Dagblaðið - 12.05.1980, Blaðsíða 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1980.
29
DAGBLAÐIÐ ER SMAAUGLYSINGABLAÐIÐ
SIMI 27022
ÞVERHOLTI 11
Stúlkur óskast
til starfa á saumastofu við pressun og
saumaskap. Uppl. í síma 22209.
Áreiðanlegur
og röskur karlmaður óskast til lager- og
útkeyrslustarfa. Uppl. í verzluninni.
Matardeildin. Hafnarstræti 5.
Starfskraftur óskast
í blómaverzlun, vaktavinna. Tilboð
óskast sent DB merkt „240".
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa, ekki yngri en 19 ára.
Uppl. i síma 73532.
Stúlka óskast.
Ljósmyndaþjónusta i miðbænum óskar
að ráða ábyggilega og stundvisa stúlku i
háifsdagsstarf eftir hádegi. Uppl. hjá
auglþj. DB í sima 27022 eftir kl. 13.
H—254
Kona óskast I sveit,
má hafa með sér l til 2 börn, þrennt i
heimili. Þarf að hjálpa til utan dyra og
innan. Uppl. I síma 96-41529.
Vanur gröfumaður
óskast á JCB. Uppl. I síma 37586 eftir kl.
19.
Ytri-Njarðvík.
Hef 4ra herb. ibúð til leigu strax. Uppl. í
sima 28705.
Góö 3ja herb. ibúð
til leigu. Tilboð sendist DB merkt „Til
leigu 344” fyrir 16. mai '80.
Litið einbýlishús
til leigu i Keflavík. Á sama stað óskast
3ja herb. íbúð í Reykjavik, í eitt ár.
Uppl. í síma 92-2538.
Tvöfaldur bilskúri
Kópavogi (vesturbæ) er nýttur til hálfs
af eiganda. Er hægt að nýta hinn
helminginn (í samvinnu eða leigu). Uppl.
hjá auglþj. DB í síma 27022 eftir kl. 13.
H-372
2ja herb. vönduð ibúð
við Furugrund i Kópavogi til leigu frá l.
júlí. Tilboð um fjölskyldustærð og
greiðslugetu sendist DB merkt.
„Furugrund 285" fyrir 15. mai ’80.
Til leigu I Hafnarfirði
40 ferm húsnæði fyrir léttan iðnað eða
þess háttar (ekki innkeyrsludyr).
Sérinngangur, sérhiti, sérrafmagn,
snyrtiaðstaða. Uppl. í sima 83757, aðal-
lega á kvöldin.
Kaupntannahafnarfarar.
2ja herb. ibúð í miðborg Kaupmanna-
hafnar til leigu fyrir túrista. Á sama
stað er óskað eftir sjónvarpssokkum.
Einnig er til sölu hvítur baðvaskur á
fæti. Uppl. í síma 20290.
Húsnæði óskast
Ungt paróskar
eftir 2ja—3ja herb. íbúð. Reglusemi og
góðri umgengni heitið. Einhver fyrir-
framgreiðsla. Uppl. í síma 35591.
Einhleypur karlmaður
sem rekur eigið fyrirtæki óskar eftir
2ja—4ra herb. ibúð. Fyrirframgreiðsla.
Uppl. í sima 29194 á kvöldin.
2 mæðgur óska
eftir að taka á leigu 3ja—4ra herb. íbúð
sem fyrst. Æskilegast í austurbæ. Uppl. i
síma 85831 eftir kl. 5 á daginn.
Eldri hjón,
róleg og reglusöm, óska eftir lítilli íbúð.
örugg húsaleiga. Uppl. í síma 82881.
Ungurmaðurígóðri
atvinnu óskar að taka á leigu litla íbúð i
Reykjavík, Kópavogi eða Hafnarfirði.
Góðri umgengni og reglusemi heitið.
Fyrirframgreiðsla. Uppl. í sima 53552
eftir kl. 5.
Óskum eftir húsnæði
til leigu (strax). Erum tvö í heimili.
Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppl. í
sima 37093.
Ungt bar, barnlaust,
laganemi og læknanemi, óskar eftir 2-
3ja herb. íbúð, helzt sem næst Háskólan-
um strax eða fyrir 1. sept. Uppl. i sima
28502.
Ungt parmeð7ára
strák og annað á leiðinni óskar eftir 2ja
herb. íbúð, helzt í austurbænum, strax.
