var slys. Og þetta bréf var að ýmsu leyti slys.“ Þurfum enga fyrirgefningu - Nú er komið í ljós að upplýsingar um hernaðarmátt Iraka, sem bæði George Bush og Tony Blair notuðu til að réttíæta innrásina íírak, voru sumar byggðar á hæpnum heim- ildum og aðrar hreinlega falsaðar. Hverju breytir þetta að þínu mati um réttmæti inn- rásarinnar? „Þær heimildir sem voru falsaðar voru fals- aðar af öðrum aðilum en þeim sem tóku þær gildar. Menn verða að passa sig að rugla því ekki saman. Blair og Bush voru ekki að faísa neina hluti. Þeir tóku hins vegar að einhverju leyti mark á upplýsingum sem ekki voru 100% áreiðanlegar. Þetta byggist allt á trausti. Þegar við tökum ákvarðanir í ríkisstjórn eru þær byggðar á upplýsingum sem okkar emb- ættismenn eða einhverjir sérfræðingar láta okkur hafa. Ef þær eru rangar eða illa grund- aðar getum við lent í því að taka rangar ákvarðanir, eða ákvarðanir sem byggjast ekki á því sem við töldum þær byggjast. En fraks- stríðið er í rauninni eitt langt stríð frá 1991. Eftir að þeir tóku Kúveit var þeim gert að uppfylla ákveðin skilyrði. Það gerðu þeir ekki og það var ljóst að þeir höfðu haft yfir mikl- um vopnabúnaði að ráða. Sá vopnabúnaður lá fyrir í meginatriðum. En hann hefur ekki komið í ljós. Hann hefur ekki fundist, af hvaða ástæðum sem það er. Þeir gerðu aldrei grein fyrir því hvort þeir hefðu eyðilagt hann, farið með hann annað, flutt hann út fyrir landamærin, grafið hann einhvern veginn niður eða hvað þeir gerðu. En þessi vopna- búnaður lá fyrir allan tímann. Og - það sem menn hafa gleymt - Sameinuðu þjóðirnar samþykktu með 15 atkvæðum að þeir hefðu brugðist upplýsingaskyldu sinni og vopnaeft- irlitsskilmálunum. „Menn geta áttsér málsbætur og efvið myndum lenda í þessu sjálf myndum við öll vilja eiga okkar rétt og vera ekki dæmd og tekin aflífi í fjölmiðlum áður en endanleg niðurstaða væri fengin." Síðan er komið á daginn að þarna höfðu átt sér stað einhver mestu fjöldamorð sögunnar. Þannig að það er ljóst að þessi hernaður er til þess fallinn að skapa miklu betra ástand á þessu svæði og koma frá einhverjum versta harðstjóra sögunnar og því slekti sem í kring- um hann er. Þannig að f mínum huga breytir þetta ekki því, að að svo miklu leyti sem stríð getur verið gott þá var þetta gott stríð.“ - Hvað fannst þér um það orðalag sem Tony Blair notaði, að ef engin gereyðingar- vopn fyndust í Irak myndi sagan fyrirgefa þeim sem stóðu að innrásinni? „Ég tel ekki að það þurfi neina fyrirgefn- ingu á því að koma einum versta harðstjóra sögunnar, blóðhundi, í búrtu. Hér í þinginu okkar - hugsið ykkur það - höfðu ýmsir menn étið það upp að út af viðskiptabanni væru hundruð þúsunda barna að deyja og það væri í raun ráðamönnum á Vesturlönd- um að kenna að þau væru að deyja. Svo finn- ast í hverjum kjailaranum á fætur öðrum 50, 60 milljarðar króna í dollurum, aftur og aftur og aftur, þannig að nóg var til af peningum til að kaupa lyf, mat og hvaðeina. En hitt hent- aði auðvitað áróðrinum, sem menn voru ginnkeyptir fyrir, meira að segja þingmenn hér, sem ættu nú að skammast sín, fullyrtu þetta, að börn væru að deyja hundruðum þúsunda saman af því að Vesturlönd væru með innflutningsbann á írak. En hann [Saddam Hussein] notaði sem sagt landa sína, börnin sfn, bara sem peð á skákborðinu og fét þau deyja hundruðum þúsunda sam- an, fyrir utan allt það annað lið sem hann lét drepa. Þannig að þetta er mesta heims- hreinsun, að koma þessu hyski burtu frá írak.