Dagblaðið - 19.11.1979, Síða 4

Dagblaðið - 19.11.1979, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979. DB á ne ytendamarkaði Hróplegt 1 Sexfaldur munur á dýrustu ****“’ I og ódýrustu hitaveitunni Mjög mismunandi verðskrár eru í gildi fyrir hitaveiturnar í landinu. Nú eru starfandi hitaveitur tuttugu tals- ins. Víða er tekið vatnsgjald á hemil og er gjald fyrir hvern mínútulítra allt frá kr. 2005 fyrir hvern lítra, í Mos- fellssveit, upp i 12.568 kr. á lítra á Siglufirði. Mosfellssveitarhitaveitan er með allra elztu veitum á landinu en súá Siglufirði með þeim allra yngstu. 97% útgjalda fjármagnskostnaður Þetta mismunandi gjald er fyrst og fremst vegna þess .að fjármagns- kostnaðurinn er svo gífurlegur. Um 97% af útgjöldum við hitaveitufram- kvæmdir er fjármagnskostnaður. Allar framkvæmdirnar eru gerðar fyrir verðtryggt fé. Geta allir séð í hendi sér hversu óréttlátt það er að núverandi kynslóð eigi að greiða fyrir allar framkvæmd- imar og það á skömmum tíma. Þetta eru framkvæmdir sem koma þjóð- inni í heild til góða um ókomin ár. Við ræddum við Magnús Guðjóns- son framkvæmdastjóra Sambands ísl. sveitarfélaga um þetta mismun- andi hitaveitugjald. Mesta misréttið í landinu „Þessi mismunandi gjöld vegna hitaveitna eru eitthvert mesta misrétt- ið í landinu og alveg hróplegt rang- læti að það skuli vera svo. Ódýrasta hitaveitan, í Mosfellssveit, er sex sinnum ódýrari en sú dýrasta, sem er á Siglufirði. Það væri ekki óeðlilegt að ríkið greiddi olíustyrk í nokkur ár eftir að hitaveituframkvæmdum lýkur til þess að unnt væri að lækka verðið eitthvað. Víða munar ekki svo miklu á verði hvort hitað er með hitaveitu eða hreinlega með rafmagni,” sagði Magnús. Gjaldskrá með fyrirvara Magnús lét okkur í té gjaldskrá hitaveitnanna en tók jafnframt fram að hana yrði að skoða með nokkrum fyrirvara. Á mörgum stöðum, hann nefndi sérstaklega Suðureyri og Blönduós, er vatnið ekki nema um 65° heitt og því þarf meira vatn en þar sem það er 80° eða allt upp í 90°. Þannig segir það ekki alla söguna um gjaldið þótt gjaldskráin sé skoðuð. Dýrt að hita upp á Sigló: Hitakostnaðurinn 75.408 kr.ítvomán. „Liðurinn ,,annað” er mjög hár hjá okkur,” scgir í bréfi frá húsmóður á Siglufirði. — Hún lekur fram að þar inni í sé tveggja mánaða hitakostnaður, 75.408 kr. cn þau eru mcð 3 minútulítra. Simareikningurinn hjá þessari fjölskyldu var upp á 20 þúsund kr., varahlutir i bifreiðina 120 þúsund og bensin fyrir 50 þús- und. Þar aðauki keypti fjölskyld- an timbur í húsbyggingu fyrir urn 240 þúsund kr. Okkur þótti hitaveitukostn- aðurinn ískyggilega mikill og höfðum því tal af Magnúsi Guð- jónssyni framkvæmdastjóra Sambands ísl. sveitarfélaga. Sjá grcin annars staðar á síðunni. - A.Bj. Vi THboösverðá náttkjólum þessa viku yn00%b6mull- Verðkr. 6500.- Laugavegi 19 Reykjavík sími I7445 Tiisoiu BMW 528 automatic árg. '77 BMW 520 árg. '77 BMW 316 árg. '78 Rénault 20 TL árg. '77 Renault 16 TL árg. '76 Renault 4 Van árg '74 og'78 Renault 4 Van F6 árg. '78 og '79 Ford Fairmont Decor automatic árg. '78 “ lardaga kl. 1-6. tinn Guðnason hf. OiJreiOa- og varahlutaverzlun, Suðurlandsbraut 20, sími 86693. Framkvcmdir við Hitaveitu Siglufjarðar hófust f júnf 1975. Þessi mynd var tekin á Sigló þegar framkvæmdir stöðu sem hæst. Gjaldskrá fimmtán þéttbýlisstaða Akureyri 7.389 Blönduós 5.500 Dalvfk 2.990 Húsavik 2.870 Hvammstangi 4.000 Hveragerði 2.495 Mosfellshreppur 2.005 Ólafsfjörður 2.100 Reykjavfk 2.607 Sauðórkrókur 2.392 Setfoss 3.561 Seltjarnarnes 2.917 Siglufjörður 12.568 Suðureyri 8.222 Suðurnes 7.700 Magnús taldi að ekki kæmi annað til greina en að jafna hitaveitukostn- aðinum út á hin ýmsu sveitarfélög þannig að þeir sem búa við elztu veit- urnar, sem fyrir löngu er búið að greiða niður, greiði hærra gjald til að hjálpa þeim sem nú eru að fá hita- veitu. Meðaltalskostnaður 15hitaveitna Við reiknuðum út meðaltalsgjald á hvern mínútulítra eftir gjaldskrá 15 hitaveitna frá fjölmennustu stöðun- um. Staðirnir