Dagblaðið - 12.05.1980, Blaðsíða 30

Dagblaðið - 12.05.1980, Blaðsíða 30
30 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1980. Veðrið! Gert er ráð fyrir austan- og euö- 'n 'austanátt á landinu f dag. Skýjaö varður á mestölu landinu maö rign- lngu á Austur-, Suður- og Vasturiandi, með föngum þurrum kðflum fyrir norðan. Hlýtt veöur. Klukkan sex í morgun var í Reykja- 'vi< noröan 2, abkýjað og 7 stfg, Gufu- skálar sunnan 1, abkýjað og 6 stig, jGaltarvltJ austan 2, skýjað og 8 stig, Akureyri breytileg átt 2, hátfskýjað og 8 stig, Raufariiöfn logn, skýjað og 8 stig, Datatangi suöaustan 3, ai-j skýjað, súld og 6 stig, Höfn I Homa-J firði norðnorðvastan 2, súkl og 7 stig | og Stórhöföi í Vestmannaeyjum, austan 7, súld og 7 stig: Þórshöfn í Fasreyjum þokumóða og 7 stig, Kaupmannahöfa MttskýjaðJ og 8 stig, Osló skýjað \kj 5 stig,j Stokkhóimur Mttskýjað o& 7 stig,! London Mttskýjað og 12 stig, Ham- borg Mttskýjað og 8 stig, Paris Mtt-j skýjað og 12 stig, Madrid rigning og 12 stig, Lbsabon skúr og 11 sbg og New York skýjað og 13 stig. Andlát Arnbjörg Jónsdóttir lézt aö Hátúni 10B. Hún var fædd að Gilsárteigi, Eiðaþinghá á Fljótsdalshéraði, 14. nóvember 1895. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Þorsteinsson bóndi og hreppstjóri á Gilsárteigi, síðar á Selja- mýri í Loömundarfirði og seinni kona hans Sigurbjörg ísaksdóttir ljósmóðir i Loðmundarfirði. Arnbjörg giftist manni sínum Magnúsi Stefánssyni 30. nóvember 1921. Þau eignuðust fjögur börn. Arnbjörg verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 1 dag, mánudaginn 12. htaí, kl. 13.30. Ingimar Þorkelsson lézt sunnudaginn 4. maí. Hann var fæddur 12. ágúst 1902 í Vöglum 1 Vatnsdal í Húnavatns- sýslu. Foreldrar hans voru Þorkell Helgason og Þórunn Þorleifsdóttir. Er Afmæli Ingimar var á sautjánda ári réðst hann sem vinnumaður á Mýrum og vann þar í níu ár. Eftirlifandi kona hans er Maria Þórðardóttir. Þau gengu í hjóna- band 19. maí 1928. Börn þeirra urðu fjögur. Eina stúlku ólu þau upp, Karlottu Aðalsteinsdóttur. Ingimar hóf störf við höfnina 1932 og starfaði hann þar á meðan kraftar entust. Ingimar verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju idag, mánudaginn 12. mai. kl. 15. Leiðrétting í andlátstilkynningu DB sl. föstudag misritaðist föðurnafn Jóhannesar Júlíus- sonar matsveins, eiginmanns Mariu Sigríðar Óskarsdóttur er lézt 29. apríl sl. Jóhannes og aðrir aðstandendur Maríu Sigríðar eru beðnir velvirðingar á mistökunum. Erna Þórarinsdóttlr, Fannarfelli 12 Reykjavik, lézt laugardaginn 10. maí. Húnvarfædd 5.ágúst 1938. Óskar Ögmundsson frá Ráðagerði í Garðabæ, lézt sunnudaginn 4. maí á Sólvangi. Hann verður jarðsunginn frá Garðakirkju í Garðahverfi í dag, mánudaginn 12.maí, kl. 13.30. Hámundur Jónasson, Lynghaga 14 Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 13. maí kl. 15. Bjarni Jónsson úrsmiður frá Akureyri lézt miðvikudaginn 7. maí. Egill Þorgilsson fyrrverandi skipstjóri lézt föstudaginn 9. maí. Jenný Guðmundsdóttir, Arnarhrauni 11, Hafnarfirði, er 85 ára í dag, mánudaginn 12. maí. Hún verður að heiman. Hildur Þ. Kolbeins, Meðalholti Reykjavík, er 70 ára í dag, mánudaginn 12. maí. Hildur tekur á móti gestum í 'félagsheimili Fóstbræðra eftir kl. 20 í kvöld. Fræðslufundur um trjá- og garðrækt Bandalag kvenna í Reykjavik gengst fyrir fræðslu fundi