“ Heimskuleg hegðun - I frumskýrslu Samkeppnisstofnunar vegna rannsóknará olíufélögunum eru sterk- ar vísbendingar um að félögin hafí haft með sér víðtækt samráð um að skipta á milli sín markaðinum. Hver eru viðbrögð þín? „Það er nú í fyrsta lagi ljóst að það eru tveir aðilar sem hafa haft þessa skýrslu, annars vegar olíufélögin og hins vegar Samkeppnis- stofnun. Einhver lekur skýrslunni og menn verða bara að velta fyrir sér hver hefur hags- muni af því. Olíufélögin hafa síðan engst sundur og saman. Þannig að þetta er mikið „Efþrjú olíufélög reynast sek um samráð og fá háa sekt hvert og eittþeirra: verður það nokkuð öðruvísi en þannig að verðið hækkar og við sem kaupum bensínið borgum í raun sektina?" umhugsunarefni hvað þetta varðar. En látum það vera. Þá þarf að hafa í huga að þessu er lekið á meðan þetta er enn þá bráðabirgðaskýrsla, á meðan engin svör hafa fengist og enginn hefur haft tækifæri til að andmæla. Það hlýtur að setja svip á alla um- ræðu. Hitt er annað mál að ég held að allur al- menningur í landinu hafi lengi haft á tilfinn- ingunni að þarna væri meira samráð en vera bæri. Ég hef stundum fundið að því að olíufé- lögin væru mjög fljót til gagnvart almenningi að hækka verð en afar treg til að lækka; þá þurfi lengi að íhuga málin og sjá hvort fram- vindan sé eðlileg, hvort verð muni breytast og svo framvegis. Þetta hefur verið afskaplega ógeðfellt og þetta hefur allur almenningur fundið. Þetta er ekki bara ógeðfellt heldur líka heimskulegt hjá forráðamönnum olíufé- laganna. Þó að menn séu auðvitað neyddir til þess að fá bensín á bílinn sinn hvernig sem seljandinn hagar sér eiga menn ekki að not- færa sér það. Þess vegna hafa þessi ágætu fyr- irtæki ekki þá velvild hjá þjóðinni sem öll fyr- irtæki þurfa að hafa. Og því er öllu því sem lekið er kyngt sem heilögum sannleika. Menn hafa að vísu ekki leyfi til að gera það fyrr en fyrir liggur úrskurður byggður á öllum þátt- um málsins, ekki bara sjónarmiðum Sam- keppnisstofnunar heldur einnig þeim sem rannsóknin beinist að. Það er hins vegar alveg ljóst að menn fara samráðsleið út úr samkeppnisleið vegna þess að það er þægilegra og léttara við að eiga. Samkeppni er hörð, hún kostar heiimikið átak og miklu meiri vinnu en samráðið. En til lengri tíma litið dregur það líka þrótt úr fyrir- tækjunum að haga sér með þeim hætti og skaðar þau. Þannig að þetta er ekki bara skaðlegt fyrir almenning og viðskiptavini „Ég hefði gjarnan viljað að við gætum lögfest [skattalækkan- irj strax í haust. Ég veit ekki enn þá hvort það tekst fyrir eða eftir áramótin. Það fer eftirþví hvernig þróun kjara- málanna verður." heldur líka fyrir fyrirtækin sjálf. Að því leyti til virka þessi samkeppnislög sem mín fyrsta ríkisstjórn beitti sér fyrir að yrðu sett og það er enginn vafl á því að nú fara menn varlegar þótt sjálfsagt sé tilhneig- ing til þess, eins og úti um allan heim, að fara léttu ljúfu leiðina, eiga samráð og spara sér samkeppnina." - Þetta eru fyríríæki sem eru ímjögnánum eigna- og stjórnunartengslum við