Dagblaðið - 19.11.1979, Síða 18

Dagblaðið - 19.11.1979, Síða 18
18 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979. Starfsmannafélagið Sókn A4ojfu myndir á mfnútunni í ÖH skfrteini Minútu VD lœkjartorg myndir s/mi 12245 ALMENNUR FÉLAGSFUNDUR verður haldinn í Hreyfilshúsinu miðviku- daginn 21. nóvember nk. kl. 20.30. Fundarefni: Uppsögn samninga, önnur mál. Sýnið skírteini. Stjórnin Jólakjólamir í ár og Sendum í um land allt. HVERAGERÐI SÍMI99-4499 --------------- ' ........ Pytheu-leikir og Pyrrhosarsigrar Það mun vera orðin lenska í íslenskum stjórnmálum að gefa út faguryrtar kosningastefnuskrár til at- kvæðaveiða. Má stundum vart á milli sjá hver flokkurinn er drýgstur við að lofa kjósendum ýmiss konar um- bótum í stjórnmálum er standast ekki þegar á reynir. Við síðustu kosn- ingar voru alþýðuflokksmenn einna drýgstir við slíkt og allir vita hvernig það fór í reynd. í komandi kosning- um á Sjálfstæðisflokkurinn metið í stefnuskrá er hann kallar „Leiftur- sókn gegn verðbólgu.” Virðast sjálf- stæðismenn hafa smitast illa af hug- lægu flóafári alþýðuflokksmanna og samið plagg sem er fullt af algerlega óraunsæjum áætlunum um þjóð- félagsumbætur og að talsverðu leyti sjálfu sér ósamkvæmt, miðað við þjóðfélagslegar staðreyndir. Enda mun það algerlega óframkvæmanlegt í reynd þar sem framkvæmd til fulls mundi valda algerðu stéttastríði, nokkurs konar efnahagslegri Sturlungaöld. Ætla ég að víkja að fáeinum þáttum úr þessum áætlun- um. Pytheu-leikir Pythea hét kona ein er starfaði sem véfrétt í Delfí. Sagði hún fram lítt skiljanlegar spár er presta þurfti til að þýða svo skiljanlegar væru. Þannig er um stefnuskrá þessa, ef á að laga hana að þvi ástandi sem nú er í þjóð- félaginu, þá er þetta næsta lítt skiljanleg hughyggja er vantar flestar skilgreiningar, unnar af ábyrgð og þekkingu á þróun og aðstæðum. Þar sem hinir pólitísku túlkar Sjálfstæðisflokksins sinna því lítt að útskýra og aðhæfa þessar áætlanir á raunsæjan hátt nútíðar- stöðu efnahagsmála ætla ég að fjalla lítillega um sumt af þessum áætlun- um og óska útskýringa ef þa:r eru ekki rétt skýrðar af ntinni hálfu. Heimild er Morgunblaðið 9/11, bl. 14. Orðréttur útdráttur. Feitletrun gerð af greinarritara. 2. gr. „Dregiö verði úr sjálfvirkum útlánum og lán til atvinnuveganna færist til. til viðskiptabankanna í áföngum. Fjárbindingu og al- mennum útlánum verði síðan beitt á svcigjanlcgan hátt til þess að stjórna peningamagni í umferð. Ákvarðanir um vexti verði færðar frá rikisvald- inu til markaðarins, einstakra banka, sparisjóða, fyrirtækja og einstakl- inga. Almenningi verði gert kleift að fjármagna ríkisframkvæmdir með skuldabréfakaupum, t.d. vegafram- kvæmdir. Jafnframt verði sparifjár- eigendum heimilað að leggja fé sitt inn á verðtryggða bankareikninga. Þessi stefna leiðir til vaxtalækkunar en tryggir um leið hag sparifjáreig- enda'og cykur innlendan sparnað.” Tilvitnun lýkur. Fyrsta atriðið er að draga úr sjálfvirkum útlánum og flutningi á lánum atvinnuveganna til viðskiptabankanna. Þetta ákvæði býður upp á óöryggi í lánafyrir- greiðslu og hvers kyns baktjalda- makk við útvegun á fjármagni og er því í reynd óhæft þess vegna. Annað atriði. Fjárbinding og al- menn útlán verði sveigjanleg til að stjórna pteningamagni í umferð. Kjallarinn Bjami Hannesson hagsstefnu. Lækka þarf rikisútgjöld verulega og koma verður á ströngu aðhaldi i peningamálum.” Fyrsta atriðið er það að vinna bug á verðbólgunni, það munu allir vita, en ef kjósendur eiga að trúa því að Sjálfstæðisflokkurinn sé hæfur til að hafa forgöngu í því máli verður hann að leggja raunsærri áætlanir en þetta plagg sem skilgreinir ekki vandann eða lýsir