fyrir áhugafólk um trjá og garðraskt, mánu daginn 12. maí kl. 20. i Glæsibæ niðri. Dagskrá. Gróðureyðing og græðsla lands: Hákon Bjarnason. fyrrv. skógræktarstjóri. Fjölærar jurtir: Ágústa Björnsdóttir. Matjurtir: Axel Magnússon.garðyrkjuráðunautur. Sigrún Jónsdóttir sýnirí Hveragerði 1 dag, mánudag, verður opnuð sýning á málverkum Sigrúnar Jónsdóttur i Eden i Hveragerði. Þetta er þriðja einkasýning Sigrúnar, en hún sýnir að þessu sinni 45 oliumálverk. Sýningin verður opin til 22. mai. Hátíð í Reykjavík á aldarafmæli M.A. Nú á aldarafmæli Menntaskólans á Akureyri hefur Nemendasamband M.A. ákveðið aðefna til fagnaðar að Hótel Sögu hinn 14. mai nk. Borðhald hefst klukkan 19:30 og að þvi loknu verður dansað til klukkan 2. Gestur og ræðumaður kvöldsins vcrður Gísli Jónsson menntaskólakennari á Akureyri, en geta má þess að hann er einn þeirra sem unnið hafa að samantekt sögu Menntaskólans á Akureyri, sem út kemur nú í vor á vegum skólans. Nemendur skólans fyrr og síðar eru hvattir til þess að mæta til fagnaðarins. Miðasala verður i norður landdyri Hótel Sögu mánudag og þriðjudag 12. og 13. Imaí klukkan 17—19. IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII Stúlkaá 13. ári óskar eftir barnagæzlustarfi, má gjarnan vera úti á landi eða í Hafnarfirði norður- bæ. Uppl. í síma 53858. 12ára telpaóskar eftir að passa barn i Breiðholti í sumar. Uppl. i sima 71357 eftir kl. 7ákvöldin. Unglingsstúlka óskast til að gæta barns í sumar í Seljahverfi. Uppl. í sima 75912. Heimili óskast til að taka 5 ára barn í gæzlu vegna vakta- vinnu móður. Uppl. i síma 25500 og eftir kl. 5 í sima 74790. 13ára stúlka óskar eftir barnagæzlu í sumar, helzt í neðra Breiðholti, er vön börnum. Uppl. í síma 76495 eftir kl. 6. í Sumardvöl Barngóðl2—13ára stúlka óskast til aðgæta 8 mánaða barns i sumar. Uppl. í síma 95-1927. Kennsla Enska, franska, þýzka, italska, spænska, latina, sænska o.fl. Einkatímar og smáhópar. Talmál, bréf- askriftir, þýðingar, hraðritun á erlendum málum. Málakennslan, sími 26128. <--------------\ Tapað-fundið Gullúr, Pierpoint karlmannsúr, tapaðist laugardaginn 3. maí á eða við Hótel Sögu. Skilvis finnandi hringi i síma 19754. Ýmislegt Tek dúka í strekkingu. Uppl. í síma 82657. Geymið auglýsinguna. Einkamál Rúmlega 30 ára hugguleg hjón óska að kynnast hjónum og einstakling- um, bæði konum og körlum með til- breytingu í huga. Æskilegur aldur 18— 35 ára. Við erum bæði mjög frjálslynd í kynferðismálum og óskum eftir tilbreyt- ingu. Auðvitað verður farið með öll svör sem algjört trúnaðarmál. Svar sendist Dagblaðinu merkt „Trúnaður 978” sem allra fyrst. Mjög æskilegt er að mynd fylgi. Karlmaður óskar að kynnast konu með náið samband í huga. Má vera gift. Gjarnan svolítiö feit. þagmælsku heitið. Tilboð sendist DB merkt „250”. Ég er f vanda stödd. Er ekki einhver maður sem getur hjálpað mér með fjármál I nokkra mánuði? Algjör trúnaður. Tilboð sendist DB merkt „Hjálp 300”. Beggja hagur. Einmana 24 ára myndarlegur karlmaður óskar eftir kynnum og vinskap við kvenfólk á aldrinum 18—26 ára. Verið ófeimnar við að svara. Vinsamlegast sendið nafn og simanúmer til DB fyrir 20. maí merkt „trúnaður 856”. Tilkynningar Öldungamót. Hið frábæra öldungamót í svigi verður haldið í Bláfjöllum fimmtudaginn 15. maí og hefst skráning keþpninnar kl. II. Leikfélag Blönduóss auglýsir: Sýnum Skáld-Rósu í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi í kvöld kl. 21. Miðasala frákl. 