Dagblaðið - 24.03.1980, Blaðsíða 19

Dagblaðið - 24.03.1980, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. MARZ 1980. G 19 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir GífuHeg blóðtaka hjá Haukum —þrír leikmenn hætta í karlaliði félagsins og eigi færrí en 5 í kvennaliðinu D „Ég mun halda til Svíþjóðar í haust til náms í tölvufræði og sögu,” sagði Andrcs Kristjánsson, landsliðs- maður í handknattleik úr Haukum í Hafnarfirði. ,,Ef semst getur enn- fremur mjög líklega farið svo að ég leiki með GUIF í 1. deildinni sænsku, en það er allt óráðið ennþá. Það er þó öruggt að ég fer utan í haust," sagði Andrés ennfremur. Brottför hans er mikil blóðtaka fyrir Haukana því hann hefur verið einn allra frískasti leikmaður liðsins í vetur. En Andrés er ekki sá eini, sem mun yfir- gefa Haukana næsta haust. Nú er nær öruggt að þrír leikmenn úr karla- liði félagsins og hvorki fleiri né færri en fimm úr kvennaliðinu muni yfir- gefa félagið um lengri eða skemmri tima fyrir næsta haust. Unnusta Andrésar, Sjöfn Hauks- dóttir, mun fara með honum utan — einnig til náms, en hún hefur í vetur verið einn af burðarásum liðsins. Ingimar Haraldsson fer einnig utan í haust. Unnusta hans, Halldóra Mathiesen, fer til náms í Kaupmannahöfn og munu þau verða í Danmörku a.m.k. einn vetur. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort Ingimar leiki með einhverju I. deild- arfélagi í Kaupmannahöfn, en svo gæti allt eins farið. Halldóra er ein helzta skytta kvennaliðsins og Ingimar mjög sterkur línumaður — með 6 landsleiki aðbaki. Þá mun Þorgeir Haraldsson halda til framhaldsflugnáms i Banda- ríkjunum í haust ef að líkum lætur og með honum fer kona hans, Kolbrún Jónsdóttir — enn einn burðarásinn úr kvennaliðinu. En sögunni er ekki þar með lokið. Heyrzt hefur að Harpa Guðmundsdóttir i Val muni leggja skóna á hilluna í vor. Fari svo er öruggt að Margrét Theodórsdóttir fari til liðs við Valsmenn. Margrét er langmarkahæst í Haukaliðinu og næstefst i baráttunni um marka- kóngstitil I. deildar kvenna. Koma hennar mun verða Val mjög mikill styrkur en að sama skapi áfall fyrir Hauka. Þá mun Hulda Hauksdóttir Klaufaskapur gæti kostað ÍR sæti sitt í 1. deildinni —Valsmenn „stálu” sigrinum í gær á lokamínútuimi ogsigruðu 21-20 Valsmenn luku leikjum sfnum í 1. deildinni i gærkvöld er þeir sigruðu ÍR- inga með 21 marki gegn 20. Verður ekki annað sagt með sanni en nokkur heppnisstirnpill hafi verið á sigrfnum. ÍR-ingar leiddu nefnilega 20—19 og voru með knöttinn er 45 sék. voru til leiksloka. Með marki hefðu þeir tryggt sér sigur gegn Val. Óðagotið var hins vegar svo mikið að þeir misstu knöttinn og Bjarni jafnaði metin. Aðeins 20 sek. eftir og IR-ingar hófu sókn. Aftur misstu þeic/knöttinn, sem sendur var fram á Bjarna, sem skoraði sigur- markið nokkrum sek. fyrir leikslok. Naumur sigur en gott veganesti fyrir Val fyrir úrslitaleikinn í Evrópukeppn- inni gegn Grosswallstadt á laugardag. Staðan í hálfleik í gær var 14—11 Val í vil. Valsmenn höfðu undirtökin í leikn- um framan af og höfðu oftast 2—3 mörk yfir en í síðari hálfleiknum tókst ÍR að jafna og síðan síga fram úr. Þeim tókst þóekki að halda betur á spilunum en að framan er