Dagblaðið - 24.03.1980, Blaðsíða 34
34
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. MARZ 1980.
Útboð
Vestmannaeyjar
Fjarhitun Vestmannaeyja óskar eftir til-
boðum í lagningu 10. áfanga hitaveitu-
dreifikerfis. Útboðsgögn eru afhent á
bæjarskrifstofunum Vestmannaeyjum og
verkfræðistofunni Fjarhitun hf., Álfta-
mýri 9 Rvík gegn 50 þús. kr. skilatrygg-
ingu. Tilboð verða opnuð í Ráðhúsinu
Vestmannaeyjum þriðjudaginn 8. apríl kl.
1 Stjórn Veitustofnana
Vestmannaeyjabæjar.
HEFILBEKKIR
Eigum fyrirliggjandi hefilbekki, 212 cm og 130 cm langa,
einnig hringsnúrur (úti).
LÁRUS JÓNSSON HF., HEILDV.
LAUGARNESVEGI59, SÍMI37189
Norræna húsið ÁíSliw
Dyveke Helsted,
forstjóri Thorvaldsens-safnsins í Kaupmanna-
höfn, heldur fyrirlestur með litskyggnum um
Bertel Thorvaldsen þriðjudaginn 25. mars kl.
20.30 í fyrirlestrarsal Norræna hússins.
Allir velkomnir
-
MENNTASKÓLA
BOLIR
ÁPRENTAÐIR MEÐ
MR-MH&MS
VERÐ AÐEINS 3.600
DOMUS
Laugavegi 91 — Simi 22110
BMW320 árg. 1979
BMW 316 árg. 1978
BMW 2800 i árg. 1969
BMW 528 \ árg. 1976
BMW 525 Autom i. árg. 1977
BMW 520 \ árg. 1978
Renault 20 TL ' i árg. 1978
Renault 16 TL árg. 1975
Renault 16 TL árg. 1973,
Renault VAN árg. 1975
Renault 14 TL árg.1978
Renault 12 TL árg. 1978
Renault 12 TL árg. 1977
Renault12L árg. 1976
Renault 12 station árg. 1975
Renault 12 station árg. 1971
Renault12TL árg. 1971
Renauit 6 TL árg. 1972
Renault 5 GTL árg. 1978
Renault 4 VAN F6 árg. 1980
Renault 4 VAN F6 árg. 1979
Renault 4 VAN F6 árg. 1978
Renault 4 VAN F4 árg. 1979
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
Brennandi áhugi blindra í leirkerasmíðinni:
Kjarkurinn kemur
mér mest á óvart
—segir Herborg Auðunsdöttir kennari
„Hér ríkir einstaklega góður andi
en það sem kemur mér mest á óvart
er hvað þetta fólk er kjarkmikið,”
sagði Herborg Auðunsdóttir kenn-
ari, þegar við komum til þess að ræða
málin við þá blindu sem eru að læra
leirkerasmíði.
Minna mátti nú sjá og heyra.
Áhuginn skein úr hverju andliti, það
var keppzt við vinnuna og mikið
skrafað og hlegið.
Haraldur Örn Haraldsson, sem
hefur verið blindur frá fæðingu, var í
óða önn að búa til skál en hann
þreifar sig áfram með ýmiss konar
form af skálum. Hann á þegar orðið
nokkurt safn sem Herborg hefur
hjálpað honum við því að hann getur
ekki málað eða brennt sjálfur.
Vandræði með
bílferðir
Haraldur sagði okkur, og var afar
kátur, að hann væri nýkoininn úr
flugferð með nýjustu flugvél flug-
málastjórnar Beachcraft King Air.
Agnar Kofoed-Hansen flugmála-
stjóri bauð mér og ég fór lika með
fyrri flugvélinni hans, Queen Air,”
sagði Haraldur Örn. Hann fræddi
okkur líka á að þeir hefðu séð um að
sækja hann en það væru nú oft vand-
ræði hjá blindu fólki að komast eitt-
hvað vegna þess, að þeir hefðu fáa til
þess að keyra sig, Rauðakrosskonur
gerðu þaðhelzt.
,,Ég veit alveg hvaða gerð af flug-
vél fer yfir. Ég heyri það á hljóðinu,”
sagði hann.