19. I Þjónusta i Málningarvinna. Get bætt við mig málningarvinnu úti sem inni. Uppl. í síma 76925 eftir kl. 7. Gröfur. Til leigu nýleg Intemational 3500 trakt- orsgrafa í stærri og smærri verk. Uppl. i síma 74800 og 84861. Hellulagnir og hleðslur. Tökum að okkur hellulagnir og kant- hleðslur. Gerum tilboð ef óskað er. Vanir menn, vönduð vinna. Uppl. I símum 45651 og 43158 eftir kl. 18. Glerfsetningar sf. Tökum að okkur glerísetningar. Fræsum í gamla glugga fyrir verk- smiðjugler og skiptum um opnanlega glugga og pósta. Gerum tilboð í vinnu og verksmiðjugler yður að kostnaðar- lausu. Notum aðeins bezta ísetningar- efni. Vanir menn, fljót og góð þjónusta. Pantið tímanlega fyrir sumarið. Simar 53106 á daginn og 54227 á kvöldin. Húsaviðgerðir-Sprunguviðgerðir. Þéttum sprungur í steyptum veggjum og svölum, steypum þakrennur og berum i þær þéttiefni. Einnig þak og glugga- viðgerðir, glerisetningar o. fl. Uppl. í síma 81081. Garðeigendur ath. Húsdýraáburður til sölu, fljót og góð þjónusta. Uþpl. í síma 38872. Vélstjóri vill taka að sér viðgerðir og þjónustu fyrir innflytjendur eða notendur ýmissa tækja. Uppl. í síma 39861. Húsdýraáburður. Bjóðum yður húsdýraáburð á hagstæðu verði og önnumst dreifingu hans ef óskaðer. Garðaprýði, sínú 71386. Húsdýraáburður. Til sölu hrossatað, ódýr og góð þjónusta, pantanir í síma 20266 á daginn og 83708 á kvöldin. Traktorsgrafa til leigu. Tek að mér öll verk fyrir M-F 50B traktorsgröfu. Uppl. i síma 44482. Sprunguviðgerðir, þéttingar. Gerum við sprungur i steyptum veggj- um, þökum og svölum, þéttum með fram gluggum með þanþéttiefni, einnig rennuviðgerðir. Gerum föst verðtilboð ef óskað er, greiðsluskilmálar og stað- greiðsluafsláttur. Fljót og góð þjónusta. Simi 23814 i hádegi og á kvöldin. (Hall- grimur). Garðeigendur ath. Tek að mér flest venjuleg garðyrkju- og sumarstörf, svo sem slátt á lóðum, málun á girðingum, kantskurð og hreinsun á trjábeðum, útvega einnig og dreifi húsdýra og tilbúnum áburði. Geri tilboð ef óskað er. Sanngjarnt verð. Guðmundur. sími 37047. Geymið auglýsinguna. Dyrasfmaþjónusta. Önnumst uppsetningar og viðgerðir á dyrasimum og innanhússsímkerfum, sér- hæfðir menn. Uppl. í síma 10560. Bólstrun Grétars. Tökum að okkur að klæða og gera við gömul húsgögn, kem og geri föst verðtil- boð ef óskað er yður að kostnaðarlausu. Úrval áklæða. Uppl. í síma 24211, kvöldsími 13261. Múrbrot — Fleygun — Borvcrk. Tökum að okkur alla loftpressuvinnu. Gerum föst verðtilboð. Góð tæki, vanir menn. Uppl. í simum 52754 Hafnarfirði og 92-3987 Njarðvik. Dyrasfmaþjónusta. Önnumst uppsetningar á dyrasímum og kallkerfum. Gerum föst tilboð í nýlagnir. Sjáum einnig um viðgerðir á dyrasímum. Uppl. í sima 39118. Athugið. Er einhver hlutur bilaður hjá þér? Athugaðu hvort við getum lagað hann. Simi 50400 til kl. 20. Skemmtanir k. - * j Diskótekið Disa — Diskóland. Dísa fyrir blandaða hópa og mesta úr- valið af gömlum dönsum, rokkinu og eldri tónlist ásamt vinsælustu plötunum. Ljósashow og samkvæmisleikir. Hress- leiki og fagmennska í fyrirrúmi. Diskó- land fyrir unglingadansleiki með margar gerðir Ijósashowa, nýjustu plöturnar — allt að 800 vatta hljómkerfi. Diskótekið Dísa — Diskóland. Símar 22188 og 50513(51560). Diskótekið Taktur