Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1980, Blaðsíða 89
skýra frá óuppgerðum verkefnum sem mest fyrir þeim upp-
gerðu í þeim næstu. Ný verkefni eru ekki á döfinni, einfald-
lega vegna þess að barist er og verður gegn allri hugsun um
slíkt, þar til sér fyrir endann á áðurnefndum uppgjörum. Það
skal fúslega játað að einmitt þetta er liklega það erfiðasta í
starfinu, því að þörfin á nýjum rannsóknarverkefnum blasir
alls staðar við.
Fundir, ferðalög o.fl..
Að venju sótti ég ráðunautafund B.í. og Rala í Reykjavík á
síðastliðnum vetri. Flutti ég þar erindi um heygæði og af-
urðasemi mjólkurkúa.
Þá mætti ég og flutti erindi um svipað efni á einum fundi í
Ongulsstaðahreppi í Eyjafirði og á fjórum fundum Búnaðar-
félaga í Skagafirði þ.e. í Akrahreppi, Fljótum, Hofshreppi og
Staðarhreppi síðia vetrar.
Þá mætti ég á aðalfundum búnaðarsambandanna í S,-
Þing., Eyjafirði, Skagafirði og A.-Húnavatnssýslu.
Þá var mætt á einum þrem heyverkunarfundum, einum á
Húsavík er B.I. stóð fyrir og tveim öðrum, að Hafralæk í
S.-Þing. og hinum á Blönduósi, er Ræktunarfélag Norður-
lands stóð fyrir og flutti erindi á Hafralækjarfundinum um
mikilvægi heygæða í fóðrun.
Haustið 1978 réð ég mig i heysýnatöku hjá Búnaðarsam-
böndunum í N,- og S.-Þing. í vikutíma og tók alls um 150
heysýni.
Nokkuð var um ferðalög vegna selenrannsókna og dvaldist
ég m.a. í tvo daga á sauðburði í Hriflu s.l. vor.
Þá var slegist í för með Fljótamönnum og Mývetningum í
sitt hvora bændaförina í byrjun júlí s.l. vor, en þessum
búnaðarfélögum ásamt tveim öðrum var veitt fé úr sjóði Rf.
og aðstoð til slíkra kynnisferða milli héraða.
Tókust báðar þessar ferðir með ágætum og er full ástæða til
að halda uppteknum hætti áfram.
Þá voru farnar tvær ferðir til Reykjavíkur vegna funda í
nefnd, sem getið var í síðustu starfsskýrslu, en starfssvið
91