Dagblaðið - 17.12.1980, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1980.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1980.
17
I
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
iþróttir
Iþróttir
Iþrótfir
Iþróttir
PRESSAN LAGÐILANDSUÐH)
—700 áhorff endur á Selff ossi sáu 24-23 sigur pressuliðsins í gærkvöld
„Pressullflið” bar sigurorð af lands-
liðinu í handknattlelk, 24-23, i gær-
kvöld er liðin mættust á Stjörnukvöldi
iþróttafréttamanna á Selfossi. Um 700
áhorfendur sáu leik llðanna og höfðu
af hina beztu skemmtun enda var iðu-
lega líf f tuskunum.
„Pressan”, undir skörulegri stjórn
Þórarins Ragnarssonar og Hermanns
Gunnarssonar, tók þegar forystu í
leiknum og um miðjan fyrri hálfleikinn
var staðan orðin 9-5. Landsliðinu tókst
þó að jafna fyrir hlé en þá var staðan
13-13.
„Pressan” náði aftur forystunni og
um tíma var staðan orðin 22-18 og síð-
an aftur 24-21 er skammt var til leiks-
loka. Landsliðinu tókst aðeins að rétta
hlut sinn undir lokin en sigur „pressu-
liðsins” var aldrei í hættu. Það voru
fyrst og fremst „gömlu” mennirnir
Árni indriðason og Viðar Símonarson,
sem stóðu á bak við sigurinn. Árni fór
á kostum og var innilega fagnað er
Hér fær Rósa Valdímarsdóttir UBK óbliðar viðtökur hjá vörn Ármanns i leik
liðanna um sl. helgi. DB-mynd S.
hann lyfti sér upp fyrir utan punktalínu
og sendi knöttinn með tilþrifum efst í
hornið hjá Óla Ben. sem ekki vissi
hvaðan á sig stóð veðrið. Viðar lék
mjög yfirvegað, en nýtti ekki tvö víti.
Þá kom Sæmundur Stefánsson mjög á
óvart og Jóhannes Stefánsson átti stór-
leik. Einar Þorvarðarson stóð í
markinu megnið af tímanum og varði
vel.
Hjá landsliðinu bar eðiilega mest á
Víkingunum, sem þó virtust margir
hverjir ekki ná sér á strik. Siggi Sveins
var aðeins svipur hjá sjón, en Atli
Hilmarsson kom vel frá leiknum.
Bjarni Guðm. og Þorbergur léku ekki
með landsdliðinu.
Mörkin skiptust þannig. „Pressan”.
Ámi Indriðason 5/1, Viðar Simonar-
son 4/2, Sæmundur Stefánsson 4, Þor-
björn Guðmundsson 3, Árni Sverrisson
og Jóhannes Stefánsson 2 hvor,
Konráð Jónsson, Lárus Karl Ingason,
Gunnar Lúðvíksson og Gunnar Gísla-
son 1 hver. Landsliðið: Páll Björgvins-
son 4/2, Steinar Birgisson 4, Páll
Ólafsson 3, Sigurður Sveinsson, Guð-
mundur Guðmundsson, Atli Hilmars-
son og Ólafur Jónsso'n 2 hver Stefán.
Halldórsson 1. -SSv.
2. deild kvenna er til
Um siðastliðna helgi lauk fyrri um-
ferð í annarri deild kvenna, deildinni er
skipt i tvo riðla. í A-riðli léku Suður-
nesjaliðin i Keflavik og sigraði lið ÍBK
Njarðvikurstúlkurnar með 10 mörkum
gegn 5. Að Varmá léku UMFA og
Fylkir og sigraði Fylkisliðið 17-9. I
Ásgarði sigraði ÍR helztu keppinauta
sina, Stjörnuna, 17-7. Staðan i A-riðli
ÍR 5 5 0 0 120-38 10
Stjarna 5 4 0 1 63-50 8
Fylkir 5 3 0 2 64-50 6
ÍBK 5 2 0 3 45-69 4
UMFN 5 1 0 4 37-84 2
UMFA 5 0 0 5 48-86 0
Úrslit í leikjum ÍR urðu þessi: ÍR —
ÍBK 22-4, ÍR — Fylkir 23-13, ÍR —
UMFA 27—11, ÍR — UMFN 31-3 og
sigurinn á Stjörnunni.
í B-riðli lék Ármann gegn UBK í
Laugardalshöll og sigruðu Ármanns-
stúlkurnar með yfirburðum, 23-12. Að
Varmá sigraði Þróttur hið unga lið HK
með 22 mörkum gegn 6.
