Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 19.11.1979, Qupperneq 28

Dagblaðið - 19.11.1979, Qupperneq 28
#*«»* ss Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Þeir sovézku langbeztir! —í „heimsbikarkeppninni” í handknattleik í Svíþjóð Sovétríkin höfðu algjöra yfirburði i „hcimsbikarkeppni” karla I hand- knattleik, sem háð var i Svíþjóð og lauk í gær. Þar léku átta af beztu hand- knattleiksþjóðum heims — aðeins Rúmenar ekki með af þeim sterkustu. Til úrslita léku Sovétríkin og Pólland. Þeir sovézku höfðu yfirburði í úrslita- leiknum. Sigruðu með 25—17 eftir að hafa náð fjögurra marka forustu í fyrri hálfleik, 11—7. í keppninni um þriðja sætið á laugardag sigruðu Austur-Þjóðverjar Ungverja með 24—19 eftir að staðan var 11—9 í hálfleik fyrir Austur-Þjóð- verja. Á laugardag var einnig keppt um fimmta sætið i keppninni. Þá sigruðu Danir heimsmeistara Vestur-Þjóðverja með 18—15. Höfðu eitt mark yfir í hálfleik, 7—6. í keppninni um sjöunda sætið i gær sigraði Júgóslavía Svíþjóð 29—21. Röðin varð því þannig I. Sovétríkin 2. Pólland 3. A-Þýzkaland 4. Ungverjaland 5. Danmörk 6. V- Þýzkaland 7. Júgóslavia 8. Svíþjóð Úrslit í riðlunum í keppninni urðu þessi. A-riðill Pólland 3 3 0 0 53—46 6 A-Þýzkaland 3 2 0 1 54—52 4 V-Þýzkaland 3 1 0 2 40—45 2 Svíþjóð 3 0 0 3 51—56 0 Urslit í einstökum leikjum. A-Þýzka- land-Svíþjóð 22—19, Pólland V- Þýzkaland 15—11, Pólland-Svíþjóð 19—18, A-Þýzkaland-V-Þýzkaland 16—14, Pólland-A-Þýzkaland 19—16 og V-Þýzkaland 15—14. Sovétríkin Ungverjaland Danmörk Júgóslavía B-riðill 3 3 0 0 69—50 6, 3 2 0 1 61—60 4 3 10 2 46—50 2 3 0 0 3 50—66 0 Úrslit í einstökum leikjum. Sovétrík- in-Júgóslavía 27—17, Ungverjaland- Danmörk 20—15, Sovétríkin-Danmörk 18—14, Ungverjaland-Júgóslavia 22— 21. Sovétríkin-Ungverjaland 24—19 og Danmörk-Júgóslavía 17—12. Michael var markhæstur dönsku leikmannanna í síðasttalda leiknum með 4 mörk. Hann skoraði hins vegar aðeins eitt mark i leiknum við Sovétrík- in. Þá var Per Skaarup markhæstur Dana með 5 mörk. Fyrirliði danska liðsins, Anders-Dahl Nielsen skoraði lítið í leikjunum. Ekkert mark gegn Sovétríkjunum og eitt gegn Júgóslöv- um. Nýr leikmaður, Hans Henrik Hattesen, 21 árs, frá Virum lék sína fyrstu landsleiki og stóð sig mjög vel. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979. Tveir sigurleikir á Norður- landamótinu í badminton —Jóhann og Broddi unnu í tvfliðaleik og Jóhann og Kristín Krist jánsdóttir í tvenndarkeppninni íslenzka badminton-fólkið sigraði í tveimur leikjum sínum á Norðurlanda- mótinu í Tromsö i Noregi á laugardag í 1. umferðinni — en þá var líka draumurinn búinn. Eftir aðra umferð- ina var þátttöku íslenzku keppendanna lokið. Þeir höfðu þó staðið sig betur en oftast áður á NM erlendis. Fjórir íslendingar kepptu í Noregi — Jóhann Kjartansson, Broddi Kristjánsson, Kristín Magnúsdóttir og Kristin Berg- lind Kristjánsdóttir. I einliðaleik lék Jóhann við Thomas Westerholm og tapaði í þremur lotum. Vann þó fleiri stig en mótherjinn. Westerholm vann 15—11, 5—15 og 