lýst. ÍR-ingar eru þvi enn í bullandi fall- hættu og fá varla stig í síðasta leik sínum gegn Víkingi. Staða ÍR er Valur-IR 21-20 (14-11) íslandsmótiO í handknattleik, 1. deild karia. Valur — ÍR 21—20 (14—11). Laugardalshöll 23. marz. Beztu leikmenn. Ásgnmur Frióríksson, ÍR, 8, Þorfojöm Guðmundsson, Val 8, Bjami Bessa- son, ÍR, 8, Bjami Guðmundsson, Val 7, Guðmundur Þórðarson, ÍR 7. Valur. Brynjar Kvaran, Jón Breiðfjörð, Þoifojöm Jensson, Þorfojöm Guðmundsson, Bjami Guðmundsson, Steindór Gunnarsson, Stefán Gunnarsson, Stefán Halldórsson, Jón H. Karis- son, Gunnar Lúðviksson, Brynjar Harðarson, Bjöm Bjömsson. iR. Ásgrimur Friðriksson, Ingimundur Guðmundsson, Bjami Bessason, Bjami Hákonarson, Sigurður Svavarsson, Guðmundur Þórðarson, Ársœll Hafsteinsson, Pátur Valdimarsson, Bjami Bjamason, Ólafur Tómasson, Brynjótfur Markússon. Dómarar Bjöm Kristjánsson og Óli Ólsen. Valur fékk þrjú viti — nýtti 2. ÍR fákk 3 viti — nýtti einnig tvö. Brynjar Kvaran varði frá Bjama Hákonarsyni. Ásgrímur varði siðan skot Stefáns Halldórssonar. Sigurður Svavarsson var sá eini er var rekinn af leikvelli í 2 min. óneitanlega mjög slæm en Haukar eru þó enn fyrir neðan þá með aðeins 8 stig og tvo leiki eftir. Þó er allt eins vist að Haukarnir fái ekki stig úr þessum tveimur lokaleikjum sínum og verði því að leika við næstefsta lið 2. deildar um sæti sitt. Ásgrimur Friðriksson stóð í marki ÍR allan tímann i gær og varði mjög vel og var bezti maður liðs síns. Þá áttu Bjarni Bessason og Guðmundur Þórðarson góðan leik. Hjá Val varði Brynjar vel framan af en varð síðan að yfirgefa markið vegna meiðsla. Jón Breiðfjörð kom þá galvaskur í hans stað og varði mjög vel. Þorbjörn Guðmundsson var atkvæðamestur i sókninni og átti góðan leik en Bjarni og Steindór sýndu einnig skemmtileg til- þrif og Bjarni kom vel út lokakaflann er hann tryggði Val sigurinn. Valsmenn fá nú góða hvíld fram að Evrópuleikn- um og leggja greinilega allan sinn metnað i hann. Dómarar í gær voru þeir Óli Ólsen og Björn Kristjánsson og dæmdu þeir ekki meira en sæmilega. Mörk Vals: Þorbjörn G. 6/2, Bjarni 5, Þorbjörn J. 2, Steindór 2, Stefán G 2, Jón H. 2, Gunnar 1 og Brynjar 1. Mörk ÍR: Bjarni B. 6, Bjarni Hák. Þorbjörn Guðmundsson, skoraði 6 mörk gegn ÍR. 4/2, Pétur 4, Sigurður Sv. 2, Guðmundur 2, Ársæll 2. -gvil/-SSv. markvörður leggja skóna á hilluna — hefur fengið sig fullsadda af hand- knattleik í bili. f leiðinni má geta þess að í vetur hættu tvær sterkar í Haukum. Guðrún Aðalsteinsdóttir hélt til Eyja og Guðrún Gunnars- dóttir gekk yfir i Fram. Kvennaíið Hauka hefur þvi misst sjö leikmenn á einum vetri. Það er því víst að það verður erfíður vetur sem bíður Haukanna er flautað verður til leiks i haust. -SSv. FH krækti íþrjústig FH og Fram gerðu jafntefli, 1—I, í Kaplakrika á laugardag. Heimir Bergs- son skorafli mark FH en Hörður Antonsson jafnaði fyrir Fram — báðir nýir leikmenn með félögum sinum. Þá vann FH Breiðablik 2—I í gær með mörkum Ásgeirs Elíassonar og nafna hans Árnasonar. Enn einn skellurinn hjáUMFG FH og Grindavik léku saman í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnar- firði á laugardag. FH sigraði með yfir- burflum 30—7. Staðan í hálfleik var 