fjölmörg önnur stórfyrirtæki á íslandi. Er ekki rökrétt að gera ráð fyrír að svipað hafí verið uppi á teningnum - og sé jafnvel enn - á fíeiri svið- um viðskiptalífsins? „Það má vel vera og af þeim ástæðum voru lögin sett og síðan hnykkt á þeim og þau gerð öflugri. Menn töldu að hér hefðu viðgengist óeðlileg vinnubrögð hvað þetta varðaði. Hins vegar verða menn að muna að samkeppnis- skilyrði oh'ufélaganna forðum tíð voru kannski ekki merkileg. Ríkið keypti inn olí- una og bensínið fyrir þau öll, þetta var meira og minna flutt með sömu skipunum og í sömu tankana. Eftir það var kannski ekki mjög mikið rými fyrir samkeppni. Þetta var hálfopinber rekstur. Það er ekki vafi að á mjög mörgum sviðum var ekki um mikla samkeppni að ræða hér áður fyrr. Við munum til að mynda hvernig þjónusta Símans var. Ég man eftir því að ég var einu sinni með snúru sem var einn og hálfur metri en þurfti að hafa hana tvo metra. Þá gat ég ekki fengið aðra sfmasnúru nema sjö metra langa. Konan gat ekki hugsað sér það að ég væri með endaláusar símasnúrur á gólfinu og ég varð að fá tvo menn heim til mi'n með þessa sjö metra. Og ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að klippa hana í sundur til þess að stytta hana, sem var nú bara ekkert mál - eins og mér var bent á seinna meir. En það var bara sagt: „Étiði skít!“ við alla kúnna. Það var bara þannig. Enda var Síminn mjög illa rekið fyrirtæki fyrir vikið, þó að þar væri margt góðra manna innanhúss. Svona er þetta alls staðar þar sem menn fá engan sam- anburð." Sektir orka tvímælis - Það sem þarna virðist hafa verið á ferð- inni hefur verið kallað „samsæri gegn neyt- endum“. Sýnist þér að hægt sé að taka svo stórt til orða? „Það hefur út af fyrir sig ekkert upp á sig enn þá að kveða upp slíka dóma. Við skulum sjá hver niðurstaðan verður. En það sem maður getur fagnað er að þau lög sem við beittum okkur fyrir að yrðu sett eru að gera það gagn sem þau eiga að gera. Að vísu veltir maður fyrir sér, ef þrjú olíufé- lög reynast sek um samráð og fá háa sekt hvert og eitt þeirra: verður það nokkuð öðru- vísi en þannig að verðið hækkar og við sem kaupum bensi'nið borgum í raun sektina? Er það ekki líka þannig í grænmetísmálinu? Hef- ur ekki bara grænmetíð hækkað sem nemur sektinni? Maður þarf að velta fyrir sér hvort þetta sé nú aðferðin sem dugir." - Er eftir einhverju að bíða fyrír lögregluna að rannsaka vísbendingar um hugsanlegt refsiverí athæfí? „Meginreglan er sú að það stjórnvald sem er með málið klárar það og síðan er það þá sent lögreglunni í framhaldinu ef ástæða þykir til. Ef það er ekki sent lögreglunni þá hefur hún tök á að taka það upp sjálf. Það er yfirleitt ekki talið skynsamlegt að allir séu að grauta í sama málinu á sama tíma." - Kæmi að þínu mati til greina að lögreglan hefði rannsókn mála afþessu tagi alfarið með höndum frá upphafi, meðal annars með tilliti til réttarstöðu þeirra sem sæta rannsókn? „Ég skal ekki um það segja. Stundum er það svo að slíkar athuganir hljóta að fara fram með tvennum hætti; annars vegar vegna þess að grunsemdir eru uppi og hins vegar sem ein- hvers konar stíkkprufur. Ef lögreglan á að vera innvikluð í samkeppnisathugun á hverju slíku stigi og meðhöndla það sem sakamál þá held ég að við værum