Dagblaðið - 12.05.1980, Síða 35

Dagblaðið - 12.05.1980, Síða 35
.35 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MAÍ1980. (i Útvarp Sjónvarp i TÆKNI0G VISINDI - útvarp kl. 22,35: Ortölvan stytt- ir vinnutímann Ég ætla í kjölfar þessara örtölvu- þátta i sjónvarpinu að ræða mögu- leika örtölvunnar erlendis og hvernig viðhorfið er hér heima. Bæði i hve ríkum mæli við getum notað þær og í hvaða greinum atvinnulífsins og annarri starfsemi,” sagði Páll Theo- dórsson eðlisfræðingur, sem talar um mikilvægi örtölvunnar í islenzku at- vinnuiífi i kvöld. Páll Theódórsson eðlisfræðingur er hér með örtölvustjrt skráningartæki. Tækið mælir eða telur lotubundið og geymir niðurstöðuna i minniseiningu tækisins Mæligildin má siðan flytja beint yfir f tölvu til úrvinnslu. Tækið er notað m.a. til að telja bilaumferð á vegum landsins, t.d. fjölda bfla hverjar 3 klst., vatnsrennsli I ám, fjölda simtala o.fl. Tækið er hannað á Raunvísindastofnun og smiðað á tækni- vinnustofu öryrkjabandalags Íslands. DB-mynd: Bj.Bj. Hann sagði einnig að hann myndi ræða að hve miklu leyti við gætum sjálfir átt beinan þátt í að hanna tölvur og smíða. I öllum nágranna- löndum okkar hefur ríkisvaldið sterkt frumkvæði til þess að örva þessa þróun. Páll kvaðst hafa þá skoðun að þessi tækni byði okkur upp á umtals- verða möguleika í rafeindatækni fram yfir það sem áður hefði verið. Tækjasmíöi yrði töluvert auðveldari. T.d. yrði tæknin þannig að eftir svo sem 5 ár væri fréttaritari með örtölvutæki í lítilli tösku ástærð við ferðaritvél. Þegar frétaritarinn hefur komið frétt sinni á skerminn og hefur hana beint fyrir framan sig getur hann tekið út setningar eða orð og skotið inn nýju. Síðan hringir hann beint í prentsmiðjuna og þar fer hún á skerm. Svona tæki er komið á markaðinn, að vísu dálitið stærra. Það var fyrst notað í heimsmeistara- keppni í fótbolta í Argentínu árið 1978. Fréttaritarinn þurfti þá ekki annað en hringja heim og eftir eina minútu var fréttin komin i aðra heimsálfu. Saumavélar eru þegar komnar á markaðinn. í stað 2 þús. hluta sem hreyfast hefur hún kannski 30—40 hiuti. í henni er miklu meira úrval mynztra og ef eitthvað nýtt kemur upp er hægt að skipta aðeins um einn kubb. Eftir 5 ár eigum við von á þvotta- vél á markaðinn sem hefur miklu fjölbreytilegra þvottaforrit en nú er. Rafmagnsritvél kemur eftir ár eða svo örtölvustýrð. í stað 2 þús. hluta i venjulegri vél verða aðeins 15. í vél- inni verður hlutur sem líkist kúlu- penna. Hann skrifar. Það verður ekki slegið á hana og það heyrist afar lítið í henni. í henni veröur úrval for- rita. Hægt að hafa alis konar stærð af stöfum, grískt letur, stærðfræði- !tákn og fleiri sértákn. „Það að maður losnar við að reikna á blaði og er aðeins með smá- tól i vasanum léttir vitaniega UFið. Vinnudagurinn í frystihúsunum ætti að styttast og við gætum farið að vinna 40 tíma vinnuviku. Við getum gert ýmsilegt eftir 5 ár og stóra hluti strax eftir 10 ár,” sagði Páll. BÆRINN 0KKAR—sjónvarp kl 21,15 í kvöld: MEYJARBRAGÐIÐ „Myndin er í léttum dúr,” sagði Dóra Hafsteinsdóttir, þýðandi mynd- arinnar Meyjarbragðið. Myndin er brezk og er úr myndaflokknum Bærinn okkar. Eitilharður piparsveinn er búinn að búa hjá systur sinni og manni hennar í mörg herrans ár. Þá gerist það að hann erfir hús og fer að kaupa inn í það dýrindis húsgögn o. fl. Hins vegar gengur það verr hjá honum að ná sér í kvonfang og satt að segja eru systirin og mágurinn alveg vonar að það megi takast. En hver veit? Kannski eitthvað úr. úrkuia rætist -EVI. UM HELGINA BARNAÞRÆLKUN Ef til vill hefur bezti hluti helgar- dagskrár sjónvarpsins veriö á föstudagskvöldið en þá vannst mér ekki tími til að horfa á sjónvarpið þar sem ég var að vinna aö skoðana- könnun um fylgi forsetaframbjóð- enda. Ekki er að efa, að niðurstöður þeirrar könnunar verða frétt dagsins idag. Á laugardag gafst mér hins vegar tækifæri til að setjast við sjónvarpið og varð ég ekki fyrir vonbrigðum. Mestu um það