13—3FHivil. Eftir sigurinn á laugardag eru FH stelpurnar komnar mefl átta stig eftir tólf leiki, en Grindavikurstúlkurnar hafa enn ekkert stig hlotið i deildinni í vetur, enda engin furða. Þær eru vægast sagt mjög lélegar. Leikurinn var svo slakur afl ekki tekur þvi að eyða á hann fleiri orðum. Mörk FH skoruðu þær, Katrin Danivalsdóttir 15/2 Sólveig Birgis- dóttir 6, Kristjana Aradóttir, og Ellý Erlingsdóttir 3 hvor, Björg Gilsdóttir 2, Svanhvít Magnúsdóttir 1. Mörk Grindavíkur Sjöfn Ágústs- dóttir og Hildur Gunnarsdóttir 3 hvor, Rut Óskarsdóttir I. -JH. Fram bætti stöðuia með sigrí gegn FH —FH-ingar áhugalausir og Fram sigraði örugglega 28-22 Lengsti hálfleikur sem spilaður hefur verið i íslandsmótinu í 1. deild karla var án efa i íþróttahúsinu í Hafnarfirði á laugardaginn var. Leiddu þar saman hesta sina FH og Fram. Leikurinn byrjaði fimm mínútum of seint og þegar staðan var 5—3 FH í vil var leikurinn stöðvaður. Reyndist klukkan vera biluð. Leikurinn tafðist í einar fimm mínútur í viðbót. Blaða- mennirnir sem staddir voru í íþrótta- húsinu reyndu að fylgjast með tímanum á klukku hússins og kom okkur saman um að þetta væri lengsti hálfleikur sem við hefðum séð. Stóð hann yfir í fjörutiu og fimm mínútur með töfum. Magnús Teitsson skoraði fyrsta mark leiksins, 1 —0 FH í vil. Hannes Leifsson svaraði fyrir Fram, 1 — 1. Kristján Ara- son kom FH í 2—1. Erlendur Daviðs- son jafnaði fyrir Fram úr viti, 2—2. Feyenoord fatast flugið Pétri Péturssyni og félögum hefur heldur fatazt flugið á undanförnum vikum og i gær náði Feyenoord aðeins jöfnu gegn Go Ahead Eagles í Deventer. Annars urðu úrslitin þessi: Haarlem — AZ '61 0—3 Arnhem — Utrecht 1—0 Deventer — Feyenoord 1 — 1 NAC Breda — RODA 3—0 Ajax — Twente 3—2 Excclsior — PEC Zwolle 3— 1 Sparta — NEC Nijmegen 0—0 Den Haag — PSV Eindhoven 2—3 Maastricht — Willem Tilburg 0—1 Staflan í úrvalseildinni i Hollandi er nú þannig: Ajax 27 20 4 3 67—28 44 AZ’67 27 17 6 4 61—26 40 Feyenoord 26 13 9 4 48—26 35 PSV 27 12 7 8 48—31 31 RODA 27 13 5 9 40—35 31 Utrecht 27 11 8 8 40—39 30 Excelsior 27 10 8 9 47—45 28 Tilburg 27 9 10 8 36—47 28 Deventer 27 11 5 11 41—38 27 Twente 26 11 5 10 34—34 27 Den Haag 27 9 7 11 32—35 25 Maastricht 27 6 9 12 29—43 21 Arnhem 27 6 9 12 31—49 21 Sparta 27 7 6 14 36—49 20 NEC, Nijm. 27 8 3 16 26—42 19 Haarlem 27 5 9 13 34—54 19 NACBreda 26 6 5 15 19—46 17 Pétur Ingólfsson skoraði 3—2 FH í vil og Pétur kom þeim i 4—2. Fram skoraði sitt þriðja mark og var Erlendur þar að verki, 4—3 FH í vil. Hafsteinn Pétursson skoraði fyrir FH, 5—3 og Hans Guðmundsson 6—3. Þá var Atli Hilmarsson, Fram, settur inn á, en hann hefur ekki verið með undan- farið vegna meiðsla. Þá var eins og allt færi i gang hjá Fram. Fram skoraði næstu þrjú mörk og komst i 6—6. FH komst í 7—6 eftir mark Sveins Bragasonar, en Atli jafnaði i 7—7. Framarar voru siðan einu og tveimur mörkum yfir það sem eftir var hálf- leiksins. Staðan i hálfleik var 12—10 Fram i vil. Fram skoraði einnig fyrsta markið i seinni hálfleiknum, 13—10. Hafsteinn skoraði 13—11. Framarar skoruðu siðan næstu tvö mörk og komust i 15— 11. Theodór Sigurðsson skoraði næst fyrir FH, 12—15, og Birgir fyrir Fram 16—12. Þá fengu