Dagblaðið - 19.11.1979, Side 26
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
Iþróttir
Iþróttir
I
26
I
Iþróttir
Iþróttir
Liverpool komið í efsta sætið
— loks tap Forest í 50 leikjum
—nýliðar Bríghton ruf u 49 leikja óslitna sigurgöngu Forest á heimavelli
„Það er sama hvað leikmenn Totten-!
ham reyna — það virðast alltaf vera 7 ■
eða 8 Liverpool-leikmcnn umhverfis
hvern sóknarmann þeirra,” sagði fyrr-
um knattspyrnusnillingurinn Denis
Law í BBC á laugardag. Þrátt fyrir
þessi ummæli Law var langt í frá að
Livcrpool hefði yfirburði gegn stór- i
góðu liði Tottenham. Með Argentínu-
mennina Ardiles og Villa i fararbroddi
ásamt Glen Hoddle velgdi N-Lundúna-
liðið Liverpool vel undir uggum. í jöfn-
um fyrri hálfleik, þar sem Liverpool
var öllu atkvæðameira, skoraði Terry
McDermott eina markið á 33 minútu.
Liverpool leiddi því 1—0 er gengið var
til búningsklefanna í leikhléi.
Leikmenn Tottenham létu engan bil-
bug á sér finna og á 62. mínútu jafnaði
Chris Jones metin eftir stórkostlegan
undirbúning þeirra Hoddle og Ardiles.
Knötturinn fór innan á aðra stöngina
og þaut síðan þvert yfir markið og í
hliðarnetið í gagnstæðu horni. Aðeins
tveimur mínútum áður hafði Ray
Kennedy átt firnafast skot í þverslá
eftir að Kenny Dalglish hafði meistara-
lega nikkað knettinum aftur fyrir sig.
,,Það hefði verið mark keppnistíma-
bilsins,” sagði Denis Law.
Eftir að Tottenham jafnaði hertu
leikmenn l.iverpool sóknina til muna
og á 70. mínútu uppskáru þeir mark.
Kenny Dalglish var með knötlinn við
vitateiginn og þurfti að kljást við þrjá
varnarmenn. Eins og honum er einum
lagið sneri hann á þá alla í einu og
renndi knettinum til Terry McDermott
sem þrumaði í netið, 2—1. ,,The Kop”
Mark Jóhannesar Eðvaldssonar færði
Celtic efsta sætið í skozku úrvalsdeild- j
inni um helgina. Jóhannes hefur verið á |
skotskónum að undanförnu og skorað
nokkur mörk fyrir Cellic eftir að hafa .
vermt varamannabekkinn lengi framan
af vctri.
gekk berserksgang en heldur hljóðnaði
yfir stuðningsmönnum Tottenham sem
voru þó fjölmennari á Anfield nú en sl.
15 ár. Allir þeir miðar sem áhangendur
Tottenham áttu völ á runnu út eins og
heitar lummur. „Slíkt hefur ekki gerzt
þau 15 ár sem ég hef verið ritari hjá
Liverpool,” sagði Peter Robinson.
Tottenham hafði ekki sagt sitt
síðasta orð og á 85. minútu mátti Ray
Clemence hafa sig allan við til að forða
marki. Ricardo Villa skaut þá lúmsku
skoti að marki af nokkuð löngu færi.
Clemence varði en hélt ekki knettinum
sem féll fyrir fætur Glen Hoddle. Hann
spyrnti á markið en á yfirnáttúrlegan
hátt tókst Clemcnce aö bjarga á ný.
Liverpool hélt því báöum stigunum og
með þessum sigri komst liðið á topp 1.
deildarinnar. Það fór þvi eins og við
sögðum hér fyrir nokkrum vikum.
Liverpool hefur hlotið 14 stig í siðustu
8 leikjum — meistarataktar. Þess má
geta hér í leiðinni að Tottenham vann
síðast á Anfield fyrir 67 árum — árið
1912. Við tapið á Anfield á laugardag
datl Tottenham niður um 3 sæti á
töflunni.