Staðan í B-riðll er nú þannig:
Þróttur 4 4 0 0 71-43 8
Ármann 4 3 0 1 74-39 6
UBK 4 2 0 2 59-63 4
ÍBV 4 1 0 3 60-57 2
HK 4 0 0 4 24-86 0
Úrslit í leikjum Þróttar urðu þessi:
Þróttur — UBK 16-14, ÍBV — Þróttur
11-18, Ármann — Þróttur 12-15 og HK
sigruðú þær 22-6.
Með henni fær sparibaukurinn sitt fulla uppeldisgildi á ný.
Sparibaukur er því sérlega tilvalin jólagjöf nú, nokkrum dögum fyrir breytinguna.
FÆR HANN TROLU NYJA KRONU
NÚ ERU AÐ KOMA JÓL
GJALDMIÐILSBREYTINGIN HUNDRAÐFALDAR VERÐMÆTI SMÁMYNTARINNAR.
ÚTVECSBANKI
TRÖLLI OG TRÍNA eru án efa
einhverjir vinsælustu sparibaukarnir
á íslandi og „Jóakim frændi'' er
trúlega þekktasti peningahirðir í
heiminum.
Þessa frægu sparibauka er einungis
að fá í Útvegsbankanum.
Þú færð ókeypis sparibauk, TRÖLLA,
TRÍNU eða „JÓAKIM FRÆNDA" í
hvaða afgreiðslu Útvegsbankans
sem er, um leið og þú stofnar þar
sparisjóðsreikning í nafni barnsins
og greiðir kr 10.000 (nýkr. 100.—)
inn á reikninginn.
ÍSLANDS
I
°6
O
cr
5
j
O
Sprækir IR-ingar
stóðu í Njarðvík
— með smáheppni hefði „ jójóliðið” getað unnið
Njarðvíkingur juku enn forskot sitt
úrvalsdeildinni er þeir lögðu ÍR-inga að
velli í Hagaskólanum í gærkvöldi.
Lokatölurnar urðu 98-88 en sá munur
var í það mesta miðað við gang leiksins
þvi ÍR-ingar voru allhressir og það var
ekki fyrr en rétt undir lok leiksins sem
fór að skilja með liðunum.
ÍR byrjaði vcl, tók strax frumkvæðið
í leiknum og hélt þvi, var yfirleitt 2—4
stigum yfir en um miðjan hálfleikinn
ná Njarðvíkingar fyrst að komast yfir.
Staðan þá 22—22 er Valur Ingimundar-
son skaut um leið og brotið var á
honum, boltinn rataði í körfuna, karf-
an góð og hann skoraði siðan úr
vítinu, 25—22 fyrir Njarðvík. Liðin
skiptust síðan á um að skora, aldrei dró
í sundur með þeim og staðan í leik-
hléi 50—49 fyrir Njarðvík.
Gangur síðari hálfleiks var svipaður
þeim fyrri, allt upp í 70—70, liðin voru
hnífjöfn og allt stefndi í spennandi
lokaminútur. En þá kom vendi-
punkturinn, ÍR-ingar fóru að gefa
eftir. Var eins og þeir héldu að þeim
væri ekki ætlað að vinna þennan leik
og Njarðvík gekk á lagið, náði 6 stiga
forskoti, 78—72, og tók leikinn í sínar
hendur. Jók forskotið síðan í 10 stig
90—80 og það hélzt út leikinn. Loka-
tölurnar sem fyrr sagði 98—88.
Njarðvíkurliðið átti engan stórleik,
það var frekar í slakara lagi. Munaði
þar mestu um Danny Shouse sem
„aðeins” skoraði 31 stig. Þó átti hann
að venju nokkrar laglegar sendingar
sem gáfu stig. Valur Ingimundarson
átti góðan fyrri hálfleik, gerði þá 13
stig en hann lék ekki siðari hálfleikinn
enda kominn með fjórar villur. Hinn
bráðefnilegi leikmaður, Júlíus
Valgeirsson, fékk þá tækifæri og nýtti
það vel. Gunnar Þorvarðarson stóð
einnigvelfyrirsínu.
ÍR-Iiðið átti einn af sínum betri leikj-
um í vetur. Það virðist vera hálfgert
„jójólið”, nú stóð það vel í Njarðvík-
ingum, hefði þess vegna getað unnið
leikinn, aðeins viku eftir að hafa stein-
legið fyrir ÍS. Mesta „jójóið” í liðinu
er án efa Jón Jörundsson. Nú náði
hann toppleik, skoraði 26 stig en gegn
ÍS gerði hann 6. Andy Fleming gerði
einnig 2.6 stig.
