Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Page 57
137
Um kennslukraftana, sem svo mikið er gumað af, er sama
að segja. Mér er ekki kunnugt urn, að þar sé um neina fræði-
og vísindamenn að ræða, er gangi atvinnulausir og geti því
bætt á sig tímafrekri og erfiðri kennslu. Þvert á móti ætla
ég, að flestir þessara manna telji sig störfum hlaðna nú þeg-
ar, svo þeir rnuni ekki geta tekið að sér ný störf, nema störf-
um, er þeir vinna nú, verði af þeim létt. Þannig hygg ég að
þessu sé að minnsta kosti varið með starfsmenn búnaðar-
deildar og ráðunauta Búnaðarfélags Islands.
Þótt ég telji það bæði hagkvæmt og nauðsynlegt að sam-
eina búnaðarháskóla og búnaðardeild í eina stofnun, er ég
ekki þeirrar skoðunar, að það sparaði starfskrafta svo nokkru
nemi. Sérfræðingar búnaðardeildar, sem kenndu við búnað-
arháskólann, yrðu jafnframt forstöðumenn sinna deilda í
Búnaðardeildinni, en yrðu að fá aðstoðarmenn til starfa þar.
Engu að síður væri sameiningin hagkvæm, því með henni
fengi búnaðarháskólinn aðstöðu til æfinga fyrir nemendur
sína og aðstöðu til vísindastarfa fyrir kennara sína. A nú-
verandi búnaðardeild er aðstaða til æfinga engin og að-
staða til vísindastarfa mjög takmörkuð vegna þrengsla, skorts
á aðstoðarfólki og óhagræðis vegna staðsetningar deildar-
Ó. J.
ínnar.