Dagblaðið - 19.11.1979, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
Bandaríkin:
Þotan hrapaði meö
geislavirkan farm
— þriggja manna áhöf n f órst og fullyrt að engin hætta sé á ferðum af geislun
Flutningaflugvél, sem flutti geisla-
virkt efni hrapaði til jarðar nærri
borginni Salt Lake City í Utah í gær.
Var hún að flytja birgðir fyrir banda-
ríska flugherinn er slysið varð. Talið
er aðáhöfnin, þrír menn, hafi farizt.
Talsmaður flughersins sagði eftir
slysið að um borð í flugvélinni hafi
verið litið magn af geislavirku efni,
sams konar og notað sé til að húða^
armbandsúr. Sé engin hætta á að
geislavirkt efni fari út í andrúms-
loftið í kjölfar slyssins.
Fulltrúi borgarstjórnar Salt Lake
City sagði í gærkvöldi að engin
geislavirkni hefðu mælzt á slysstaðn-
um, sem er um það bil þrjátíu kíló-
metra fyrir utan borgina.
Eitt lík fannst við flak vélarinnar
en björgunarsveitir voru í morgun að
leita líkamsleifa hinna mannanna
tveggja. Flugvélin sem var af gerð-
inni C-130 var á leið til Nevada en
hafði lagt upp frá herflugvelli nærri
Salt Lake City. Ekkert hefur verið
sagt um hverjar geti verið orsakir
slyssins en flugvélin brann nær
algjörlega eftir að hún hrapaði.
Sá fyrsti
hvítí
Philip Leakey er fyrsti hviti maðurinn sem kjörinn hefur verið þingmaður i
Kenya siðan landið fékk sjálfstæði árið 1963. Á myndinni sést hann fagna sigri á-
samt stuðningsmönnum sinum en kosningarnar fóru fram til þingsins i Nairobi
fyrir rúmri viku. Fylgismenn Moi forseta unnu sigur en fyrri skjólstæðingar
Kenyatta, fyrsta forseta ríkisins, féllu margir af þingi. Lengi hafði verið óánægja
með þau forréttindi, sem sá hópur hafði skapað sér. Ýmiss konar spilling fylgdi og
skar Moi forseti upp herör gegn sliku fljótlega eftir að hann tók við embætti.
Bretland:
Blunt segist fagna
rannsókn á njósnum
Anthony Blunt fyrrum listráðu-
nautur Elísabetar drottningar, sem
viðurkennt hefur að hafa njósnað
fyrir Sovétríkin, sagði í gær að hann
mundi fagna opinberri rannsókn á
máli sínu. Blunt viðurkenndi njósn-
irnar árið 1%4 en opinberlega var
ekkert vitað um þær fyrr en Thatcher
forsætisráðherra upplýsti málið í
neðri málstofu brezka þingsins á
fimmtudaginn. McMillan eða Home,
sem voru forsætisráðherrar á fyrri
hluta sjöunda áratugarins í Bretlandi,
segjast hvorugur hafa vitað um
njósnir Blunts.
Mikil reiði er meðal stjórnmála-
manna í Bretlandi vegna þessa máls.
Spurt er hvernig það mátti vera að
Blunt gegndi áfram störfum sem
náinn ráðgjafi drottningar eftir að
hann hafði viðurkennt njósnir sínar.
Er mjög deilt á brezku leyniþjónust-
una fyrir að starfa og taka ákvarðan-
ir án þess að ráðfæra sig við kjörin
stjórnvöld. Anthony Blunt hefur nú
verið sviptur aðalstign.
Palma, Mallorca:
Handtóku himd með
LSDumhálsinn
—á meðan brenndi lögreglan í
Barcelona 2,5 tonnum af hassi
Hundur með gullhring í eyranu
vakti athygli spænsku lögreglunnar,
þar sem hann ráfaði um götur Palma,
höfuðborgar Mallorka. Hann var
færður á lögreglustöð og þar kom í
ljós að hálsól hans hafði verið troð-
fyllt með eiturlyfinu LSD.
Við nánari athugun kom í ljós að
tilkynnt hafði verið fyrir nokkru að
hundi sem þessum hefði veriö stolið
frá eigendum sínum. Tilgáta lögregl-
unnar er sú að eiturlyfjasmyglarar
hafi stolið honum og auðkennt hann
með eyrnalokk til að auðveldara væri
að sjá að þar færi hundur með eitur-
iyf-
Lögreglan hefur enn ekki komizt á
slóð eiturlyfjasmyglaranna, en nú er
fylgzt mun betur en áður með öllum
flækingshundum.
Um svipað leyti og lögreglan í
Palma fór í hundana tóku stéttar-
bræður hennar í Barcelona á megin-
landi Spánar sig til og brenndu
tveimur tonnum af hassi. — Verð-
mæti þess er talið nema um 2.5
milljörðum íslenzkra króna þar ytra.
