Dagblaðið - 25.06.1979, Page 11

Dagblaðið - 25.06.1979, Page 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. JÚNl 1979. V’ . Ul \te REUTER D Kvart milljón homma ágöngu Fjórðungur úr milljón gekk í minningargöngu um San Francisco i Bandaríkjunum i gær til að minnast þess að tiu ár væru liðin frá því að barátta bandarískra kynvillinga fyrir fullum mannréttindum hófst. Allar tryggingar i íran þjóðnýttar —bankastarfsemi og byggingar reknar á grundvelli múhameðstrúar í framtíðinni segirbyltingarráð Khomeinis írönsk stjórnvöld hafa nú þjóðnýtt alla tryggingastarfsemi í landinu að því er hin opinbera útvarpsstöð þar tilkynnti í morgun. Hið leynilega byltingarráð ákvað á fundi sínum, að rikið skyldi taka öll tryggingarfélög í landinu undir eftir- lit og framvegis skyldu þau rekin með heildarþjóðarhagsmuni í huga, sagði í tilkynningu útvarpsins. Fyrr í þessum mánuði var tilkynnt að allir bankar í íran hefðu verið þjóðnýttir. Var það tilkynnt og fram- kvæmt á sama hátt. Skyldu þeir einnig vera reknir í framtíðinni með hagsmuni þjóðarheildarinnar í huga. Tryggingarfélög í íran skulu sam- kvæmt ákvörðun hins leynilega byltingarráðs verða rekin framvegis samkvæmt trúarlögmálum múha- meðstrúartrúarmanna, sagði í út- varpstilkynningunni. í ráðinu, sem skipað er ýmsum heittrúuðum múhameðstrúarleiðtogum hefur ekki gefið upp hverjir skipa ráðið. Aftur á móti er talið að meðlimir þess séu flestir af eldri kynslóð trúarleiðtoga. Ekkert var látið uppi um það í út- varpstilkynningunni um þjóðnýtingu tryggingarfélaganna í íran hvort hlut- hafar í þeim mundu fá hlut sinn bættan á einhvern hátt eða hverja meðferð erlendir fjármagnseigendur mundu hljóta við þjóðnýtinguna. IxXyagg UJRi íL Fyrsti kappaksturinn fyrir tiu hjóla trukka. Hann var haldinn á Atlanta alþjóðakappakstursbrautinni I Georgiu fylki f Bandarfkjunum fyrir nokkru. Bifreiö ökumannsins Ken Farmer var komin i forustu eins og sést á fyrri myndinni til vinstri. Skyndilega sprakk hjólbarðinn á öðru framhjólinu. Allt fer I öngþveiti, bifreið Farmers lendir á vegg — siðan losnar allur hjólabúnaðurinn af bifreiðinni, sem fór út af brautinni og var þar með úr leik. Þrátt fyrir öll ósköpin slapp Farmer óskaddaður og steig út ómeiddur. Belgía: ELLEFU FANG- AR FLÝJA í VERKFALU FANGAVARDA Ellefu fangar sluppu úr fangelsinu í borginni Namur í Belgíu i morgun. Hafa þá tuttugu og fjórir faiigar sloppið úr prisundinni síðan fanga- verðir í Belgíu hófu verkfall sitt fyrr í þessum mánuði. Hefur gæzla i fang- elsum öll lent á lögreglumönnum síðan 5. júni siðastliðinn. Hingað til hefur tekizt að hafa hendur í hári ellefu þess- ara fanga en þeir hafa sloppið úr ýms- um fangelsum víðsvegar um Belgíu. Fangaverðir krefjast betri launa og bættra vinnuskilyrða. Ekki hafa neinar fregnir borizt af gangi samninga- viðræðna en stöðugar fregnir af flótta fanga úr fangelsum hafa vakið nokkurnótta hjá almenningi. Skömmu eftir að kunnugt varð um flótta fanganna ellefu í Namur fang- elsinu i morgun var tilkynnt um þrjá grunsamlega menn þar í nágrenninu. Þyrlur fóru á vettvang en leit þeirra bar engan árangur. Ellefu-menning- arnir flúðu allir út um glugga á einum — klefanna þar sem þeir höfðu fengið heimild til að spila saman á spil. Höfðu rimlar verið sagaðir úr glugganum. Því telur lögreglan að föngunum hafi borizt utanaðkomandi hjálp. Fangarnir óku að fangelsisveggnum á sendibif- reið, stukku síðan yfir vegginn og hurfu hver í sina áttina. Rætt um efnahagsaðstoð Efnahagsbandalagsríkja Fimmtíu og sjö þróunarríki munu í töldu ekki nógu vel boðið. Efnahags- dag halda áfram viðræðum við fulltrúa bandalagsríkin hafa nú hækkað boð Efnahagsbandalagsins um efnahags- sitt verulega svo talið er að samkomu- aðstoð, eftir 1980. Fyrri fundur fór út lag geti náðst. um þúfur vegna þess að þróunarríkin Sjónvarpsvirkinn Arnarbakka 2, sími 71640 — Reykjavík Box 9093 KVIKMYNDASÝNINGAVÉLAR “GFIlMUR Colouj’ Elvis 400' Colour sound 20.500.- ► Film format: Super-8&Single-8 ► F1.4, f=15~25mm zoom lens ► 12V. 100W hologen lamp ► Fully automatic film loading ► Projection speed: 18 & 24fps. I.600ft.(180m)reel capacity Í^Sound-on-sound recording with /fede-in,fade-out control ► Magnetic recording/reproduction ► Automatic recording level control (ALL) ► 2W, 8ohm with built-in speaker ►6W, 8ohm with eirtension speaker ► Dimensions & Weight: 337X 250 X175mm, 7.2kg ooo 4 Sýningavélar YELCO frá JS kr. 215.175.-® ($Á

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.