Framarar viti, en Haraldur Sigurðsson markmaður FH gerði sér lítið fyrir og varði vítaskot Erlendar Daviðssonar. Stuttu síðar fengu þeir annað víti. í þetta sinn var það Hannes Leifsson, sem skoraði örugglega, 17—12 og hann bætti svo öðru við, 18—12. FH-UMFG 30-7 (13-3) islandsmótið i handknattleik kvenna 1. deild, FH—Grindavík 30—7 (13—3) i íþróttahúsinu i Hafnarfirði, laugardaginn 22. marz. Beztu loikmenn (hœsta oinkunn 10) Kristjana Aradóttir, FH, 8, Katrín Danivalsdóttir, FH, 8, Ellý Erlingsdóttir, FH, 7, Sólveig Birgisdóttir, FH, 7, Sjöfn Ágústsdóttir, Grindavík, 6. FH: ÁKhildur Hjöriorfsdóttir, Katrin Danivalsdóttir, Sólvoig Birgisdóttir, Kristín Pétursdóttir, Kristjana Aradóttir, Ellý Eriingsdóttir, Björg Gilsdóttir, Anna Ólafsdóttir, Svanhvit Magnús- dóttir, Sigurborg Eyjólfsdóttir, Hafdís Sveinsdóttir. Grindavik: Runný Daníolsdóttir, Ágústa Gísladóttir, Hulda Guðjónsdóttir Ingunn Jónsdóttir, Hildur Gunnarsdóttir, Sjöfn Ágústsdóttir, Kristólína Ólafsdóttir, Rut Óskarsdóttir, Svanhildur Káradóttir, Borglind Demusdóttir. FH-Fram22-28 (10-12) íslandsmótíð i handknattleik 1. doild karia, FH-Fram, 22—28 (10—12) í íþróttahúsinu í Hafnarfirði laugardaginn 22. marz. Beztu leikmonn Hannes Leifsson 7, Eriendur Davíðsson 7, Kristjón Arason 7, Andrés Bridde 6, Pétur Ingólfson 6. FH: Haraldur Sigurðsson, Eyjólfur Bragason, Theodór Sigurðsson, Kristján Arason, Haf- steinn Pétursson, Magnús Teitsson, Pétur Ingólfsson, Sœmundur Stefánsson, Sverrir Kristjánsson, Hans Guðmundsson, Svoinn Bragason, Guðmundur Magnússon. Fram: Hannes Leifsson, Andrés Brídde, Jóhann Kristinsson, Eriendur Davíðsson, Egill Jóhannesson, Atli Hilmarsson, Sigurbergur Sigsteinsson, Jón Ámi Rúnarsson, Sigurður Þórarinsson, Snœbjöm Arngrímsson, Birgir Jóhannsson, Bjöm Eiriksson. Þá var komið að FH að skora, því þeir skoruðu næstu þrjú mörk. Minnkuðu þeir mun sinn i 19—15. Jón Árni Rúnarsson jók enn mun Fram í 19—15. FH komst í 19—16 eftir mark Eyjólfs Bragasonar. Atli skoraði 20. mark Fram, 20—16. Sæmundur Stefánsson skoraði fyrir FH, 20—17. Mikil harka færðist í leikinn og var vel tekið á í vörninni. Skyndilega lá Hannes Leifsson á gólfinu eftir að hafa fengið högg frá Sæmundi Stefánssyni. Varð að flytja hann á slysavarðstofuna og sauma tíu spor í ennið. Sigurbergur skoraði enn fyrir Fram, 21 — 17. Þá urðu FH-ingar einum færri, því Sæmundi Stefánssyni var vikið af leik- velli í tvær mínútur. Enn skoraði Fram og var Birgir Jóhannesson þar að verki, 22—17. Er staðan var 24—19 Fram i vil brugðu FH-ingar á það ráð að taka tvo leikkmenn Fram úr umferð, en þeint tókst ekki betur til en svo að Fram skoraði fjögur mörk á móti þremur mörkum FH. Leikurinn endaði þvi 28—22 fyrir Fram. Það var kærkominn sigur fyrir Fram. Nú hafa þeir likast til bjargað sér frá falli í deildinni. Dómarar leiksins voru þeir Hjálmur Sigurðsson og Magnús Arnarsson. Mörk FH skoruðu þeir Kristján 5/3, Pétur 3, Guðmundur, . Sveinn, Sæmundur, Magnús, Hafsteinn og Eyjólfur 2 hver, Theodór og Hans I hvor. Mörk Fram Erlendur 5/2, Atli og Jón Árni 4 hvor, Hannes jj/l, Egill 3, Andrés, Jóhann, Birgir og Björn 2 hverogSigurbergur I. -HJ.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.