Dagblaðið - 19.11.1979, Síða 42
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
Branda var
ekki uppiöSö
_enl»í«”fleiribrii,K,,,rfS,0nUm
Það er leikur í köttunum,
kannski ástarleikur. Ef við
gefum okkur það að sá
bröndótti sé læða og sá svarti
högni, þá verður málið allt
einfaldara viðureignar.
Högni gerir hosur sínar
grænar, en Branda er ekki á
því að þýðast hann. Á þessum
jafnréttistímum verður hann
að taka því þótt Branda sé
ekki upplögð. En hann gefst
ekki upp átakaiaust. Hann
ætlar að sýna ástkonu sinni,
hver sé hinn sterki í sam-
skiptum kynjanna.
En Branda sér við honum.
Á vegi þeirra hjónaleysanna
verður snúrustaur með
þessum dýrindis hand-
klæðum. Branda skýzt upp
eins og elding og Högni á
eftir. En þá kemur í ljós hver
er hinn sterki, eftir allt
saman. Branda kemst á
toppinn, en Högni situr eftir í
miðjum staur með sárt ennið.
Hann þorir ekki á eftir
dömunni.
Það er nú kannski vissara.
Það eru fleiri fiskar í sjónum
og betra að sýna sig ekki
rifínn og tættan í næsta sam-
kvæmi. Þar kunna að vera
fleiri bröndur, sem reynast
betur upplagðar og leita ekki
skjóls í snúrustaurum.
-JH.
Rayndu ef þú gatur. Það þýðir Mð að láta mannalaga á Jörtki nlðri, af
klarkurinn ar akki meiri þagar é raynir.
Þar akHur á milll. Branda haldur á brattann, an eftir sHur vonbMHHnn mað
sártannið.
Ljósmyndir: Sveinn Þormóðsson
Jœja, fari hún þá. Það aru ýmsar fleiri i hverfinu sem Iftandi er á og eru
ekki svona stórar upp á sig.
• \ y
Þú sleppur nú ekki svona auðveldlega. Veiztu hver ág er?
- *'