Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1980, Blaðsíða 13
hverju, þ.e. dilkakjöt + kjöt af fullorðnu, sé álíka mikið og
framleiðsla reiknaðs dilkakjöts, þ.e. kjöt af sláturlömbum +
reiknað kjöt af ásettum lömdum, ef jafnvægi er í stærð fjár-
stofnsins. Þetta skýrist m.a. af því að meðalfallþungi fullorð-
ins sláturfjár er um 47% hærri en dilka, og að fjöldi fullorðins
sláturfjár er tæp 70% ásetningsþarfar til viðhalds stofns, sem
er í jafnvægi hvað fjölda snertir (Sveinn Hallgrímsson, 1980).
Breyting á fóðurþörf á kg kindakjöts með breytingu á afurðamagni eftir
vetrarfóðraða kind.
Fóðureyðsla á kind, hvort sem fóðrið er tekið á beit eða í húsi,
má skipta í eftirfarandi megin flokka:
Fóður til fósturmyndunar og vaxtar lamba.
Fóður til uppeldis á eðlilegu viðhaldi stofnsins.
Fóður til viðhaldsþarfa.
Fósturmyndun
Árni G. Pétursson (1976) telur að til fósturmyndunar megi
ætla sem hér segir:
Einlemban 12,0 FE
Tvílemban 18,0 FE
Þungi tvílembings við fæðingu er um 0,9 kg minni en
einlembingsins eða 3,2 kg á móti 4,1 kg. (meðaltalstölur frá
tilraunabúum RALA).
Þegar lambið fæðist hafa farið:
12,0 FE á einlembinginn sem er um 4,1 kg og
9,0 FE á tvílembinginn sem er um 3,2 kg.
Fóðurþörf til vaxtarfram að sláturtíð
Samkvæmt Breirem (1961) þarf lambið
1,4—1,8 FE á kg vaxtarauka í 1.— 3. mánuði
2,1—2,9 FE á kg vaxtarauka í 4.— 6. mánuði
3,3—3,5 FE á kg vaxtarauka í 7.— 9. mánuði
3,5 FE á kg vaxtarauka í 9.—22. mánuði.
Sé reiknað með að einlembingurinn nái 41 kg þunga og
tvílembingurinn 35 kg þunga að jafnaði og að lambið taki út
70% af þungaaukanum frá fæðingu tii hausts á fyrstu 3 mán-
15