Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Page 36
* 40 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 26. JÚU2003
NÝJU STRÁKARNIR Á BRÚNNI: Þeir Damien Duff og Wayne Bridge voru báðir keyptir til Chelsea í sumar og styrkja þeir eflaust liðið til muna. Chelsea hefur látið mikið að sér kveða á leikmannamarkaðnum í sumar og alls eytt um 34
milljónum punda. Ef marka má yfirlýsingar frá nýjum eiganda liðsins, Roman Abramovich, mega aðdáendur liðsins allt eins eiga von á því að sjá fleiri ný og þekkt andlit á Stamford Bridge næsta vetur.
Stutt í þann enska
Mörg lið mæta gerbreytt til leiks á nýju tímabili
Nú styttist óðum í að keppni í ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu hefjist að
nýju eftir sumarfrí. Eins og venja er taka
mörg liðin talsverðum breytingum yfir
sumartímann þar sem sum félög þurfa
að selja leikmenn vegna fjárhagsvand-
ræða en aðrir kaupa sér stórstjörnur í
von um að styrkja liðsheildina. Á ýmsu
hefur gengið í félagsskiptunum í sumar
þótt ævintýrið í kring um Beckham hafi
skyggt talsvert á umfjöllun um aðra
leikmenn.
Á hverju sumri eiga sér stað miklar breyting-
ar í ensku úrvaldsdeildinni í knattspymu. Ný
lið koma upp í deOdina en önnur falla niður,
ungir leikmenn fá tækifæri en aðrir leggja
skóna á hUluna og sum lið skipta jafnvel um
eigendur eða þjálfara með tilheyrandi áherslu-
breytingum. Mesta breytingin felst þó í félags-
skiptum leikmanna sem ganga kaupum og söl-
um, sérstaklega yfir sumartímann. Sum liðin
neyðast til að selja leikmenn, oft þá allra mikU-
vægustu og bestu, vegna íjárhagsvandræða en
önnur hafa úr mildum fjármunum að moða og
hafa því efni á að kaupa sér leikmenn tU þess
að styrkja liðið. Á ýmsu hefur gengið á leik-
mannamarkaðnum í sumar þótt salan á stór-
stjömunni David Beckham frá Manchester
United tU Real Madrid á Spáni hafl verið lang-
fyrirferðarmest á síðum dagblaðanna.
Chelsea eyðir 34 milljónum punda
Þrjú ný lið munu leika í úrvalsdeUdinni á
næsta ári en þau em Wolverhampton Wander-
ers, Portsmouth og Leicester. Nýjum liðum
fylgja að sjálfsögðu mörg ný andlit en Wolves
hefur verið öflugt á markaðnun í sumar og
hefur fest kaup á nokkmm nýjum leikmönn-
um. Þeirra þekktastir em án efa úkrafnski vam-
arjaxlinn Oleg Luzhny, sem lék síðast með
Arsenal, og norski sóknarmaðurinn Steffen Iv-
ersen sem keyptur var frá Tottenham í gær. Auk
þeirra hafa Carlos Karemi og Isaac Okoronkwo
gegnið tU liðs við Úffana.
Mikið hefur verið fjaUað um lið Chelsea í
sumar eftir að auðkýfingurinn Roman
Abramovich festi kaup á liðinu. f kjölfar þess
hafa nokkrar breytingar átt sér stað á liðinu en
ftalinn smávaxni, Zola, er farinn en f hans stað
hefúr írski vængmaðurinn Damien Duff verið
keyptur tíl liðsins frá Blackbum fyrir 17 mUljón-
ir punda. Einnig hefur Chelsea tryggt sér þjón-
ustu enska landsliðsvamarmannsins Wayne
Bridge, sem áður lék með Southampton, auk
hins unga Glen Johnson sem keyptur var frá
West Ham og Geremi sem var áður samnings-
bundinn Real Madrid.
AUs hafa forsvarsmenn Chelsea eytt um 34
mUljónum punda í þessa leikmenn og von er á
fleiri mönnum tU liðsins ef taka á mark á yfirlýs-
ingum hins nýja eiganda þess en ljóst er að
Abramovich ætlar að gera Chelsea að einu
stærsta liði Evrópu. Þeir sem hafa hvað mest
verið orðaðir við liðið að undanfömu em
Argentínumaðurinn Juan Sebastian Veron,
BrasUíumaðurinn Emmerson og Kieron Dyer
sem leUcur með Newcastle.
Gamlar kempur til Manchester City
Nýir ffamkvæmdastjórar hafa tekið við hjá
tveimur liðum í úrvalsdeUdinni ffá þvf í fyrra.