Erum á götunni. Öruggum mánaðar-
greiðslum heitið. Uppl. í síma 32057
eftir kl. 5.
Vantar 2ja herb. ibúð,
helzt i gamla bænum, er um fimmtugt.
Uppl. hjá auglýsingaþj. DB í síma
27022, eftir kl. 13.
H—297
Þarftu að fá góða
leigjendur i 2ja—4ra herb. íbúð? Hafðu
þá samband við okkur. Öruggar
mánaðargreiðslur, eða einhver fyrir-
framgreiðsla. Uppl. í síma 10528.
Ungur reglusamur
maður utan af landi óskar eftir herbergi.
Uppl. i sima 44395.
Ungt barnlaust par
óskar eftir 3ja-4ra herb. íbúð fyrir 1. júlí.
Reglusemi og góðri umgengni heitið.
Fyrirframgreiðsla — meðmæli. Uppl. í
síma 92—1706 á kvöldin og um helgar.
Trésmið vantar
3—4ra herb. ibúð fyrir 1. júní í Hafnar-
firði, Garðabæ eða Kópavogi. Þarf ekki
að vera í fullkomnu standi, getur lagfært
íbúðina ef óskaö er. Reglusemi. Fyrir-
framgreiðsla. Uppl. í síma 52098 eftir kl.
5.
Hálf milljón:
Fyrirframgreiðsla. Herb. eða íbúð
óskast. Reglusemi heitið. Uppl. hjá
auglþj. DB í síma 27022.
H—261
2ja—4ra herb. ibúð
óskast til leigu í 2—3 mánuði í sumar.
Uppl. í sima 17627 á kvöldin.
Óska eftir að taka
á leigu litla íbúð frá 1. júní til 1. des. ’8Ó.
Fyrirframgreiðsla möguleg. Uppl. hjá
DB í síma 27022.
H—246
Ung, reglusöm stúlka
óskar eftir herbergi eða 2ja-3ja herb.
íbúð til leigu frá 1. júní. Fyrir-
framgreiðsla ef óskað er. Uppl. hjá
auglþj. DB í síma 27022 eftir kl. 13.
H—175.
Mig vantar eins
eða tveggja herbergja íbúð og bílskúr
eða annað gott pláss með heitu og
köldu vatni, einhvers staðar við sjávar-
síðuna á Reykjavíkursvæðinu eða í
næsta nágrenni til leigu eða sölu ef um
semst. Tilboð sendist DB merkt „Góður
kostur”. helzt fyrir 16. þ.m.
Óskum eftir
3-4ra herb. ibúð — ábyrgjumst skilvísar
greiðslur og góða umgengni. Nánari
uppl. i síma 27102.
Vélskólanema utan af landi
með konu og 1 barn vantar tilfinnanlega
2ja herb. íbúð 1. september nk. eða fyrr.
Góðri umgengni og reglusemi heitið.
Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppl. í
síma 77702 eftir kl. 7 á kvöldin.
22 ára stúlka óskar
eftir 1—2ja herb. íbúð. Er einhleyp og
reglusöm. Uppl. í sima 77196 eftir
hádegi alla daga.
Leigjendasamtökin,
leiðbeiningar og ráðgjafarþjónusta. Hús-
raðendur: látið okkur leigja! Höfum á
skrá fjölmargt húsnæðislaust fólk.
Aðstoðum við gerð leigusamninga ef
óskað er. Opið milli 3 og 6 virka daga.
Leigjendasamtökin, Bókhlöðustíg 7.
simi 27609.
r . ----------------->
Odýr gisting
Verið velkomin
á Gistiheimilið Stórholt I Akureyri.
Höfum 1—4 manna herbergi ásamt
eldunaraðstöðu. Verð kr. 1500 fyrir
manninn á dag. Sími 96—23657.
Atvinna í boði
Húsasmiðameistari óskar
eftir ungum áhugasömum duglegum
r.tanni sem unnið hefur við smíðar eða
viil læra smiðar. Til greina kemur
samningur, þarf helzt að hafa bil. Uppl.
í síma 39264 í kvöld og næstu kvöld.
Óska eftir aðstoð
við heimilisstörf, vinnutími ca 6—10
klukkust. á viku hvenær dags og hvaða
daga sem er, eftir samkomulagi. Uppl. í
síma 10991 eftirkl. 17.
