Dagblaðið - 19.11.1979, Page 47

Dagblaðið - 19.11.1979, Page 47
47 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979. PÓSTSENDUM LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJÖS & ORKA Sudurlandsbraut 12 simi 84488 mm ii i: ÚTVARPkl. 19.40: EINVIGIÐ HELDUR AFRAM —ámilli stjómmálaflokkanna Einvígi stjórnmálaflokkanna í út- varpi heldur áfram í kvöld kl. 19.40 undir stjórn einvígisvottar, Hjartar Pálssonar. í kvöld eru það fulltrúar G-lista Alþýðubandalagsins og B-lista Fram- sóknarflokksins sem glima. Einn frá hvorum flokk. Það er annar einvígisþáttur af sex. Hverjir koma fram fyrir flokkanna hönd verður leyndarmál fram að síð- ustu stund að ósk útvarpsráðs. Einvígið stendur yfir til kl. 20.00 eða í fjörutíu mínútur. - ELA FRAMHALDSLEIKRIT BARNA 0G UNGLINGA — útvarpkl. 17.20: Æskuár Bjössa töku- drengs á Tréstöðum Jólabamabókalestur haf inn: Samdráttur í útgáfu bamabóka fyrir jól Jan Franccs og Judy Cornwell f hlutverkum sfrium f brezka leikritinu Brodd- borgarar. BRODDBORGARAR —sjónvarp kl. 21.05: UNNUSTAN FAGRA OG SVEITAUFK) í kvöld sýnir sjónvarpið brezkt gamanleikrit eftir Dion Boucicault. Leikritið segir frá spjátrungi nokkr- um, Sir Harcourt Courtly. Honum er ekkert um sveitalíf gefið, telur það fyrir neðan sina virðingu. Sir Harcourt á unnustu, Grace Harkway, sem er ung, fögur og for- rík. Vandinn er að Grace býr í sveit og hana verður hann þó að heim- sækja. Af tilviljun kemur sonur Har- courts líka i sveitina og það æxlast þannig að hann verður einnig ást- fanginn af hinni ungu fögru konu, unnustu föður síns. Sjónvarpshandrit að leik þessum gerði Gerald Savory og Ieikstjóri er Ronald Wilson. Með aðalhlutverk fara Charles Gray, Dinsdale Landen, Anthony Andrews og Judy Cornwell. Þýðandi er Dóra Hafsteinsdóttir og er leikritið einnar og hálfrar stundar langt. - ELA í morgun kl. 11.00 hófst lestur úr nýjum barnabókum sem koma munu út fyrir jólin. Aðeins var um þýddar bækur að ræða, til dæmis „Gvendur bóndi á Svínafelli” eftir Tolkien, sem er brezkur höfundur, i þýðingu Ingi- bjargar Jónsdóttur. Lestur jólabóka fyrir börn verður á dagskrá útvarpsins á mánudags- morgnum á sama tíma til jóla — eða cins lengi og efnið endist, eins og Gunnvör Braga sagði í samtali við DB. Gunnvör er umsjónarmaður bókaþáttanna og Sigrún Sigurðar- dóttir kynnir. Ungt fólk les úr bókun- um. ,,Ég hef orðið vör við að einhver samdráttur er í útkomu barnabóka i ár,” sagði Gunnvör Braga. „Hjá sumum bókaforlögum þar sem áður hafa verið gefnar út 4—5 barnabæk- ur fyrir jól er nú engin. Þó eru t.d. Mál og menning og Iðunn með ein- hverja aukningu. í næstu viku ætlum við að kynna nýjar íslenzkar barnabækur en þær eru svolitið seint á ferðinni. Við hefðurn viljað byrja á þeim. Það er alltaf sama sagan ár eftir ár, að i byrjun jólabókalestrarins höfum við aðeins fengið fáar bækur en svo fyll- ist allt í lokin.” - ELA Gunnvör Braga, umsjónarmaður Iestrar úr nýjum barnabókum. DB-mynd: Bj.Bj. í dag hefst nýtt framhaldsleikrit fyrir börn og unglinga í útvarpi og nefnist það Bjössi á Tréstöðum. Leikritið er eftir Guðmund L. Frið- Ftnnsson, byggt á samnefndri sögu hans er út kom fyrst árið 1950. Efnið um Bjössa á Tréstöðum er sótt til atburða úr ævi föður höfund- ar. Það gerist á bernskuárum hans fyrir rúmum hundrað árum. Leikritið segir frá tökudrengnum Bjössa. Auk þess að vera góð þjóðlífslýsing er það dýrmæt heimild um lífshætti sem nú eru horfnir. Guðmundur L. Friðfinnsson, höf- undur sögunnar, er fæddur að Egilsá í Skagafirði árið 1905. Hann stund- aði nám við héraðsskólann á Laugar- vatni 1923—30 og í Bændaskólanum að Hólum 1931. Guðmundur hefur verið bóndi að Egilsá frá 1932. Hefur hann sent frá sér skáldsögur, smásög- ur og æviminningar. Þá birti hann frumsamin ljóð í Skagfirzkum Ijóðum 1957. Leikritið er í sex þáttum og er hver þeirra 30—35 mínútur á lengd. Klemenz Jónsson er leikstjóri og með hlutverkin fara í fyrsta þætti Árni Tryggvason, Bessi Bjarnason, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Hákon Waage, Randver Þorláksson, Guðmundur Klemenzson og Ragn- heiður Þórhallsdóttir. Kynnir leik- ritsins er Helga Þ. Stephensen. - ELA Árni Tryggvason og Bessi Bjarnason fara meó hlutverk f fyrsta þætti framhafdsleik- Iritsins sem hefst f dag. DB-mynd Bj.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.