Dagblaðið - 12.05.1980, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1980.
GÓD SAMVINNA
leikbragða, auk þess, sem örlaði á
fumi hjá hljómsveitinni á þessum
mikla hraða. En hraðinn var með
fullum vilja stjórnandans og
greinilegt að svona vildi hann hafa
hlutina.
Tónlist
V
Gamall
vinskapur
Hafliði lék einleikinn með
einstökum glæsibrag. Það nægir að
nefna hans eigin kadensu í fyrsta
kafla konsertsins sem dæmi um
handbragð snillingsins. Það er langur
vegur frá piltungnum, sem byrjaði að
spila í hljómsveitinni fyrir um
tveimur áratugum og molaði sellóið
sitt við að stytta sér leið yfir tjörnina
á isi, til snillingsins, sem lék með
hljómsveitinni í kvöld. En hljóm-
sveitin eignaði sér, með réttu, sinn
þátt i ferli hans og launaði gamlan
vinskap með bráðgóðum leik.
Allir nóg
að gera
Petruschka, þessi stórfenglegi
ballett, var svo lokaverkefnið. Svo
slunginn er ritháttur svítunnar að ég
held að hendingar úr henni finnist i
hljómsveitarstúdíum fyrir hvert
einasta hljóðfæri sem þátt tekur í
fiutningi hennar. Mest áberandi eru
öll þessi litlu, og stóru, einleiksatriði
blásaranna og mér er nær að halda,
að töluvert sé siðan blásararnir hafi
almennt staðið sig jafnvel. Verður
þar tæpast einn tekinn fram yfir
annan. Þessi glæsilegi flutningur
Petruschka var verðugur endir góðra
tónleika.
Guido Ajmone-Marson náði
sannarlega góðum tökum á hljóm-
sveitinni. Slag hans er eilítið
stirðbusalegt, en greinilegt, skýrt og
hljómsveitarlimirnir líta greinilega
upp til hans. Túlkun hans fannst mér
afar smekkleg, að því undanteknu að
keyra hraðann svona upp í
Haydnkonsertinum.
-F.M.
Tóniaikar SinfónfuhljómaveKar Islands f Há-
skólabiói 8. maf.
Stjórnandi: Guido Ajmone-Marson.
Einleikari: Hafliði HaNgrfrnsson.
Verkefni: Paul HindemKh: Sorgartónlist; Josef
Haydn: Cellókonsert í C-dúr; Igor Stravinsky:
Petruschka.
Frekar kom mér það spánskt fyrir
sjónir að sjá Sorgarmúsík Hinde-
miths fyrsta á skránni. Ég hygg að
flestir hefðu reiknað með einhverjum
líflegri inngangi þvi oftast er slíkt
best fallið til að hita mannskapinn
upp. Ekki er það þó einhlítt því að
mörgum kórnum og hljómsveitinni
gefst vel að hafa sálma til
upphitunar.
... að klappið
gleymdist
Þannig var því líka varið nú.
Hljómsveitin náði svo vel saman,
með Hafliða í fararbroddi, undir
handleiðslu Guido Ajmone-
Marsons, að andaktin var slík að fólk
gleymdi að klappa að verkinu loknu.
Það átti fyrir sumum verkum
Papa Haydns að liggja að lenda á við
og dreif, ekki síður en líkama hans að
honum látnum. Hönd og höfuð hér
og búkurinn þar. Það vakti því i
sjálfu sér enga furðu þótt C-dúr
konsertinn fyndist ekki í heilu lagi
fyrr en fyrir tveimur áratugum. Það
var bara í stíl við annað er snertir
þennan sífrjóa öðling sem enn, hátt í
tveimur öldum eftir dauða sinn, er
mönnum óþrjótandi rannsóknarefni.
Þegar í moderatokaflanum kom i
Ijós sú ágæta samvinna, sem tekist
Hafliði Hallgrímsson á málverka-
sýningu sinni fyrir fjórum árum —
„Kinleikur með einstökum
glæsibrag”.
hafði með hljómsveit, stjórnanda og
einleikara. Moderatokaflinn var sett-
lega leikinn og adagiokaflinn endur-
speglaði innri ró og jafnvægi, bæði
hljómsveitar og einleikara. All-
egrokaflinn var aftur á móti allt of
hraður. Að vísu gæðir svona mikill
hraði leikinn sérstökum glæsileik en
glæsileikinn i verkum Haydns kemur
innan frá og þarfnast ekki slikra
EYJÓLFUR
MELSTED
SHAMPO(
EXTRA MILD
KAN BRIX.F.S 1 l\'i.K ;) v
Gæða
shampoo
Extra milt fyrir þá
sem þvo sér daglega.
Sauðárkrókur!
Til sölu raðhús á tveimur hæðum. Uppl.
gefnar í síma 95-5250.
TIL SÖLU
BRAUTARMETHAFI
í KVARTMÍLU Á ÍSLANDI
Billinn fæst í eftirfarandi uppsetningum eða eftir séróskum
kaupandans.
a) Sem 10 sekúndu kvartmilubill i SA-flokki. (Einnig ökuhæfur sem
götubill).
Ótal fylgihlutir og sérhönnuð smiði innifalin.
Útbúnaður og frágangur eftir sér-samkomulagi.
b) Sem 12—13 sek. götubili mcð 454 CV V8 4ra gíra, beinskipt 4:56
drif. Fvlgihlutir eftir samkomulagi.
c) Sem 12—13 sek.keppnisbill i Std flokki eða götubill með Z/28/350
vél, 4ra gíra, heinskiptur 4-5 drif.
Fylgihlutir eftir samkomulagi.
d) 14 sek. sparneytinn götubfll með öllum götugræjum, Z 28 vél,
mildur, ás, lítill tor, drif 3.36:1, hliðarpúst, sportfelgur, Fylgihlutir
eftir samkomulagi.
Ath.: Body er 70-71 Rally Sport, Heavy Duty undirvagn, styrktir
gormar/fjaðrir o.s.frv. Ný innrétting, mjög gott lakk, algjör-
lega ryðlaus og óslitinn. Ekinn ca. 36.000 mílur.
Upplýsingar og tilboð óskast kynnt I síma 73287 dagana 13.-16. mai
eftir kl. 8 að kvöldi. örvar Sigurðsson
50% BETRI
KAUP
GERIÐ SAMANBURÐ