Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1980, Blaðsíða 124
Jóhannes Sigvaldason skýrði nánar nokkra liði reikning-
anna og þá sérstaklega í sambandi við vörusöluna.
Þórarinn Lárusson ræddi um fjölbreytni í starfinu og
taldi að ekki mætti dreifa kröftunum allt of mikið.
Var nú gert matarhlé. Að því loknu bar fundarstjóri
reikningana upp til atkvæða og voru þeir samþykktir
samhljóða.
4. Nefndaskipun:
Fjárhagsnefnd: Sveinn Jónsson, Teitur Björnsson,
Grímur B. Jónsson, Stefán Skaftason, Jón Sigurðsson,
Guðmundur Steindórsson og Jón Árnason.
Allsherjarnefnd: Jóhannes Torfason, Guðmundur Þóris-
son, Eggert Ólafsson, Þórarinn Kristjánsson, Guðmundur
H. Gunnarsson, Guðbjartur Guðmundsson, Ólafur G.
Vagnsson og Þórður Sigurjónsson.
5. Jóhannes Sigvaldason gerði grein fyrir tillögum er stjórn
Ræktunarfélagsins leggur fyrir fundinn. Fjalla þær um
Hólaskóla, útgáfu fræðslurita, bókhaldsþjónustu og kaup á
tækjum til mælinga er varða súgþurrkun.
Guðmundur Þórisson beindi því til fundarins hvort Rf.
ætti ekki að sjá um útvegun á útbúnaði til dreifingar
maurasýru í vothey. Einnig ræddi hann um hvort ekki væri
rétt að fundurinn ályktaði um aukinn áróður fyrir neyslu
landbúnaðarvara.
Tillögum stjórnar vísað til nefnda og fundarstjóri beindi
því til allsherjarnefndar að taka til athugunar það sem
fram kom i máli Guðmundar.
Jóhannes Sigvaldason lagði fram fjárhagsáætlun Rækt-
unarfélags Norðurlands fyrir árið 1981.
Fjárhagsáætluninni vísað til fjárhagsnefndar.
Þórarinn Lárusson lagði fram og gerði nokkra grein fyrir
tillögu um heimaöflun. Vísað til allsherjarnefndar.
Eggert Ólafsson gerði athugasemdir við fjárhagsáætlun-
ina og þótti hækkanir nokkurra liða hennar vera miklar.
126