Stigin. Njarðvík: Danny Shouse 31,
Gunnar Þorvarðarson 24, Valur
Ingimundarson 13, Guðsteinn Ingi-
marsson 12, Július Valgeirsson 10,
Jónas Jóhannesson 8. ÍR: Andy Flem-
ing og Jón Jörundsson 26 hvor, Krist-
inn Jörundsson 14, Sigmar Karlsson
10, Guðmundur Guðmundsson 8,
Kristján Oddsson og Óskar Baldursson
2 hvor. -KMU
Hamborg
efstáný
Hamborg komst á ný i efsta sæti
Bundesligunnar þýzku er liöið sigraði
1860 Miinchen 4—1 í gærkvöld en leik
liðanna var frestað fyrir skömmu.
Horst Hrubesch skoraði þrjú marka
Hamborgarliðsins.
IRyKRogValursigr-
uðu rtveimurflokkum
Síðasti úrslitaleikurinn á Reykja-
víkurmótinu i handknattleik i ár verður
í kvöld kl. 21.15 i Laugardalshöll. Þá
leika Fram og Valur i meistaraflokki
kvenna.
í meistaraflokki karla sigraði Víking-
ur á mótinu en úrslit í öðrum flokkum
urðu þessi. Keppt var í tveimur riðlum
og efstu liðin í riðlunum kepptu svo til
úrslita.
1. flokkur karla
KR — Fram 15-11
2. fiokkur karla Fylkir — KR 17-9
3. flokkur karla Valur — Þróttur 15-13
4. flokkur karla Valur — Fram 11-9
5. flokkur karla ÍR — Valur 9-6
2. flokkur kvenna ÍR — Fylkir 14-6
3. flokkur kvenna KR — Fylkir 6-1
ÍBK-UMFG íkvöld
Keflvíkingar og Grindvíkingar leiða saman hesta sína í 1.
deildinni í körfu í kvöld kl. 19.30, en leikur liðanna átti upp-
haflega að vera á morgun. ÍBK er i toppbaráttunni en
Grindavík er á botninum og veitir ekki af sigri ef liðið á að
bjarga sérþaðan.
Kolbeinn hættur
Kolbeinn Kristinsson, bakvörðurinn knái úr ÍR, sleit lið-
bönd á vinstra fæti s.l. sunnudag er hann var að leika sér i
knattspyrnu. Verður hann varla meira með i vetur og lýsir
þvi yfir í viðtali við Tímann i morgun að hann sé hér með
hættur í körfubolta. Kolbeinn hefur tvívegis lent i þvi að lið-
bönd á hægra fæti hafa slitnað.
Holmes til UMFG á ný?
Eftir heimildum sem DB hefur aflað sér mun Mark
Holmes, sem lék með Grindvikingum í körfunni i fyrra, en
leikur nú i Argentínu, hafa haft samband við forráðamenn
Grindvíkinga og óskað eftir þvi að fá að leika með Grinda-
vík á ný. Mun honum ekki lika dvölin syðra. Ekki er vitafl
um viðbrögð Grindvikinga en þeir hafa nú Don Frascella
hjá sér sem erlendan leikmann og mega að sjálfsögðu ekki
hafa tvo útlendinga.
„Það nýtur sín í fallegu umhverfi EVRÓPUEFNIÐ frá Johan Rönning hf.“
Enda hafði kaupandinn glöggt auga fyrir listrænum munum
og vissi hvað hentaði best við aðra húsmuni. T.d. við bron-
spottinn undir blómið frá ömmu, styttuna frá starfsfélögunum
og málverkið sem keypt var fyrir stuttu.
Já, konan keypti svo sannarlega inn fyrir heimilið.
Ekki bara matvæli.
Hún hafði aldrei velt því fyrir sér fyrr en daginn sem hún sá
EVRÓPUEFNIÐ á vegg við hiiðina á litríku málverki og
fögrum munum, hve þýðingarmikið það er að hafa allt í sam-
ræmi. „Glöggt er gests augað“ segir máltækið.
EVRÓPUEFNIÐ er nýja línan sem hentar flestum heimilum
og býður valmöguleika í útfærslum á rofum, tenglum og
ljósastillum.
EVRÓPUEFNIÐ er auðvelt í meðförum og hannað með það
fyrir augum að vera yndisauki á vegg.
EVRÓPUEFNIÐ fæst hjá rafverktökum og í flestum raf-
tækjaverslunum.