15—13. Broddi lék við Svíann kunna, Sture Johnson og tapaði 15—6 og 15— 2. Kristín Magnúsdóttir tapaði fyrir Elsu Thoresen, Noregi, 11—0 og 11—4 en Kristín Kristjánsdóttir tapaði fyrir Wiolu Reinholm, Finnlandi, 12—11 og 11—2. í tvíliðaleik sigruðu Jóhann og Broddi Harald Nettli og Björn Stenslie, Noregi, í 1. umferð með 15—6 og 15— 9. í 2. umferð áttu þeir hins vegar ekki möguleika gegn Dönunum snjöllu Morton Frost og Wadberg. Töpuðu 15—1 og 15—8. í tvíliðaleik kvenna hlutu Kristínarnar ekki punkt gegn Lenu Köppen, beztu badmintonkonu heims, og stöllu hennar Inge Broström. 11— Oog 11— 0. í tvenndarkeppninni töpuðu Broddi og Kristín Magnúsdóttir fyrir Hakon Ringdal og Else Thoresen, Noregi, með 15—4 og 15—4. Jóhann og Kristín Kristjánsdóttir unnu hins vegar Heikki Holvikari og Wiolu Reinholn, Finn- landi, með 15—7 og 15—9. í 2. umferð mættu þau hins vegar sterkum dönskum mótherjum og töpuðu 15—4 og 15—7. Keppendur tslands á NM i Tromsö ásamt Rafni Viggóssyni, fararstjóra, og formanni Badmintonsambands tsiands. DB-mynd Hörður. Fögnuður dönsku leikmannanna eftir að Elkjær skoraði þriðja markið. Danskir í skýjunum eftir sigur á Spáni Danir eru í skýjunum þessa dagana — sigruðu Spán í landsleik í knattspyrnu i Cadiz síðastliðinn miðvikudag með 3—1. Það er fyrsti sigur Dana á Spánverjum í knattspyrnu og skiljanlega var fögnuðurinn mikill. Að vísu vantaði átta fastamenn spánska liðsins — en Spánverjar eiga svo marga knatlspyrnumenn að það hefði ekki átt að koma að sök. Danir voru líka án sinna þekktustu leik- manna, Allan Simonsen, Barcelona, og Ajax-leikmannanna Henning Jensen og Sören Lerby. „Þetta furðulega danska landslið,” skrifar Als í Ekstrablaðið „það hefði alveg eins getað sigrað 6—2 eins og 3— 1 og það á útivelli.” Þetta var annað tap Spánverja á heimavelli í 59. leikjum undir stjórn þjálfarans fræga, Kubala. Tveir leikmenn báru af í danska liðinu, Preben Elkjær, 22ja ára, sem skoraði tvö af mörkum danska liðsins, og markvörðurinn, Birger Jensen, sem leikur með FC Brugge í Belgíu. „Þetta er bezti landsleikurinn, sem ég hef leikið,” sagði Jensen eftir leikinn. Hann er 28 ára og þetta varð aðeins 19. landsleikur hans. Danir skoruðu tvö fyrstu mörkin í leiknum. Spánn minnkaði muninn en Elkjær skoraði þriðja mark Dana og við það hrundi leikur Spánverja. Jen Jörn Berthelsen skoraði annað mark Dana. Áhugaleysi banabitinn —þegar Fram vann Víking örugglega 18-11 í 1. deild kvenna Fram var ekki i vandræðum með að tryggja sér sigur yfir Víkingum er liðin mættust i 1. deild kvenna íslands- mótsins í handknattleik í Höllinni í gær. Lokatölur urðu 18—11 Fram í hag eftir að lið Fram hafði leitt 9—6 í hálfleik. Víkings stúlkurnar virtúst vera áhugalitlar i leiknum og slíkt geta þær ekki leyft sér gegn jafn sterkum and- stæðingi og Fram. Fram hefur því tekið forystu i 1. deild kvenna, en liðið hefur unnið hana sl. 4 ár og stefnir í enn einn sigurinn. Það var Guðríður Guðjónsdóttir, sem opnaði markareikning Fram að þessu sinnj úr vitakasti. Guðríður hafði Sociadad íefstasæti Úrslit í 1. deildinni á Spáni í knatt- spyrnunni i gær urðu þessi: Bibao-Espanol 2—0 Valencia-Las Palmas 4—0 Vallecano-Atl. Madrid 4—1 Barcelona-Sevilla 0—0 Almeria-Malaga 3—2 Zaragoza-Burgos 5—0 Betis-Sporting Gijon 1—0 Real Madrid-Hercules 5—0 Salamanca-Sociadad 0—1 Staða efstu liöa: Sociadad 10 6 4 0 15—6 16 RealMad. 