Dagblaðið - 25.06.1979, Qupperneq 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 1979.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
UBK heldur
sínustriki
Breiðablik sigraði Reyni á Sand-
gerðisveilinum, á föstudagskvöldið
með tveimur mörkum gegn engu —
skoraði eitt mark í hvorum hálfleik.
Reynismenn, með hálfgert varalið,
veittu Blikunum harða mótspyrnu og
hefðu svo sem alveg eins getað nælt sér
í annað stigið, ef hamingjan hefði verið
þcim hliðholl.
Blikarnir léku undan norðan
strekkingi í fyrri hálfleik — sóttu að
vísu meira en ekki var margar glufur að
finna i Reynisvörninni. Aðeins tvívegis
sluppu þeir í gegn en Jón Örvar, mark-
vörður Reynis, bjargaði í fyrra sinnið
með réttu úthlaupi, en í seinna skiptið
kom hann ekki vörnum við þegar
Sigurður Grétarsson, smeygði sér á
milli varnarmanna og sendi knöttinn i
netið, eftir fallega leikfléttu. Skömmu
fyrir leikslok, var Sigurður aftur á ferð-
inni — náði knettinum eftir að Jón
Örvar hafði hikað við að grípa
knöttinn — eða slá utan vítateigslínu —
og þá var ekki að sökum að spyrja,
hann sendi knöttinn í mannlaust
markið.
Reynismenn náðu mjög góðum leik-
kafla í seinni hálfleik; voru lengst af i
sókn en vörn UBK var traust og það
sem slapp í gegn, varði Ólafur
Hákonarsson með snarræði eins og
skot frá Sigurði Guðnasyni sem hann
lyfti yfir markið og kollspyrnu frá Jóni
Jónssyni eftir hornspyrnu. Breiðabliks-
menn áttu líka sín fceri. Vignir Baldurs-
son komst einn inn fyrir vörn Reynis,
en Júlíus Jónssyni miðverði tókst að
koma fæti fyrir knöttinn á elleftu
stundu, en þar voru að kljást beztu
menn hvors liðs. -emm.
14ára—við
heimsmetið
Fjórtán ára stúlka, Mary Meagher,
frá Kentucky í Bandaríkjunum, náði
fráhærum árangri á sundmóti í Kali-
forniu á laugardag. Synti 100 m flug-
sund á 1:01.41 mín., sem er annar bezti
tími, sem náðst hefur á vegalengdinni.
Heimsmet Andreu Pollack, Austur—
Þýzkalandi, er 1:00.52 mín. Önnur í
sundinu varð Lisa Buese, USA, á
1:02.52 mín.
Góður árangur náðist í mörgum
greinum á mótinu. Ólympíumeistarinn
Brian Goodell, USA, sigraði i 400 m
skriðsuudi ? 1:58.91 mín. rétt á undan
Djan Madruga, Brasilíu, sem synti á
3:59.67 mín. í 100 m baksundi sigraði
Mark Kerry, Ástraliu, á 58.63 sek. eftir
stórkostlega keppni við Clay Britt,
USA, sem synti á 58.64 sek. Romulo
Aranles, Brasilíu, varð þriðji á 58.70
sek.
Það kom á óvart í keppninni hve
Tracy Caulkins, USA, margfaldur
heimsmethafi, stóð sig illa. Hún sigraði
þó í einni grein, 200 m fjórsundi á
2:19.70 mín. — næstum sex sekúndum
frá heimsmeti sínu. — í öðru sundi
komst hún ekki í úrslit, 400 m skrið-
suntli, þar sem Kim Linehan, USA,
sigraði á 4:12.55 mín. í 100 m flug-
sundi sigraði Jim Halliburton, USA, á
56.73 sek. rétt á undan Greg Jagen-
burg, USA, sem synti á 58.63 sek. og
Greg Porter, USA, 57.18 sek.
A-Þjóðverjar
unnuSovét
Sergei I.itvinov náði í gær, á móti í
Leipzig i Austur-Þýzkalandi, þriðja
bezta heimsárangrinum i sleggjukasti
frá upphafi, þegar hann kastaði 79.82
metra. Það var í landskeppni Austur-
Þýzkalands og Sovétríkjanna. Austur-
Þjóðverjar sigruðu með 196.5 stigum
gegn 183.5 stigum. Þýzku karlmenn-
irnir hlutu 18 stigum meir en keppi-
nautar þeirra en hins vegar unnu
sovézku valkyrjurnar stöllur sínar með
fimm stiga mun. Marga kunna íþrótta-
inenn vantaði hjá báðum þjóðum.