Næst þegar innkaup eru gerð fyrir
heimilið ættu flestir að hafa á bak við
eyrað: „Það nýtur sín í fallegu umhverfi
EVRÓPUEFNIÐ frá
Johan Rönning hf.“
51 Sundaborg
HF. Síml 84000-104 Reykjavlk
Þelr félagar Sigurður Hafsteinsson, Hannes Eyvindsson og Geir Svansson (taliö frá vinstri) gerðu þaö gott á KAS-mótinu á Spáni fyrir
skömmu. DB-mynd Einar Ólason.
„Fórum illa af stað”
—sögðu þeir f élagar úr GR, Hannes Ey vindsson, Sigurður Pétursson
og Geir Svansson um þátttöku sína á KAS- mótinu
„Ég held að við getum vel við þennan árangur unað”
sögðu þeir félagar úr GR, Sigurður Hafsteinsson, Hannes
Eyvindsson og Geir Svansson, er þeir litu inn á ritstjóm DB
í gær og spjölluðu við okkur um ferð þeirra á KAS-keppn-
ina svonefndu á Spáni fyrir um hálfum mánuði síöan.
Strákarnir höfnuðu i 10. sæti — aðeins 15 höggum á eftir
sigurþjóðinni, írum, en i fyrra hafnaði islenzka sveitin, sem
var skipuö þeim sömu, einnig i 10. sæti en varð þá 39 högg-
um á eftir sigursveit V-Þjóðverja.
„Allar sveitirnar léku verr í ár en í fyrra og sömu sögu er
að segja um okkur. Veðrið á Mallorca var ákaflega óhag-
stætt þarna er við kepptum — kalt og mikið rok — og dag-
inn sem við héldum heim á leið á ný snjóaði. Við vorum hins
vegar ekki óvanir þessum veðurskilyrðum en rokið virtist
draga kjarkinn úr sumum sveitanna,” sagði Sigurður.
Þarna kepptu sveitir frá 17 þjóðum í Evrópu en mót þetta
er haidið fyrir sigurvegara sveitakeppni meistaramóts i
hverju viðkomandi landa. Sveit GR hefur sigrað hér heima i
mörg ár í röð og farið nokkrum sinnum út til keppni á þessu
móti. Ekki þarf að taka það fram að allir kylfingarnir á
mótinu þarna eru áhugamenn og i ár gerðu þeir félagar sér
lítið fyrir og skutu Finnum og Norðmönnum aftur fyrir sig,
en Svíarnir voru í seilingarfjarlægð.
Það voru fyrst og fremst fyrri tveir dagarnir, sem skiptu
sköpum fyrir GR-strákana. írar náðu þá 20 högga forskoti á
þá en GR tókst að ná 5 höggum af þeim á síðari tveimui
dögunum. „Við vorum dálítið óheppnir því að það féll
niður flug hjá okkur á vegum Iberia og við misstum þar með
aiveg af öðrum deginum sem við ætluðum til æfinga. Þá
bætti ekki úr skák að við Geir vorum báðir með ný sett og
höfðum lítið slegið með þeim,” sagði Hannes. „Minu var
stolið og ég hef hvorki séð tangur né tetur af því síðan,”
sagði Geir „en mér finnst það mesta furða hvað okkur tókst
vel upp því nú höfðum við sama og enga æfingu fengið í
tæpa3 mánuði.”
Strákunum tókst ekki aðeins að standa sig vel heldur létu
þeir sig ekki muna um að ná bezta skorinu 3. dag keppn-
innar og sama dag var Hannes Eyvindsson með bezta skor
allra keppendanna. „Völlurinn er mjög langur — einn sá
lengsti í Evrópu og það var erfitt að ganga hann,” sögðu
þeir félagarnir. „Við vorum þó heppnir því með okkur var
frábær fararstjóri, Jón Carlsson, og hann gekk alltaf með
okkur og læddi í okkur Toblerone og sítrón. Hann hvatti
okkur sífellt til dáða og það er svo sannariega gott að hafa
slika menn með í svona ferðum”.
Keppnisfyrirkomulagið er þannig á
þessu móti að allir þrír leika alla
dagana, en skor tveggja beztu telja.
Hannes var alla dagana með annað
tveggja beztu skoranna.
Röð þjóðanna varð annars þessi:
írland 620 högg
2. V-Þýzkaland 621
3. Skotland 623
4. Frakkland 625
5. Spánn 625
6. Ítalía 625
7. Svíþjóð 627
8. Sviss 630
9. Austurríki 632
10. ísland 635
11. Belgía 638
12. Finnland 646
13. Wales 648
14. Noregur 654
15. Holland 663
16. Portúgal 671
17. Luxemborg 677
-SSv.