David O’Leary hefúr verið ráðinn tU Aston VUla
og Chris Coleman, sem tók við liði Fulham
undir lok síðasta keppnistímabUs, mun halda
áffam sem knattspymustjóri þar. O’Leary
keypti Gavin McCann tíl Aston VUla fyrr í sum- ’
ar á 2,25 mUljónir punda en fátt markvert hefur
gerst hjá Fulham. Þá hefur Bolton samið við Iv-
an Campo, sem lék með liðinu sem lánsmaður
í fyrra, auk Stylianos Giannakopoulos og Flor-
ent Laville. Liðið hefur aftur á móti misst fyrir-
liða sinn, Guðna Bergsson, en hann hefur
ákveðið að hætta knattspymuiðkun eins og ís-
lendingum ætti að vera kunnugt um.
Þá hafa nokkrir reyndir leUcmenn í ensku úr-
valsdeUdinni fært sig um set og fer þar fremstur
markvörðurinn David Seaman sem hefur eftir
farsælan feril hjá Arsenal ákveðið að leUca
næsta úmabU með Manchester City. Það sama
má segja um Trevor Sinclair sem hefur snúið
heim tU Manchester eftir að hafa leikið með
Sum liðin neyðast til að selja
leikmenn, oftþá allra mikil-
vægustu og bestu, vegna fjár-
hagsvandræða en önnur hafa
úr miklum fjármunum að
moða og hafa því efni á að
kaupa sér leikmenn til þess að
styrkja hópinn.
West Ham síðustu ár og þá mun hinn reyndi
þýski landsliðsmaður Michael Tamat einnig
leika með liðinu næsta tímabU.
Þá verður gaman að fylgjast með liði
Birmingham þegarkeppnin hefst í ágúst en lið-
ið spilaði skemmtUega knattspymu á síðasta
tímabili undir handleiðslu Steve Bmce. Frakk-
inn Duggary hefur samið við liðið eftir að hafa
leUdð þar sem lánsmaður í fyrra en auk hans
hefur David Dunn verið fenginn ffá Blackburn
og mun hann án efa styrkja liðið úl muna. Þá
hefúr lítt þekktur ffamherji, Luciano Figueroa
að nafni, verið keyptur tU liðsins og hefur hon-
um verið lýst af knattspymustjóranum Bmce
sem næsta Baústuta.
Aðdáendur Tottenham ættu einnig að geta
glaðst yfir því að tveir efnUegir leikmenn, þeir
Helder Postiga og Bobby Zamora, em komnir
tU liðsins og munu þeir vonandi hjálpa því að
komast upp úr meðalmennskunni sem hefúr
einkennt það síðustu ár og ná að koma liðinu
aðeins ofar á töfluna.
Litlar breytingar á stóru liðunum
Englandsmeistarar Manchester United hafa
haft hægt um sig á leikmannamarkaðnum í
sumar en eins og kunnugt er var David Beck-
ham seldur frá félaginu úl Real Madrid. Liðið
kemur því að mestu óbreytt inn í næsta tíma-
bU þótt Beckham skilji óneitanlega eftir sig
skarð.
Fátt hefur einnig gerst í leikmannamálum
Arsenal fyrir utan að áðumefndir Luzhny og
Seaman em farnir frá félaginu. Arsenal sár-
vantar markvörð fyrir næsta úmabil og hefur
Þjóðverjinn Jens Lehmann, sem leUcur með
Dortmund, oftast verið nefndur sem arftaki
Seaman.
Af„stóru liðunum" hefur Liver-
pool verið einna duglegast við
leikmannakaup í sumar effrá
er talin 34 milljóna punda inn-
kaupaferð Chelseamanna.
Þá hefur Sir Bobby Robson, stjóri hjá
Newcasúe, tryggt sér ólátabelginn Lee Bowyer
en þessi sterki miðjumaður mun án efa styrkja
liðið.
Af „stóm liðunum” hefur Liverpool verið
einna duglegast við leikmannakaup í sumar ef
frá er talin 34 mUJjóna punda innkaupaferð
Chelseamanna. Liverpool fékk hinn ástralska
Harry KeweU fyrir liúar 5 miUjónir punda en
áður hafði Steve Finnan komið ffá Fulham. Þá
hafa hinir ungu Frakkar Anthony Le Tallec og
Florent Sinama-PongoUe hafið æfingar með
Liverpool en þeir vom keyptir fyrir nokkmm
ámm en látnir æfa áfram í Frakklandi að ósk
Houllier knattspyrnustjóra. Þeir em báðir
taldir með efnUegri knattspymumönnum
Frakklands og verður gaman að fylgjast með
hvort þeir fá tækifæri í vetur.
agust@dv.is