Sovétríkin
unnu Holland
Sovétríkin sigruðu á sjöunda
alþjóðamóti unglingalandsliða i
Toulon í Frakklandi. Sovétríkin léku il
úrslita við Holland í keppninni i gær og
sigruðu 2-0. Nikonov skoraði bæði
mörkin, þegar langt var liðið á leikinn.
í keppninni um fimmta sæti sigraði
Argcntína Kina 2-0.
„Eg snerti aldrei knött-
inn með höndinni”
- sagði Þórður Karlsson. Umdeilt atvik íKeflavík, þegar ÍBK sigraði KA 2—1 f 1. deild
Heppnissigur Kcflvíkinga yfir KA
gærdag færði þeim bæði stigin og
forustuna í I-deildinni, að minnsta
kosti í bili, því ofmælt væri að segja að
sigurinn hafi vcrið sannfærandi, þótt
hann hafi kannski verið verðskuldaður
þegar á heildina er litið. ÍBK hefur nú
hlotið 9 stig i sex ieikjum, en Fram, ÍA
og KR-ingar geta náð þeim i næsta leik.
Undan norðan kaldanum, í glamp-
andi sól, á sæmilega grónum gras-
vellinum höfðu Kefivíkingar alger
yfirráð gegn norðanmönnum fyrsta
stundarfjórðunginn. Hver sóknarlotan
af annarri, með hraða og krafti og oft
góðu spili, gekk i áttina að KA-
markinu. ,,Þetta verður burst,” varð
mönnum að orði, og það kannski ekki
að ófyrirsynju. ÍBK með stórsigur
fjögur mörk úr seinasta leik en KA
sömu tölu í tap.
Skyndisókn norðanmanna þegar um
þriðjungur var liðinn af leiknum,
breytti spádómum manna heldur betur.
Elmar Geirsson, geystist fram völlinn,
hægra megin og sendi knöttinn i háum
boga inn í vítateiginn. Bakvörður ÍBK,
Óskar Færseth, reyndi að bægja
hættunni frá með kollspyrnu, en mis-
tókst. Knötturinn sveif til Gunnars
Blöndal, sem umsvifalaust sendi hann i
áf um 12 metra færi neðst i vinsta
hornið, án þess að Þorsteinn Ólafsson,
markvörður, kæmi vörnum við, 1 —0.
Eftir markið er vart hægt að segja
að heil brú hafi verið í leik ÍBK en KA-
ingar fengu uppörvun að sama skapi og
börðust eins og Ijón í von um að halda
fengnum hlut, en Einar Ásbjörn Ólafs-
son og þó sér í lagi Þórður Karlsson,
sáu fyrir því að norðanmenn fóru
tómhentir heim, hvað stigin áhrærði.
Þegar um það bil hálftími var liðinn af
leiknum, fengu heimamenn horn-
spyrnu, sem Þórður tók. Knötturinn
féll niður við marksúluna fjær þar sem
Einar Ásbjörn kom og tókst með
naumindum að teygja ristina í knöttinn
og spyrna í markið af stuttu færi og
jafna metin. Þarna var vörn KA illa á
verði og lét Einar svo sannarlega komt
aftan að sér.
Norðanmenn voru nærri því að
endurheimta forustuna rétt fyrir hlé
þegar Elmar Geirsson, hraðlest
norðanmanna, hljóp varnarmenn ÍBK
af sér og leiðin átti að vera greið í
markið en Elmar dokaði aðeins við,
þegar í vítateiginn var komið og það
gerði gæfumuninn — ÍBK-vörnin
lokaði öllum sundum, svo að tækifær-
ið rann út í sandinn.
Gegn kaldanum voru Keflvíkingar
öllu meira í sókn i seinni hálfleik, þótt
sundurlaus væri. Á fyrstu mínútunum
þrengdu þeir nokkuð að KA-markinu
V-Þióðyerjar sterkir í
landskeppni í Bremen
Góður árangur náðist í landskeppni
Vestur—Þýzkalands, Bretlands, Pól-
lands og Sviss í frjáisum íþróttum í
Bremen í V—Þýzkalandi í gær. Þjóð-
verjar sigruðu í karlakeppninni —
hlutu 232 stig, Pólverjar urðu í öðru
sæti með 215.5 stig. Bretar þriðju með
153.5 stig og Sviss rak lestina með 108
stig. í kvennakeppninni sigraði Bret-
land með 147 stigum. Vestur—Þýzka-
land hlaut 140 stig, Pólland 135 stig og
Sviss 64 stig.