neinum tölulega rökstudd- um dæmum til viðmiðunar, öðrum en því að allt skuli skorið niður um 10% á fjárlögum. Kjósendur vita að þetta er ekki framkvæmanlegt enda engin staðfærð dæmi nefnd. Grunar mig að höfundar þessara áætlana viti það einnig og nefni því engin dæmi. Annað atriði er að raunsæi þurfi að viðhafa við allar efnahagslegar ákvarðanir. Heldur er þetta hláleg setning innan um alla þessa skraut- yrtu, óraunsæju hughyggju sem „Sjálfstæðismenn munu verða uppvísir að því að hafa þjóðina að fífli með þessu miðsvetrarævintýri.” Algerlega óskiljanlegt og ófram- kvæmanlegt atriði er hlýtur að valda glundroða (dæmigerð Pytheu-fram- setning, án túlkunar, því óskiljanleg). Þriðja atriði. Ákvarðanir um vexti verði færðar frá ríkisvaldinu til markaðarins, einstakra banka, spari- sjóða, fyrirtækja og einstaklinga. Allir vita að vextir eru að verða sífellt áhrifameiri í hagstjórnun og rekstri fyrirtækja og eru nú þegar i þannig ástandi , sökum fjölbreytileika, að óviðunandi er. Ef þetta yrði fram- kvæmt yrði algerður glundroði i framkvæmd þessa mikilsverða hag- stjórnarþáttar í þjóðlífinu. Fjórða atriði. Fullyrðing um að þessi stefna leiddi til vaxtalækkunar og tryggði um leið hag sparifjáreig- enda og yki innlendan sparnað. Algerlega dæmalaus þversögn og þvi ekki marktæk fullyrðing. Þessi 2. gr. í áðurgreindri kosn- ingsstefnuskrá verður að dæmast sem algerlega óraunsæjar áætlanir, unnar án þekkingar og ábyrgðar gagnvart þessum viðamikla þætti í efnahagslíf- Vöntun skilgrein- inga og þversagnir Ætla ég þá að víkja að öðrum þætti í sama plaggi er sannar alvar- lega skort á skilgreiningum og þver- sagnir á önnur atriði í stefnuskránni. Útdráttur. „Forsenda þess að hægt sé að hefja sókn til bættra lífskjara er, að fyrst takist að vinna bug á verðbólgunni. Þetta er sú staðreynd, sem óhjákvæmilegt er nú fyrir þjóð- ina að horfast í augu við. Raunsæi þarf við efnahagslegar ákvarðanir i öllum greinum. Nema verður úc gildi í heild sinni lög vinstri stjórnarinnar um stjórn efnahagsmála og taka upp i staðinn frjálslynda en styrka efna- aldrei getur orðið að veruleika sökum þess að áætlanir taka ekkert tillit til' þjóðfélagslegra staðreynda. Þriðja atriðið er afnám laga vinstri stjórnarinnar. Ætla mætti að þeir legðu fram eitthvað raunsærra og betra en ekki fer mikið fyrir raunsæ- inu í heild sinni í þessu plaggi. Fjórða atriðið er að taka upp frjálslynda en styrka efnahagsstefnu. Erfitt mun að samræma þetta íslenskum aðstæðum og væri fróð- legt að sjá það gert á skjallega stað- festum áætlunum frá flokknum. Pyrrhosar-sigur Pyrrhos hét kóngur einn í Epirus, er barðist við Rómverja við Heraklea og Auskulum. Urðu sigrar þessir, honum svo dýrkeyptir að hann sagði. „Einn sigur til, og ég er glataður.” Líklegt er, að kosningarnar verði nokkurs konar Pyrrhosarsigur fyrir Sjálfstæðisflokkinn, hvernig sem þær fara, því sjálfstæðismenn munu verða uppvísir að því að hafa þjóðina að fífli með þessu miðsvetrarævin- týri. Það eina sem þeir ættu að biðja um í þessum kosningum væri það að þeir fengju ekki þingfylgi til að mynda stjórn er framfylgdi þessum áætlunum. Þróunin er lika sú, að því er virðist meðal landsmanna að þeir eru farnir að átta sig á hversu yfir- borðskenndar áætlanir þetta eru. Það mun besta ráðið til ákvörðunar um hvað á að kjósa núna að lesa þetta plagg gaumgæfilega. Munu flestir þá sjá að þetta er ekki „Leiftursókn gegn verðbólgu ” heldur „Leiftursókn gegn heilbrigðri skynsemi.” Læt ég hér með lokið um fjöllun um þetta plaggaðsinni. Bjarni Hannesson Undirfelli. 1949 30 ÁRA ÞJÓNUSTA 1979 SENDIBÍLASTÖDIN H.F. BORGARTÚNI21

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.