Dagblaðið - 19.11.1979, Side 45

Dagblaðið - 19.11.1979, Side 45
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979. 45 Ungfrú Heimur 1977 á bam með Bob Marley Þessi fallega kona á myndinni heitir Cindy Breakspeare og er okkur íslendingum ekki alveg ókunn. Cindy er frá Jamaica og er fyrr- verandi ungfrú heimur. Vegna þess kom hún einmitt hingað til lands — til að krýna ung- frúísland 1977. Litli fallegi drengurinn sem situr á hnjám fegurðardísarinnar er fímmtán mánaða sonur hennar, Damian. Nú nýlega tilkynnti Cindy að hann væri sonur hins fræga popp- söngvara Bobs Marley. Það er þó ekki eina barn raggae-söngvarans því hann á hvorki meira né minna en níu böm með sjö konum. Cindy býr alein á Jamaica ásamt syni sín- um, Damian. Hún er ekkert að leyna ást sinni til Marleys en segist þó aðeins njóta þess nú að vera móðir. — ELA Una lang- sokkur bam aldar- innar Hin eina sanna Lína langsokkur, sem allir þekkja, er orðin 34 ára. Hún er alltaf jafnvinsæl og þeir eru margir sem bera mikla virðingu fyrir henni. Nú fyrir skömmu öðlaðist Lína enn meiri virðingu þar sem barna- og unglingabókasérfræðingur i Sviþjóð, Ulla Lundqvist, hefur skrifað dokt- orsritgerð um hana. Ulla Lundqvist kallar ritgerð sína Barn aldarinnar — fyrirbærið Lína langsokkur og forsenda hennar. Ulla hefur sagt frá því í sænskum blöðum, s.s. Sænska Dagblaðinu og Dagens Nyheter, að hún hafi verið sjö ára þegar hún kynntist Línu og frjálsræði hennar. Svona leit Lina langsokkur út ú teikn- ingu „móður sinnar”, Astrid Lind- gren, þegar hún birtist fyrsl árið 1945. Ulla segir að Línu-bækurnar höfði til allra manna og kvenna. Þessi stúlka sem getur allt mögulegt, sem er klókari, skemmtilegri og vinalegri en allir fullorðnir fellur öllum i geð. í fyrstu var Lina langsokkur aðeins kvöldsaga fyrir dóttur Astrid Lind- gren en nú eru Línu langsokks-bæk- urnar seldar i yfir milljón eintökum i 55 löndum heims og hafa verið jafn- vinsælar allt frá þvi fyrsta bókin kont út árið 1945. í Austurveri, Háaleitisbraut 68, sími 84445 og 86035 AUSTURVERI Háaleitisbraut 68 Heimilis-eldavélin frá Rafha er landsþekkt islenzk framleiðsla. Frá stofnun fyrirtækisins 1936hafaveriðfram- leiddar yfir 60.000 elda- vélar. Um tvær gerðir af sambyggðri vél er að ræða. Gerð HE fyrir sökkul, og gerð E fristandandi í 90 cm borðhæð. Hægt er að fá vélina með klukkubaki. Ennfremur eldavélasett. 40 ÁRA REYNSLA 2ja ára ábyrgð á eldavélum. 6 litir Ennfremur seljum við: RAFMAGNSHEIMILISTÆKI frá heimsþekktum fyrirtækjum, svo sem frá Zanussi, kæli- og frysti skápa, frystikistur, uppþvottavélar, þvottavélar, þurrkara, gufu- gleypa, ennfremur ryksugur, rakatæki, brauðristar, straujárn, hrað- suðukatla, háfjallasólir og m.m.fl. ##

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.