komin í allt annan farveg en að var stefnt." - Nú tekur það Samkeppnisstofnun mjög langan tíma að Ijúka málum á borð við þessi. Finnst þér tilefni til að efla hana? „Allar svona rannsóknir virðast taka langan tíma. Lögreglurannsóknir eru ekki fljótvirkari ef þú horfir á ýmis mál sem þar hafa verið uppi, jafnvel ekki stór mál. Tökum mál Árna Johnsens: hvað var það lengi að velkjast? Marga mánuði. Maður hefði haldið að það væri lítið mál. Og önnur mál sem menn hafa verið að leysa taka líka mikinn tíma. Það er af því að allir þurfa að vanda sig. Þarna er um stóra hagsmuni að ræða, iðulega æru manna og réttíndi. Þess vegna er ekki hægt að ílumbra að neinu. Og þótt allur almenningur þykist vita að einhvers staðar sé pottur brot- inn verða þessi yfirvöld að fara formlegar leið- ir og gefa hinum grunaða á öllum stígum leyfi til þess að skýra sína hlið. Menn geta átt máls- bætur og ef við myndum lenda í þessu sjálf myndum við öll vilja eiga okkar rétt og vera ekki dæmd og tekin af lífi í fjölmiðlum áður en endanleg niðurstaða væri fengin." í heitt bað á vormánuðum - Það er kveðið á um skattalækkanir f stjórnarsáttmálanum. Er eitthvað ákveðið um þær? Verður t. d. gert ráð fyrir þeim ífjárlögum í haust? „Við höfum verið að vinna að fjárlögunum oghöfum sagt að nú séu kjarasamningar uppi líka og þetta þarf allt að spila saman. Þetta er fjögurra ára tí'mabil sem menn eru að tala um. Ég hefði gjarnan viljað að við gætum lögfest þetta strax í haust, ég talaði um það í þá veru að það væri skynsamlegt. Ég veit ekki enn þá hvort það tekst fyrir eða eftir áramótin. Það fer eftir því hvernig þróun kjaramálanna verður. Við verðum að átta okkur á því að þetta spilar allt saman og við erum á mjög viðkvæmum tíma núna. En ég tel að þegar við horfum á rík- issjóð og stöðu hans tíl næstu fjögurra ára þá sé enn þá ekki hægt að búast við öðru en að skilyrði til skattalækkana séu fyrir hendi." „Svo er tímabært á vormán- uðum að fara að huga að [því að taka við öðru ráðuneytij og hugsa sitt ráð - fara í heitt bað og hugsa." - En hvenær geta menn búist við einhverri tekjuskattslækkun, strax á næsta ári eða þarnæsta? „Við erum ekki búnir að fara endanlega í gegnum það. Það er ekki langt síðan við fór- um að fara yfir fjárlagavinnuna og með öðru hefur bara ekki náðst að komast lengra með það.“ - Geturðu upplýst hvað er stefnt að mikl- um afgangi á fjárlögum? „Það er nú kannski varasamt því að þá fara menn að hengja sig í þá tölu. En við viljum sýna afgang, kannski á bilinu 3-7 milljarða." - Hvað með þína eigin framtíð? Hefurðu velt fyrir þérhvort þig langar frekar til að taka við utanríkis- eða fjármálaráðuneyti á næsta ári? „Nei, ég er ekkert farinn að ákveða það. Eitt ár og íjórir mánuðir, sem talað var um að ég myndi gegna þessu starfi áfram, er langur tími. Það hafa þrír formenn Sjálfstæðisflokks- ins, sem hafa verið forsætisráðherrar, gegnt því embætti skemur en þennan viðbótartí'ma við minn feril og ég held að maður eigi ekkert að vera að rugla sig í ríminu rétt á meðan heldur bara sinna sínu starfi eins vel og mað- ur getur. Svo er tímabært á vormánuðum að fara að huga að þeim hlutum og hugsa sitt ráð - fara í heitt bað og hugsa." -ÓTG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.