Dagblaðið - 19.11.1979, Side 40
40
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
Rafgeymaverksmiðjan
PÓLAR H.F.
Einholti 6, sími 18401.
Hinsívinsælu
hlaðrúm
okkar komin aftur
Stáliðjan hf.,
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Simi 43211
INNKAUPASTJÓRAR
Mikið úrval af:
Gjafavörum — leikfóngum —
jólatrésskrauti — spilum
og snyrtivörum.
Heildverzlun
Péturs Péturssonar
Suðurgötu 14 Reykjavík
Símar 21020 - 25101
Heimilistölvan
Tölvuskóli
Borgartúni 29,
sími 23280.
Tölvunámskeið
Hraðnámskeið á smátölvur verða haldin í lok
nóvember og byrjun desember nk.
Hvað er kennt?
1. Grundvallaratriði forritunar (litskyggnur með
tali).
2. Forritunarmálið BASIC (notað á allar smá-
tölvur microcomputers).
3. Notkunarsvið og notkunarmöguleikar smá-
tölva.
Við bjóðum:
Nýtízkuleg efnismikil og samþjöppuð námskeið.
Þrautreynt kennslukerfi.
Kennt er með aðstoð tölva.
Góða aðstöðu. Einungis tveir nemendur eru um
hverja tölvu.
Nú er rétta tækifærið til að læra á tölvu. Eftir
örfá ár verða smátölvur komnar inn í hvert fyrir-
tæki og jafnvel inn á hvert heimili.
Sími Tölvuskólans er 23280.
Innritun stendur yfir.
Hef ur ákveðna hugmynd um það hvemig komið skuli í veg
fyrir skemmdir á f lötum þökum
Tek ekki undir
að f lötu þökin
eigi ekki við
okkar veðráttu
— segir Hafsteinn Ólafsson byggingameistari
„Ég hef ákveðna hugmynd um það
hvernig hægt er að koma í veg fyrir
fúaskemmdir og leka á flötum þök-
um. Þeir verkfræðingar sem ég hef
borið hugmyndina undir telja
augljóst að þar sé bent á einfalda og
rétta leið,” sagði Hafsteinn Ólafsson
byggingameistari i samtali við Dag-
blaðið.
Hafsteinn vitnaði til fréttar í DB
12. nóvember um íbúa við Hraunbæ í
Árbæjarhverfi. Þeir eru þessa dagana
að reisa hallandi þök á hús sín. Þeir
eru orðnir löngu uppgefnir á leka og
óþægindum af flötum þökum á
húsunum sínum.
„Ég vil alls ekki taka undir það
að flöt þök eigi ekki við okkar veðr-
áttu og þau skuli því útilokuð. Með
því yrðu hendur arkitekta bundnar
og þeir skikkaðir til að teikna hús
með svo og svo miklu ónýtanlegu
húsnæði. Menn ættu að hafa í huga
að eftir því sem arkitektar teikna
meira þakrými, sem ekki nýtist til'
annars en að hella af sér vatni, yrði
byggjandinn dæmdur til að greiða í
gatnagerðargjöld fyrir hvern dauðan
rúmmetra i þakinu eins og það væri
hluti af stofunni.”
Getur þú gefið lesendum einhverja
hugmynd um það hvernig þú hyggst
leysa vanda eigenda húsa með flöt
þök?
„Lausnin er afar einföld. En til að
skilja hana til fulls verða menn að
þekkja vandamálið sjálft.
Við Hraunbæ i Árbæjarhverfi eru 50 hús með flötum þökum. Ibúarnir eru byrjaðir að byggja hallandi þök fyrir húsin sin
enda löngu uppgefnir á viðhaldi þakanna og skemmdum af völdum leka. Hér er það Haraldur Haraldsson húsasmfðameistari
sem stendur á þakgríndinni á fbúð sinni að Hraunbæ 17. Kostnaður við þaksmiðina er 2.5—3 milljónir pr. ibúð.
DB-mynd: Ragnar Th.
' ...................................
Vandamál í
merkingarfræði
Allir þykjumst við vita hvað orðið
viðreisn þýðir enda er um að ræða
eítt af hinum „gagnsæju” orðum
tungunnar, dregið af sögninni ,,að
reisa eitthvaðvið”.
Engin vandkvæði risu heldur upp
af merkingu þessa orðs, fyrr en ríkis-1
stjórn ein, fræg í sögunni, tók upp á
því að skreyta sig með þessu orði og
nú er svo komið að öll blöð eru full af
samsetningum eins og „viðreisnar-
stjórn”, „viðreisnartímabil” og þar
fram eftir götum.
Þessi stjórn varð á sínum tíma
fræg af illvígri glímu sinni við verka-
lýðshreyfinguna og lék hana grátt á
margan hátt. Ekki var fyrr staðið upp
frá samningaborði í kaupdeilum en
téð ríkisstjórn lét Seðlabankann fella
gengið og launþegar stóðu uppi
Þessi
nefnd
fátæktarárin
ár
mínu
eru
heimili
snauðari en fyrr. Er sú saga alkunn
og fram úr hófi leiðinleg, svo að raun
er að því að rifja hana upp hér.
Á viðreisnarárunum var ég
kennari i gagnfræðaskóla en vann
daglaunavinnu i sumarfríinu. En svo
frek var skattheimta af lágtekjum á
þessum árum að mjög illa gekk að ná
endum saman á mörgum alþýðu-
heimilum enda eru þessi ár aldrei
nefnd annað en fátæktarárin á mínu
heimili.
En hvað var það þá sem þessari
stjórn tókst að reisa við? Hún gerði
samning við Breta um landhelgina
1961 og væri vel ef enginn íslend-
ingur nefndi þann samning á nafn
framar. Frægar urðu reisur íslenskra
ráðherra á fund stjórnarinnar í
Washington en þær enduðu stundum
á því að þessir virðulegu íslensku