réö ítalska kvik- myndin Faðir minn og húsbóndi. Hér var um að ræða frábærlega vel gerða kvikmynd, enda mun hún hafa hlotið fyrstu verðlaun kvikmyndahá- tiðarinnar í Cannes. Barnaþrælkunin sem myndin lýsti ætti ekki að koma íslendingum spánskt fyrir sjónir. A.m.k. er víst um það að fjölmargir núlifandi íslendingar hafa sem ungiingar og börn mátt sitja yfir fénu daginn út og inn eins og Gavino Ledda í itölsku kvikmyndinni. Þessi kvikmynd var regluglega góð tilbreyting frá þeim ensku og bandarísku kvikmyndum, sem eru aigengastar á íslenzka sjón- varpsskjánum. Að venju horfði ég á iþrótta- þáttinn á laugardag. Ensku knatt- spyrnuvertíðinni lauk með sigri West Ham i bikarkeppninni og urðu það að teljast mjög óvænt úrslit. En það er einmitt hin mikla breidd í ensku knattspyrnunni, sem gefur henni gildi og er öðru fremur orsök þeirra gifurlegu vinsælda, sem hún nýtur. Sama dag hófst fslandsmótið í knattspyrnu og benda úrslitin i fyrstu leikjunum til þess að breiddin í knattspyrnunni afi aukizt. Ekkert liðanna er likiegt til að skera sig verulega úr. Því miður er ástæðunnar '-frekar að ieita i þvi að beztu liðin hafa daiað frekar en hin slakari hafi bætt sig. Landflótti beztu knatt- spyrnumanna okkar á örugglega eftir að segja alvarlega til sín. Fimleikar skipuðu eins og oft áður mjög veglegan sess í íþrótta- þættinum og þar birtist okkur dæmi um barnaþrælkun nútímans. Hún birtist ekki í því, að fimm eða sex ára gamlir krakkar séu reknir upp á fjöll til að sitja yFir fénu, eins og í itölsku kvikmyndinni. Hún birtist í því, að ,13 og 14 ára gömul stúlkubörn eru orðin að mestu Fimleikastjörnum heimsins. Sú vinna og þær æfmgar, sem liggja aö baki slíkum árangri eru þvílíkar, að ekki verður likt við neitt annað en barnaþrælkun. Það þarf því ekki að koma á óvart, að Austur- Evrópuþjóðirnar eru algjörlega ósigrandi í þessari íþrótt. Frétt helgarinnar var að sjálf- sögðu samkomulagið í Jan Mayen deilunni. Það var vel til fundið hjá fréttastofu sjónvarps að fá þrjá nefndarmannanna i viðtalsþátt strax i gærkvöldi. Þar kom i ljós aö skiptar skoðanir eru um gildi sam- komulagsins. Ólafur Ragnar sagði það vera ioðinn lopa þar sem öll tryggingaratriði vantaði. Ólafur Jóannesson utanríkisráðherra taldi hins vegar, að í samningnum væri „gott þel” og Norðmenn hefðu gert meira en að mæta okkur á miðri leiö. Vonandi mega íslendingar vel við una. -GAJ. Þetta eru fimmburar, sem búa I Japan, tveir drengir og þrjár teipur. Mamma þeirra og amma horfa á þá leika sér á eins árs afmælisdegi þeirra. FIMMBURARNIR FRÆGU—sjónvarp kl. 21,40: ÞÐR FENGU H0F- LAUSA ATHYGU „Fimmburarnir frægu” heitir mynd, sem Sjónvarpið sýnir í kvöld. Dionne-fimmburarnir kanadisku öðiuðust heimsfrægð þegar við fæðingu sina 28. maí 1934. Litlu stúikurnar ólust upp við dekur og hóflausa athygli en þegar stundir Iiðu tók heldur að siga á ógæfuhliðina. í þá daga geröist það ekki að Fimmburar fæddust og lifðu allir. I dag á þetta sér stað. Það er heldur ekki óalgengt eftir að frjósemismeðul komu til sögunnar að enn fleiri börn fæðist, kannski 7—8. Alla vega eru þó nokkrir fimmburar lifandi i heiminum i dag. Vonandi verður þeim ekki spillt á sama hátt og hinum frægu Dionne- Fimmburum. -EVI. LAUSSTAÐA Staða lektors i uppeldisfræði í félagsvisindadeild Háskóia tslands er laus til umsóknar. Staöan verður veitt til tveggja ára. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um visindastörf, ritsmiðar og rann- sóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavik, fyrir 31. mai 1980. MnntemMfiðnnaytið, B. mai 19B0. Ráögjafi frá Mandeville of London verður þessa viku hér á landi á eftir töldum stöðum: REYKJAVÍK Rakarastofan Klapparstíg, simi 12725, mánudag 12. mai, miðvikudag 14. mai og fóstudag 16. mai. AKUREYRI Jón Eðvarð, rakarastofa, Strandgötu 6, simi 24408, þriðjudag 13. maí. KEFLAVIK Klippotek, Hafnargötu 25, sími 3428, miðvikudag 14. maí eftir kl. 4.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.