Dagblaðið - 19.11.1979, Qupperneq 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
19
Kvik
myndir
Dularfullt mannshvarf
Agatha erheitið á mynd sem fjallar um dularfullt hvarf
Vanessu Redgrave (Agatha Christie)
og Dustin Hoffman (Wally Stanton).
Það er varla hægt að hugsa ser
ólíkari persónur enda orka sum
atriðin hálfafkáraleg. Redgrave er
há og grönn en Hotfman lágur vexti
svo hann verður í sífellu að líta upp
til að geta horft í augu mótleikara
síns. í einu atriðanna, þegar Agatha
kyssir Stanton, verður hún að beygja
sig meðan hann tyllir sér á tær. Þetta
er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt en
óvanalegt í kvikmyndum þar sem
alltaf er keppst við að hafa allt sem
fallegast fyrir augað.
Bæði Redgrave og Hoffman fara
mjög vel með hlutverk sín, þó sérlega
Hoffman sem dregur upp mjög
skemmtilega mynd af Bandaríkja-
manni í Bretlandi. Einnig er myndin
tekin í föðurlandi Agatha Christie,
þ.e. Englandi, og nær mjög vel
andrúmslofti þess tíma.
BaldurHjaltason
ítalskur kvik-
myndatökumaður
Þar á stóran hlut kvikmyndatöku-
maðurinn Vittorio Storaro. Storaro,
sem er ítali og hefur kvikmyndað
flestar myndir Fellinis, notar hér
filtera mjög skemmtilega til að gefa
myndinni draumkenndan blæ.
Einnig er áberandi hve hann notar
nærmyndir mikið, þó sérlega andlit
þeirra Redgrave og Hoffmans.
Storaro hefur verið fyrirmynd
margra ungra kvikmyndatökumanna
víða um heim en siðasta afrek hans af
mörgum var kvikmyndun
Apocalypse Now sem Francis Ford
Coppola leikstýrði.
Því miður átti þessi ágæta mynd
dálítið leiðinlegan eftirmála. First
Artists framleiddu myndina en það er
fyrirtæki sem er í eigu listamanna,
m.a. Ieikara sem vilja hafa stjórn á
listrænni hlið framleiðslunnar.
Dustin Hoffman, sem er hluthafi i
fyrirtækinu, taldi sig bera skarðan
hlut frá borði. Hann hefur þvi höfð-
að mál á hendur fyrirtækinu fyrir að
hafa stytt myndina án samþykkis
hans. Warner Bros dreifa myndinni
svo senn kemur að því að Austur-
bæjarbíó taki hana til sýninga.
Þangað til er lítið annað að gera en
bíða og vona að það verði sem fyrst.
Margaret
Rutherford
láta nokkurn vita. Engin frekari
skýring er gefin á þessu í upphafi
myndarinnar ensíðar kemur í Ijós að
ástkona eiginmanns hennar dvelst
einmitt á sama stað og Agatha. Rétt
áður en Agatha Christie hvarf hafði
bandarískur blaðamaður að nafni
Wally Stanton reynt að fá viðtal við
hana en án árangurs.Hann færáhuga
á þessu skyndilega og dularfulla
hvarfi og þar sem Stanton hafði haft
veður af ósamkomulagi þeirra hjóna,
ákveður hann að kanna málið nánar.
Hann kemst að þvi hvar Agatha
dvelur á hóteli undir fölsku nafni og
skráir sig þar einnig undir öðru nafni.
Ekki verður frekar farið út í efnis-
þráðinn en líkt og í sögum Agatha
Christie er endir myndarinnar mjög
óvæntur.
Frábær leikur
Aðalhlutverk eru í höndum þeirra
Þegar rætt er um Agatha Christie
er ekki hægt að komast hjá því að
nefna Margaret Rutherford en hún
lék Miss Jane Marple, eina af sögu-
hetjum Agatha Christie, sem er á
sjötugsaldri og er sæpjari í
frístundum sínum. Af þessum
myndum má nefna Murder Ahoy
(Bretland 1964) og Murder she said
(Bretland 1961) — sem var byggð á
sögunni 4:50 from Paddington.
Það mætti lengi telja upp myndir
Ur „Agatha” — Dustin Hoffman og Vanessa Redgrave.
Agatha Christie fyrir 53 árum
Sögur Agatha Christie hafa löng-
um verið vinsælt kvikmyndaefni.
Kvikmyndaframleiðendur hafa not-
fært sér vinsældir Agatha og sent frá
sér ýmsar kvikmyndaútgáfur af
bókum hennar. Af þeim nýlegri er
Dauðinn á Níl (Death on the Nile),
sem Agatha Christie skrifaði 1937,
líklega þekktust en hún var einmitt
ein af jólamyndum Regnbogans sl.
jól. Peter Ustinov fór þar með hlut-
verk Hercule Poirot, belgíska
spæjarans sem getur leyst flóknustu
morðmál. Þetta var íburðarmikil út-
gáfa með fjölda frægra leikara í
ýmsum hlutverkum, þótt útkoman
væri ekki nema í meðallagi.
Fyrirmynd Dauðans á Níl var lík-
lega myndin Murder on the Orient
Express sem sýnd var í Háskólabíói
fyrir nokkrum árum. Þar var einnig á
ferðinni glansmyndaútgáfa af sam-
nefndri sögu Agatha Christie en þá
fór Albert Finney með hlutverk
Hercule Poirot. Myndin gerðist 1934
um borð í Orient express lestinni sem
gekk milli Istanbul og Calais. Einn
farþeganna er myrtur og flestir um
borð hafa ástæðu til að hafa framið
sem byggðar eru á sögum Agatha
Christie en ætlunin er að kynna lítil-
lega nýlega mynd sem fjallar um
Agatha Christie sjálfa en ekki bækur
hennar. í desember 1926 hvarf
Agatha Christie í 11 daga og allt til
dauðadags fékkst hún ekki til að
segja hvað raunverulega gerðist.
Agatha, sem er heitið á þessari mynd
sem Michael Apted leikstýrir, á að
get'a hugmynd um „hvað gæti hafa
gerst,” eins og segir í byrjun myndar-
innar.
Agatha hverfur
Agatha Christie hefur komist að
því að eiginmaður hennar, Archie
Christie, er henni ótrúr og einnig vill
hann skilnað. Hún getur ekki hugsað
sér skilnað og að loknu rifrildi við
eiginmann sinn ákveður hún að
stinga af frá öllu saman án þess að
morðið. Dæmigerð Agatha Christie-
mynd.
Léttur veggur,
með stuðlum — hillum
skápum og heilum flötum
allt eftir þínum þörfum
Stuðlaskilrúm
fást í öllum
viðartegundum
og einnig bæsuð
í ýmsum litum
HALLGRIMSSON
SVERRIR
Smíðastofa, Trönuhrauni 5, Sími 51745