En það voru víðar stórleikir en á An-
field. Nottingham Forest fékk botn-
liðið Brighton >í heimsókn og öllum á
óvart tapaði Forest 0-1. Það var Gerry
Ryan sem skoraði sigurmarkið á 12.
mínútu. Nottingham hafði öll tök á þvi
að jafna metin en enginn eins og John
Robertson, útherjinn snjalli. Honum
var að vanda falið að taka vítaspyrnu
sem Forest fékk á 43. mínútu. Mark-
vörður Brighton, Graham Moseley,
sem áður lék með Derby, sá hins vegar
við honum og varði spyrnu hans. Þar
fór bezta tækifæri Forest i leiknum og
stórkostleg sigurganga liðsins á heima-
velli var rofin. Það, sem eftir var
varðist Brighton mjög vel, en átti
hættulegar skyndisóknir. Peter Ward
var atkvæðamestur í sókninni en hann
hefur ákveðið að leika áfram með
Brighton. Frá því liðið komst í 1. deild-
ina á ný haustið 1977 hafði það ekki
tapað leik á heimavelli í I. deildar-
keppninni. Keppnistímabilið 1977—78
vann Forest 15 leiki á heimavelli og
gerði 6 jafntefli. Markatala 3—8. Á
síðasta keppnistímabili vann liðið 11
leiki á heimavelli og gerði 10 jafntefli.
Markatala 34—10. Á þessu keppnis-
tímabili hafði liðið leikið 7 leiki í deild-
inni á heimavelli án taps og því alls 49
leiki í röð án taps. Sannarlega stórkost-
legur árangur en að sama skapi sárt að
tapa fyrir liði eins og Brighton. Til að
kóróna svartan dag ákvað Tony Wood-
cock að ganga til liðs við Köln i V-
Þýzkalandi og lék sinn síðasta leik með
Forest á laugardag. Hann var tekinn út
af i hálfleik. Greinilegt er nú að Forest-
liðið er ekki eins stöðugt og það var og
kunna hinar tíðu stöðuskiptingar og
mannabreytingar Brian Clough að spila
þar inn í.
Manchester United komst einnig í
krappan dans á heimavelli og mátti sjá
á eftir fyrsta stiginu á þessu keppnis-
tímabili á Old Trafford. Það voru ný-
liðarnir, Crystal Palace, sem komu i
heimsókn og voru mun nær sigri. Mark
var dæmt af David Swindlehurst í fyrri
hálfleiknum en hann bætti það upp er
hann skoraði gott og gilt mark á 80
mínútu leiksins. Allt stefndi í sigur
Palace en Joe Jordan, sem lék á ný með
United eftir meiðsli, var ekki á sama
máli. Þegar þrjár mínútur voru komnar
fram yfir venjulegan leiktíma kom góð
sending fyrir markið. Jordan kastaði
sér fram, innan um marga fætur, og
skallaði knöttinn i netið. Mark.
Örfáum sekúndum síðar flautaði dóm-
arinn til merkis um leikslok.
Við skulum líta á úrslitin á laugar-
dag.
