Dagblaðið - 19.11.1979, Page 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
Hawaii:
GosíKilauea
Eldfjallið Kilauea á Hawaii tók að
gjósa á laugardaginn. Spjó það glóandi
hrauni um tiu metra upp í loftið. Að
sögn yfirvalda eru vegir og mannvirki
ekki í hættu vegna gossins.
Kilauea er um 1450 metra hátt. Það
er á Hawaiieyju, hinni stærstu í am-
nefndum klasa. Eldfjallið dregur árlega
að sér mikinn fjölda ferðamanna.
13
íran:
Atta svartirog fímm
konur látnar lausar
— Khomeini boðar að hinir gíslarnir verði færðir fyrir rétt sem njósnarar
Þrettán gíslar — átta svartir karlar
og fimm konur — voru í morgun
látnir lausir úr bandaríska sendiráð-
inu í Teheran, að því er íranska út-
varpið tilkynnti í morgun. Ekki var
neitt sagt nánar um málið eða hvert
farið yrði með fólkið.
Óstaðfestar heimildir í Teheran
sögðu að fólkið mundi fara með flug-
vél svissneska flugfélagsins áleiðis til
Zúrich þar sem áætlað væri að lenda
klukkan 11 fyrir hádegi.
í gær var blaðamönnum heimilað
að ræða við þrjá af gislunum — tvær
konur og einn svertingja —. Sögðu
þau að þau vissu ekki betur en þau
þrjú yrðu hinir einu af gíslunum sem
sleppt yrði úr haldi. Var þá talið, að
aðrir hefðu neitað að yfirgefa hópinn
í sendiráðinu.
Khomeiní trúarleiðtogi sagði í
viðtali við bandarískar sjónvarps-
stöðvar í gærkvöldi að hann skoraði
á Egypta að steypa Sadat forseta
landsins af stóli og fara að dæmi
írana. Hann sagði einnig að þeir sem
eftir væru í sendiráðinu væru allir
njósnarar og mundu verða
meðhöndlaðir sem slíkir. Hann sagði
aftur á móti að ef bandaríska sljórnin
framseldi keisarann fyrrverandi úl
Irans þá mundu þeir senda sendiráðs
mennina til Bandarikjanna. Það væri
aftur á móti aðeins gustukavcrk þvi
þeir mundu vafalausl allir verða
dæmdir sekir njósnarar fyrir rctli.
Blóöug átök í
þorpsóeirðum
Tuttugu manns létust og sjö slös-
uðust i óeirðum í Vestur-Kalimantan
á Indónesíu. Upptökin voru deila
tveggja manna sem bjuggu hvor í
sínu þorpinu í héraðinu. Þær mögn-
uðust síðan stig af stigi og sifellt
bættust fleiri í hópinn. Eftir nokk-
urra daga stríð voru hermenn og
lögregla send til að skakka leikinn.
Þá voru íbúar tíu þorpa komnir í
slaginn og börðust með hnífum og
sveðjum.
Öeirðaseggirnir kveiktu í um
fimmtíu húsum á meðan ófriðurinn
geisaði. Svo hart var barizt að
þúsundir manna í Vestur-Kalimantan
flýðu heimili sín til Singkawang, sem
er um eitt hundrað kilómetra frá
ófriðarsvæðinu.
Tveim frétta-
mönnum vísað
frá Namibíu
Tveimur svissneskum fréttamönn-
um var um helgina visað frá Suð-
yestúr-Afríku, sem einnig gengur
undir nafninu Namibia. Fréttamenn-
irnir, sem eru hjón, sögðu að þeim
hefði verið neitað um framlengingu á
dvalarleyfi þeirra. Namibia lýtur
stjórn Suður-Afríku. Fréttamönnun-
um var heimilað að fara þangað.
Hjónunum var fyrr á þessu ári
hótað brottrekstri frá Namibíu, en
eftir nokkurt þjark var landvistar-
leyfi þeirra framlengt til 30. október.
Þegar þau hugðust framlengja á ný
fengu þau afdráttarlausa neitun.
Fréttamennirnir hafa starfað í
Namibiu á frjálsum markaði, það er
unnið fyrir ýmsa fjölmiðla á Vestur-
löndum. Þau voru stödd á ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í Genf um
framtíð Namibiu, þegar þeim bárust
tíðindin um synjunina. Þeim var gef-
inn frestur til 23. nóvember til að
hafa sig úr landi. — Þau hafa enn
ekki ákveðið hvort þau muni setjast
að í Suður-Afríku eða flytjast til
Evrópu.
ftalskir lögreglumenn sýna eldflaugar sem teknar hafa verið af borgarskæruliðum.
Ítalía:
Hryðjuverkamenn með
sovézkar eldflaugar
taldar komnar f rá Palestfnumönnum
ítalskir borgarskæruliðar og hryðju-
verkamenn hafa fengið sovézkar eld-
flaugar til umráða og segir ítalska
lögreglan þær komnar frá Palestínu-
aröbum. Er ætlunin að nota þessar eld-
flaugar við baráttuna gegn stjórnvöld-
um.