10 7 2 1 22—13 16 Gijon 10 7 1 2 23—14 15 Salamanca 10 5 3 2 15—9 13 Valencia 10 4 3 3 16—13 11 Sporting Gijon hefur tapað forustunni eftir tvo tapleiki í röð. Ekkert var leikið í Hollandi um helgina vegna Evrópuleiks A-Þýzkalands og Hollands á miðvikudag. fremur hægt um sig í gærkvöld og skoraði helzt ekki nema úr vítaköstum. Oddný Sigsteinsdóttir var hins vegar i miklum ham og skoraði falleg mörk utan af velli. Eftir 10 mín. var staðan 3—2 en þá skildu leiðir og Fram sigldi örugglega fram úr. Komst í 7—3 og leiddi 9—6 í hálfleik. í síðari hálfleiknum breikkaði bilið jafnt og þétt til leiksloka og sem fyrr sagðisigraði Fram 18—11. Oddný var bezt í annars jöfnu liði Fram en þær Jóhanna og Guðríður Guðjónsdóttir, stóðu henni ekki langt að baki. Ungu stúlkurnar í Fram — Margrét Blöndal, Guðríður Halldórs- dóttir og Arna Steinsen stóðu sig vel — einkum þær tvær fyrrnefndu. Þásýndi Helga Magnúsdóttir góð tilþrif. Hjá Víkingi voru þær langbeztar Eiríka, íris og Sigurrós. Aðrar stóðu þeim langt að baki og alla baráttu vantaði i liðið að þessu sinni. Mikil framför hefur þó orðið í þeirra her- búðum en betur má ef duga skal. Mörk Fram: Guðríður G. 7/5, Oddný 5, Jenný 2, Margrét 2, Jóhanna og Helga 1 hvor. Mörk Víkings: íris 4/2, Eiríka 2, Metta 2, Sigurrós, Guðrún og Ingunn 1 hver. Staðan í helgina: 1. deild kvenna eftir Fram 2 2 0 0 40—31 4 Haukar 2 2 0 0 34—25 4 Valur 2 2 0 0 37—30 4 KR 110 0 22—10 2 Þór 10 0 1 12—16 0 Víkingur 2 0 0 2 24—34 0 FH 2 0 0 2 27—43 0 Grindavík 2 0 0 2 23 —40 0 -SSv. Fram-Víkingur 18-11 (9-6) tslandsmótió I handknattleik, 2. deild kvenna. Fram-Vfkingur 18—11 (9— 6). Laugardalshöll 18. nóvember. Beztu leikmenn: Oddný Sigsteinsdóttir, Fram, 7, Jóhanna Haiidórsdóttir Fram, 6, Guðriður Guðjónsdóttir, Fram, 6, íris Þráinsdóttir, Vikingi 5, Eirfka Ásgrimsdóttir, Vildngi, 5. Fram. Kolbrún Jóhannesdóttir, Sigrún Blómsterberg, Guðriður Halldórs- dóttir, Helga Magnúsdóttir, Jenný Grétudóttir, Arna Steinsen, Guðrfður Guðjónsdóttir, Oddný Sigsteinsdóttir, Margrét Blöndal, Guðrún Sverris- dóttir, Jóhanna Halldórsdóttir. Vikingur. Hlfn Baldursdóttir, Jóhanna Guðjónsdóttir, Sigurrós Björns- dóttir, Anna Björnsdóttir, Ingunn Bernódusdóttir, tris Þráinsdóttir, Metta Heigadóttir, Eirfka Ásgrimsdóttir, Vilborg Baldursdóttir, Sigrún Oigeirs- dóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Sveinbjörg Halldórsdóttir. Dómarar Bjarni og Hörður Hákonarsynir. Fram fékk 6 viti — eitt mis- notað. Hlin varði frá Guðriði. Vfkingur fékk 4 viti — tvö misnotuð. Kolbrún varði frá íris og Ingunni. Einum Vfkingi vísað út af, Sveinbjörgu, og einum Framara, Jóhönnu. Áhorfendur 100.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.