Pólska stúlkan Grazyna Rabsztyn
var innan við heimsmetið í 100 m
grindahlaupi. Hljóp á 12.39 sek. en
vindur var aðeins of mikill svo tími
hennar verður ekki staðfestur sem
heimsmet. Hann er 9/100 betri en gild-
andi heinv mc
Mesta athyf'i ■ g®r á síðara degi
keppninnai vuKti, þegar Aston Moore,
Bretlandi, stökk 16.93 metra í þrí-
stökki. Hafði gífurlega yfirburði en
þrír aðrir keppendur stukku yfir 16
metra — Biskirpski, Póllandi, 16.34 m
— Douglas Hendersen, V—Þýzka-
landi, 16.15 metra og Hoffmann, Pól-
landi, 16.01 m. David Johnson, Bret-
landi, varð fimmti með 15.95 metra en
sömu stökklengd var Klaus Kiibler,
V—Þýzkalandi með.
Svisslendingar hlutu ekki marga
sigra í keppninni en frægasti hlaupari
Sviss, Markus Ryffel, einn bezti
hlaupari heims, vann þó öruggan sigur
i 3000 m hlaupinu á 7:48.7 mín. Frank
Zimmermann, V—Þýzkalandi, varð
annar á 7:50.7 mín.
Brezka blökkukonan Sonia Lanna-
man sigraði hina frægu, pólsku hlaupa-
konu Irena Szevinska í 200 m hlaupi.
Hljóp á 23.00 sek. en Irena á 23.07 sek.
í 200 m hlaupi sigraði Allan Wells,
Bretlandi, á 20.56 sek. Marian
Woronin, Póllandi, varð annar á 20.65
sek. Hins vegar sigraði Woronin í 100
m hlaupinu á 10.22 sek. Wells varð
annar á 10.27 sek. og þeir voru langt á
msm
Glcnn Martindahl feltur Thordarsson Sigge Johar.scon
Atvidaberg (2) Dster Ha.mstad (4)
• Veckans lag har tagits ut av Aftonbladels repcrtrar Curt-Roland Hjulström
Jan Kotschack. Ken Olofsson, Janne Svenssor., Slefan Thylrn, Larne Wallisson
och Hans Akesson. ,
.* Siffrap inom qs^ntes anger hgr'm^nga oár^cr SPeldrert varif( mfct r Veckans(
lr*n . — — —. .. . ----:— ------------’ . r—
undan næstu hlaupurum. Werner
Bastians, V—Þýzkaiandi, varð þriðji á
10.50 sek.
Willi WUlbeck, V—Þýzkalandi,
sigraði í 800 m hlaupi á hinum fræga
tíma 1:46.0 min. Landi hans Hans
Peter Ferner varð annar á 1:47.0 og
Gary Cook, Bretlandi, þriðji, á 1:48.2
mín. Þjóðverjar unnu tvöfalda sigra í
mörgum greinum. Hins vegar unnu
Pólverjar tvöfalt í 3000 m hindrunar-
hlaupi. Malinovski fyrstur á 8:22.7
mín. og Vesolovski annar á 8:27.0 mín.
Árangur í kúluvarpi karla var ekki til
að hrópa húrra fyrir. Ralf Reichen-
bach, V—Þýzkalandi, sigraði og
varpaði 19.40 metra. Komar, Póllandi,
annar með 19.02 m og Egger, Sviss,
þriðjimeð 18.76m. Það var lítið skárra
í kringlunni. Volodok, Póllandi,
sigraði og var hinn eini, sem kastaði
yfir 60 metra — nánar tiltekið 60.26 m.
Wagner, V—Þýzkalandi, varð annar
með 59.76 m og landi hans Berlep
þriðji með 58.18 m.
í 1500 m hlaupinu sigraði Steve
Ovett, Bretlandi, auðveldlega á 3:41.7
mín. eftir spretthlaup í lokin. Thomas
Wessinghage, V—Þýzkalandi, varð
annar á 3:42.4 mín. og Iandi hans Uwe
Becker þriðji á 3:42.6 mín. í hástökki
sigraði pólski ólympíumeistarinn Jacek
Wszola, stökk 2.25 m. Thraenhart,
V—Þýzkalandi, varð annar með 2.22
m. í 4x 100 m boðhlaupi sigraði Pói-
land á 39.41 sek. eftir hörkukeppni við
V—Þýzkaland 39.54 sek. og Sviss varð
i þriðja sæti á 39.96 sek.
Góðurtími
Steve Ovett
Evrópumeistarinn Steve Ovett
sigraði auðveldlega í 1500 m hlaupi á
móti i Nijmegen í Hollandi í gær.
Hljóp á mjög góðum tíma 3:37.9 mín.
keppnislaust að mestu. Ovett varð 15
metrum á undan næsta keppamla.
og Rúnar Georgsson, sem ekki var á
skotskónum þann daginn skaut himin-
hátt yfir af markteig. Þar með fór for-
görðum opnasta færið í seinni hálfleik.
