Dagblaðið - 19.11.1979, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
7
Áskorenda-
einvígiðískák:
Friðrik Ólafsson, forseti FIDE,
dró á laugardaginn um hvaða skák-
menn muni leiða saman hesta sína í
einvígjum um réttinn til að skora
á heimsmeistarann, Anatoly Karpov,
í karlaflokki og landa hans, Maya
Tskhiburdanidze, i kvennaflokki árið
1981. Drátturinn fór fram i Amster-
dam i Hollandi.
Mesta athygli vekur vafalaust að
landflótta Rússinn, Viktor Kortsnoj,
á að mæta fyrrum landa sínum
Tigran Petrosjan en þeim er, sem
kunnugt er, ekki vel til vina og síðast
þegar þeir mættust í slíku einvígi yrtu
þeirekkihvoráannanog varðdóm-
arinn jafnan að bera skilaboð á milli
þeirra. Þá sigraði Kortsnoj örugg-
lega. Mikael Tal, Sovétríkjunum,
sem margir telja að eigi mesta mögu-
leika á að mæta Karpov, teflir við
landa sinn Polugayevsky. Ungverjinn
Lajos Portisch mætir góðkunningja
okkar íslendinga, Boris Spassky, og
annar Ungverji, Andreas Adorjan,
mætir Robert Hubner, V-Þýzka-
landi.
í undanúrslitum á sigurvegarinn í
einvígi Tal og Polugayevsky að mæta
sigurvegaranum i einvígi Kortsnoj og
Petrosjan. Sigurvegarinn í einvígi
Spassky og Portisch á að mæta sigur-
Friðrik dró Kortsnoj
gegn Tigran Petrosjan
vegaranum í einvígi Adorjan og
Húbner.
Fyrrnefndu einvígjunum á að vera
lokið fyrir 1. apríl 1980 þannig að
mjög líklegt er að einvígi Petrosjan
og Kortsnoj verði þess valdandi að
Kortsnoj geti ekki tekið þátt í
Reykjavíkurmótinu í febrúar og marz
á næsta ári. Hann hafði áður lýst sig
reiðubúinn að tefla á mótinu svo
fremi að það stangaðist ekki á við
áskorendaeinvígin.
Ekki er enn ákveðið hvar einvigin
verða haldin en verðlaunin verða
20.000 svissneskir frankar í 8 manna
úrslitunum, 25.000 frankar i undan-
úrslitum og 30.000 frankar í úrslita-
einvíginu.
-GAJ
Hér heilsast þeir Friðrik Ólafsson og
Viktor Kortsnoj er Kortsnoj kom
hingað snöggvast fyrir skömmu.
DB-mynd Bjarnleifur.
|p|
Akureyri:
Mikið tjón
í eldsvoða
Mikið tjón varð í íbúð á efri hæð
hússins að Brekkugötu 13 á Akureyri
aðfaranótt laugardagsins er eldur kom
þar upp. Slökkviliðinu á Akureyri var
tilkynnt um eldinn kl. 2.30 og var eld-
urinn orðinn mjög magnaður þegar
slökkviliðið kom á staðinn. Enginn var
á efri hæðinni þegar eldurinn kom upp
og eru eldsupptök ókunn. Vegna þess
hve veður var hagstætt gekk slökkvi-
liðsmönnum greiðlega að ráða niður-
lögum eldsins. Miklar skemmdir urðu
af völdum eldsins á efri hæðinni og
talsverðar skemmdir urðu um allt hús
af völdum vatns og reyks.
Stór íbúðarhús úr timbri eru sitt
hvorum megin við húsið að Brekku-
götu 13 og skammt á milli þeirra
þannig að verr hefði getað farið ef
veður hefði verið óhagstætt. -GAJ
Farvi á botninn
Nota verður tækifæríð þegar góða veðrið gefst til þess að koma farva á botninn. Ef
dæma má af myndinni eru stigamennirnir nokkrír sem standa að verkinu.
DB-mynd Ragnar Th.
leggðu kostina
á vogarskálarnar
A hverjum miðvikudegi
frá Rotterdam og alla fimmtudaga frá Antwerpen
Góð flutningaþjónusta er traustur grunnur á
erfiðum tímum í íslensku efnahagslífi. Þegar
þú leggur hagkvæmni vikulegra hraðferða
Fossanna á vogarskálarnar koma ótvíræðir
kostir þeirra í ljós.
Vönduð vörumeðferð og hröð afgreiðsla eru
sjálfsagðir þættir í þeirri markvissu áætlun að
bæta viðskiptasambönd þín og stuðla að
traustum atvinnurekstri hér á landi.
Hafóu samband
EIMSKIP
SIMI 27100
*