Einhleyp kona
óskar eftir góðri 2—3ja herb. íbúð frá
byrjun júní. Fyrirframgreiðsla sam-
komulag. Uppl. í síma 18128 eftir kl. 6
eða 10440 (Ágústa).
Ef þú átt ibúð
sem þú vilt fá góðan leigjanda i þætti
mér vænt um að hey/a frá þér sem fyrst.
Ég er ein i heimili, ágætismanneskja.
Frekari uppl. í síma 53444 á daginn og
23964 eða 52787 á kvöldin og um
helgar. Ingibjörg G. Guðmundsdóttir.
Góð ibúð óskast
sem fyrst í Kópavogi eða Reykjavik,
algjör reglusemi og góð umgengni,
meðmæli. Fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Uppl. hjá auglþj. DB í sima 27022 og á
kvöldin í síma 43689-40133.
H—672.
Vélstjóra eða vanan mann
vélum og matsvein vantar á togbát nú
þegar. Uppl. í síma 32448.
Vana menn vantar
á handfærabát. Uppl. í sínia 92-7682.
Afgreiðslustúlka óskast
strax, framtiðarstarf, ekki bara sumar-
atvinna. Uppl. á staðnum. Kjörbúðin
Laugarás, Norðurbrún 2.
Óska eftir að ráða
lagtækan mann á gröfu, Broyt X2, helzt
vanan. Gott kaup fyrir góðan mann.
Uppl. í síma 92-3139 Keflavík milli kl. 7
og 8 í kvöld.
Öska eftir ráðskonu,
má vera með barn. Aldur milli 25 og 40
ára. Uppl. í síma 95-5600, milli kl. I og 5
virka daga.
Tveir til þrír samhentir
trésmiðir óskast strax, skemmtileg
vinna, þurfa að geta unnið sjálfstætt.
Uppl. í síma 75642 eftirkl. 19.
Ræsting óskast
á tannlæknastofu i miðbænum.
Umsóknir sendist DB merkt „Ræsting
315” fyrir 16. maí.
Vélstjóra vantar
á Helgu RE 49. Uppl. í síma 81720.
Fyrsta vélstjóra vantar
á skuttogarann Arnar HU 1 frá Skaga-
strönd. Uppl. í síma 11440, herb. 310,
milli kl. 18 og 20 mánudag og þriðjudag.
Atvinna óskast
18 ára piltur óskar
eftir vinnu strax (ekki sumarvinnu), allt
kemur til greina. Vanur lyftara. Uppl. í
sima 73997.
20 ára stúlku vantar
vinnu strax part úr degi eða kvöld-
vinnu., Einnig kæmi til greina ræsting
eða heimavinna. Uppl hjá auglþj. DB í
síma 27022 eftirkl. 13.
H—390
Áreiðanleg kona
með eitt barn óskar eftir starfi á sveita-
heimili sunnanlands. Uppl. í síma
30664.
I5árastúlkaóskar
eftir vinnu í sumar. Margt kemur til
greina. Er vön allri sveitavinnu. Simi
30257 e.h.
15 ára stúlka
óskar eftir vinnu í sumar. Uppl. í sima
75619.
16ára piltur
óskar eftir atvinnu. Reglusamur og
samvizkusamur. Reynsla i ýmsum
störfum, bæði hérlendis og erlendis.
Talar bæði dönsku og ensku, er laus
strax og ^llt kemur til greina. Meðmæli
ef óskað er. Uppl. í símum 74250 og
31398.
Atvinnurekendur.
Atvinnumiðlun námsmanna hefur fjöl-
hæfan starfskraft á öllum aldri og úr öll-
um framhaldsskólum landsins. Atvinnu-
miðlun námsmanna, Félagsstofnun
stúdenta við Hringbraut. Opið kl. 9—18
alla virka daga. Símar 12055 og 15959.
Stúlka óskast
í Mosfellssveit. Stúlka óskast til að gæta
barna í sumar í Mosfellssveit, ekki yngri
en 13 ára. Uppl. gefur Villi Þór hjá
Hársnyrtingu Villa Þórs í síma 34878 og
á kvöldin í síma 66725.
Óska eftir 13—14ára
stúlku til að gæta 9 ára telpu nokkur
kvöld og nætur í mánuði sem næst
Landspitalanum. Uppl. 1 síma 25093
eftirkl. 19.