er ávallt í takt við tímann með taktfasta tónlist fyrir alla aldurshópa og býður upp á ny og fullkomin tæki til að laða fram alla góða takta hjá dansglöðum gestum. Vanir menn við stjórn- völinn.Sjáumst í samkvæminu. PS: Ath.: Bjóðum einnig upp á Ijúfa dinner- rnúsik. Diskótekið Taktur. sími 43542. Diskótekið Dollý. Þann 28. marz fór 3. starfsár diskóteks- ins í hönd. Með „pomp og pragt” auglýs- um við reynslu, vinsældir og gæði (því það fæst ekki á einum mánuöi). Mikið úrvaLaf gömlu dönsunum, íslenzku slög- urunum (singalong) ásamt þeim erlendu, kok|$urinn og allt það sem skemmtana- glaðir lslendingar þarfnast. Mikið úrval af popp-, diskó- og rokklögum. Ef þess er óskað fylgir eitt stærsta ljósashow sem ferðadiskótek hefur, ásamt samkvæmis- leikjum. Diskatekið Dollý, sími 51011. Diskótekið Donna. Takið eftir! Allar skemmtanir; Hið frábæra, viðurkennda ferðadiskótek Donna hefur tónlist við allra hæfi, nýtt og gamalt, rokk, popp, Country live og gömlu dansana (öll tónlist sem spiluð er hjá Donnu fæst hjá Karnabæ). Ný fullkomin hljómtæki. Nýr fullkominn ljósabúnaður. Frábærar plötukynning- ar, hressir plötusnúðar sem halda uppi stuði frá byrjun til enda. Uppl. og pant l anasímar 43295 og 40338 milli kl. 6 og 8 á kvöldin. 1 Innrömmun l Innrömmun. Vandaður frágangur og fljót afgreiðsla. Málverk keypt, seld og tekin í umboðs- sölu. Afborgunarskilmálar. Opið frá kl. 11 —7 alla virka daga. laugardaga frá kl. 10—6. RenateHeiðar, Listmunir og inn- römmun, Laufásvegi58,sími 15930. í Hreingerningar i Önnumst hreingerningar á íbúðum, stofnunum og stigagöng- um.Vant og vandvirkt fólk. Uppl. í símum 71484 og 84017. Gunnar. Þrif, hreingerningar, teppahreinsun. Tökum að okkur hreingerningar á íbúð- um, stigagöngum og stofnunum, einnig teppahreinsun með nýrri djúphreinsivél, sem hreinsar með mjög góðum árangri. Vanir menn. Uppl. í síma 33049 og ,85086. Haukur og Guðmundur. Gólfteppahreinsun. Hreinsum teppi og húsgögn með hábrvstitækni og sogkrafti. Erum einnig rheð þurrhreinsun á ullarteppi ef þarf. Það er fátt, sem stenzt tækin okkar. Nú, eins og alltaf áður, tryggjum við fljóta og vandaða vinnu. Ath. 50 kr. afsláttur á fermetra á tómu húsnæði. Erna og Þorsteinn, sími 20888. a ðkukennsla i Ökukennsla-æfingatimar. Kenni á Volvo 244 árg. ’80. Nýir nemendur geta byrjað strax. Engir skyldutima, nemendur greiði aðeins tekna tíma. Uppl. i síma 40694. Gunnar Jónsson. Ökukcnnsla-æfingartímar. * Kenni á Galant árg. 79, ökuskóli og prófgögn ef þess er óskað. Nemandi greiði aðeins tekna tima. Jóhanna Guðmundsdóttir. sí.mi 77704. Ökukennsla, æfingartíinar, bifhjólapróf. Kenni á nýjan Audi, nemendur greiði aðeins tekna tíma, engir lágmarkstímar, nemendur geta byrjað strax. ökuskóli og öll prófgögn ef óskað er. Magnús Helgason, sími 66660. Ökukennsla — æfingatfmar. Lærið að aka bifreið á skjótan og öruggan hátt. Engir lágmarítstímar. Kenni á Mazda 323. Sigurður Þormar ökukennari, Sunnuflöt 13, sími 45122. Ökukennsla — æfingatímar. Get nú aftur bætt við nokkrum nem- endum. Kenni á Mazda 626 hardtopp 79. Ökuskóli og prófgögn sé þess óskað. Hallfríður Stefánsdóttir, simi 81349. Ökukennsla — æfingatimar. Kenni á Mazda 626 '80, ökuskóli og prófgögn ef óskað er, nýir nemendur geta byrjað strax. Geir Jón Ásgeirsson, sími 53783.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.