l.deild
Arsenal — Everton 2—0
Aston Villa — Stoke 2—1
Bolton — Manchester C 0—1
Derby — Ipswich 0-1
Leeds — WBA 1—0
Liverpool — Tottenham 2—1
Manchester U — Crystal P 1 — 1
Middlesbrough — Bristol C 1—0
Norwich — Southampton 2—1
Nottm. Forest — Brighton 0-1
Wolves — Coventry 0—3
2. deild
Bristol R — Newcastle 1 — 1
Burnley — Luton 0—0
Cambridge—Wrexham 2—0
Cardiff — Orient 0—0
Chelsea — Charlton 3—1
Oldham — Fulham 0—1
Preston — Leicester 1 — 1
QPR — Shrewsbury 2—1
Sunderland — Notts Co. 3—1
Watford — Birmingham 1—0
West Ham —S wansea 2—0
3. deild
Colchester — Plymouth 5—2
Carlisle — Sheffield U 1—0
Chester — Mansfield 1—0
Chesterfield — Reading 7—1
Exeter — Oxford 0—0
Gillingham — Bury 2—1
Grimsby — Wimbledon 1—0
Hull — Barnsley 0—2
Millwall — Blackpool 2—0
Rotherham — Brentford 4—2
Sheffield W — Southend 2—0
Swindon — Blackburn 2—0
4. deild
Stockport r— Newport 0—5
Aldershot — Halifax 3—1
Bournemouth — Doncaster 0—0
Crewe — Darlington 0—0
Hereford — Rochdale 1 —1
Huddersfield — Tranmere 1 — 1
Northampton — Hartlepool 2—1
Peterborough — Walsall 1—3
Portsmouth — Lincoln 4—0
Port Vale — Torquay 1 — 1
Wigan—Scunthorpe 4—1
York — Bradford 2—2
Búbbi skoraði
og Celtic efst
Mark Jóhannesar Eðvaldssonar
færði Celtic efsta sætið í skozku úrvals-
deildinni um helgina er liðið sigraði
Hibernian 3—0 á Park Head. Jóhannes
skoraði þriðja mark Celtic og það mark
nægði Celtic til að komst upp fyrir
Morton á markatölu. Þessi tvö lið hafa
nú stungið hin af í kapphlaupinu um
meistaratitilinn. Hin mörk Celtic i
leiknum skoruðu þeir Bobby Lennox
og Sullivan.
Rangers tapaði 0—1 á Ibrox fyrir
Aberdeen eftir að hafa átt meira í
leiknum. Það var Steve Archibald, sem
skoraði eina mark leiksins þremur
mínútum fyrir leikslok. Njósnarar frá
Derby fylgdust með honum og hafa
vafalítið ekki orðið fyrir vonbrigðum
því hann var bezti maður vallarins.
Andy Ritchie skoraði fyrra mark
Morton og Anderson það síðara í 2—0
sigri gegn Dundee. Kilmarnock datt úr
3. sætinu með tapi á heimavelli fyrir
Partic. Sá leikur varð sögulegur fyrir
þær sakir að varamaðurinn Houston,
sem leikur með Kilmarnock, var varla
búinn að vera eina minútu inni á vellin-
um er honum var vísað af leikvelli fyrir
óprúðmannlega hegðun. Mun þetta
vera met á Bretlandseyjum. Park
skoraði eina mark leiksins fyrir
Partick. Dunde United og St. Mirren
gerðu markalaust jafntefli.
Staðan í úrvalsdeildinni:
Celtic 14 9 3 2 28—12 21
Morton 14 9 3 2 32—17 21
Aberdeen 14 6 3 5 25—18, ,15
Partick 14 5 4 5 17—19 14
Kilmarnock 14 5 4 5 15—22 14
Dundee U. 14 5 3 6 20—16 13
Rangers 14 5 3 6 20—18 13
St. Mirren 14 4 5 5 20—25 13
Dundee 14 5 1 8 21—35 11
Hibernian 14 1 3 10 12—28 5
Terry McDermott skoraði bæOi morn
Livcrpool gegn Tottenham og „Rauði
herinn” er nú i efsta sætinu í 1. deild-
inni.
Leeds vann loks eftir magrar vikur
að undanförnu og það þurfti kornung-
an nýliða til. Aðeins 17.000 áhorfendur
voru á Elland Road og hafa ekki verið
jafnfáir á deildarleik þar í háu herrans
tíð. Liðinu hefur gengið afleitlega
framan af i vetur en þrátt fyrir slæmt
gengi hefur stjórn félagsins lýst yfir
fullum stuðningi við framkvæmda-
stjórann, Jimmy Adamson. Ekkert
mark var skorað í fyrri hálfleiknum á
Elland Road en í þeim siðari tókst ný-
liðanum Terry Connan að skora eina
mark leiksins. Terry þessi er 17 ára
gamall svertingi og skrifaði hann undir
samning hjá Leeds í fyrri viku. Þrátt
fyrir þennan sigur er Leeds enn á meðal
neðstu liða í deildinni.
