Dagblaðið - 19.11.1979, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
Bflar fastir og danshúsagestir vegalausir:
Met í útköllum
hjá lögreglunni
Það var i nógu að snúast hjá lög-
reglunni í Reykjavík aðfaranótt
laugardagsins. Að sögn varðstjóra á
Miðborgarstöðinni mun hafa verið
sett nýtt met í útköllum þessa nótt.
,,Við komum aðeins einu sinni inn
frá því kl. 10 um kvöldið til kl. 6
morguninn eftir,” sagði varðstjóri í
Árbæjarlögreglunni við DB.
Annríki þetta var nær eingöngu
tengt ófærðinni í borginni og verst
var ástandið í Árbæjar- og Breið-
holtshverfum. Mikill skafrenningur
var í Árbænum og varð fljótlega
ófært þar um mjög margar götur.
Sömu sögu var að segja úr Breiðholti.
Þangað varð fljótlega ófært og varð
lögreglan að fara með rútu á vettvang
til að bjarga heim ökumönnum er
fest höfðu bíla sina. Þá varð lögregl-
an einnig að keyra heim fjölmarga
danshúsagesti er voru vegalausir og
illa til reika vegna lélegs klæðnaðar.
Einnig var mikill leigubifreiða-
skortur.
Um kl. 3.30 var byrjað að ryðja
snjóinn i Árbænum en það gekk
seint, ekki sízt fyrir þá sök hversu
margir bílar voru fastir og þvi erfitt
fyrir snjóruðningstækin að athafna
sig.
Ekki mun þó hafa komið til neinna
meiriháttar óhappa þessa miklu ann-
rikisnótt hjá lögreglunni.
-GAJ.
Gamli Hafnarfjarðarvegurínn var ekki auðveldur yfirferðar og bilar þvers og kruss. DB-myndir Sv. Þorm.
*
%
Lögreglan hafði nög að gera i ófærðinni
lengra.
og er hér að
\
draga bila sem ekki vildu
Tec*holog,
'OELANO
Vst a6
Setur .Jklf
fyrir.
yKkt töfju
tyrir
«inibil ]
in° «ilri ,
«1 .
~°fn&nná
[ei*endur
" «
St
r Wófani,
?n €ert
afa uPp-
ðalnef/idj
2i«Sja
P^ófanj
^yWct
r ma
P^'faðj
1 fyrr> e
'OCUr Wndin
pro'fun4.
d ^fur ,
In*gjandi
' Pío'fani,
Sani^3ndj
v<ar^andi
108
**>XmWk
HÚSBYGOJENDUR
TÆKNIMENN
BYGGINGAFULLTRÚAR
Að marggefnu tilefni vekj-
um við athygli á því að
eftirfarandi ofnar eru þeir
einu, samkvœmt bréfi
Iðntæknistofnunar Islands
frá 31. október 1979, sem
fullnœgja í öllu kröfum
íslenzks staðals IST. 69.1
um varmagjöf ofna og þar
með kröfum nýrrar
byggingareglugerðar frá því
í ágúst sl.
Þessir ofnar eru:
a. HELLU ofn
frá hf. Ofnasmiðjunni
GAL-ofn
frá hf. Ofnasmiðjunni
SVISSYL-ofn
frá hf. Ofnasmiðjunni
LF-ofn
Vélsmiðjunni Odda hf.
Æoeins framangreindir ofnar eru
framleiddir í samrœmi við gildandi byggingareglu-
gerð og tryggja hámarksnýtingu heita vatnsins og
þar með lægstan hitunarkostnað.
Varizt óábyrgar fullyrðingar um annað!
HF. OFNASMIÐJAIM
Háteigsvegi 7, Reykjavík
Sími 91-21220
VÉLSMIÐJAN ODDI HF.
Strandgötu 49 Akureyri
Sími 96-21244
ÍSLENZKT LOST-
ÆTI í HONG KONG
Hong Kongbúar snæða nú daglega
íslenzkan mat ef þeir kæra sig um. Og
hann er ekki af verra taginu. íslands-
kynning stendur nú yfir austur þar og
var hún opnuð 13. nóvember sl. og
stendur til 23. nóv. í nokkrum þekktum
veitingahúsum þar í borg. Þeir sem
standa að kynningunni eru Flugleiðir,
Ferðamálaráð og Hótel Loftleiðir með
aðstoð Cargolux.
Hilmar Jónsson, veitingastjóri
Hótels Loftleiða, hefur umsjón með
matseldinni. Hefur hann úr nógu að
moða því 1,5 tonn af kjöt-, fisk- og
mjólkurafurðum voru send til Hong
Kong. Á matseðli Hilmars eru m.a. 14
forréttir og súpur, níu aðalréttir, fjórar
gerðir af salati og sjö eftirréttir, auk
ótal tegunda af ostum.
- JH
LEZT AF VÖLDUM
UMFERDARSLYSS
Ólafur Alfreðsson, 26 ára gamall við fólksbifeið sem ók í sömu átt. Slas-
Reykvíkingur, lézt á föstudag á Borgar- aðist Ólafur það alvarlega að hann
spítalanum af völdum meiðsla sem komst aldrei til meðvitundar eftir slys-
hann hlaut í umferðarslysi á Snorra- jð.
braut 1. nóvember sl. Ólafur heitinn var sonur hjónanna
Slysið varð með þeim hætti að Alfreðs Eymundssonar og Unnar
Ólafur heitinn ók mótorhjóli norður Ólafsdóttur.
Snorrabraut og lenti hjólið í árekstri -GAJ
Dagvistunarþörf bama í Reykjavík könnuð:
ÓSKA FORELDRAR
EFTIR DAGVISTUN
— ef svo er, þá hvemig?
Þessa viku verður gerð könnun á
þörf dagvistunar fyrir börn í Reykja-
vik. Könnunin er framkvæmd af starfs-
hópi á vegum Félagsmálaráðs Reykja-
vikurborgar.
Sendir verða spurningalistar til allra
foreldra sem eiga börn í leikskólum.
Ennfremur verða slíkir listar sendir
til allra foreldra sem eru á biðlistum
dagheimila, skóladagheimila og leik-
skóla.
Loks eru allir foreldrar, hvort sem
þeir tilheyra forgangshópum eða ekki,
sem óska eftir dagvistunarplássum fyrir
börn sín, en eru ekki á biðlistum,
beðnir að gefa sig fram þessa viku kl.
13—16 í síma 27277 — skrifstofu dag-
vistunardeildar.
í þeim síma fást allar nánari tipplýs-
ingar um könnunina. Þess er vænzt að
foreldrar bregðist fljótt og vel við. —
Það þarf varla að taka fram að þeir
eiga varla skilið að fá pláss fyrir börnin
sín ef þeir ekki leggja sitt af mörkum til
að aðstoða starfshópinn.
- IHH
Þúsund lína síma-
strengurísundur
Þúsund lina símastrengur fór í
sundur á Akureyri um hádegisbilið á
föstudag er verið var aðskipta um jarð-
veg i götu. Við þetta varð allur efri
hluti brekkunnar símasambandslaus
með öllum þeim. vandræðum er þvi
fylgir.
Lögreglan setti bíl á vakt í hverfið,
svo að fólk gæti snúið sér þangað og
komizt í samband við umheiminn gegn-
um talstöðef á þyrfti að haida.
- A.St.