— Birgðir þessar voru gerðar
upptækar í líbönsku skipi fyrir'
tveimur mánuðum.
Mikið ský steig upp við hass-
brennsluna og hefðu áreiðanlega
margir haft gaman af að vera
viðstaddir og fáað anda að sér reykn-
um!
Iran:
Vændiskona
tekin af líf i
írönsk vændiskona var dæmd til
dauða og tekin af lífi um helgina eftir
að hafa verið fundin sek um að hafa
starfrækt hóruhús og ráðið til sín
starfsstúlkur.
Opinber fréttastofa írana skýrði frá
máli vændiskonunnar og sagði að hún
hefði verið leidd fyrir aftökusveit i
borginni Ahwaz i Khuzestanhéraði.
Júgóslavfa:
Tveirfórust í
járnbrautarslysi
Lestarstjóri og aðstoðarmaður hans
drukknuðu í stöðuvatni í Svartfjalla-
lendi í Júgóslavíu í gær. Lest þeirra fór
út af teinunum og lenti úti í vatninu.
Slys þetta varð í kjölfar mikilla flóða í
Svartfjallalandi.
Einungis eimreiðin fór út af
sporinu. Farþegar lestarinnar sluppu
allir ómeiddir. — Slysið var nálægt
þorpinu Proboj, sem stendur við aðal-
járnbrautalínuna milli Belgrad og Bar.
Flóðin fylgdu í kjölfar mikilla
rigninga, sem stóðu í fjóradaga. Vegna
þeirra urðu hundruð fjölskyldna i
þorpum og bæjum Svartfjallalands að
flýja heimili sín. Upp stytti í gær og
voru flóðin nokkuð í rénun í gær-
kvöld.
Belgía:
Tveirfélluogsjö
særðustískothríð
geðsjúklings
Tveir létust og í það minnsta sjö
særðust í Belgíu í gær er maður einn
hóf að skjóta á hóp áhorfenda við
kappakstur í Belgíu. Fólk kastaði sér á
jörðina er skothriðin hófst en skömmu
síðar tókst lögreglunni að yfirbuga
tilræðismanninn, sem sagður var geð-
sjúklingur í helgarleyfi frá sjúkrahúsi í
Antwerpen. Kappakstrinum var nýlega
lokið, er maðurinn hóf skothríðina.
Fyrst að áhorfendasvæði knatt-
spyrnuvallar og síðan beint inn i hóp
fólks.
Florida:
Reagan lang-
vinsælastur
rebúblikana
Ronald Reagan fyrrum leikari og
ríkisstjóri í Kaliforníu reyndist lang-
vinsælastur þeirra frambjóðenda
repúblíkana, sem gefa kost á sér til for-
setakjörs, í óformlegri skoðanakönnun
í Orlando á Florida. Þar var haldið,
fylkisþing Repúblíkanaflokksins um
helgina. Afþeim 1.352 atkvæðum, sem
greidd voru í skoðanakönnuninni
hlaut Reagan 36.4 prósent.
Skoðanakönnun þessi er á engan
hátt 'bindandi fyrir forkosning-
arnar sem fram fara í Florida i marz-
mánuði næstkomandi. Ekki hefur hún
heldur á neinn hátt áhrif á val fram-
bjóðandans á landsþinginu á næsta ári.'
Næstur á eftir Reagan í skoðana-
könnunni á Florida kom John
Connally fyrrum rikisstjóri í Texas.
Hann hlaut 26.6 prósent greiddra at-
kvæða. Þriðji í röðinni varð George
Bush fyrrum yfirmaður bandarísku
leyniþjónustunnar CIA með 21.1
prósent.
Hann var náinn vinur njósnaranna
Burgess og Maclean sem flúðu til
SSfMiétríkjanna árið 1951 og Kim
PhitóýVöf} flúði árið 1963. Var Blunt
þá nefnditrV -setTi^ fjórði maður í
málinu og sá sem varaði hina við að
upp um þá hefði komizt.
Brezka ríkisstjórnin mun ræða
málið í dag en talið er liklegt að
frekari umræður verði um það í
þinginu. Thatcher forsætisráðherra
ætlar að gefa frekari skýrslu um
málið ipnan tíðar.
Bassam Shaka borgarstjóri 1 Nablus á
vesturbakka árinnar Jórdan sést hér i
hópi fylgismanna sinna. ísraelsk yfir-
völd hafa vikiö honum úr starfi fyrir
að hafa lýst yfir samúð með sam-
tökum Palestínuaraba. Brottrekstur
Shaka þykir mikill sigur fyrir
harðlinumenn i stjórn Begins en
margir efast um að þetta muni hafa
heppileg áhrif á samband araba á
hernumdu svæðunum og ísraelskra
stjórnvalda. Allir arabískir borgar-
stjórar á Gazasvæðinu og vestur-
bakka árinnar Jórdan hafa sagt af sér
í mótmælaskyni vegna brottreksturs
starfsfélaga síns.