Úlfarnir máttu þola sitt fyrsta tap á
heimavelli á þessu keppnistímabili er
Coventry kom í heimsókn á Molyneux
á laugardag. Tapið var fyrir þær sakir
óvænt að Coventry var fyrir leikinn
með einhvern allra lélegasta árangur á
útivelli í deildinni. Strax á 8. mínútu
reið fyrsta áfallið yfir Úlfana. Mið-
vörðurinn, John McAlle, ætlaði að
skalla aftur til markvarðar síns, Paul
Bradshaw. Sending hans var allt of laus
og hinn eldfljóti Ian Wallace skauzt á
milli og renndi knettinum í netið. Mið-
verðir Coventry, þeir Jim Holton og
Gary Gillespie, höfðu góðar gætur á
miðherjum Úlfanna, Andy Gray og
John Richards, og þeir sköpuðu sér
sárafá marktækifæri. í síðari hálfleikn-
um skoraði Mick Ferguson tvívegis
fyrir Coventry og öruggur sigur var í
höfn. Úlfarnir hafa heldur hægt á
hlaupunum að undanförnu en hin góða
byrjun liðsins gerir það að verkum að
liðið er enn um miðja deild.
Bakvörðurinn Manny Andruzewsky
skoraði eina mark fyrri hálfleiksins á
Carrow Road í Norwich og kom West
Bromwich Albion yfir 1—0. Þannig
stóð þar til aðeins 12 minútur voru til
leiksloka en þá jafnaði Justin Fasha-
nou metin fyrir Anglíuliðið. Mick
McGuire bætti svo um betur litlu síðar
og Norwich er enn ósigrað á heimavelli.
David Armstrong skoraði sigurmark
Middlesbrough i síðari hálfleiknum
gegn Bristol City og Boro er einnig
ósigrað á heimavelli og í efri hluta
deildarinnar.
Everton hafði í fullu tré við Arsenal í
fyrri hálfleiknum á Highbury en í þeim
síðari komu yfirburðir Arsenal í ljós.
Frank Stapleton reyndist vörn Everton
erfiður og skoraði bæði mörkin —
annað eftir góðan undirbúning Liam
Brady sem varð að víkja af leikvelli
vegna meiðsla á 82. mín. Scott náði
forystunni fyrir Stoke í fyrri hálfleik en
Dennis Mortimer jafnaði fyrir hálfleik.
Allan Evans skoraði síðan sigurmark
Aston Villa úr vítaspyrnu og til að bæta
gráu ofan á svart fyrir Stoke var fyrir-
liða liðsins, Dennis Smith, vísað af leik-
velli.
Raunasaga Bolton heldur enn áfram
og liðið mátti enn einn laugardaginn
bíða ósigur. Það var Steve Daley er
skoraði strax á 3. minútu — hans fyrsta
mark fyrir Manchester City frá því
hann var keyptur frá Úlfunum fyrir
tæplega 1,5 milljónir punda. Bolton
hefur nú leikið 13 leiki í röð í 1. deild-
inni án sigurs.
Ipswich nældi sér í tvö dýrmæt stig á
Baseball Ground í Derby. Það var mið-
herjinn Paul Mariner sem skoraði eina
mark liðsins á 40. mínútu. Alla baráttu
vantaði í lið Derby í fyrri hálfleiknum
en hún kom í þeim síðari. Þá voru
framherjar liðsins hins vegar ákaflega
hugmyndasnauðir og fundu enga leið í
gegnum vörn Anglíuliðsins.