í dæminu okkar eru: Akureyri, Blönduós, Dalvík, Húsa- vík, Hvammstangi, Hveragerði, Mosfellshreppur, Ólafsfjörður, Reykjavík, Sauðárkrókur, Selfoss, Seltjarnarnes, Siglufjörður, Suður- eyri og Suðurnes. Ut úr dæminu fékkst 4.621 kr. á mínútulítra að meðaltali. Algengt er að einbýlishús noti 3 eða 4 mínútu- litra á mánuði og þyrfti þá að greiða samkvæmt meðaltalinu 13.863 kr. eða 18.484 kr. á mánuði í hitakostn- að. Samsvarandi kostnaður þeirra sem búa á Siglufirði t.d. er 37.704 kr. annars vegar fyrir 3 lítra og 50.272 kr. fyrir 4 Iítra á mánuði! Fyrst við erum að burðast við að halda uppi byggð víðs vegar um landið og teljum hagkvæmt að gera þær byggðir þannig úr garði að þar geti blómgazt fagurt manlíf verðum við að jafna gjöldunum niður, í það minnsta meðan ekki er hægt að út- vega lánsfé til framkvæmdanna til langs tíma. Eins og Magnús benti Leynist Flórídaf erð í bakaraofnin- um þínum? — Eindagi íbökunar- keppninni er 1. des. Seðlarnir eru teknir að streyma til Neytendasiðunnar úr bökunarsam- keppni Dagblaðsins og Landssam- bands bakarameistara. Skilafrestur rennur út þann 1. desember. Dóm- nefndin leitar eftir góðum heimabök- uðum kökum á jólaborðið eða til boðs við önnur tækifæri sem eru jafnframt ódýrar í bakstri. Verðlaun- in fyrir beztu uppskriftina eru stór- glæsileg eða Flórídaferð fyrir tvo með Flugleiðum en aukaverðlaun eru heimilistæki. Öllum er heintil þátt- taka nema starfandi bakarameistur- um. Seðill verður birtur á Neytenda- síðunni á morgun. réttilega á er ekkert réttlæti fólgið í því að fólkið greiði svona mismun- andi gjöld fyrir sama hlutinn, það er aðhita upp hússín. Það má auðvitað segja sömu sögu um rafmagnið, en eins og er er greitt 19% verðjöfnunargjald á rafmagns- verð. Það er þó mjög mismunandi verð á heimilisrafmagni eftir raf- magnsveitum en það skulum við at- huga nánar síðar. - A.Bj. ELDHÚSKRÓKURINN Merking á kálfa- kjöti og ungneytum Ungkálfakjöt Skrokkar af nýfæddum kálfum til 3ja mánaða eru merktir sem hér seg- ir, öll verð eru í smásölu, heilir og hálftr skrokkar, nema annars sé sér- staklega getið: UK I: Mjólkurkálfar á aldrinum allt að 3 mánaða enda hafi þeir verið fóðraðir á mjólk og kjarnfóðri en ekki fengið gras eða hey. Góð hold- fylling og ljóst og fallegt kjör. Kr. 1262 pr. kg — heildsala. UK II: Kálfar á sama aldri með sæmilegt útlit og ekki léttari en 20 kg. Kr. 971 pr. kg — heildsala. UK III: Kálfar sem slátrað er innan eins mánaðar frá fæðingu. UK IIIA ef þeir eru holdgóðir, útlitsfallegir og vega yfir 15 kg. Kr. 825 pr. kg — heildsala.UK IIIB ef þeir eru lakari eða með heilbrigðisstimpil 2. Kr. 693 pr. kg — heildsala.' I UK III hafna lélegir kálfar áaldrinum 1 til 3ja mánaða. AlikáWakjöt Skrokkar af kálfum á aldrinum frá 3 til 12 mánaða eru merktir sem hér segir: AK I: Feitir og vel holdfylltir skrokk- ar og vega a.m.k. 75 kg. Kr. 1611 pr kg- AK II: Allvel holdfylltir skrokkar og ógallaðir og vega a.m.k. 40 kg. Kr. 1262 pr kg — heildsala. AK III: Rýrir skrokkar og lakari. Kr. 971 pr. kg '4- heildsala. Ungneytakjöt Skrökkar af ungneytum, nautum, uxurn og geldum kvígum frá 1 til 2 1/2 árs, yfir 100 kg að þyngd, eru merktir sem hér segir: UN I: Skrokkar af vel holdfylltum j dýrum og hæfilega feitum án galla og y ekki léttari en 130 kg. Kr. 1844pr. kg UN I stjarna: Áberandi holdfylltir skrokkar og hæfilega feitir sem vega i llillllll IMIim I .v;* Ungkálfakjöt þykir bezt af mjólkur- kálfum sem aldir hafa verið á mjólk og kjarnfóðri. DB-mynd Ragnar Th. minnsl 150 kg. Einnig kvígur allt að 2ja ára enda sé júgrið skorið af. Kr. 2091 pr. kg. UN II: Holdþynnri gripir og mjög feitir skrokkar en þó vel útlítandi. Fitan nær 12 mm á bakvöðva. Einnig kvígur, allt að 2 1/2 árs, sem borið hafa einum kálfi og lítið sem ekkert mjólkað. Kr. 1611 pr. kg. UN III: Holdrýrir skrokkar og lakari að útliti. Kr. 971 pr. kg — heildsala í næsta þætti verður rætt um nautakjöt og kýrkjöt.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.