Þegar langt var liðið á leiktímann og
eftir mikið miðjuþóf, hálfgerða þrá-
skák, þar sem knötturinn gekk oftar
mótherja á milli en samherja, þá fékk
Þórður Karlsson, sem átti sinn besta
leik til þessa með ÍBK, — háa
sendingu rétt utan vitateigs og tók
nokkur skref og skaut þéttingsfast á
markið.
Knötturinn sveif í fallegum boga inn
í hliðarnetið, rétt við góma Aðalsteins
Jóhannssonar markvarðar, 2—1.
„Hendi,” hrópuðu leikmenn KA og
vildu fá dómarann Hreiðar Jónsson til
að breyta úrskurði sínum en honum
varð ekki haggað og hann benti á
miðjupunktinn. ,,Ég snerti aldrei
knöttinn með höndinni, „drap” hann
með lærinu,” sagði Þórður Karlsson,
aðspurður eftir leik um þetta umdeilda
atvik. „Það hefði verið álíka
ósanngjarnt að dæma markið af og
dæma vitaspyrnu, eins og margir vildu,
þegar ég féll inn í vítateig KA, eftir
samhlaup við einn varnarmann
norðanmanna.”
En þrátt fyrir mótlætið létu KA-
ingar engan bilbug á sér finna og sóttu
loks fast að marki ÍBK og seinustu
mínúturnar munaði minnstu að þeim
tækist að skora jöfnunarmarkið en
Þorsteinn Ólafsson kom í veg fyrir það
með snjallri markvörzlu. Tæpast stóð
þegar Ásbjörn Björnsson, var
nýkominn í leikinn, skaut horku skoti
af stuttu færi en Þorsteinn varði með
naumindum — varð að grípa til allra
sinnar snerpu.
Mönnum, sem fylgzt hafa með ÍBK-
liðinu í vor er val liðsins mikil ráðgáta.
Eins og menn muna gekk liðinu illa að
skora í fyrstu leikjunum, en Ron
Smith, sem þjálfaði þá um sinn, tókst
að stilla um liði sem skoraði allt að
Ijórum mörkum i leik og gengi þess
hefur verið gott síðan — engegnKAer
kippt tveimur markahæstu mönnum út
úr liðinu og reyndar hinum þriðja líka,
sem á þó sínar orsakir. Enda kom í
Ijós, að framlínan var með öllu bit-
laus, lengstum í leiknum. Varla geta
stjórnendur liðsins sig seka um slíka
glópsku aftur og getur kannski varla
þar sem Tom Tranter er væntanlegur
innan skamms frá Englandi en hann
mun annast þjálfun liðsins út leiktíma-
bilið.
Auk Þórðar Karlssonar þá áttu
Guðjón Guðjónsson góðan leik þótt
hann nýttist ekki eins oft áður sem
sóknarbakvörður. Sama má segja um
hinn bakvörðinn Óskar Færseth. Aðrir
náðu sér ekki á strik, eins og t.d.
Ólafur Júlíusson sem dró spilið mjög
niður með óþarfa „dútli” með
knöttinn. Liðið féll illa saman og mikið
um mistök en skiptingin af mölinni á
grasið kann að eiga sína sök á slökum
leik.
Einar Þórhallsson, Elmar Geirsson
og Gunnar Blöndal voru burðarásar
KA en Jóhann Jakobsson og Haraldur
Haraldsson gáfu þeim lítið eftir. Liðið
sýndi oft góða kafia þegar það hafði
hrist af sér slenið í fyrri hálfleik og
hefði með örlítilli heppni geta haldið
jöfnu eða farið með bæði stigin
norður.
Dómari var Hreiðar Jónsson og
dæmdi vel. -emm.
TEITUR VALINNI
„LXD VIKUNNAR”
Sænska meistaraliðið Öster náði
mjög góðum árangri i fyrri viku —
sigraði Malmö FF í Málmey og síðan
nágrannaliðið Kalmar á heimavelli. Úr-
slit í báðum leikjunum 2—0 fyrir Öster.
Teitur Þórðarson stóð sig mjög vel í
þessum leikjum hjá Öster þótt hann
skoraði ekki. Lagði hins vegar upp
nokkur markanna með harðfylgi sinu
og fiýti. Sænska blaðið Aftonbladet
valdi Teit í „lið vikunnar" í Svíþjóð.
Tveir úr liði Öster voru í liðinu —
Teitur og bakvörðurinn Johnny
Gustavsson. í gær mun hafa verið
leikið í Allsvenskan en okkur tókst ekki
að ná í Teit i síma í morgun.
Til hliðar eru myndir af leik-
mönnum vikunnar hjá Aftonbladet.