í annarri deildinni heldur 1 uton enn
forystunni eftir markalaust jafntefli á
Turf Moor í Burnley. Þrátt fyrir að
vera langneðst í 2. deildinni hefur
Burnley náð jafnteflum gegn Leicester
og Luton í síðustu tveimur leikjum sín-
um. Slæma hliðin á málinu er hins
vegar sú að Burnley lék á laugardag
sinn 28. leik í röð án sigurs og útlitið er
orðið dökkt í þeim herbúðum. New-
castle missti stig í Bristol — gegn
Rovers. Alan Shoulder skoraði fyrir
Newcastle að vanda — ekki úr víta-
spyrnu þó — en Steve White jafnaði
metin fyrir Bristol Rovers. Dick Tyde-
man kom Charlton yfir gegn Chelsea á
Stamford Bridge en í síðari hálfleikn-
um skoraði Chelsea þrívegis. Fyrst
Fillery og þá Britton tvívegis úr víta-
spymum. Greenaway skoraði sigur-
mark Fulham gegn Oldham. David
McCreery og Glenn Roeder skoruðu
mörk OPR gegn Shrewsbury og Ward
skoraði sitt fyrsta mark fyrir Watford í
1—0 sigrinum yfir Birmingham.
„Pop” Robson skoraði tvö marka
Sunderland og Stan Cummins hið
þriðja. David Cross og Trevor Brook-
ing skoruðu mörk West Ham og
„Hammers” læðast rólega upp töfluna
og er nú í 8. sæti.
Millwall hefur forystu í 3. deildinni
eftir góðan sigur á Blackpool. Þar
vakti annars 7—1 sigur Chesterfield
yfir Reading mesta athygli, ekki sízt
vegna þess að Reading komst i I —0!
l.deild
Liverpool 15 8 5 2 32- -12 21
Manch. Utd. 16 8 5 3 20- -11 21
Crystal Pal. 16 6 8 2 23- -15 20
Nottm. For. 16 8 3 5 26- -18 19
Norwich 16 7 4 5 28- -21 18
Arsenal 16 6 6 4 18- -11 18
Middlesbro 16 7 4 5 15- -10 18
Tottenham 16 7 4 5 21- -25 18
Aston Villa 15 5 7 3 16- -14 17
Wolves 15 7 3 5 19- -19 17
Coventry 16 8 1 7 27- -29 17
Manch. City 16 7 3 6 16- -21 17
Southamplon 16 6 3 7 27- -24 15
WBA 16 5 5 6 23- -20 15
Everton 16 4 6 6 21- -23 14
Bristol C. 16 4 6 6 14- -18 14
Leeds Utd. 16 4 6 6 17- -24 14
Stoke City 16 4 5 7 20- -25 13
Derby Co. 16 5 2 9 15- -22 12
Ipswich T. 16 5 2 9 13- -21 12
Brighton 15 3 3 9 16- -29 9
Bolton W. 16 1 7 8 12- -27 9
2. deild
Luton 16 8 6 2 28- -14 22
QPR 16 9 3 4 30- -15 21
Chelsea 16 0 I 5 26- -18 21
Newcastle 16 8 5 3 20- -13 21
Leicester 16 7 6 3 29- -21 20
Birmingham 16 8 4 4 20- -15 20
Notts Coutny 16 7 4 5 24- -18 18
West Ham 16 8 2 6 17- -16 18
Swansea 16 7 4 5 19- -19 18
Sunderland 16 7 3 6 22- -18 17
Preston 16 4 9 3 20- -17 17
Wrexham 16 8 1 7 19- -19 17
Cardiff 16 6 4 6 17- -20 16
Oldham 16 4 6 6 17- -18 14
Orient 16 4 6 6 18- -25 14
Cambridge 16 3 6 7 16- -19 12
Bristol Rov. 16 4 4 8 22- -28 12
Watford 16 4 4 8 13- -20 12
Fulham 16 5 2 9 21- -31 12
Charlton 16 3 6 7 18- -29 12
Shrewsbury 16 4 3 9 18- -24 11
Burnley 16 0 7 9 15- -32 7
- SSv.