í fyrri viku voru tvær eldflaugar
gerðar upptækar er lögreglan handtók
þrjá hryðjuverkamenn í borginni
Chieti. Er talið að þær hafi borizt til
Ítalíu með Iíbönsku flutningaskipi.
Chieti er skammt frá Róm. Hryðju-
verkamennirnir, sem handteknir voru
eru i samtökum nátengdum Rauðu her-
deildunum, sem stóðu fyrir ráni og
morði á Aldo Moro, fyrrum forsætis
ráðherra, á síðasta ári.
Eldflaugarnar eru af SAM-7 gerð.
Þó halda megi á þeim eru þær svo
öflugar að skjóta má niður mcð þeitn
flugvélar. Hafa skæruliðar Palestínu-
araba beitt þeim gegn ísraelskum flug-
vélum í Suður-Líbanon.
Er talið að eldflaugunum hafi verið
komið á land á meðan rafmagnslaust
var í höfninni þar sem líbanska skipið
lá. Leikur grunur á að rafmagnslcysið
hafi verið af völdum skemmdarverka.
Sovézkir hestaþ jófar athaf nasamir:
Unglingar ræna hestum
og selja þá í Moskvu
Sovézka fréttablaðið Selskaya Zhizn
krafðist nýlega aðgerða gegn ungl-
ingum, sem að undanförnu hafa
stundað hestaþjófnaði í sveitunum í ná-
grenni Moskvu. Blaðið birti bréf frá
bónda, sem sagðist hafa misst 24
vinnuhesta á siðustu fimm árum.
Unglingahópurinn hafði brotizt inn í
hesthús bóndans hvað eftir annað og
barið niður varðmenn hans.
Bóndinn sagði að unglingarnir
svæfðu dýrin til bráðabirgða i hesta-
réttum sínum, sem þeir hefðu komið
upp í skógunum við Moskvu. Síðan
riðu þeir þeim til borgarinnar að
næturlagi. Bóndinn sagði í bréfi sinu
að lögreglan gerði ekkert til að ráða
niðurlögum þjófaflokkanna og sveita-
fólkið þyrði ekki að leggja til atlögu
við þá.
ERLENDAR SIGARETT-
UR BANNAÐAR í ÍRAN
íslamska byltingarráðið í íran bann-
aði í gær neyzlu allra erlendra síga-
rettna. í tilkynningu frá ráðinu, sem
lesin var upp í útvarpi, var sérstaklega
tekið fram að Winston, vinsælasta teg-
und erlendra sígarettna í íran, væri á
bannlistanum.
Sígarettubannið kemur í kjölfar yfir-
lýsingar frá stúdentunum, sem halda
um áttatíu gíslum í bandaríska sendi-
ráðinu í Teheran. í yfirlýsingunni
sagði að skorað væri á Írani að hætta
að kaupa erlendan varning, sér í lagi
bandarískan.
Bretland:
FYRSTISIRKUS-
INN ÁN DÝRANNA
Fyrsti sirkusinn í Evrópu þar sem
engin dýr verða til sýnis og skemmt-
unar verður opnaður i Peterborough
á Englandi í næsta mánuði. Þar er ein
þekktasta fjölleikafjölskylda Bret-
lands, sem stendur fyrir þessu
nýmæli. Er hún þá að uppfylla
gamlan draum Cocos, sem lézt
reyndar fyrir fímm árum. Hann var
þekktur trúður, fæddur i Rússlandi.
Dóttir Cococs er höfuðpaurinn í
stofnun hins nýja sirkuss ásamt
manni sínum, sem upprunninn er t
Marokkó. Er hann trúður að atvinnu
eins og tengdafaðirinn látni.
Ástæðan fyrir því, að hætt er að
hafa dýr meðal skemmtiatriða i
sirkusnum er sögð sú, að vaxandi
mótmæli hafa verið gegn illri með-
ferð á þeim, auk þess sem kostnaður
við fæði þeirra og umönnun hefur
farið síhækkandi.
Fimmtugur rakari skaut
sigíPéturskirkjunni
Fimmtugur ítalskur rakari framdi
sjálfsmorð í Péturskirkjunni í Róm á
föstudaginn. Hann varð samferða
ferðamannahópi inn í kirkjuna.
Fyrir framan grafhvelfingu
Jóhannesar páfa 23. dró hann
skyndilega upp skammbyssu og skaut
sig.
Að sögn manna i Vatikaninu brá
Jóhannesi Páli páfa mjög er honum
voru borin tíðindin af sjálfsmorðinu.
Hann lagðist þegar á bæn fyrir sál
rakarans.
Á undanförnum þrjátiu árum hafa
alls ftmm manns framið sjálfsmorð í
Péturskirkjunni í Róm.