Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1980, Blaðsíða 14
uðum vaxtartímans en 30% á 45 síðustu dögunum, þ.e. að
meðalaldur lamba við slátrun sé um 135 dagar, verður fóð-
urþörfin sem hér segir miðað við jafnan vaxtarauka á 1.—3.
mánuði og 1,6 FE að jafnaði á hvert kg vaxtarauka og 2,3 FE
á síðara tímabilinu:
Einl.: ((41,0^4,l)x0,70)xl,6 + ((41,0^-4,l)x0,30)x2,3 =
66,79 FE
Tvíl.: ((35,0-3,2)x0,70)xl,6 + ((35,0-3,2)x0,30)2,3 =
57,56 FE
Til vaxtar að sláturtíð þarf því:
einlembingurinn: 12,0 + 66,79 = 78,79 FE og
tvílembingurinn: 9,0 + 57,56 = 66,56 FE.
Miðað við að kjötprósenta tvílembinga sé 38,5 og ein-
lembinga 40,0 fást eftirfarandi tölur um FE á kg í lifandi
þunga og fallþunga lamba (til vaxtar)
Þungi kg FE á kg í þunga
á fæti fa.ll á fæti kjöts
Einlembingar................. 41 16,4 1,92 4,80
Tvílembingar................. 35 13,5 1,90 4,93
Einlembingurinn kemur með hagstæðari útkomu á kg kjöts
en tvílembingurinn, m.a. vegna hærri kjötprósentu og meiri
vaxtarhraða. Hvort rétt er að reikna með jafn mikilli fóður-
þörf á vaxtaraukann í kg lifandi þunga hjá tvílembingum eins
og einlembingum skal ósagt látið. Á það má þó benda að
samsetning vaxtaraukans er önnur hjá tvílembingum og væri
e.t.v. réttara að reikna FE-þörfina á kg vaxtarauka í kjöti, og
þá sömu þörfina hjá báðum hópum.
Auk þessa þurfa lömbin viðhaldsfóður og telur Breirem
(1961) að 20 kg lambið þurfi 0,33 FE til viðhalds. Viðhalds-
þörfin vex ekki í réttu hlutfalli við þungann, eins og áður
segir, en sé reiknað með að viðhaldsþörf einlembinganna sé að
jafnaði 0,36 FE og 0,33 FE fyrir tvílembinginn verður
viðhaldsfóðurþörfin:
Fyrir einlembinginn: 135x0,36 = 48,60 FE
Fyrir tvílembinginn: 135x0,33 = 44,55 FE
16