Málar líka,
þótt blindur sé
„Ég er að búa til fat. Jú, það er
eins og fiskur og ætlað undir fisk,”
sagði Gunnar Guðmundsson. Hann
inálar sína inuni, því hann hefur ekki
alltaf verið blindur og sagðist óljóst
muna eftir litum.
Sverrir Karlsson formaður tóm-
Hér er áhugasamur hópur og hillurnar prýða sumt af hinum ýmsu munum, sem gerðir hafa verið.
DB-mynd Hörður.
Yfir3000 nemendur í Námsflokkum Reykjavíkur:
Eíztv nemandinn
er nær áttræðu
—og Námsf lokkamir að enda sitt fertugasta starfsár
„Það allra nýjasta sem kennt er nú
i Námsflokkum Reykjavikur er leir-
kerasmíði fyrir blinda og sjóndapra
og svo að kenna Vietnömum
islcnzku.”
Þetta sagði Guðrún Halldórsdóttir
skólastjóri Námsflokkanna þegar við
litum við hjá henni i höfuðstöðvum
þeirra í gamla Miðbæjarskólanum.
Þeir eru nú að enda fertugasta starfs-
ár sitt.
Guðrún sagði að misjafnlega gengi
hjá Víetnömunum, en hjá Náms-
flokkunum eru þeir fullorðnu. Sumir
hefðu verið ólæsir og óskrifandi,
aðrir hámenntaðir. Skrítið væri að
sjá þá skrifa á kínversku letri frain-
burð orðs á íslenzku. Verst ættu þeir
með framburðinn ef margir sain-
hljóðar kæmu saman, sérstaklega ef
þar væri stafinn r að finna. Eins og
gengur eru það ungljngarnir sem
verst eiga með að sætta við lífið hér
og lærdóminn.
Starfsnámskeið
snar þáttur
„Geysilega margt hefur breytzt.
Nú eru hér yfir 3 þús. nemendur í ár,
en á fyrstu 10 árunum hafa verið
u.þ.b. 380 nemendur að jafnaði,”
sagði Guðrún og bætti við að starfs-
námskeið væru ákaflega, nauðsyn-
legur þáttur í kennslu Námsflokk-
anna nú.
Það væri í samningi að kaup
hækkaði t.d. hjá Sóknarkonum
sæktu þær starfsnámskeið. Dag-
mömmur sækja námskeið og for-
stöðukonur dagvistunarstofnana
kæmu og tækju þátt í stjórnunar-
námskeiðum.
Konur sem karlar sækja nám i
hagnýtum verzlunar- og skrifstofu-
störfum AUs konar prófanámskeið
eru í gangi, svo sem forskóli fyrir
sjúkraliða. Við fengum að vita að þar
væri fólk á öllum þrepum mennta-
stigans. Konur eru í áberandi meiri
hluta, eða u.þ.b. 3/4 nemenda. Flest-
ir eru á aldrinum 25—50 ára, en einn
var kominn fast að áttræðu. Sá hafi
lagt fyrir sig þýzku og esperantó.
Það er af sem áður var að stúlkur
hættu við nám eftir barnaskóla því
að það lægi aðeins fyrir þeim gifting
og bleyjuþvottur. Margar konur eru
nú að bæta sér þetta menntunarleysi
upp.
Háskólalærðir í ætt-
fræði og bflaviðgerð-
um
Háskólalærðir koma og læra ætt-
fræði eða taka þátt í námskeiðum
varðandi bilaviðgerðir og kvenfólk
sækir nú ákaflega i að læra fata-
saum, þar eru öll námskeið yfirfull.
Mest er þó ásóknin í tungumála-
nám, ensku, dönsku, norsku,
sænsku, færeysku og ekki sízt í
frönsku. Þá má nefna myndvefnað,
teikningu á postulín og hnýtingar.
„Það er nauðsynlegt að hafa
sveigjanleika og sinna kröfum tim-
ans,” sagði Guðrún og bætti við að á
meðal hugsjónamála sinna væri full-
orðinsfræðslan, en hún er i nefnd
þeirri sem semur lög uin slíka
fræðslu.
Námsflokkarnir hafa viða aðstöðu
til kennslu. Þeir kenna fyrst og
fremst í Miðbæjarskólanum, svo og i
Laugalækjaskóla, Breiðholtsskóla,
Hátúni 4 og víðar. Einnig hafa þeir
aðstöðu í Tjarnargötu 4, gamla
Tjarnarbíói, til fyrirlestra og mynd-
sýninga. -EVI.
V