Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2003, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003DV25
DV-myndir Teitur
Berin eru sett með stilkum og
smávegis laufi út í pott ásamt
sykrinum og hrært vel í til að
forðast að brenni við. Nauðsyn-
legt er að eitthvað af berjunum
sé enn óþroskað til að hlaupið
stífni.
Hér hefur Margrét gripið ausuna
eftir að hafa soðið berin og syk-
urinn í fjórar mínútur. Nauðsyn-
legt er að halla sigtinu sitt á
hvað til að saftin renni óhindrað
í gegn því hleypiefnið í berjun-
um fer strax að segja til sín.
Krukkurnar eru nýkomnar út úr
heitum ofni og er nauðsynlegt
að setja þær á klút því séu þær
látnar á kalt borð geta þær
sprungið. Lokin eru soðin í sjóð-
andi vatni. Margrét hellir krukk-
urnar fullar og leyfir hlaupinu að
kólna áður en hún setur lokin á.
Frískleg freyðivín frá
Santero á Ítalíu
að hætti Eggerts Isdals hjá RJC
Sumarið, sem reyndar er brátt á enda,
er tími freyðivínanna. Mannamót í góða
veðrinu, hátíðleg tækifæri, eins og brúð-
kaup, eða bara gleðin yfir lífinu er ærið
tileftii til að taka tappann úr kampa- eða
freyðivínsflösku. Mikið úrval freyðivína er
til í verslunum ÁTVR og ætti hver að finna
eitthvað við sinn smekk. Mörg vínanna
eru ágæt þótt gallhörðum kampavíns-
mönnum þyki kannski ekki mikið til
koma.
í sumarlok fara garðeigendur og aðrir
ræktendur að huga að uppskerunni og
vinna úr henni eins og sjá má hér til hlið-
ar og þar sem rifsberjahiaup er á dagskrá
fannst okkur ekki úr vegi að kynna til sög-
unnar nokkur freyðvín. Að auki er spáð
ágætu veðri um helgina og því ekki úr
vegi að eiga freyðivínsflösku í ísskápnum.
Eggert fsdal hjá Rolf Johansen & Co.
býður nokkrar freyðivínstegundir frá fyr-
irtækinu Santero en það fyrirtæki er í
Piemonte á I’talíu og sérhæfir sig einmitt í
framleiðslu á freyðivínum. Hér á mark-
aðnum eru fjögur freyðivín fáanleg frá
fyrirtækinu.
Tvö ný freyðivín ffá Santero fást nú í
verslunum ÁTVR, Villa Jolanda Prosecco
og Villa Jolanda Rosso Imperiale, en
flösku af því síðarnefnda má sjá hér til
hliðar.
Villa Jolanda Prosecco er gert úr pros-
eccoþrúgunni og er þurrt og ferskt og
ffekar ilmríkt og hentar sérstaklega vel
sem fordrykkur á undan mat. Flaskan af
Villa Jolanda Prosecco kostar 890 krónur í
ÁTVR.
Villa Jolanda Rosso Imperiale var fyrst
kynnt á Vinitaly í aprfl síðastliðnum.
Þetta freyðvín er rautt að lit, sætt og með
mildu berjabragði. Tilvalið er að skála í
því eða að hafa með eftirréttum. Best er
að hafa sætu freyðivínin vel kæld þegar
þau eru drukkin en þannig haldast þau
ferskari á bragðið. Flaskan af Vifla Jolanda
Rosso Imperiale kostar 750 krónur í ÁTVR
og hefur þegar hlotið góðar viðtökur.
Af öðrum freyðivínum ffá Santero ber
fyrst að nefna Asti Spumante sem um
árabif hefur verið eitt söluhæsta Asti-
freyðivínið á markaðnum. Enda er það á
mjög hagstæðu verði í verslunum ÁTVR,
600 krónur flaskan. Vínið hlaut guflverð-
laun á Vinitaly 2003 en það er stærsta vín-
sýningin sem haldin er árlega í Verona á
Ítalíu. Þetta er mjög vel gert vín, létt og af-
ar frísklegt, með ffekar sætu bragði og
mildum keim af moscato bianco þrúg-
unni sem það er framleitt úr.
Annað vín frá Santero, sem selst hefur í
gífurlegu magni í verslunum ÁTVR og sjá
má hér til hliðar, er freyðivínið Santero
Moscato. Þetta er satt best að segja
hræódýrt vín en flaskan kostar ekki nema
470 krónur. Þetta ágæta freyðivín er afar
vinsælt við brúðkaup og víst að það hefur
gutlað í ófáum glösum í brúðkaupum
sumarsins. Santero Moscato er gert úr
sömu þrúgu og Asti Spumante en er að-
eins bragðmeira og einnig aðeins veikara
þegar litið er til vínandastyrks.